Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 24
24 ________________MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987_ Ekki nóg að hafa bara náttúrurödd Spjallað við aust- ur-þýska söng- kennarann Hanne-Lore Kuhse AUSTUR-þýski söngkennarinn og söngvarinn Hanne-Lore Kuh- se hefur að undanfömu verið hér á landi og m.a. haldið söngnám- skeið í Skálholti, þar sem ungum íslenskum söngvurum gafst kost- ur á að verða þekkingar hennar aðnjótandi, en Hanne-Lore Kuh- se er vel þekkt á sínu sviði. Til hennar hafa leitað margir ungir söngvarar, hvaðanæva að úr Evr- ópu, áður en þeir hafa tekið þátt í söngkeppnum, og sr. Gunnar Björnsson, sem þekkir vel til hennar, sagði hana vera nokkurs konar landsliðsþjálfara Þjóð- veija í söng. Hanne-Lore Kuhse var vel þekkt sópransöngkona áður en hún tók til við að kenna söng fyrir 12 árum síðan. Áður hafði hún sungið víðs vegar um heim; á Ítalíu, Bretlandi, Frakkalandi og Bandaríkjunum svo nokkur þau lönd séu nefnd þar sem hún kom fram. Meðal helstu hlut- verka hennar voru lafði Macbeth, Isold í Tristan og Isold, og Nætur- drottningin í Töfraflautunni. Þá hafði hún einnig mikið dálæti á hlutverkum í 11 Trovatore, Fidelio og Der Rosenkavalier. Hún hefur hlotið heiðursmerki fyrir störf sín í þágu föðurlandsins, þar á meðal einu æðstu viðurkenn- ingu Austur-Þjóðveija, Þjóðarverð- launin. í dag kennir hún söng í Weimar í Austur-Þýskalandi og þar kynntist hún hjónunum sr. Gunnari Bjömssyni og Ágústu Ágústsdótt- ur, söngkonu, en hún hefur sótt námskeið hjá frú Kuhse undanfarin 6 ár, en þau eru mjög eftirsótt. „Þið íslendingar eigið marga ykkar á meðal sem hafa góðar söng- raddir, en það er ekki bara nóg að hafa góða náttúrurödd, heldur verð- ur einnig að læra söngtækni og þjálfa hana. Söngnám er vinna, og það mikil vinna," sagði frú Kuhse í upphafí samtals blaðamanns Morgunblaðsins við hana. „Til þess að verða góður söngvari þarf hver og einn að hafa bæði góða söng- rödd frá náttúrunnar hendi og leggja hart að sér til þess að geta náð langt," bætti hún við. „Við íslendingar höfum yfírleitt sagt að það þurfi 1% hæfileika og 99% ástundun, án þess að meina nokkuð með því, því við trúum því að snillin felist að 99% í hæfileikum og að 1% í ástundun," skaut sr. Gunnar inn í og hló við. „Það þarf að kenna söngvurum hér að nota allan líkaman meira og þeir þurfa að fá aukna tilfinningu fyrir því sem þeir eru að túlka, andi og líkami em ekki eitthvað sem verður aðskilið og því þarf beiting líkamans og túlkun að fara sam- an,“ bætti frú Kuhse við. „Söngvari þarf að geta tekist jafnt á við ópem- söng sem ljóðasöng og vera fær um - að syngja óratóríur. Sá sem ekki getur haft þetta allt á valdi sínu lendir í erfíðleikum þegar kemur að því að syngja til dæmis hlutverk Morgunblaöið/Sverrir Frú Hanne-Lore Kuhse héit hér söngnámskeið i annað sinn í Skál-1 holtí, en í dag fer hún af landi brott. eins og Turan Dot eftir Puccini. „Og hafi söngvari einhveija vankanta sem sníða þarf af á það að vera hægt. Það er ekki bara nóg að syngja „vókala" heldur þurfa að koma til sérstakar æfingar fyrir hvem og einn.“ Hún sagðist hafa haft mikla ánægju af námskeiðahaldinu í Skál- holti, en það stóð yfír í eina viku. „Ég fann að nemendumir vora áhugasamir," sagði frú Kuhse, „og mér fannst óvenju margir þeirra hafa góðar raddir. Þá var aðstaðan þama í Skálholti alveg upplögð. Þama geta bæði nemendur og kennarar verið í góðu næði við sína iðju, það er ekkert sem tmflar, og þama em góðar kennslustofur og góð æfíngaaðstaða. í haust fer síðan einn íslending- ur, Guðbjöm Guðbjömsson, til náms hjá frú Kuhse. „Hann er ennþá ungur og á margt ólært, en eftir nokkurra ára tæknilega vinnu í við- bót ætti hann að verða mjög góður. Sú er hins vegar hættan að hann fari of snemma að takast á hendur erfíð hlutverk vegna þess að hann er efnilegur,“ sagði frú Kuhse og kvað það ánægjulegt að hafa þenn- an efnilega íslending meðal sinna nemenda. Að lokum vildu þau Gunnar og Ágústa þakka þeim sr. Guðmundi Óla Ólafssyni og sr. Sigurði Áma Þórðarsyni fyrir einstakan velvilja og stuðning við að koma þessu námskeiði i kring, og þeim fyrir- tækjum sem einnig lögðu sitt af mörkum. Leiðrétting vegna mynd- birtingar Vegna mistaka birtíst mynd af Þuríði Guðmundsdóttur rithöf- undi með samtali við alnöfnu hennar, Þuriði B. Guðmunds- dóttur frá Bæ í Steingrímsfirði, í blaðinu sl. sunnudag. Morgunblaðið biður hlutaðeig- endur afsökunar á mistökunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.