Morgunblaðið - 26.07.1987, Side 46

Morgunblaðið - 26.07.1987, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1987 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna „Au-pair“ „Au-pair“ stúlka óskast á heimili í Idaho í USA. Viðkomandi þarf að vera á aldrinum 20-30 ára og verður að geta byrjað í ágústlok. Umsóknir og beiðnir um frekari upplýsingar óskast sendar auglýsingadeild Mbl. merktar: „Au pair — 6046“. Frá Heilsugæslu- stöð Kópavogs Hjúkrunarfræðingar óskast. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 40400 alla virka daga frá kl. 9.00-11.00. Sjúkrahúsið Sól- vangur, Hafnarfirði Sumarafleysingar Óskum eftir að ráða til sumarafleysinga: • Starfsfólk í eldhús. • Starfsfólk í býtibúr. • Starfsfólk við ræstingu. • Sjúkraliða. • Starfsfólk við aðhlynningu. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri í síma 50281. Fóstra eða ann- ar starfskraftur óskast til starfa við dagvistarheimilið Tjarn- arsel í Keflavík. Um er að ræða bæði fast starf og afleysingar. Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 5. ágúst 1987. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 92-12670. Félagsmálastjóri. Aðstoð á tannlæknastofu Aðstoð óskast í hálfsdagsstarf á tannlækna- stofu í rhiðbæ Garðabæjar. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir miðvjku- daginn 29. ágúst merktar: „Aðstoð — 2307“. Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar fatlaðra á Sauðárkróki Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra óskar að ráða forstöðumann þjón- ustumiðstöðvar fatlaðra á Sauðárkróki. Krafist er félagslegrar og/eða uppeldislegrar menntunar. Aðstoðum við útvegun íbúðar- húsnæðis. Nánari upplýsingar um starfið veitir fram- kvæmdastjóri svæðisstjórnar í síma 95-6232 og forstöðumaður ráðgjafaþjónustu í síma 95-5002. Skriflegar umsóknir sendist til skrifstofu Svæðisstjórnar málefna fatlaðra á Norður- landi vestra, Norðurbrún 9, 560 Varmahlíð fyrir 1. ágúst nk. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA NORÐURLANDl VESTRA Pósthóll 32 560 VARMAHLIÐ BORGARSPÍTALINN Lausar Stödur Viltu gefandi vinnu? Við starfsfólkið á Laufásborg viljum fá hress- ar og góðar manneskjur til að vinna með okkur á dagheimilinu Laufásborg frá og með 4. ágúst 1987. Okkur vantar: — Yfirfóstru, — fóstrur, — starfsfólk í 100%, 75% og 50% vinnu, — matráðskonu, — starfsmann til aðstoðar í eldhúsi í 50% vinnu f.h. Laufásborg er stórt og fallegt steinhús sem stendur við Laufásveg og er í gamla mið- bænum. Sigrún forstöðumaður gefur upplýsingar í síma 14796 (líka á kvöldin). Við hlökkum til að sjá þig! Þroskaþjálfi Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra óskar að ráða þroskaþjálfa til starfa á sambýlinu við Lindargötu, Siglufirði. Aðstoðum við útvegun íbúðarhúsnæðis. Nánari upplýsingar um starfið veitir forstöðu- maður í síma 96-71217 sem einnig tekur við umsóknum. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA N0RÐURLANDI VESTRA Pósthólf 32 560 VARMAHLÍÐ Borgarnes Kjötiðnaðarstöð K.B., Borgarnesi, óskar eftir starfsfólki til eftirtalinna starfa sem fyrst: ★ Starfsfólk í kjötvinnslu (heilsdags- og hálfsdagsstörf). ★ Starfsfólk í söludeild. Upplýsingar gefa Geir Björnsson og Georg Hermannsson í síma 93-71200. KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA Borgarnesi. Snyrtivöruverslun í miðbænum vill ráða fólk til afgreiðslustarfa. Um er að ræða framtíðarstörf. Hlutastörf koma til greina. Laun miðuð við reynslu umsækjenda. Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 29. júlí merktar: „ÖÆ — 5088“. Starfsfólk vantar Óska eftir starfsfólki í lagerstörf og af- greiðslu í skóverslun. Upplýsingar í síma 16126 eða 13570. Fiskeldi — hafbeit Silfurlax hf. óskar að ráða stöðvarstjóra fyrir fiskræktarstöð sína í Hraunsfirði á Snæfells- nesi. Starfið felst í umönnun seiða fyrir og við sleppingu í hafbeit, móttöku endur- heimtra laxa, slátrun og fleira er viðkemur hafbeitarstarfseminni. Til greina kemur hlutastarf fyrsta árið. Stöðvarstjórinn þarf að búa í næsta nágrenni við Hraunsfjörð eða flytja þangað innan árs frá ráðningu. Hann/ hún þarf að geta starfað sjálfstætt í samráði við framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Æskileg reynsla og menntun: Verkstjórn, fiskeldi, fisk- vinnsla, líffræði, fiskifræði, matvælafræði, iðnmenntun. Umsóknir ásamt upplýsingum um nafn, heimilisfang, aldur, menntun og fyrri störf sendist fyrir 10. ágúst nk. til: Silfurlaxhf, Sundaborg 7, 104 Reykjavík. SJÚKRAHÚSIÐ PATREKSFIRÐI Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahúsið óskar að ráða í eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga: 1. Hjúkrunarforstjóra. Um er að ræða afleys- ingastarf til 10 mánaða. 2. Hjúkrunarfræðing til afleysinga eða í fasta stöðu. Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri eða framkvæmdastjóri í síma 94-1110. Sjúkrahúsið á Patreksfirði. Ferskfiskmatsmaður Vestmannaeyjar Óskum eftir að ráða ferskfiskmatsmann sem allra fyrst. Upplýsingar gefnar í Vinnslustöðinni (Viðar) í síma 98-2055, Fiskiðjan (Páll) í síma 98-1237, Frystihús F.Í.V.E. (Gísli) í síma 98-1243, á almennum vinnutíma. Skrifstofustarf íþróttasamband í Reykjavík óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu til að annast daglegan rekstur. Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið við tölvur, eigi auðvelt með að vinna sjálfstætt og geti hafið störf frá og með 1. september. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 1. ágúst merktar: „Sport — 2308". Forstöðumaður Starf forstöðumanns Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins í Vestmannaeyjum er laust til umsóknar. Nánari upplýsingar um starfið og launakjör veitir Arnar Sigurmundsson í síma 98-1950 og 98-1122, Vestmannaeyjum. Rannsóknastofnun fiskiðnaðaríns, Vestmannaeyjum. Byggingatækni- fræðingur Ég er nýútskrifaður frá tækniskólanum í Horsens í Danmörku og hef starfsreynslu á mörgum sviðum. Þá sem vantar góðan starfsmann vinsamlegast hringið í síma 21151.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.