Morgunblaðið - 10.06.1987, Page 56

Morgunblaðið - 10.06.1987, Page 56
f>Y/ - *» * 3 v 3 56 vaflt ivffít .fif nifflA/IiJStfvíitw rf’ífí »?»!/;ffiíi MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 t Fósturmóðir mín og amma okkar, ANNA JÓNSDÓTTIR fró Hvallátrum, Langholtsvegi 132, lést í Landspítalanum 9. júní. Gyða Guðmundsdóttir, Anna Guðrún Marfasdóttir, Svanhildur Ósk Marfasdóttir. t Móðir mín, GUÐRÚN TÓMASDÓTTIR, Sigluvogi 17, lést í Landspítalanum 8. júní. Sigríður Ása Ólafsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, sonur, afi og bróðir, HALLDÓR HELGASON, lést í Stokkhólmi föstudaginn 5. júní. Helgi Halldórsson, Inga G. Halldórsdóttir, Baldvin Halldórsson, Bára S. Jónsdóttir, Helgi Kristjánsson, Karitas Halldórsdóttir, barnabörn og brssöur hins látna. t Bróðir minn, HÁLFDÁN BJARNASON fyrrverandi aðairæðismaður íslands í Genóva, andaðist á heimili sínu 8. þessa mánaðar. Björn Bjarnason. t MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR GRÖNVOLD er látin. Aðstandendur. t Útför eiginmanns míns, SIGURÐAR SIGTRYGGSSONAR, Melhaga 9, er varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 5. júní fer fram frá Neskirkju föstudaginn 12. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Jónsdóttir. t Hjartkær eiginmaður minn, STEINGRÍMUR MAGNÚSSON, Hvanneyrarbraut 31, Siglufirði, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hvítasunnudag 7. júní. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Ester Sigurðardóttir. t SVEINBJÖRN BJÖRNSSON frá Húsavfk, við Borgarfjörð eystri, lést í Landspítalanum 7. júní. Aðstandendur. « Legsteinar ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður Minning: Baldvin Baldvins- son jámsmiður Fæddur 22. nóvember 1918 Dáinn 30. maí 1987 í dag, 10. júní 1987, verður til moldar borinn tengdafaðir minn, Baldvin Baldvinsson. Baldvin fædd- ist í Kálfakoti í Mosfellssveit. Hann var sonur Baldvins Sigurðssonar og Jóhönnu Hansdóttur. Hann ólst upp á Eiði á Seltjamamesi hjá föð- ur sínum og stjúpmóður, Sigríði Kristjánsdóttur. Var hann yngstur í stórum systkinahópi. Það var svo árið 1939 að hann fór og lærði jámsmíði hjá vélsmiðjunni Héðni og vann hann þar í nokkur ár, eða þangað til hann fór til Grundar- ijarðar og vann þar við vélgæslu í §ögur ár. En það var árið 1948 að hann hóf störf hjá Olíuverslun ís- lands og vann hann þar í 37 ár, við viðgerðir og ýmis önnur störf á meðan heilsan leyfði. Árið 1944 þann 29. janúar gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Þrúði Finn- bogadóttur frá Flatey á Breiðafirði, dóttur hjónanna Finnboga Guð- mundssonar og Þómnnar Gunn- laugsdóttur. Baldvin og Þrúður eignuðust 3 böm, Baldvin fæddur 1943, Finnbogi Þór fæddur 1944 og Jóhanna Hrefna fædd 1946. Baldvin og Þrúður byggðu sér íbúð á Kleppsvegi 38 í Reykjavík árið 1955 og bjuggu þar síðan. Baldvin var duglegur og ákveðinn maður, sem sést best á því hve vel hann bar veikindi sem hann hefur þurft að beijast við í mörg ár, með kransæðasjúkdóm, en þegar annar sjúkdómur kom líka til sögunnar reyndist það honum um megn. Þrúður kona hans var honum þá sú styrka og örugga hönd honum til hjálpar. Þrúður vék ekki frá Baldvini síðustu fjóra mánuðina, sem hann lifði, en hann andaðist 12 tímum eftir að hann var fluttur á Borgarspítalann 30. maí. Árið 1964 kynntist ég Baldvini, er ég kom inn á heimili hans, sem tengdadóttir og giftist Finnboga syni hans. Baldvin var mikill dýravinur og átti hann hesta í mörg ár. Baldvin byggði sér hesthús í Víðidal í Reykjavík, með sonum sínum, og var hann þar alla daga eftir að hann hætti að vinna. Hann var duglegur við að sinna hestunum og útreiðartúrarnir eru orðnir margir, sem við áttum með honum. Eru honum færðar sérstak- ar þakkir fyrir þessar ánægjustund- ir. Nú er komið að leiðarlokum og eru honum þakkaðar þær gleði- og ánægjustundir, sem hann hefur gefið mér og fjölskyldu minni. Þrúði tengdamóður minni votta ég okkar dýpstu samúð og þakka ég fyrir að hafa átt Baldvin fyrir tengdaföð- ur. Guð blessi minningu hans. Bóthildur Friðþjófsdóttir Það var fyrir réttum átta árum að kynni okkar Baldvins hófust. Tilefni þess var að við höfðum sótt um að fá að byggja hús yfír hest- ana okkar uppi í Víðidal í Reykjavík. Tilviljun ein réð því á þann veg að t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, BALDVIN BALDVINSSON, Kleppsvegi 38, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, miövikudaginn 10. júní kl. 13.30. Þrúður Finnbogadóttir, Baldvin Baldvinsson, Monika S. Helgadóttir, Finnbogi Þór Baldvinsson, Bóthildur Friðþjófsdóttir, Jóhanna Hrefna Baldvinsdóttir, Sölvi Jónasson, og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJÖRTUR GUÐMUNDSSON, Verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 11. júní kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Dvalarheimilið Jað- ar, Ólafsvík. Zakaris Hjartarson, Ester Guðmundsdóttir, Hjörtfríður Hjartardóttir, Jón Steinn Halldórsson, Gunnar Hjartarson, Guðrún Guðmundsdóttir og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ISEY SKAFTADÓTTIR, Vestmannabraut 25, Vestmannaeyjum, er lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja laugardaginn 6. júní, veröur jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, föstudaginn 12. júní kl. 14.00. Heiðmundur Sigurmundsson, Guörún Jóhannsdóttir, Arnar Sigurmundsson, María Vilhjálmsdóttir, Róbert Sigurmundsson, Svanhildur Gisladóttir, Ingólfur Sigurmundsson og barnabörn. við urðum saman í hóp, sem fékk úthlutun á lóð undir sambyggingu fyrir sjö hesthús í C-tröð 11. Það kom strax fram almennur áhugi innan hópsins um að koma húsinu upp á sem hagkvæmastan hátt og með sem minnstum beinum fjárútlátum. Því var ákveðið, að þeir sem gætu, en það voru nær allir, legðu fram alla þá vinnu sem þeir gætu svo að ekki þyrfti að fá aðkeypta vinnu. Húsið yrði sem sagt byggt af eigendunum sjálfum. Þetta var fastmælum bundið. Á annan hvítasunnudag 1979 komum við allir saman í holunni, sem búið var að vélgrafa fyrir hús- inu, og hófumst þá þegar handa við að slá upp fyrir sökklum húss- ins. Ég ætla ekki að rekja þessa byggingarsögu hér og orðlengi því ekki frekar um hana. En húsið var komið upp um haustið, fullfrágeng- ið að utan ásamt gerði og öllu tilheyrandi, allt með eigin vinnu samkvæmt áætlun. Þar með tók hver við sínum hluta til frágangs innan dyra. Fyrir áramót voru íbú- amir komnir inn. Það var taiin mikil bjartsýni hjá okkur að ætla að við gætum komið húsinu upp með þessum hætti. Okkur varð síðar kunnugt um að aðrir sem fengu úthlutað hesthús- lóðum samtímis okkur, og ætluðu að hafa sama hátt á og við, höfðu gefist upp áður en hús þeirra kom- ust mikið upp úr jörðu. Aðeins húsið í B-tröð 11 var fúllunnið af eigend- unum sjálfum. Að það tókst svo giftusamlega var að þakka góðu samstarfí, sem strax myndaðist inn- an hópsins, og sameiginlegum vilja og áhuga allra þeirra sem í þessu stóðu. Við vorum líka svo heppnir að í hópnum vom ungir og röskir iðnaðarmenn, og einnig ólatir og reyndir karlar fuilir af áhuga á að ljúka verkinu á sem skemmstum tíma. Þeirra á meðal var eldhuginn Baldvin Baldvinsson. Ég tel mig ekki halla á neinn þó ég segi að Baldvin hafí átt sinn stóra þátt í að þessi ætlan okkar tókst svo vel í allri framkvæmd sem raun varð á. Hann var sá sem aldr- ei lét sig vanta til verks, alltaf var hann reiðubúinn til að ganga í hvað sem gera þurfti hveiju sinni. Upp- örvandi og hvetjandi með gaman- yrði á vör. Þar var ekki verið með úrtölur né svartsýni. Þegar horft er til baka, minn- umst við sem eftir stöndum þessa ánægjulega sumars, þegar hesthús- ið okkar reis af gmnni. Við vomm stoltir þá yfír vel unnu verki. En dýrmætasti árangurinn eftir sumar- ið ’79 er þó sá ágæti félagsandi, sem þá myndaðist innan hópsins, sá andi er enn ríkjandi í húslengj- unni þó að nokkur eigendaskipti hafí orðið á þessum ámm. Nú er sá fyrsti úr uppranalega hópnum horfínn yfír móðuna miklu. Áhugamaðurinn — eldhuginn Bald- vin Baldvinsson. Þar er skarð fyrir skildi. Baldvin átti við nokkra vanheilsu að stríða hin síðari ár. Þó var lund hans ávallt hin sama. Hann talaði um gigt í mjöðminni, liðurinn var farinn að gefa sig, svo hann gekkst undir aðgerð og fékk vemlega bót eftir að sett var í hann ný lega, eins og hann sagði stundum. Svo fór hjartað að slá einhver feilpúst, hann fékk einhveijar töflur við því, þó mátti búast við ýmsu þegar svo var komið. En svo kom reiðarslag- ið, hann var lagður inn á spítala á sl. sumri og skorinn upp við krabba- meini, en því miður of seint. Hann komst þó á fætur aftur og heim, en það var engin heilsa. Heima vildi hann helst vera og heima dvaldi hann framundir það síðasta, lengst af rúmfastur, þar var honum hjúkr- að af nærfæmum höndum eigin- konunnar. Hann andaðist laugardaginn 30. maí sl. Þessi fátæklegu orð em aðeins lítill þakklætisvottur til vinar, fyrir góð kynni á þeim fáu ámm sem leið okkar lá saman. Ástvinum hans öllum votta ég mína innilegustu hluttekningu. Blessuð sé minning hans. Finnbogi Haukur Siguijónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.