Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 Umræður um meðaldrægar flaugar: Málamyndakröfur Bandaríkjanna helsta fyrirstaða samninga Karpov á beinni línu hjá BBC AP Leiðtogar sjö heistu iðnríkja heims funda nu i Feneyjum. Á myndinni eru Yasuhiro Nakasone, forsætis- ráðherra Japans, Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, Amintore Fanfani, forsætisráðherra Italiu, Francois Mitterrand, forseti Frakklands, og Heimut Kohl, kanslari VestuísÞýskalands. Forsætisráðherra Kanada, Brian Mulroney, vantar á myndina. Lundúnum, Reuter. VIKTOR Karpov, aðalsamninga- maður Sovétmanna i afvopnun- armálum, kom um helgina fram í aiþjóðlegri útvarpssendingu BBC. Þótti hann leika á als oddi, en útvarpshlustendum gafst kostur á að hringja til útvarps- stöðvarinnar og leggja fyrir hann spurningar. Svaraði hann spumingum um allt milli himins og jarðar; frá afvopnunarmálum til flugs Mathiasar Rust til Moskvu. Til útvarpsþáttarins, sem nefnist „It’s Your World" eða Þetta er þinn heimur, bárust um 250 símhring- Leiðtogafundurinn í Feneyjum: Bandaríkjamenn fá stuðning á Persaflóa Harðari aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum Feneyjum, Reuter. LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims hvöttu í gær til þess að endi vrði bundinn á styrjöldina milli Irana og íraka og kváðust ætla að leggja sitt af mörkum til að halda siglingaleiðum á Persa- flóa opnum. Leiðtogamir lýstu einnig yfir því að þeir væri hlynntir afvopnunar- viðræðum risaveldanna og hétu því fyrsta sinni að láta ekki undan hryðjuverkamönnum. „Brýn þörf er á alþjóðlegum að- gerðum til að stöðva styijöld írana og íraka," sagði í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna, sem Amintore Fanfani, forsætisráð- herra Ítalíu, las. Forystumenn Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Vest- ur-Þýskalands, Kanada og Japan gáfu yfírlýsinguna út eftir fyrstu formlegu viðræðumar á leiðtoga- fundinum, sem haldinn er á eynni San Giorgo í Feneyjum. í yfírlýsingunni er skorað á írani og íraka að setjast niður við samn- ingaborðið og ljúka styijöldinni, sem staðið hefur í sjö ár. Einnig er þar skorað á Sameinuðu þjóðim- ar að binda enda á átökin. Fyrir fundinn, sem hófst á mánu- dag, var greint frá því að Banda- ríkjamenn kjmnu _að gera árás að fyrra bragði ef íranir settu upp flaugar til að granda skipum á Persaflóa og vaknaði ótti um að átök milli Bandaríkjamanna og ír- ana væru í uppsiglingu. Leiðtogamir sjö skuldbundu sig til að ráðfæra sig hver við annan um það hvemig tryggja ætti óhindr- aðar skipaferðir á flóanum: „Frelsi til siglinga á Persaflóa er okkur gríðarlega mikilvægt og það verður að tryggja." Leiðtogamir gengu þó ekki svo langt að skuldbinda sig til að veita Bandaríkjamönnum hem- aðarlegan stuðning ef til átaka kæmi á Persaflóa. Öryggisviðbúnaður á fundinum jókst töluvert eftir að sprengjur sprungu við sendiráð Bandaríkja- manna og Breta í Róm í gærmorg- un. Engan sakaði í sprengingunum, sem talsmaður lögreglu sagði að mætti örugglega tengja leiðtoga- fundinum. Samtök, sem nefna sig „Alþjóðasveitir gegn heimsvalda- stefnu", lýstu yfír ábyrgð sinni á sprengingunum. Leiðtogamir skoruðu á Sovét- menn að kveðja herafla sinn brott frá Afganistan og virða mannrétt- indi, en fögnuðu einnig stefnu Mikhaiis Gorbachevs, leiðtoga Sov- étríkjanna, um opnari fjölmiðlun og endurbætur í efhahagsmálum. Leiðtogamir fögnuðu þvf að góð- ar horfur væru á afvopnunarsamn- ingi, sem gæti leitt til þess að öil kjamorkuvopn risaveldanna í Evr- ópu, nema þau minnstu, yrðu íjarlægð. Þess var krafist að efna- vopn yrðu bönnuð og samið yrði um að fækka í hefðbundnum her- afla. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í sjónvarps- viðtali áður en yfírlýsingin var lesin að undirbúningur undir nýjan leið- togafund Bandaríkjamanna og Sovétmanna gengi „nokkuð vel“. Ráðherrann vildi þó ekki nefna dag- setningu í þessu sambandi. Á leiðtogafundinum var brotið blað í baráttunni gegn hryðjuverk- um. I fyrsta skiptu lýstu leiðtogam- ir sjö yfír því að ekki yrði látið undan kröfum hryðjuverkamanna eða fulltingismanna þeirra. „Hver sem tilgangurinn er — ekkert rétt- lætir hryðjuverk. Við staðfestum hér skuldbindingu hvers okkar til að virða þá meginreglu að láta ekki undan kröfum hryðjuverkamanna." ingar, en þar af var ellefu beint áfram til Karpovs, sem sat í Kreml og svaraði spumingunum um gervi- hnött. Sagði hann m.a. að samkomulag milli stórveldanna um meðaldrægar flaugar kynni að vera á næsta leiti, ef Bandaríkjamenn féllu frá nokkr- um málamyndakröfum sínum. Sem dæmi um þessar fyrirstöður Banda- ríkjamanna taldi Karpov vera hugmyndir þeirra um að breyta meðaldrægum flaugum sínum í Evrópu í skammdrægar. Þetta taldi Kaipov vera óaðgengilegt þar sem auðvelt væri að breyta þeim aftur og tæki innan við 48 klukkustundir. Karpov sagðist ekki eingöngu vonast til þess að afvopnun yrði á sviði kjamorkuvopna í Evrópu — markmiðið hlyti einnig að vera af- vopnun þar sem eru hefðbundin vopn, því tilgangurinn væri vita- skuld að fyrirbyggja friðrof í Evrópu. Einnig var rætt um eftirlit með því að samningar væru haldnir og sagði Karpov að slíkt eftirlit ætti einnig að eiga við hugsanlegt bann á efnavopnum. Hann bætti við að Sovétríkin hefðu fallist á fyrirvara- laust eftirlit, en það fellst í því að hvor aðili um sig getur gert kröfu um að fá að skoða tiltekna staði, telji hann að ekki sé þar all með felldu og samkvæmt samningi. „Ríkin ættu ekki að hafa rétt á að hafna slíku eftirliti", sagði Karpov og sagði jafnframt að nú væru ræddar aðrar leiðir til vígbúnaða- reftirlits. Viktor Karpov er formaður Af- vopnunarráðs sovéska utanrikis- ráðuneytisins og hefur tekið beinan þátt í vígbúnaðarsamningum stór- veldanna undanfarin 20 ár. Kosningarnar í Bretlandi: íhaldsflokkurinn lík- legur sigurvegari St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðarí Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Kosningabarátta íhaldsflokks- héit á fund iðnríkjanna í Feneyj- ins náði ekki verulegum krafti fyrr en um síðustu helgi, en gekk heldur böksulega f vikunni á undan. Flokkurinn heldur þó stöðugu forskoti á Verkamanna- flokkinn i skoðanakönnunum, og fátt virðist nú geta komið í veg fyrir sigur hans. Kosningamálin síðustu daga hafa verið skatta- málastefna Verkamannaflokks- ins, stefna íhaldsflokksins i heilbrigðismálum, húsnæðismál og kostir og óskostir forsætisráð- herrans. Frú Margaret Thatcher um á mánudag og kom aftur i kosningabaráttuna i gær. Eins og fram kom í frétt Morgun- blaðsins i síðustu viku, voru niður- stöður skoðanakannana þá í fyrsta skipti á þann veg, að raunverulegur möguleiki virtist á því, að enginn flokkur fengi hreinan meirihiuta í neðri málstofu þingsins. Skoðana- kannanir, sem birtust um siðustu helgi sýndu forystu íhaldsflokksins frá sjö og upp í ellefu prósent. Bretland: Flugsamgöngur í eðlilegt horf London, Reuter, BREZKIR flugumferðarstjórar hættu í gær sólarhrings verk- falli, en tollverðir og ýsmar stéttir opinberra starfsmanna héldu áfram aðgerðum i gær til að leggja áherzlu á launakröfur sinar. Veruleg röskun varð á flugi í fyrradag af völdum verkfalls flug- umferðarstjóra en búist var við að það yrði með eðlilegum hætti í gær. Vegna aðgerða tollvarða varð mikil töf á feijusamgöngum yfír Ermasundið og mynduðust langar biðraðir farartækja í höfnum beggja vegna sundsins. Aðgerðimar voru skipulagðar rétt fyrir þingkosningar til að ná meiri athygli. Ríkisstjómin hefur boðið viðkomandi starfsstéttum 4,5% launahækkun en stéttarfélög þeirra krefjast 15% hækkunar. Meðaltal skoðanakannana í síðast- liðinni viku var það sama og í vikunni áður. íhaldsflokkurinn 43%, Verkamannaflokkurinn 34% og Bandalag fijálslyndra og jafnaðar- manna 21%. Einungis í einni könnun minnkaði forysta íhalds- flokksins niður í fjögur prósent í síðastliðinni viku. í þeim kjördæm- um, þar sem forskot íhaldsflokksins var minnst í síðustu kosningum, heldur flokkurinn sínu nokkum veginn, þótt fylgi hans hafi minnk- að í kjördæmum, þar sem Verka- mannaflokkurinn var í öðru sæti. í Miðlöndunum, í kjördæmum í Birm- ingham og Wolverhampton, þar sem úrslitin ráðast í þessum kosn- ingum, hefur Verkamannaflokkur- inn ekki unnið nógu mikið á til að geta talist sigurstranglegur. Tvenns ber þó að gæta: í kosningunum 1970 og báðum kosningunum 1974 unnu stjómarandstöðuflokkamir upp álíka mikið forskot á síðustu dögum kosningabaráttunnar. Bandalagið gæti tekið sterklega við sér eins og fyrir fjórum árum. Alla síðustu viku voru forystu- menn íhaldsflokksins að veija gerðir sínar og náðu aldrei frum- kvæðinu í kosningabaráttunni, enda snerist hún mest um kosningamál Verkamannaflokksins. Um síðast- liðna helgi náðu íhaldsmenn aftur að beina athygli kjósenda að stefnu Verkamannaflokksins í skattamál- um, en hann hefur skuldbundið sig Neil Kinnock til að hækka ekki skatta og auka útgjöld, en um leið lýst því yfír, að allir, sem hefðu minni tekjur en 500 pund (um 120.000 ísl. kr.) á mán- uði, yrðu jafn-vel settir undir stjóm Verkamannaflokksins og íhalds- flokksins. Það er ekki ljóst, hvemig flokkurinn ætlar að fara að þessu, og þvi hittu íhaldsmenn á veikan blett, þegar þeir tóku upp þetta mál. í síðustu viku sagði forsætis- ráðherrann, að hún notaði sjúkra- hús í einkaeigu til að leita lækninga. Forystumenn Verkamannaflokks- ins telja, að þetta séu reginmistök og hafa notað sér orð forsætisráð- herra í gær og fyrradag. Forsætis- ráðherra hefur svarað því til, að hún hafí ekki lengt biðlista á ríkis- sjúkrahúsum, hún greiddi sitt framlag til ríkissjúkrahúsanna og stjóm ríkisins gæti ekki verið háð biðlistum sjúkrahúsa. The Times birti skoðanakönnun á mánudag í kjördæmum, þar sem mjóst var á mununum á milli Verka-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.