Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 49 Vigdís Jósefs- dóttir — Minning Fædd 24. október 1902 Dáin23.maí 1987 Mig langar í nokkrum orðum að minnast elsku ömmu minnar sem lést þann 23. maí eftir átta mánaða erfiða legu á Landakotsspítala, en þar naut hún góðrar umönnunar elskulegs starfsfólks. Amma hét Vigdís Jósefsdóttir, fædd 24. október 1902 í Vestur- bænum í Reykjavík. Þar bjó hún alla sína tíð, var því sannkallaður Vesturbæingur. Afi minn lést fyrir 20 árum, þá 79 ára. Ágúst Jósefsson hét hann og var vélstjóri. Man ég afa vel því ég var mikið afa- og ömmubam frá því ég man eftir mér og fór með þeim í tjald á Laugarvatn, í Hvera- gerði og sótti mikið í faðm þeirra. Amma og afi byggðu húsið sitt að Bárugötu 4 1926 og bjuggu þar síðan alla sfna tfð. Ég hef búið í því húsi í návist ömmu í 20 ár og síðustu 5 árin naut sonur okkar Róberts ástúðar og félagsskapar ömmu. Ágúst litli var sterkur og hlýr síðsumarsólar- geisli í hennar lífi. Hún elskaði hann ósköp heitt og var það endur- goldið. Alltaf var hún tilbúin að passa hann fyrir okkur og taldi ekki eftir sér alla snúningana sem litlum pjakki fylgja. Var hann í hádegismat hjá henni síðustu tvö árin, því við unga fólkið eldum nú yfírleitt ekki í hádeginu. Amma var mikill kvenskömngur, dugleg með eindæmum, gerði öll verk sem þurfti í sambandi við hennar stóra hús. Málaði hliðin á vorin, sá um allt er heimilishald og húsið varð- aði. Og alltaf fór hún og kaus. í kvenfélaginu Keðjunni var hún heiðursfélagi og mætti hún á hvem fund fín og pússuð og hafði mikið gaman af. Þegar amma fór að kaupa inn var Ágúst litli oftar en ekki með og þá stoppuðu þau og hvíldu sig í Fischersundi en hún var búin að vera veik fyrir hjartanu í mörg ár. Vigdís amma hélt sínu andlega heilbrigði og þreki alveg fram að síðustu erfíðu mánuðunum. Mikil reisn var alltaf yfír ömmu og heim- ili hennar, þar fór ákveðin og stór kona, sem stórkostlegt var fyrir okkur öll að þekkja. Hún var ekki mikið fyrir að tala um tilfinningar sínar en þegar hún varð meira veik á spftalanum, hafði hún mestar áhyggjur af því hve ég yrði hrædd. Vigdís var ekki bara amma mín heldur mikill og sannur vinur minn og okkar í kjallaranum. Margar sögumar um hvemig allt var hér áður fyrr sagði hún okkur og auð- velt er að sjá hana fyrir sér á sauðskinnsskónum með fléttumar hlaupandi yfir Landakotstúnið á leið í Miðbæjarbamaskólann. Með ömmu og öðmm af hennar kjmslóð, sem týna tölunni smátt og smátt, hverfa merkar manneslqur, sem muna tímana tvenna. Amma fór í vist 8 ára og alfarin úr föðurhúsum 14 ára, var í vistum þar til hún giftist afa 19 ára. Var hún alls stað- ar vel liðin og dugleg. Okkur er öllum hollt að muna hvað þetta fólk mátti erfiða til þess eins að eiga kápu, kjól og skó. Amma bar á handvagni þvott í Laugardal og til baka sem unglingsstúlka, eins og þá var títt. Ég held að í þjóð- félagi okkar í dag væri óvitlaust að leggja meiri áherslu á þetta tíma- bil. Það vom ekki alltaf tölvur, sjónvarp, videó og svo framvegis. Það er mikill söknuður vegna frá- falls Vigdísar ömmu, en mikið þakklæti til Guðs fyrir þennan langa tíma með henni og að hún skyldi fá að fara en ekki þjást leng- ur. Meðan hún enn gat talað nefndi hún þessa ósk. Það átti óskaplega illa við hana að vera ósjálfbjarga enda fædd í sporðdrekamerkinu. Það er því fagnaðarblandin sorg í sinni okkar hér. Amma sem aldrei var gömul, eða eins og hún sagði, „það er bara skrokkurinn, ég er ung og gæti hlaupið um allt“. í Guðs friði hvílir Vigdís amma mín. Ásdís Magnúsdóttir og fjölskylda. Hurðir sem OPIMA ýmsa möguleika Kostir lyftihurðanna frá Héðni eru margir og nægir þar að nefna að þær taka lítið rými, eru auðveldar í uppsetningu og Iéttar og meðfærilegar. Lyftihurðirnar hafa verið valdar á staði, þar sem hraði og öryggi skipta máli, s.s. á slökkvistöðvum, en þær henta einnig einstaklingum og fyrirtækjum. Lyftihurðirnar eru mjög vel einangraðar, fást í tíu litum og hægt er að velja um mismunandi glugga- og brautaútfærslur. Lyftihurðirnar frá Héðni eru fyrir þá sem vilja halda öllum möguleikum opnum. Hafið samband við sölumenn okkar og leitið tilboða í hurðir og uppsetningu. @ = HÉÐINN = Seljavegi 2 Sími 24260 $Éim flslilj : sppÉiiii lÍPPlÉÉ tívíySv íyíí; V tfVi'■•.yj.;-' ^ 11 : i r *.; ? ■ • ppÉMgi rffi.sSðijS.Wáfíí.S.í . .. ' : ■" lliÉÉtlÉI ®®ffÉÍl tei waan ÉS#!! ■ j TIZKAN Laugavegi71 II. hæö Sími 10770
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.