Morgunblaðið - 10.06.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
Suðurlandsbraut 4, Slmi 33331 og Nethyl 2, Ártúnsholti, Sfmi 671440
Flymo
íslendingar og Kínverjar
geta lært hvonr aföðrum
- segir kínverski ráðherrann Zhu Xun
„TILGANGUR ferðar okkar til íslands er annarsvegar að athuga
möguleika á samvinnu íslendinga og Kinveija á sviði jarðvísinda og
jarðhita en einnig að stuðia að vináttu milli þjóðanna tveggja", sagði
Zhu Xun, ráðherra jarðfræði og jarðauðlinda, sem hér var staddur
á dögunum ásamt sendinefnd frá Kínverska alþýðulýðveldinu, i sam-
tali við Morgunblaðið.
„Ég tel að við höfum náð tölu-
verðum árangri það sem af er
ferðinni. Ég hef hitt að máli
Steingrím Hermannsson, forsætis-
ráðherra, Þorstein Pálsson, iðnað-
ar- og fjármálaráðherra og
Matthías Á Mathiesen, utanríkis-
ráðherra. Aðrir úr sendinefndinni
hafa síðan rætt við embættismenn
úr iðnaðarráðuneytinu og frá Orku-
stofnun.
Við höfum skoðað ýmis fyrir-
tæki, m.a. Hitaveitu Reykjavíkur,
Álafoss, Landsvirkjun og Granda
hf. Móttökumar sem við höfum
fengið hafa allsstaðar verið hlýlegar
og ber það vott vináttu íslendinga
í garð Kínveija. Það má segja að
með þessari heimsókn okkar hafí
þjóðimar kynnst betur og vinátta
okkar á milli aukist.
Meðal þess árangurs sem hefur
náðst er að báðir aðilar hafa látið
í ljós áhuga á að vísindamenn frá
íslandi heimsækji Kína og
kínverskir vísindamenn heimsæki
ísland svo að þeir geti skipst á skoð-
unum og lært hvor af öðrum.
í Kína em til staðar miklar jarð-
hitaauðlindir. Við höfum fundið
jarðhita í suðausturhluta Kína,
Tíbet og í Norður-Kína. Nú þegar
höfum við samvinnu við íslendinga,
m.a. í Tíbet, við jarðhitaleitun, bor-
anir og stjómun.
Þrátt fyrir að þjóðir okkar séu
um margt ólíkar em skilyrði til stað-
ar til þess að auka samstarf á milli
þeirra. Okkar land er enn í þróun,
og þrátt fyrir að við höfum náð
miklum árangri þá verðum við að
halda áfram. Þess vegna framfylgir
ríkisstjóm okkar „opnunarstefnu"
í samvinnu við önnur ríki. Það er
ómögulegt fyrir eitt land að ætla
sér að framleiða allt sem það þarf.
Þess vegna þar að hefja og auka
samskipti og samstarf við önnur
ríki, skiptast á vömm og vísinda-
legri rejmslu og tækni. _
Bæði Kínveijar og íslendingar
þurfa að auka samstarf sín á milli
og hafa báðir aðilar látið í ljós vilja
til þess. Við þurfum t.d. að auka
samvinnu á sviði jarðvísinda. ís-
lendingar hafa mikla þekkingu og
reynslu á þessu sviði sem við getum
notið góðs af en í Kína em líka
margir sérfræðingar á þessu sviði
sem hafa mikla reynslu af rann-
sóknum á t.d. eldgosum og eldfjöll-
um. Jarðskjálftar em líka mjög tíðir
í Kína og við höfum marga sérfræð-
inga sem stunda rannsóknir á þeim
og reyna að spá fyrir um þá. Við
höfum því mikla möguleika á því
að starfa saman að jarðvísindum.
Viðskipti ríkjanna er líka hægt að
þróa frekar“.
Þegar Zhu Xun var spurður út í
þær breytingar sem nú ættu sér
stað í kínversku þjóðfélagi og hvert
takmarkið væri með þeim sagði
hann lokatakmarkið vera að byggja
upp Kfna sem nútíma sósíalískt ríki
í samræmi við kínverskar aðstæð-
ur. Háþróaður efnahagur og
lýðræði á háu stigi væm samofín
því markmiði.
„í lok þessarar aldar er ætlun
okkar að vera búin að tvöfalda
framleiðsluverðmæti iðnaðar og
landbúnaðar ef miðað er við árið
1980, þ.e. að framleiðslan nemi 800
bandaríkjadollurum á mann. 800
dollarar er ekki há tala en við verð-
um að hafa í huga að íbúafjöldi
Kína er einn milljarður og gæti
Morgunblaðið/Einar Falur
Zhu Xun, jarðfræði- og jarðauð-
iindaráðherra Kína.
verið orðinn 1,2 milljarðar um alda-
mótin. Heildartalan er því mjög há.
Næsta takmark er að árið 2050
verði framleiðslan orðin um 4-5000
dollarar á mann. Ef við náum þessu
takmarki emm við orðin jaftifeta
ríkjum í miðjum þróunarstiganum.
Opnunarstefnan hefur fyrst og
fremst leyst það vandamál að fæða
þjóðina og efnahagurinn hefur
styrkst stöðugt. Hagvöxtur hefur
verið um 7-9% síðustu árin og ef
hann heldur áfram með þessum
hraða er jafnvel von til þess að við
náum markmiðum okkar fyrr en
stefnt er að. Við emm nú fjórði
stærsti framleiðandi stáls í veröld-
inni, fímmti mesti framleiðandi olíu
og stærsti framleiðandi kols.
Við höfum náð talsverðum ár-
angri í uppbyggingu borga, í t.d.
Beijing og Kanton er mikið af ný-
byggingum. Þeir sem hafa komið
nokkmm sinnum til Kína fínna
mjög greinilega fyrir breytingunum
og að lífskjörin hafa batnað bæði í
borg og sveit", sagði Zhu Xun að
lokum.
Þorsteinn Pálsson, iðnaðarráðherra, og Zhu Xun, jarðfræði- og jarðauðlindaráðherra Kína, undirrita
minnisblaðið.
Samstarf um jarðhita-
vinnslu verði aukið
SENDINEFND frá Kinverska
alþýðulýðveldinu undir forystu
hr. Zhu Xun, ráðherra jarðfræði
og jarðauðlinda, dvaldi hér á
landi dagana 1,—8. júní sl. í för
með ráðherranum voru m.a.
varalandstjóri sjálfsstjórnar-
svæðisins Xizang (Tíbet), hr.
Jiang Cuo, og sendiherra Kína á
íslandi, hr. Chen Luzhi. Sendi-
nefndin átti viðræður við opin-
bera aðila og fulitrúa nokkurra
fyrirtækja um möguleika á sam-
starfi íslenzkra og kínverskra
aðila á sviði orkumála. Þá heim-
sótti kinverski ráðherrann og
fylgdarlið hans helztu jarðvís-
indastofnanir hér á landi,
skoðuðu orkumannvirki og
kynntu sér jarðhitamál.
í lok heimsóknarinnar undirrit-
uðu Þorsteinn Pálsson, iðnaðarráð-
herra, og Zhu Xun, ráðherra
jarðfræði og jarðauðlinda, sérstakt
minnisblað þar sem eftirfarandi at-
riði vom staðfest:
1. Með vísun til núverandi sam-
starfs íslenzkra og kínverskra aðila
á sviði jarðvísinda og jarðhitamála
lýstu báðir aðilar yfir ákvörðun um
að auka samstarfið.
2. Báðir aðilar munu greiða fyrir
auknum gagnkvæmum heimsókn-
um jarðvísindamanna.
3. Ákveðið var að taka upp sam-
starf við jarðhitaleit og nýtingu
jarðhita á nýju svæði í Kína, þ.e.
Xiong Xian.
4. Almennt samstarf kínverskra
og íslenzkra aðila á sviði jarðvísinda
og jarðhitamála verði aukið, m.a.
með hugsanlegri stofnun sérstaks
samvinnufyrirtækis í Kína.
Heimsókn kínverska ráðherrans
nú var í framhaldi af heimsókn
sendinefndar iðnaðarráðuneytisins
til Kína 5.-26. júní 1986. í Xizang
(Tíbet) var gengið frá samkomulagi
sem síðar var samþykkt af ríkis-
stjóm íslands og ríkisstjóm sjálfs-
stjómarsvæðisins Xizang (Tíbet) og
voru eftirfarandi atriði rædd sér-
staklega:
Að sendinefnd frá Xizang (Tíbet)
heimsækti ísland.
Að kínverskir jarðhitavísinda-
menn heimsæki islenzkar stofnanir.
Að fleiri kfnverskir nemendur
komi til þjálfunar í Jarðhitaskóla
SÞ á íslandi.
Að íslendingar taki að sér sérstök
rannsóknarverkefni og áætlana-
gerð við jarðhitavirkjun í Kína.
(Frá iðnadarráðuneytínu)