Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
fundarsalir eru og skrifstofur sendi-
nefnda, höfðu verið rýmdar um
helgina og lokaðar óviðkomandi
mönnum.
Hver krókur og kimi var grand-
skoðaður af erlendum öryggisvörð-
um og sprengjuleit gerð í allri
hótelbyggingunni. Um kl. 14 var
lokað á fréttamenn, þeir verða að
hér eftir að láta sér nægja upplýs-
ingar sem gefnar verða á daglegum
blaðamannafundum í Háskólabíói
og í ijölmiðlamiðstöðinni í Haga-
skóla.
Allt rifið niður
að fundi loknum
„Hér hefur verið unnið daga og
nætur undanfama viku til þess að
gera allt klárt fyrir fundinn. Við
höfum innréttað mörg herbergi svo
þau standist kröfur Atlantshafs-
bandalagsins. Allt verður þetta
síðan rifið niður í lok fundarins.
Það sem eftir stendur er aðeins
verðmæt reynsla starfsmanna hót-
elsins sem mun væntanlega nýtast
okkur ef við þurfum aftur að hýsa
svo fjölmennar ráðstefnur," sagði
Bjami Sigtryggsson aðstoðarhótel-
stjóri við blaðamann.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fréttamönnum er ekki lengur vært á Hótel Sögu, fremur en öðrum sem ekki hafa skilríki viðurkennd
af öryggisvörðum fundarins. Hér er verið að vísa sjónvarsfréttamönnum út úr anddyri hótelsins ld. 14
í gær.
Svæðið kringum Sögu girt af
meðan á fundinum stendur
Tvö hundruð fréttamenn og fjögur hundruð manns í starfsliði og sendinefndum
HÓTEL SAGA og svæðið frá
Hagatorgi norður fyrir Þjóðar-
bókhlöðuna, að Suðurgötu í
austur og Birkimel í vestur hefur
verið girt af íslenskum lögreglu-
mönnum. Vorfundur utanríkis-
ráðherra Atlantshafsbandalags-
ins verður settur I Háskólabíói
kl. 11.00 í fyrramálið. A meðan
fundurinn stendur er umferð um
þetta svæði takmörkuð við þá
sem bera skilríki viðurkennd af
gæslumönnum fundarins. Að
sögn Böðvars Bragasonar lög-
reglustjóra verður þó leitast við
að sem minnst óþægindi hljótist
af fyrir vegfarendur og er um-
ferð óheft um nærliggjandi
götur.
Sendinefndir ríkjanna fimmtán
sem hingað koma eru flestar vænt-
anlegar í dag utan breska og
danska utanríkisráðherrans, Sir
Geoffrey Howe og Uffe Eleman
Jensen sem koma ekki til landsins
fyrr en í fyrramálið.
Þótt fundurinn hefjist ekki form-
lega fyrr en á morgun hefur
Carrington lávarður, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
boðað til blaðamannafundar um
hádegisbilið í dag í Háskólabíói. Þá
heldur Davíð Oddsson borgarstjóri
móttöku fyrir meðlimi sendinefnda,
starfslið og fréttamenn á Kjarvals-
stöðum í eftirmiðdag. Á fimmtu-
dagskvöld efnir forseti íslands frú
Vigdís Finnbogadóttir til viðhafnar-
kvöldverðar að Hótel Sögu fyrir
utanríkisráðherrana og æðstu menn
•í sendineftidum þeirra.
Tiltækt lögreglulið og
hjálparsveitir við gæslu
Öflugur öryggisvörður er um
svæðið næstu sólahringa. Lögregl-
an í Reykjavfk hefur allt tiltækt lið
sem ekki er þörf á til annarra starfa
við gæslu í kringum Hagatorgið og
aðsetur sendinefndanna. Þá er að-
stoðar að vænta frá Keflavík,
Keflavíkurflugvelli, Hafnafirði,
Kópavogi, Selfossi, Akranesi og
Akureyri. Björgunarsveitir og lið
frá hjálparsveit skáta sjá um að
vakta girðingamar við Hringbraut,
Suðurgötu og Birkimel en að nætur-
lagi verður Björgunarhundasveit
íslands með eftirlit á svæðinu. Þá
er hver utanríkisráðherra með sína
öryggisverði meðferðis.
Hótelið lokað og starfs-
fólk undir eftirliti
Mikill erill var í anddyri Sögu
Þess er krafist að hver einasti starfsmaður Hótels Sögu sem gegnir skyldum sínum meðan á fundinum
stendur sé skráður og berí skilríki.
Stefán L. Stefánsson forstöðu-
maður fréttamannamiðstöðvar
fundaríns.
um hádegisbilið í gærdag. Allt
starfslið hótelsins, sendimenn og
skrifstofufólk þurfti að fá afhent
Bjarni Sigtryggsson aðstoðar-
hótelstjórí.
sín skilríki, án þeirra er hver brott-
rækur úr byggingunni. Önnur og
þriðja hæð í viðbyggingu þar sem
Hjálmar W. Hannesson sendifull-
trúi.
Bjami sagði að hvert herbergi
hótelsins væri bókað fyrir sendi-
neftidir og starfslið. Þar sem
fundurinn hefði verið boðaður með
góðum fyrirvara hlytust ekki óþæg-
indi af fyrir aðra hótelgesti. „Þetta
er mun stærra verkefni fyrir hótel-
ið en leiðtogafundurinn síðastliðið
haust. Þá var hér umferð um hótel-
ið allan sólarhringinn. Nú verðum
við í sömu stöðu og Höfði var þá,
sem fundarstaður undir öflugri ör-
yggisgæslu."
Ráðherramir þinga í sal í ný-
byggingu hótelsins á annarri hæð.
Þar hefur verið unnið hörðum hönd-
um undanfama sólahringa við að
smíða fullbúinn ráðstefnusal með
tilheyrandi básum fyrir túlka og
öðrum búnaði. Einnig þurfti að inn-
rétta sérbúna skrifstofu Carringt-
ons lávarðar, framkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins þaðan
sem hann mun sinna stjómunar-
störfum á meðan á fundinum
stendur og eiga óformlegar viðræð-
ur við einstaka ráðherra.
Hjálmar W. Hannesson sendifull-
trúi sagði að íslenskir iðnaðarmenn
hefðu leyst þessi verkefni af hendi
með stakri piýði. „Ekki fór hjá því
að erlendu sendimennimir sem hafa
verið hér til að skipuleggja verkið
hrifust af þessum vinnubrögðum.
Hér var einfaldlega unnið í striklotu
þar til verkið kláraðist. Allt efni
kom tilsniðið á staðinn og var síðan
sett upp og skrúfað saman á svip-
stundu. Sögðust útlendingamir
aldrei hafa orðið vitni að öðru eins.“
Á annarri hæð er einnig aðsetur
vinnunefndarinnar sem gerir tillögu
að sameiginlegri yfirlýsingu ráð-
herranna. I nefndinni eiga sæti tveir
fulltrúar hverrar aðildarþjóðar. Hún
starfar sleitulaust fundardagana og
er búist við að störfum hennar ljúki
ekki fyrr en seint aðfaranótt föstu-
dags, þegar fundinum verður slitið.
Á fjórða hundrað
manna í sendinefndum
Yfírstjóm fundarins, sem er í
höndum starfsmanna utanríkis-
ráðuneytisins hefur stjómstöð sína
gegnt herbergi vinnunefndarinnar
og til hliðar við fundarsal ráðher-
ranna er hljóðeinangrað herbergi
fyrir óformlegar viðræður.
Sjötíu manna alþjóðlegt starfslið
Atlantshafsbandalagsins í Briissel
kemur til landsins vegna fundarins.
Skrifstofur þess eru í herbergjum
til hliðar við fundarsalinn. í starfs-
liðinu em tveir Islendingar, Hrafn
Þórisson skjalavörður og Gunnar
Pálsson sem starfar í stjómmála-
deild.
Skrifstofur Bændahallarinnar á
þriðju hæð hafa verið rýmdar. Þar
hafa sendinefndirnar sextán skrif-
stofur auk formanns hermálanefnd-
ar NATO. Um þijú hundruð manna
fylgir ráðherrunum. Stærstar em
sendinefndir Breta og Bandaríkja-
manna. Bandaríska sendinefndin
býr á Hótel Loftleiðum og Hótel
Esju, sú breska á Hótel Holti.
Danska, franska og norska nefndin
verða á Hótel Óðinsvéum en tíu
nefndanna em búsettar á Hótel
Sögu.
Tæknilegft umfang líkt
og á leiðtogafundinum
Hátt í tvö hundmð erlendir
fréttamenn em væntanlegir tii
landsins vegna fundarins. Eins og
á fundi Gorbachevs og Reagans í
október hafa þeir aðstöðu í Haga-
skóla. Stefán L. Stefánsson sem
veitir flölmiðlamiðstöðinni forstöðu
sagði að tæknilegt umfang þessa
fundar væri ekki minna en leið-
togafundarins. Fréttamennimir
hafa aðgang að símum, fjarritum,
fjarljósritum og búnaði til beinna
útvarps og sjónvarpssendinga. Þá
er í skólanum kapalsjónvarp sem
sendir út frá blaðamannafundum í
Háskólabíói á miðvikudag, fimmtu-
dag og föstudag.
„Við skipulagninguna höfum við
gengið út frá öðmm forsendum en
á leiðtogafundinum í haust. Fund-
urinn er minni umfangs og þeir
blaðamenn sem hingað koma færri
og sérhæfðari. Boðið er upp á kynn-
isferðir og landkynningu en hún er
af þessum orsökum minni í sniðum
en þá,“ sagði Stefán.
Vorfundur utanríkisráðherra NATO