Morgunblaðið - 10.06.1987, Síða 68
ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
ÍGuÓjónÓLhf.
91-272 33 I
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Flugvallarstarf smenn bjástra við að ná dekkinu af felgTinni.
Flugyél hlekktist á á
Reykj avíkurflugvelli
■£INS hreyfils Beechcraft-flugvél hlekktist á í flugtaki í
gærmorgun á Reykjavíkurflugvelli. Tveir Bandaríkjamenn
voru í vélinni og sakaði hvorugan.
Bandaríkjamennimir, David Best og Gene Smith, komu hing-
að frá Suður-Grænlandi á mánudaginn og var ferðinni heitið
til Parísar. Að sögn þeirra var flugvélin komin í um það bil 50
feta hæð þegar hreyfillinn drap á sér og flugvélin skall á flug-
brautinni og staðnæmdist í um 200-300 metra fjarlægð frá
brautarenda. „Við voram heppnir að ekki fór verr því sjórinn
var ekki langt undan," sagði Gene Smith í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins. Og bætti því við að hann vissi ekki hvað
valdið hefði því að hreyfíllinn drap á sér
Þegar vélin lenti sprakk á öðra hjólinu og annar vængurinn
skemmdist.
Morgunblaöið/Einar Falur
Annað framhjól vélarinnar
sprakk þegar hún lenti og eins
og sést á myndinni rann hún all-
nokkra vegalengd áður en hún
staðnæmdist 200-300 metrum frá
flugbrautarenda.
Sala íslensks fisks i Þýskalandi:
Hraðskreitt skip
með ferskan fisk
á Evrópumarkað
Hollandi, frá Eggert H. Kjartanssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
HRAÐSKREITT flutningaskip mun hefja beinar siglingar
milli íslands og meginlands Evrópu í ágústmánuði. Flutn-
ingaskipið, sem er sérhannað með tilliti til flutnings á
ferskum matvælum og hefur um 300 tonna flutningsgetu,
mun eingöngu lesta ferskan fisk á íslandi.
Ákveðið hefur verið að gera 10
vikna tilraun í flutningum á milli
ísafjarðar og Breskens í Hollandi.
Ferðin fram og til baka mun taka
tæpa viku. Ætlunin er að lesta skip-
ið alltaf á fímmtudagskvöldi til að
koma fískinum á markað á megin-
landi Evrópu á mánudegi. Það er
ætlun aðstandenda skipsins, sem
era flutningsfyrirtækið Voorait
B.V. í Hollandi og norska fyrirtæk-
ið Gods-Trans, að nota þessar tíu
vikur ásamt seljanda físksins, ís-
fangi hf. á ísafírði, til að meta
framtíðarmöguleika ferskfískút-
flutnings frá íslandi með mjög
hraðskreiðum flutningaskipum.
Fiskinum verður dreift víða í
Evrópu og það er von þeirra sem
að tilrauninni standa að verðið, sem
fæst fyrir físk sem fluttur er á þenn-
an hátt, verði töluvert hærra og
stöðugra en það sem almennt ger-
ist á fískmörkuðunum á meginlandi
Evrópu.
Póstur og sími
hækka um 9.5%
Samgönguráðherra heimilaði
í gær 9,5% hækkun á gjöldum
fyrir póst og sfmaþjónustu frá
og með 1. júlí næstkomandi. Sam-
kvæmt endurskoðaðri rekstrará-
ætlun vantar Póst og simamála-
stofnun 106 milljónir króna
umfram fjárlög til að rekstur
þessa árs verði hallalaus.
Ýmsar breytingar verða á upp-
byggingu gjaldskrár fyrir símaþjón-
ustu á sama tíma og miða þær að
því að jafna muninn sem er á gjaldi
fyrir langlínusímtöl og staðarsím-
töl. Tekinn verður upp sérstakur
kvöld og helgartaxti eftir klukkan
23 á kvöldin til 8 á morgnana og
skrefum fjölgað í langlínutöxtum.
Sjá nánar á bls. 4.
Nýr saksókn-
ari skipaður
fljótlega
Umsamið verð annað
„ÉG HEF ekki tekið ákvörðun
nm skipan saksóknara vegna
máls bankastjóra Útvegsbank-
ans, en það verður fljótlega,"
sagði Jón Helgason, dómsmála-
ráðherra.
en hið raunverulega
Farið framhjá lögnm um lágmarksverð
Frá Hirti Gíslaayni, fréttamanni Morgunblaðsins í Bremerhaven.
VERÐ á ferskum fiski i Þýskalandi hefur verið mjög mismunandi
að • undanförnu og lengst af í lægri kantinum. Hæst fór verð á
karfa, grálúðu og ufsa í um 60 krónur á kíló f vetur en hefur upp
á síðkastið verið um 40-50 krónur. í einstaka tilfellum hefur ekki
tekist að selja fiskinn á lágmarksverði Evrópubandalagsins og fer
hann þá Iögum samkvæmt í gúanó fyrir 2 krónur á kílóið. Dæmi
eru um að fiskkaupendur og fiskseljendur hafi samið opinberlega
um lágmarksverð en raunverð verið mun lægra. Ástæðu lágs verðs
Miðað við kostnað við sölu og
útflutning og verð á þessum físk-
tegundum á íslandi þurfa útflytj-
endur að fá nánast 35 krónur fyrir
hvert kfló til að sleppa taplausir frá
gámasölu. Kostnaður er breytilegur
þar sem hann er hlutfall af endan-
legu söiuverði. Kostnaður við sigl-
ingar fískiskipa er mun óljósari.
íslenski fískurinn sem seldur er
í Þýskalandi er notaður á ýmsa
vegu. Megnið er selt ferskt til neyt-
enda við eðlilegar aðstæður og
framboð. Nokkuð fer í reykingu en
sé framboð mikið era dæmi um að
hluti af fískinum fari í frystingu
og söltun að sögn Ara Halldórsson-
ar.
Á fímmtudag í síðustu viku
komst meirihluti Hæstaréttar að
þeirri niðurstöðu að Hallvarður
Einvarðsson, ríkissaksóknari,
hefði verið vanhæfur til að ákæra
í málinu vegna setu bróður hans
í bankaráði Útvegsbanka íslands.
í framhaldi af því sendi ríkissak-
sóknari dómsmálaráðherra bréf
þar sem hann skýrði frá þessari
niðurstöðu dómstólsins. „Ég tel
æskilegt að mál þetta verði leyst
sem fyrst og mun reyna að gera
það,“ sagði Jón Helgason.
má fyrst og fremst rekja til of mikils framboðs frekar en iítilla
gæða, að sögn Ara Halldórssonar eins þeirra sem selja íslenskan fisk
i Þýskalandi.
Að minnsta kosti þrívegis á þessu
ári hefur verðið hrunið vegna of-
framboðs að heiman, þótt menn
hafí verið varaðir við. Lágmarks-
_yerð Evrópubandalagsins á karfa
óg ufsa er núna 35 krónur á kfló.
Nái fískurinn ekki að seljast á því
verði eða hærra má ekki nota hann
til neyslu heldur skal hann fara í
gúanó. Það þykir ekki hagkvæmur
útfiutningur þar sem aðeins 2 krón-
ur fást þá fyrir hvert kíló. Kostnað-
ur við útflutning og sölu er nálægt
krónum á kílóið sem er svipað
og verð á þessum tegundum heima.
Til þess að fírra sig frekara tjóni
en lágmarksverð veldur hafa menn
í einstaka tilfellum samið við kaup-
endur um opinbert lágmarksverð
en mun lægra verð í raun. Þannig
fá þeir fyrst greitt samkvæmt lág-
marksverðinu en skila síðan hluta
fjárins aftur. Útgerðarmaður togar-
ans Karlsefnis RE hefur staðfest
þetta við Morgunblaðið en síðla
vetrar seldi skipið afla sinn í Þýska-
landi og fékk þá að meðaltali 26
krónur fyrir hvert kíló.
Hafbeitarlaxar skila sér
FYRSTU laxamir em að skila sér I haf-
beitarstöðvarnar þessa dagana. Aðal endur-
heimturnar em þó ekki fyrr en í júlímánuði.
Fyrsti laxinn sást við Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafírði í lok maímánaðar, og eru þrír laxar
nú gengnir inn í stöðina og fleiri sjást fyrir
utan. Fyrsti laxinn sást stökkva við hafbeitar-
stöð Vogalax hf. í Vogum í fyrradag, en
móttökubúnaður er ekki enn tilbúinn í stöðinni.