Morgunblaðið - 10.06.1987, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
65
Leitað að
sprengiu
í Flug-
leiðavél
FLUGVÉL Flugleiða tafðist um
þrjá stundarfjórðunga á
Fornebu-flugvelli í Osló á sunnu-
dag. Var það vegna öryggisráð-
stafana sem gerðar voru, þegar
í ljós kom að einn farþeganna
hafði ekki farið um borð, en far-
angur hans var þá þegar í vélinni
og var óttast að sprengja kynni
að leynast i honum.
Að sögn Sæmundar Guðvinsson-
ar, fréttafulltrúa Flugleiða, hafði
íslensk kona skráð sig til brottfarar
og afhent flugvallarstarfmönnum
farangur sinn, þijár ferðatöskur.
Þegar farþegarnir voru komnir um
borð reyndist konan ekki vera á
meðal þeirra og tókst ekki að hafa
upp á henni í flugstöðinni. Öll flug-
félög hafa þá reglu að farangur
farþega er fjarlægður ef þeir skila
sér ekki um borð og er það gert
vegna ótta við að sprengjur leynist
í farangrinum. Því var þegar hafist
handa við að leita að farangri kon-
unnar og fannst hann um borð eftir
þijá stundarfjórðunga. Hann var
afhentur flugvallarlögreglu sem
kannaði hann, en ekkert reyndist
athugavert við töskumar þijár.
Mikið um
ölvunarakst-
ur um helgina
MIKIL umferð var um hvíta-
sunnuhelgina bæði á Suður- og
Vesturlandi og töluvert um ölv-
unarakstur. Helgin var þó öllu
rólegri á Suðurlandi enda ekki
heimilt að tjalda að Laugarvatni
og á Þingvöllum.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var þessi helgi mjög góð miðað við
fyrri hvítasunnuhelgar. Umferðar-
þunginn var mikill en ölvun var
dreifð um alla sýsluna og ekki mjög
mikil. Eina alvarlega umferðaró-
happið var bílvelta á Þingvöllum á
mánudeginum, engin slys urðu á
mönnum. Rúmlega 10 manns voru
teknir fyrir ölvun við akstur á Suð-
urlandi.
Hjá lögreglunni í Borgamesi
fengust þær upplýsingar að yfir-
fullt hefði verið af fólki og umferð
mjög mikil. Töluvert var um
árekstra og bílveltur og eitt alvar-
legt slys, jeppabifreið keyrði yfír tvö
ungmenni í Húsafelli á föstudags-
kvöldinu. Alls vom 24 manns teknir
fyrir ölvunarakstur af lögreglunni
í Borgamesi um helgina.
Mjög góð þorsk-
veiði á Vest-
fjarðamiðum:
Sumar-
ganga
í Víkurál
MJÖG góð þorskveiði hefur
verið undanfarna daga á
Vestfjarðamiðum, aðallega
við Víkurál. Milli 30 og 40
bátar hafa verið þarna að
veiðum og gengið injög vel.
Vestfirðingar segja að þetta
sé hefðbundin sumarganga og
vonast er til að hrotan standi
eitthvað áfram en ágætis veiði
var í fyrrinótt. Þorskurinn hefur
verið frekar stór og góður og
mun stærri en á miðunum norð-
an við Vestfirði.
KODAK
UMBOÐIÐ
KODAK TRYGGIR ÞÉR
GÆÐAFRAMKÖLLUN
Á ÖRSKAMMRI
STUND!
KODAK EXPRESS
GÆÐAFRAMKÖLLUN UM LANDIÐ
KODAK Express gæða-
framköllun er hraðframköllunar-
þjónusta sem komið hefur verið á
víðsvegar um landið. Þessi
þjónusta byggir á nýjustu tækni
frá KODAK, þeirri fullkomnustu
á markaðnum í dag. Þú færð
gæðaframköllun því KODAK
gerir strangar kröfur um gæði
vinnslunnar og hefur stöðugt
gæðaeftirlit með allri KODAK
hraðframköllun.
Staðir sem nú þegar bjóða KODAK Express gæðaframköllun eru:
Akranes: Bókaverslunin Andrés Níelsson hf.; Akureyri:
Pedrómyndir og Nýja Filmuhúsið; Hafnarfjörður: Radíóröst
Myndahúsið, Dalshrauni 13; Kópavogur: Bókaverslunin Veda,
Hamraborg; Reykjavík: Verslanir Hans Petersen,
Bankastræti, Austurveri og Glæsibæ.
Væntanlegir KODAK Express staðir:
Selfoss: Vöruhús KÁ; Sauðárkrókur: Bókabúð Brynjars;
Reykjavík: Verslun Hans Petersen, Kringlunni.