Morgunblaðið - 26.07.1987, Síða 47

Morgunblaðið - 26.07.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1987 47 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Fulltrúi framkvæmdastjóra óskast til starfa hjá öflugu fjármálafyrirtæki í miðborg Reykjavíkur. ★ Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini, ráð- gjöf, samningagerð, fjármálastjórn, umsjón með skrifstofuhaldi o.fl. Sjálfstætt og krefj- andi starf með mikla framtíðarmöguleika. Laust strax eða eftir nánara samkomulagi. ★ Fulltrúinn þarf að vera með háskólamenntun á við- skiptasviði, æskileg sérhæfing af fjármála- endurskoðunarsviði. Góð alhliða reynsla af stjórnunarstörfum og hæfileiki til að geta unnið sjálfstætt eru nauðsynlegir kostir. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Jónasson. Umsóknum skal skilað á skrifstofu okkar fyrir kl. 12.00 29. júlí nk. Starfsmannastjórnun Ráðningaþjónusta FRlsJITI Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837 Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu skólastjóra við nýstofnaðan Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu, Nesjaskóla, er fram- lengdur til 1. ágúst nk. Ennfremur eru lausar kennarastöður við Nesjaskóla. Meðal kennslugreina eru danska, þýska, stærðfræði, raungreinar og samfélagsgreinar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntmálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykavík, fyrir 10. ágúst. Menntamálaráðuneytið Tollstjórinní Reykjavík auglýsir Starfskraft vantar til afgreiðslu- og skrifstofu- starfa nú þegar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Frekari upplýsingar gefur skrifstofustjóri embættisins í síma 14859. Tollstjórinn í Reykjavík, 23.júlí 1987. Kringlan — Nýr miðbær Sérverslun með konfekt og skyldar vörur óskar eftir að ráða starfsfólk í nýja verslun sem opnar í Kringlunni hinn 13. ágúst nk. Þeir aðilar sem hafa áhuga leggi inn umsóknir á auglýsingadeild Mbl. fyrir 30. júlí merktar: „Konfekt - 4067“. jmod s SMtms Sérverslun í Kringlunni. Frá Fræðsluskrifstofu Reykjanesumdæmis Eftirtalin störf eru laus til umsóknar: 1. Starf skrifstofustjóra. 2. Störf skólasálfræðinga. 3. Starf kennslufulltrúa, sérkennaramennt- un æskileg. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 10. ágúst nk. Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis, Lyngási 11, 210 Garðabæ. Tækjastjóri Viljum ráða vanan tækjastjóra strax. Upplýsingar í síma 622700. ístakhf., Skúlatúni 4. Æskan SF140 Vélstjóra vantar á Æskuna SF 140. Upplýsingar í síma 97-81498. Kennarar — kennarar Kennara vantar að Varmalandsskóla, Mýra- sýslu, í ensku og almenna kennslu. Gott og ódýrt húsnæði. Frí upphitun. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-1859. Tollstjórinn í Reykjavík auglýsir í framhaldi af endurskipulagningu á starfsemi tollstjóraembættisins í Reykjavík og stofnun- ar embættis ríkistollstjóra eru eftirtalin störf auglýst laus til umsóknar við embættið: 1. Yfirmaður við tollstjórn. Lögfræðimennt- un áskilin. 2. Yfirmaður við tollendurskoðun. Endur- skoðunarmenntun áskilin. 3. Starf starfsmannastjóra. Menntun og reynsla í stjórnun áskilin. 4. Starf upplýsingafulltrúa. Umsóknarfrestur um störf þessi er til 1. ágúst 1987. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri. Tollstjórinn í Reykjavík. I.júli 1987. Tölvubókhald IBM PC (ný) Lítið byggingafyrirtæki óskar eftir konu á aldrinum 30-50 ára til þess að sjá um bók- hald, launaútreikning, vélritun, innheimtur og aðra skrifstofuvinnu. Til að byrja með yrði um hálfsdagsstarf að ræða. Tölvan þyrfti að vera staðsett á heimili starfsmanns næstu 6-8 mánuði, þó ekki skilyrði, en eftir þann tíma flytur fyrirtækið í glæsilegt eigið húsnæði. Nöfn og aðrar upplýsingar leggist inn á aug- lýsingadeild Mbl. merktar: „Sjálfstætt starf — 2428“ fyrir 31. júlí 1987. Uppeldisfræðingar — kennarar og aðrir með menntun á uppeldissviði Tvær stöður uppeldisfulltrúa eru lausar til umsóknar við Uppeldis- og meðferðarheimil- ið, Sólheimum 7. Heimilið er fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst og skilist í Sólheima 7. Nánari upplýsingar í síma 82686. Deildarstjóri. Starfsfólk óskast í fsbúðina í Kringlunni Óskum að ráða hresst og skemmtilegt starfsfólk til starfa í nýrri og glæsilegri ísbúð, sem opnuð verður í nýja Hagkaupshúsinu. Hlutverk þessa starfsfólks verður að hjálpa okkur við að búa til og bjóða „besta“ ís á íslandi. Allar upplýsingar gefur Guðrún Kristjánsdóttir á skrifstofu okkar, Aðalstræti 7/Hallærisplan- inu, frá kl. 10.00 til kl. 13.00 daglega. sss ■■ ÍSHÖLUN Skeytingarmenn! Vanan skeytingarmann vantar í vinnu strax. Góð laun í boði fyrir réttan mann. Upplýsingar í síma 22133 og á kvöldin í síma 45616 (Gústaf). Prentsmiðjan Rún. Tannlæknar Tannlæknir óskast til starfa í Ólafsfirði sem fyrst. Þar er laus til leigu góð aðstaða og verkefnin eru næg. Umsóknir skal senda til bæjarskrifstofunnar, Ólafsvegi 4, Ólafsfirði, fyrir 15. ágúst 1987. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 62151. Ólafsfirði, 14.JÚIÍ 1987. Bæjarstjórinn á Ólafsfirði. Starfsfólk óskast í verslun okkar. Vinnutími 9.00-13.30 eða 13.30-18.00. Umsóknum óskast skilað til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „K - 6043“ fyrir 30.07. 20 Stoðtækjasmíði Össur hf., stoðtækjasmíð er fyrirtæki í örum vexti og þurfum við því að bæta við okkur iðnlærðu starfsfólki íframleiðsludeild okkar. Leitað er að áhugasömu og traustu fólki. Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu og gott samstarfsfólk. Þeir sem áhuga hafa leggi nöfn sín og símanúmer ásamt upplýs- ingum um menntun og fyrri störf á auglýs- ingadeild Mbl. fyrir mánaðamót merkt: „Össur - 5185“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.