Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
33
Bretland:
Læknir sigraði
í „Meistaranum“
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
DOKTOR Jeremy Bradbrook,
læknir í Wilt-skíri sigraði i spurn-
ingaþættinum „Meistarinn"
(Mastermind) sl. sunnudag.
Meistarinn er virðulegasti spurn-
ingaþátturinn í bresku sjónvarpi.
Þátturinn lýtur stjórn Magnúsar
Magnússonar og hefur svo verið
frá upphafi, en þetta var 15. árið
sem spurningaþátturinn fer
fram í BBC.
í Meistaranum er keppt í tveimur
umferðum. í hinni fyrri svara kepp-
endur spumingum um sérsvið, sem
þeir hafa sjálfir valið, en í hinni
seinni eru spumingamar almennar.
Þeir hafa tvær mínútur í hvorri
umferð til að svara eins mörgum
spumingum og þeir mögulega geta.
Dr. Bradbrook svaraði 33 spuming-
um rétt í báðum umferðum og var
tveimur stigum á undan næsta
keppanda. Hann valdi sér
Krímstríðið sem sérsvið.
Meistarinn er mjög vinsæll sjón-
varpsþáttur og ber af öðmm
spumingaþáttum í bresku sjón-
20 nýir millj-
ónamæringar
Sacramento, Reuter.
TUTTUGU manns hafa orðið
milljónamæringar í Kalifomíu á
síðustu sjö vikum. Ástæðan er
að allir þessir tuttugu hafa spilað
i ríkishappdrætti Kaliforníu og
að sögn er vinningaregnið upp á
síðkastið algert met. Þetta happ-
drætti hóf göngu sína fyrir
tæpum tveimur árum.
V
Margaret Thatcher
varpi. Stundum heyrist í menning-
arstólpum, sem halda því fram, að
Meistarinn valdi því, að almenning-
ur misskilji, hvað skynsamleg
hugsun sé. En sjónvarpsáhorfendur
kæra sig kollótta og skemmta sér
vel. Þeir vita, að skysamleg hugsun
hefur aldrei komið þessu máli mikið
við, heldur traust minni og fæmi
við að kalla þekkingaratriði fram í
hugann eins fljótt og kostur er.
Jóhannes Páll páfi biður fyrir fómarlömbum útrýmingarherferðar
nazista i Majdanek-búðunum í Póllandi.
Pólland:
„Öll mannréttindabrot
eru ógnun við friðinn“
- sagði Jóhannes Páll páfi við komu sína til landsins
London, Varsjá, Lublin, Reuter.
ÞRIÐJA heimsókn Jóhannesar
Páls páfa annars til Póllands,
eftir að hann tók við embætti,
hófst í Varsjá á mánudaginn.
Mörg hundmð þúsund manns
höfðu safnast saman við leið
páfa frá flugvellinum inn í borg-
ina og héldu sumir á spjöldum
með merki Samstöðu, hinna
bönnuðu verkalýðssamtaka, og
hrópuðu vígorð samtakanna.
Páfi mun dveljast í viku í Pól-
landi. Wojciech Jaruzelski, leiðtogi
landsins, og Josef Glemp, kardínáli,
tóku á móti páfa á flugvellinum og
var ræðu páfa til landa sinna sjón-
varpað beint. Hann ræddi um gleði
og sorgir þjóðarinnar á umliðnum
tímum og hvatti til þess að trú-
frelsi og tjáningarfrelsi yrðu höfð í
heiðri.
I svarræðu sinni varði Jaruzelski
42 ára yfírráð kommúnista í landinu
og sagði þau hafa fært þjóðinni
„raunverulegt, þjóðfélagslegt rétt-
íæti.“
I gær baðst páfi fyrir í borginni
Lublin hjá jarðneskum leifum fóm-
arlamba nazista úr Majdanek-
fangabúðunum, sem voru í útjaðri
borgarinnar. Sjö hundruð fyrrver-
andi fangar úr búðunum höfðu
raðað sér upp meðfram leið páfa
inn í búðimar. Að bæn sinni lokinni
faðmaði pafi að sér konu sem lifði
af dvöl í Majdanek- og Auschwitz-
fangabúðunum.
Mexicoborg
fjölmenn-
ust um alda-
Síðar heimsótti páfi Kaþólska
háskólann í Lublin þar sem hann
var gestaprófessor í mörg ár. Há-
skólinn er ekki undir sijóm ríkis-
valdsins og er að því leyti einstakur
í sinni röð í kommúnistaríkjunum.
46 pólskir háskólamenn, hag-
fræðingar, guðfræðingar og leið-
togar Samstöðu, þ.á.m. Lech
Walesa, hafa í tilefni af komu páfa
undirritað yfirlýsingu sem birtist í
enskri þýðingu í breska blaðinu The
Times í gær. Þar er gagnrýnt það
sem nefnt er „stöðugir árekstrar
milli yfirvalda og mikils hluta al-
mennings" og bætt við að fátækt,
skortur á trausti og hræðsla væm
útbreidd meðal þjóðarinnar.
I yfirlýsingunni segir einnig að
algjört sjálfstæði þjóðarinnar, jafn-
rétti allra þegnanna gagnvart
lögunum, málfrelsi og rýmkun á
leyfum til að reka einkafyrirtæki
væm þau skilyrði sem yrði að upp-
fylla til að ástandið í landinu yrði
eðlilegt.
Flísar
flísaefni
verkfæri
Komið í sýningarsal okkar
og skoðið möguleikana á
notkun Höganás flísa í húsið.
Veljið síðan
Höganas
fyrirmynd
annarraflísa
= HÉÐINN n
SEUAVEGÍ 2, REYKJAVÍK
WÍUKENS
BSF
■
mannaflokksins og íhaldsflokksins.
Bendir könnunin til þess, að Verka-
mannaflokkurinn sé enn að bæta
stöðu sína. Spá á gmndvelli þeirrar
könnunar um fjölda þingsæta segir,
að íhaldsflokkurinn muni halda
meirihlutanum, en hann verði ekki
nema milli 30 og 40 þingsæti. í
The Guardian í gær birtist skoðana-
könnun, sem gaf íhaldsflokknum
13% meirihluta, og niðurstöður
kosninga í samræmi við hana gæfu
flokknum 132 sæta meirihluta í
neðri málstofu breska þingsins.
Þessa síðustu daga kosningabar-
áttunnar hefur Thatcher beitt sér
af fullum krafti, og komið fram í
sjónvarpi og útvarpi. Fyrir fjómm
árum beitti hún sömu aðferð og
hafði sig lítið í frammi í fjölmiðlum
fram á síðustu daga kosningabar-
áttunnar. Talið er, að vera hennar
á leiðtogafundinum í Feneyjum
muni styrkja stöðu hennar meðal
kjósenda.
mótin
S.þ. Reuter
TVEIR milljarðar manna búa nú
í þéttbýliskjörnum og innan tutt-
ugu og fimm ára er þvi spáð að
helmingur jarðarbúa verði bú-
settur í þéttbýli. Kemur þetta
fram í skýrslu sem Sameinuðu
þjóðimar birtu um helgina. Þar
segir að 99 staðir í heiminum
hafi meira en tvær milljónir íbúa
og í 12 borgum séu meira en 10
milljón ibúa.
Tókíó-Jókóhama hefur nú flesta
íbúa allra borga, eða 18.8 milljónir
og næst kemur Mexicoborg með
17.3 milljónir. Tekið er fram í
skýrslunni, að borgin í Þriðja heim-
inum þenjist hraðar út en í iðn-
væddum samfélögum. Árið 2000
er því spáð að Mexicoborg verði
fjölmennasta borg í heimi með 25.8
ibúa og næst verði Sao Paulo í
Brasilíu með 24 milljónir. í næsta
mánuði er reiknað með að 5. millj-
arðasti íbúi jarðar líti dagsins ljós.
SS
'■ -1 .
UÐIN
LAUGAVEG 55 SÍMI 11066
SÉRVERSLUN MEÐ BORÐBÚNAÐ129 ÁR