Morgunblaðið - 26.07.1987, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sölumenn
Frjálst framtak óskar eftir að ráða sölumenn
í skammtímaverkefni (ca. 2 mánuði). Góðir
tekjumöguleikar.
Upplýsingar gefur Erla í síma 31954.
Garðasókn
— organisti
Sóknarnefnd Garðakirkju, Garðabæ, auglýsir
eftir organista í fullt starf frá og með 1. októ-
ber 1987. Starfið felur í sér venjuleg organ-
istastörf, þjálfun kórs, aðstoð við fermingar-
undirbúning og önnur skyld störf. Laun
samkv. kjarasamningi íslenskra organleikara.
Skriflegar upplýsingar um menntun og fyrri
störf sendist formanni sóknarnefndar, Bene-
dikt Björnssyni, Aratúni 38, eða sóknarpresti,
séra Braga Friðrikssyni, Faxatúni 29, fyrir
1. ágúst 1987..
Sóknarnefnd.
Forstöðumaður
leikfangasafns á
Blönduósi
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi
vestra óskar að ráða forstöðumann leik-
fangasafnsins á Blönduósi. Krafist er félags-
legrar eða uppeldislegrar menntunar. íbúð
getur fylgt starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir núver-
andi forstöðumaður í síma 95-4188 og
framkvæmdastjóri svæðisstjórnar í síma
95-6232.
Skriflegar umsóknir sendist til Svæðisstjórnar
málefna fatlaðra, Norðurlandi vestra, Norð-
urbrún 9, 560 Varmahlíð, fyrir 1. ágúst nk.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐURLANDl VESTRA
Pósthólf 32
560 VARMAHLÍÐ
m REYKJMJÍKURBORG III
55:3 --------------------------- 5=55
MT Jlautein Stikávi MT
1. Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við.
barnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Starfið er sjálfstætt. Það felst m.a. í heimilis-
vitjunum, móttöku á stöðinni og námskeiða-
haldi.
Um er að ræða bæði afleysingar og starf til
frambúðar, einnig fullt starf og hlutastarf.
Heilsugæslu í skólum
Um er að ræða skóla víðs vegar um bæinn,
bæði fullt starf og hlutastarf.
Starfið er mjög sjálfstætt. Það felst m.a. í
heilbrigðiseftirliti, ráðgjöf og fræðslu, en
hjúkrunarfræðingur getur mótað það nokkuð
sjálfur. Hægt er að semja um ráðningu að-
eins yfir skólaárið.
2. Deildarmeinatæknir óskast til starfa við
rannsóknastofu Heilsuverndarsstöðvar
Reykjavíkur. Þetta er lítil rannsóknastofa,
staðsett miðsvæðis í stöðinni. Hún þjónar
öllum deildum stöðvarinnar svo og Heilsu-
gæslustöð Miðbæjar.
Meinatæknirinn starfar í nánum tenglsum
við starfsfólk þessara deilda, en er að öðru
leyti eigin húsbóndi.
Ákjósanlegt er að tveir starfsmenn skipti
starfinu með sér.
3. Tannfræðingar óskast til starfa við skóla-
tannlæknipgar. Starfið felst í fræðslu og
e.t.v. klínískri meðferð eftir nánara sam-
komulagi.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
og yfirmenn viðkomandi deilda í síma 22400.
Netamann vantar
Hraðfrystihús Patreksfjarðar hf. vantar
starfsmann til að annast netaverkstæði fé-
lagsins.
Upplýsingar veitir Jens H. Valdimarsson í
síma 94-1308.
Framreiðslunemar
Óskum eftir að ráða nema í framreiðslu.
Fyrri umsóknir óskast staðfestar.
Upplýsingar á staðnum hjá yfirþjóni milli kl.
12.00-14.00 næstu daga.
Bergstaðastræti 37.
Tölvuháskóli VI
Skólanefnd Verzlunarskóla íslands óskar að
ráða:
1. Kennslustjóra til að skipuleggja og hafa
umsjón með uppbyggingu náms í Tölvu-
háskólanum.
2. Tölvufræðing sem skal skipuleggja tækni-
lega uppbyggingu skólans og annast
tækjakost hans og hugbúnaðargerð.
3. Kennara til að kenna eftirtaldar náms-
greinar:
Grunnnámskeið.
Forritun (3 mál).
Kerfishönnun.
Fjarvinnslu.
Stýrikerfi.
Gagnasafnsfræði.
Öryggismál.
Skjölun.
Vinnuvistfræði.
Stjórnun.
Kennsla skal skipulögð í samvinnu við vænt-
anlegan kennslustjóra.
Öllum stöðum við skólann fylgir kennslu-
skylda. Æskilegt er að kennarar hafi starfs-
reynslu frá tölvudeildum stórra fyrirtækja.
Laun og kjör verða skv. nánara samkomu-
lagi við skólanefnd Verzlunarskóla íslands.
Umsóknir skulu sendar Þorvarði Elíassyni,
skólastjóra, eigi síðar en 15. ágúst nk.
Verzlunarskóli íslands.
Tölvuháskóli VÍ
Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands mun
taka til starfa 1. janúar nk. Innritun nemenda
hefst í haust og er fyrirhugað að taka þá inn
56 nemendur. Síðar verður þeim fjölgað upp
í 160 a.m.k. Kennt verður í húsakynnum
Verzlunarskóla íslands, Ofanleiti 1, kl.
14.00-20.00. Námið skiptist í 3 annir sem
ná yfir 1 V2 vetur. Stefnt er að viðbótarnámi
síðar, sem leiði til B.S. prófs ítölvufræðum.
Markmið skólans er: Að nemendur geti að
loknu námi skipulagt og annast tölvuvæðingu
hjá fyrirtækjum og séð um kennslu og þjálfun
starfsfólks sem notar tölvur.
Kenndar verða eftirtaldar námsgreinar:
Grunnnámskeið:
Með þessu námskeiði fá nemendur ítarlega
þekkingu á undirstöðuatriðum tölvufræðinnar,
eins og til dæmis talnakerfinu, rökrásum og
aðferðum sem beitt er við lausn vandamála.
Forritun:
Kennd verða þrjú forritunarmál. Markmiðið
er að gera nemendur hæfa til að leysa verk-
efni með hjálp tölvu, en góð kunnátta í
forritun er undirstaða þess.
Grunnskólinn á
Raufarhöfn
óskar eftir kennurum. Meðal kennslugreina
eru íþróttir og kennsla yngri barna. Ódýrt
húsnæði og barnaheimili til staðar.
Upplýsingar gefur Líney Helgadóttir, skóla-
stjóri í símum 96-51225 og 96-51131.
Vaktavinna
Starfsfólk vantar í bandverksmiðju okkar.
Tvískiptar vaktir. Einnig vantar starfsfólk í
prjónafrágang á dagvaktir. Góðir tekjumögu-
leikar. Fríar ferðir úr Reykjavík og Kópavogi.
Einungis um framtíðarstörf að ræða.
Uppl. hjá starfsmannahaldi í síma 666300.
Á
Kerfishönnun:
Markmiðið er að gera nemendur hæfa til að
leysa á skipulegan hátt hin ýmsu verkefni
með aðstoð margvíslegra hjálpartækja, s.s.
flæðirita o.fl. Lögð verður áhersla á að kenna
þessi fræði alveg frá grunni, þ.e. frá því að
greina núverandi kerfi til þess að hanna nýtt.
Fjarvinnsla:
Tölvusamskipti milli fjarlægra staða færast
sífellt í vöxt. Kennt verður hvernig gögn eru
flutt gegnum símakerfi og helstu hugtök í
því sambandi. Einnig verður fjallað um nær-
net og notkun þeirra og tengingu tölvutækja
almennt.
Stýrikerfi:
Markmiðið er að kenna nemendum notkun
og hönnun stýrikerfa, sem sjá t.d. um að
raða notendum á fjölnotendavélar, stýra
samskiptum og fleira. Góð þekking á stýri-
kerfum er forsenda þess að geta nýtt
vélbúnað á hagkvæman hátt.
Gagnasafnskerfi:
Kennd verða helstu hugtök í gagnasafns-
fræði, hönnun og notkun þeirra ásamt
uppbyggingu.
Öryggismál:
Markmiðið er að kynna nemendum mikil-
vægi öryggis í tölvuvinnslu. Gögn eru
dýrmæt, og mikilvægt að þeirra sé vel gætt.
Bæði er um að ræða öryggi vélbúnaðar, s.s.
eldvarnir og þjófavarnir, og eins hugbúnaðar
með öryggisafritun, aðgangstakmörkun,
skipulagi í kerfishönnun og forritun.
Skjölun:
Með þessari grein er ætlunin að gera nem-
endur hæfa til að skrifa leiðbeiningar og
handbækur um notkun tölvukerfa. Einnig
verður þeim kennt að leiðbeina notendum,
sem oft hafa litla sem enga þekkingu á tölv-
um og þurfa því að fá hjálp á máli sem þeir
skilja.
Vinnuvistfræði:
Markmiðið er að kenna nemendum að hanna
kerfi með það fyrir augum að ná fram há-
marks afköstum notenda og vinnugæðum
ásamt þægindum í notkun.
Verkefni 1:
Raunhæft verkefni sem nemendur leysa með
hjálp þeirra verkfæra sem þeir hafa lært að
beita.
Verkefni 2:
Sama og verkefni 1, nema hvað það verður
jafnframt lokaverkefni og mun stærra í snið-
um en verkefni 1.
Stjórnun:
Kennd verður uppbygging fyrirtækja, hugtök
stjórnunar, vinnudreifing, skipulagning og
fleira.
Verslunarskóli íslands.