Morgunblaðið - 26.07.1987, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 26.07.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1987 41 Guðjón Guðjónsson skipstjóri. Hraðskreiðir bílar og dýr einbýlishús er sjálfsagður munaður lijá duglegum krabbaskipstjóra. Bíllinn er af Ford-gerð, en innfluttur frá Þýskalandi með öllum hugsanlegum búnaði. I Ameríku þykir það miklu betra að eiga þýskan bíl en amerískan. ftGFA»3 Alltaf Gæðamyndir Lokað vegna sumarleyfa Lokað verður dagana 27. júlí — 10. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Blikksmiðjan Funi, Smiðjuvegi 28. Sími 78733. hann sagði frá ævintýrunum í Kyrrahafinu. Svo fór að Guðjón fór út með Gunnari og hjálpaði honum við að lagfæra bát sem Gunnar var nýbúinn að kaupa. Þegar halda átti á miðin við Alaska ákvað Guðjón að fara með og skoða líf fískimanns- ins á þessum fjarlægu slóðum. Aldrei aftur á sjó En sjóferðin varð þó ekki löng, því eftir einn og hálfan tíma sökk báturinn og björgðust allir um borð naumlega, því ekki náðist í björgun- arbát og tími vannst ekki til að senda út neyðarkall eins og kom fram í viðtali við nafna hans, Guð- jón Guðmundsson, í annarri grein minni um sjómennina á Kyrrahaf- inu. Guðjón hét því þá í annað sinn að fara aldrei aftur á sjó, en einum og hálfum mánuði seinna var hann þó kominn af stað með krabbabáti áleiðis til veiðisvæðanna við Alaska. Síðan hefur hann ekki starfað við annað og hefur verið skipstjóri síðustu 8 árin eða frá því hann var 24 ára, en stýrimaður hans og sá sem er með skipið þegar Guðjón er í fríi er enginn annar en Grétar Guðjónsson, sem var með honum á báti Gunnars þegar hann sökk á Pudget-sundinu 1976, þá níu ára gamall. Krabbaleit við ísland Guðjón kom heim fyrir nokkrum árum til að stjórna leit að krabba við Island. Hann sagðist hafa fulla trú á að veiða mætti krabba við ísland sérstaklega undan suð-aust- urströndinni. Þeir hefðu einfaldlega ekki fengið nógu góðan búnað til tilraunaveiðanna þegar hann var- heima. Brúðkaup í Hafnarfirði Einn gestanna hjá Guðjóni þenn- an dag heitir Bjarni, hann starfaði nokkur ár sem sjómaður við Al- aska, en er nú kominn í land og orðinn fasteignaeigandi, sem gerir upp hús og leigir. Hann var að því leyti ólíkur hinum íslendingunum, að hann hefur aldrei gifst, en nú er að verða þar breyting á því hann var á leið til Hafnarfjarðar þar sem falleg gaflarastúlka beið hans í fest- um og átti brúðkaupið að fara fram um næstu helgi. En Bjarni sagðist vera að fara að heimsækja John Milner. John hafði orðið fyrir alvarlegu slysi á sjónum og lá með mikla áverka á sjúkrahúsi. Ég ákvað að slást í för með Bjarna og fá nánari fréttir af landanum því þrátt fyrir framand- legt nafn er maðurinn íslenskur. Nær dauða en lífi Þegar við opnuðum dyrnar á einkastofu Johns gaus á móti okkur mökkur úr úðabrúsa. „Nú eruð það bara þið. Ég hélt að þetta væri helvítis hjúkrunarkonan,“ sagði John. „Það er bannað að reykja á spítalanum svo ég verð alltaf að vera með úðabrúsann á lofti þegar ég fæ mér srnók". John er hinn hressasti þótt hann hafi verið nær dauða en lífi þrem vikum áður þegar félagar hans komu honum upp á bryggjuna í herstöðinni á Adak-eyju, með mal- aða mjaðmagrind og sprungna gallblöðru. Hann heitir Agnar John Milner og var sendill á Morgunblaðinu áður en hann fór til Ameríku í ævintýraleit 1965. Hann fór fyrstu ferðina til Alaska 1971 með Gunn- ari Guðjónssyni og er búinn að vera um 15 vertíðir þar. Þegar slysið varð þann 8. janúar var hann enn með Gunnari á krabbaveiðaranum Coastal Glasci- er. John var vélstjóri um borð og voru þeir að hífa gildrurnar í góðu veðri þegar óhappið varð. John var að liðka fyrir gildru sem var verið að taka þegar háþrýsti- hosa á spilkrana gaf sig. Við það lagðist armur kranans niður og klemmdist John milli borðstokksins og kranans. Hann sagðist hafa fundið þegar mjaðamabeinin brotnuðu, síðan varð hann var við mikinn sviða og hita þegar gallblaðran sprakk. Fé- lagar hans skáru strax pottalínuna frá og linaðist þá á takinu. Strax var haft samband við lækni á Adak-eyju þar sem er stór herstöð. Engin þyrla var þá til staðar og var þeim sagt að sigla í land. Siglingin tók ellefu og hálfan tíma og er ta- lið fullvíst að það eitt hafi bjargað lífí Johns að gott veður var þennan dag, reyndar eini dagurinn á ver- tíðinni sem hafði verið logn. Þegar komið var með John á sjúkrahúsið í Adak var hitinn kominn yfir venju- leg dauðamörk, að hans sögn, eða 92 gráður á farenheit, en hann var strax skorinn upp og gert við gall- blöðruna. Að sögn læknanna hefði hann ekki lifað hálftíma lengur án aðgerðar. Hann var með meðvitund allt landstímið og eina sem hægt var að gera fyrir hann var að nudda ennið með ísmolum. Átta dögum seinna var hann sendur méð flugvél til Anchorage þar sem þekktasti beinasérfræðing- ur Bandaríkjanna, ásamt 30 manna hjálparliði, gerði við 27 beinbrot í mjaðmagrindinni. John var hinn hressasti þrátt fyrir allt, sagðist vera kominn með hækjur eftir sex vikur og næði ef til vill næstu vertíð á krabbanum. Líður að lokum í síðustu greininni segir frá Kalla Hansen sem vorkennir þessum vesl- ingum í Reykjavík sem láta stjórn- málamennina skammta sér lífsbjörgina. Valdimar Bjarnasyni, sem varð ástfanginn af geitasmala í Frakklandi, sem reyndist vera bandarísk auðmannsdóttir. Hann byijaði eldamennskuna á vertíðar- bát frá Grindavík, en hefur verið að elda ofan í Bretadrottningu og aðra tigna gesti sem á vesturströnd- inni gista og er nú yfirkokkur og ráðgjafi hjá einu virtasta matsölu- húsinu í Seattle. Þá segir lítillega frá ævintýramanninum Óla Skag- vík, elliheimilinu Stafholti, millan- um Vestman og afkomendum Þórðar þingmanns í Hattardal, sem hraktist til Ameríku um síðustu aldamót. eftir Úlfar Ágústsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.