Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
8
Grenivík:
Miklar framkvæmdir 1
gatnagerð framundan
Rætt við Sigríði Sverrisdóttur, oddvita í Grýtubakkahreppi
Grenivik.
í GRENIVÍK við Eyjafjörð búa
um 300 manns, en í Grýtubakka-
hreppi alls 430. Oddviti Grýtu-
bakkahrepps er Sigríður
Sverrisdóttir frá Lómatjörn.
Fréttaritari Morgunblaðsins hitti
hana að máli og bað hana að
segja frá f ramkvæmdum í
hreppnum, atvinnumálum og
fleiru.
Sigríður sagði að framkvæmdum
við gatnagerð á Grenivík yrði fram
haldið nú í sumar. Unnið væri að
malbikun í þremur áföngum. Skipt
verður um jarðveg og fyrirhugað
er að ljúka malbikun næsta sumar.
Fyrsta áfanga malbikunar var lokið
sumarið 1984.
„Unnið er að undirbúningi sund-
laugarbyggingar við nýja skólahús-
ið og standa viðræður yfír við
Orkustofnun um vatnsöflun. Vonast
er til að einhverjar framkvæmdir
geti hafíst í síðasta lagi á næsta
ári. Sundlaug hreppsins sem vígð
var árið 1944 er orðin mjög hættu-
leg bömum og öll aðstaða við hana
orðin léleg. Þá er skólabyggingin
ofarlega á dagskrá hjá okkur. Við
stefnum að því að hún verði að
fullu kláruð að utan sem innan eins
fljótt og unnt er, en í nýja skólanum
hefur verið kennt í sex undanfama
vetur."
—Verða einhverjar fram-
kvæmdir við höfnina í ár?
„Nei, en næsta verkefni við höfn-
ina hér á Grenivík er uppsetning
nýs 50 metra stálþils. Er það fram-
hald af því stálþili sem sett var upp
fyrir nokkrum árum.“
—Hvað með byggingar íbúðar-
húsa?
„Byggingaframkvæmdir hér á
staðnum hafa verið í mikilli lægð
undanfarín ár. Hér hefur ekki verið
byrjað á byggingu íbúðarhúss síðan
á árinu 1981 og hefur fólksfækkun
orðið nokkur. Þetta hefur valdið
okkur miklum áhyggjum en rekja
má fólksfækkunina til minnkandi
atvinnu. Kvótakerfíð setti mjög
mikið strik í reikninginn þar sem
minni afli barst á land, en nú bind-
um við vonir við fískmarkað sem
stofnaður hefur verið á Akureyri.
ræktur leikskóli en rétt er að
bameignum hefur fækkað það mik-
ið að hann er aðeins starfræktur
hálfan daginn og má til dæmis
nefna að aðeins eitt bam hefur
fæðst á Grenivík það sem af er
árinu 1987, en vonandi stendur
þetta allt til bóta.“
—Hvemig hagar til með um-
hverfismálin og hvað með
vegaframkvæmdir frá Akureyri
til Grenivíkur?
„Á seinni árum hefur vaknað
mjög mikill áhugi á umhverfísmál-
um hér í Grýtubakkahreppi. Má það
rekja til malbikunarframkvæmda,
sem átt hafa sér stað í hreppnum.
Áhugi hefur vaknað á gróðursetn-
ingu í görðum húsa og einnig hefur
kvenfélagið Hlín staðið fyrir gróð-
ursetningu trjáplantna. Margar
lóðir eru til fyrirmyndar hvað snyrt-
ingu varðar.
Pramkvæmdir í vegamálum milli
Akureyrar og Grenivíkur standa nú
yfír. Verið er að leggja 15 km lang-
ann kafla með bundnu slitlagi og
við lagningu Leiruvegar hefur leiðin
milli Akureyrar og Grenivíkur styst
um 7 km. Er nú 40 km leið milli
staðanna. Fyrir byggðalagið er
þetta mikil bylting í samgöngumál-
um.“
Sigríður sagði í lokin að þó at-
Morgunblaðið/Vigdís
Jóhann Stefánsson leggnr að
bryggju á bát sínum, Gunnari,
Grenivík í baksýn.
Frystihúsið Kaldbakur á 185 tonna
skip, sem það gerir út. Það hefur
aðallega verið á línu og netaveiðum.
Tveir stærri bátar, Frosti sem er
130 tonna yfírbyggður bátur, og
Sjöfn 63ja tonna, eru gerðir út héð-
an en eru nú á rækjuveiðum.
Nokkur smábátaútgerð er hér á
Grenivík og hafa smábátar aðallega
verið á grásleppuveiðum, sem geng-
ið hafa mjög vel.“
Sigríður sagði að tvö fyrirtæki
hefðu verið stofnuð á tveimur und-
anfömum árum. Annað þeirra,
Vélsmiðjan Vík, var sett á stofn
fyrir um það bil ári. „Við bindum
miklar vonir við hana og eru starfs-
menn þar þrír. Leðurvinnslan Marin
var stofnuð fyrir um það bil tveim-
ur árum og framleiðir aðallega belti
og töskur. Þar voru byijunarörðug-
leikar, en vonumst við nú til að
þeir erfíðleikar verði yfírstíganlegir
þar.nig að við megum sjá það fyrir-
tæki blómgast."
—Hvað með heilbrigðismál í
hreppnum?
„Fyrir rúmu ári réðist til starfa
við heilsugæslustöðina hjúkrunar-
fræðingur, Sesselja Bjamadóttir frá
'***‘y-' ' :<■£>?' ... , . : :
fe r"
Nýi skólinn, sem jafnframt er félagsheimili og á sumrin er fyrir-
hugað að þar verði gististaður fyrir ferðamenn.
Svalbarðsströnd, og er hún búsett
hér með sýna ijölskyldu. Er það
mikið öryggi fyrir íbúa hreppsins.
Læknir frá Akureyri kemur svo tvo
daga í viku. Heimahjúkrun hefur
verið starfrækt síðan Sesselja kom
og einnig er starfandi kona á vegum
hreppsins sem sér um heimilishjálp
fyrir aldraða. Gerðar hafa verið
miklar endurbætur á heilsugæslu-
stöðinni í vetur."
—Nú virðist börnum fækka í
hreppnum - hvað um dagvistar-
mál?
„Á vegum hreppsins er starf-
Bíl stolið við
Ráðhústorg
BIFREIÐ af gerðinni Volkswagen
Golf árgerð 1982 var stolið að-
faranótt sunnudagsins í Brekku-
götu við Ráðhústorg á Akureyri.
Eigandi bifreiðarinnar fann bílinn
sinn aftur á sunnudaginn á bflastæði
Leikfélags Akureyrar við Hafnar-
stræti. Rannsóknarlögreglan rann-
sakar nú bflstuldinn, en eigandinn
vill heita 10.000 krónum á hvem
þann sem getur gefíð vísbendingu
um málið svo hægt sé að leiða það
til lykta.
Bfllinn var í óökufæru ástandi er
hann fannst. Framfelga var beygluð
og hjólafestingar skemmdar. Talið
er að bflnum hafí verið ekið upp á
umferðareyju á mótum Drottningar-
brautar og Kaupvangsstætis. Bifreið-
in er vínrauð að lit með númerinu
A-5554.
Harðir árekstrar
HARÐUR árekstur varð um kl.
15.00 á mánudag rétt við sam-
komuhúsið Hlíðarbæ norðan við
Akureyri. Ökumaður vélhjóls,
sem var að koma frá Akureyri,
lenti í árekstri við fólksbíl, sem
kom úr öfugri átt. Ökumaður
vélhjólsins var talinn alvarlega
slasaður.
Þá varð alvarlegt umferðarslys á
Akureyri á föstudagskvöld og voru
þrír menn fluttur á sjúkrahús. Bif-
reið, sem ekið var á Gránufélags-
götu, lenti á tveimur mönnum er
leið áttu yfir götuna. Bifreiðin kast-
aðist síðan á húshom og er hún talin
vera ónýt.
vinnumálin væru áhyggjuefni, birti
yfír með hækkandi sól því á
Grenivík byggi dugmikið og vandað
fólk, sem tryði á byggðalagið. „Hér
eigum við efnilegt æskufólk, sem
við fullorðna fólkið gætum tekið
okkur til fyrirmyndar í ýmsu eins
og því að hér reykir enginn ungling-
ur innan við 20 ára aldur."
Að þessum orðum sögðum kveðj-
um við Sigríði Sverrisdóttur oddvita
í Grýtubakkahreppi og þökkum
henni fyrir spjallið.
VigdSs
Húsavík:
Korri hf. kaup-
ir 190 tonna
skip frá Noregi
Útgerðarfyrirtækið Korri hf.
á Húsavík hefur fest kaup á 190
tonna skipi frá Tromsö í Noregi.
Verð þess er um 90 milljónir
króna og verður skipið afhent
nýjum eigendum sínum síðar i
þessum mánuði.
Korri hf. mun selja 130 tonna
skip sitt, Geira Péturs, í Garðinn
til að fjármagna kaupin og kaupir
annað skip þaðan, Sigurð Bjama-
son, sem fer í úreldingu.
Þeir Korramenn reikna með að
fara á fískitroll í byijun á nýja skip-
inu og síðar á rækjuveiðar. Skipið
er búið frystibúnaði.
Bflvelta við
Grenivík
Bifreið ónýt eftir veltu
Grenivik.
UMFERÐARSLYS varð við
Gljúfurá sunnan við Grenivík
á hvítasunnudag. Tvennt var í
bifreiðinni og sluppu þau án
teljandi meiðsla.
Bifreiðin, sem var nýr Subaru,
var ekið í suðurátt á* leið til Akur-
eyrar. Við Gljúfurá missti ökumað-
ur stjóm á bifreiðinni með þeim
afleiðingum að hún endastakkst
og valt og hafnaði á hliðinni með
afturendann út í á. Stúlka, sem
ók bifreiðinni, slasaðist lítillega á
hálsi en farþega sakaði ekki.
Mesta mildi var að ekki fór verr.
Bifreiðin er talin gjörónýt.
Vigdís
Morgunblaðiö/Vigdis Kjartansdóttir
Nýr sveitarstjóri
GUÐNÝ Sverrisdóttir frá Lóma- Jóhanni Ingólfssyni og sonum
tjörn var nýlega ráðin sveitar- þeirra Ingólfi 6 ára og Ægi 10
stjóri á Grenivík. Myndin er af ára.
Guðnýju ásamt eiginmanni sinum
Krían verpti snemma
KRÍAN hefur verið mun fyrr á
ferðinni en mörg undanfarin
ár, að minnsta kosti hér norð-
anlands, að sögn fróðra manna.
Fyrstu kríueggin fundust til
dæmis í Flatey á Skjálfanda þann
23. maí og mun það vera um það
bil viku fyrr en venjan er, að þvi
er kunnugustu menn þar segja.
Sömu sögu er að segja um æðar-
varpið þar um slóðir.
Mikið hefur verið tínt undan
kríunni undanfama daga en nú
eru egg orðin unguð. Mannaferðir
hafa verið miklar í eynni síðustu
daga og hefur þar verið á ferðinni
bæði fólk frá Húsavík sem farið
hefur á spærtbátum sínum og eins
grásleppukarlar, sem stunda veið-
ar frá eynni vor hvert. Krían
verpir þrisvar sinnum, sé tínt und-
an henni. Sú venja hefur viðgeng-
ist að eftirláta skuli kríunni þriðja
og síðasta varpið svo hún geti
komið ungum á legg.
Kríueggjunum safnað í fötu