Morgunblaðið - 10.06.1987, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
Stiörnu
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Vanmat á
andlegum málum
í daglegu lífí gleymum við því
oft hversu miklu máli hinir
andlegu og trúarlegu þættir
tilverunnar skipta. Skemmt-
anir, ástamál, vinna, húsa-
kaup og það að ná langt (
þjóðfélaginu eru sett á oddinn.
Margir gera beinlínis grín að
hinu trúarlega og andlega og
sjá ekki nokkum tilgang með
slíku „rugli“. Aðrir sem ekki
taka svo sterkt til orða telja
sig samt sem áður hafa Utinn
tíma fyrir trúmál, þ.e.a.s. fyrr
en eitthvað gerist í þeirra eig-
in lífí. Ég ætla I dag að fjalla
nánar um þetta atriði og það
sem ég vil kalla vanmat á
gildi þess trúarlega og and-
lega.
Þjóðfélagið
í fyrsta lagi er það gildi trúar-
innar fyrir þjóðfélagið. Við
vitum öll að til að margir ein-
staklingar geti starfað saman
í þjóðfélagi þurfa að koma til
ákveðnar reglur og lög um
mannleg samskipti. En hvað
skyldi vera að baki þessum
lögum?
Siðfrœði
Ég tel að mörg af mikilvæg-
ari lögum um mannleg
samskipti hvfli að miklu leyti
á siðfræði sem á rætur að
rekja til trúarbragða hverrar
þjóðar. Ef trúarleg siðfræði
(9. hús) er að baki lögum og
reglum þjóðarinnar (10. hús)
og við hættum að leggja rækt
við trúna og andlega göfgun
sem trúin veitir er hætt við
að botninn detti úr þjóðfélagi
okkar. Eða hvar höldum við
að þjóðfélag stæði ef það
væri í höndum lögfræðinga
og athafnamanna sem hefðu
ekkert siðferðislegt aðhald frá
andlegum gildum?
Dýrt vanmat
Það er því svo, að mati undir-
ritaðs, að ef við vanmetum
siðferðislegt gildi trúar og
leggjum æ minni áherslu á
andlegt og trúarlegt nám, t.d.
í skólakerfínu og almennu
uppeldi, þá tekur þjóðfélagið
að gliðna. Vanmat á gildi
andlegra mála getur því orðið
ansi dýrkeypt.
Einstaklingar
Hvað varðar andlega iðkun
fyrir einstaklinga er megin-
markmið flestra andlegra
skóla það að stuðla að þroska
einstaklingsins. Við vinnum
oft mikið og erum stressuð,
spennt á taugum, æst og al-
mennt í ójafnvægi. Þó fáir
geri sér kannski grein fyrir
því geta trúmál og andleg iðk-
un hjálpað mikið upp á það
að skapa jafnvægi í daglegu
lífí. Á dagskrá andlegra faga
er m.a. það að kenna að kyrra
hugann og stýra hugsunum.
Við getum lært að þjálfa okk-
ur í að hugsa jákvætt og losað
okkur við neikvæðar hugsanir
sem eitra líf okkar. Með þvi
t.d. að læra ákveðnar öndun-
aræfíngar má stilla geðið og
koma ró á líkamsstarfsemina.
Með því að vanmeta andleg
mál erum við því að loka á
marga möguleika sem við
gætum notað okkur til hjálpar
í daglegu lffí.
Lífstrú
Það er í sjálfu sér ágætt að
vilja eignast stærri íbúð og
meira af peningum. Það er
hins vegar lftt ánægjulegt að
sitja í einbýlishúsinu og sötra
dýrt koníak og rífast við mak-
ann. Slíkt getur hins vegar
gerst ef við gleymum að
rækta okkar eigin garð, ef
okkur skortir llfstrú og lífstil-
gang. Maðurinn lifir ekki á
brauði einu saman. Lff okkar
þarf því að byggja á jafnvægi
milli þess veraldlega og and-
lega.
DRÁTTHAGI BLÝANTURINN
GRETTIR
DÝRAGLENS
UÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
HERESTHE WORLD UJARI
FLYIN6 ACE Z00MIN6
OVER ENEMY LINES...
b—cz-
to- B
Hér er flugkappinn úr
fyrra stríði í hraðflugi yfir
landi óvinanna ...
MACHINE 6UN5 BLAZIN6
HE DIVES DOUJN OUT
OF THE CLOUDS...
Með geltandi vélbyssur
steypir hann sér út úr skýj-
unum...
Hver skrambinn, afsak-
ið...
I THINK I JUST
SHOT'A ZAMBONl!
Ég held að ég hafi skotið
valtara!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Annar höfundur Power Pre-
cision-kerfísins, Alan Sontag, og
einn núverandi spilafélagi hans,
John Devine, héldu á spilum AV
hér að neðan í vöm gegn þrem-
ur gröndum.
Norður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ G108
VG83
♦ KG82
♦ 932
Vestur Norður Austur Suður
— 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Sontag í vestur spilaði út
spaðagosa. Sagnhafí drap á
drottningu blinds og lagði niður
laufkóng og drottningu. Þegar
gosinn kom frá austri yfflrdrap
sagnhafí laufdrottninguna og
spilaði hjartasjöunni yfír á
drottningu blinds. Devine fékk
slaginn á kónginn og hugleiddi
stöðuna.
Hjá sumum pörum neitar gos-
inn í útspili hærra háspili. Með
KG10 er tíunni spilað út, svo
dæmi sé tekið. En þeir Sontag
og Devine notuðu ekki þessa
reglu. Hins vegar höfðu þeir í
vopnabúri sínu mjög dtjúga
vamarreglu, 30 ára gamla, sem
kölluð er Smith-kall eftir höf-
undi hennar. fslenskir spilarar
þekkja regluna betur undir nafn-
inu „oddball", en besta orðið
fyrir okkur er einfaldlega
„grandkall", þar sem kallið er
eingöngu notað í vöm gegn
grandsamningum. Reglan felst
í því að sá sem spilar út sýnir
áhuga eða áhugaleysi í útspils-
litnum strax I næsta slag sem
sagnhafí spilar út í. Hátt smá-
spil sýnir áhuga, lágt áhuga-
leysi.
Sontag hafði fylgt lit í laufínu
með tvisti og þristi, sem benti
til að spaðinn væri veikur. Því
valdi Devine að skipta yfír í tígul
— níuna að sjálfsögðu, til að
stífla ekki litinn. Sontag drap á
kóng, spilaði tvistinum yfír á ás
makkers og fékk svo tvo næstu
slagi á K8.
SKÁK
Norður
♦ D6
♦ ÁD965
♦ D4
♦ KD84
Suður
♦ ÁK4
♦ 107
♦ 10765
♦ Á1075
Austur
♦ 97532
♦ K42
♦ Á93
♦ G6
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp á svæða-
móti í Budel í Hollandi í sfðustu
viku í skák hollenska stórmeist-
arans John Van der Wiel, sem
hafði hvítt og átti leik, og
belgíska alþjóðameistarans Win-
ants. Svartur lék síðast vongóð-
ur 34. — Ba4-c2? með ýmsum
hótunum, en ...
35. Hxb3! — 0-0 (Uppgjöf, en
35. — Hxb3 var svarað með 36.
Da8+ - Dd8, 37. Hc8) 36.
Hxb8 — Hxb8 37. hxg6 — d3,
38. Bxd3 - Da7, 39. Hb4 -
Hxb4, 40. gxf7+ og loksins
gafst Belgíumaðurinn upp. Van
der Wiel er langstigahæstur
keppenda á mótinu, en þegar
sfðast fréttist átti hann samt
enga möguleika á að komast
áfram f millisvæðamót.