Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 34

Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 Vísindin # eflaalladáð eftirÞorgeir Þorgeirsson Þegar ég var unglingur voru hérlendis margir spámenn. Varla sá örbjargarstaður á landinu að þar byggi ekki maður sem spáði f flug fugla, píramídakort, stjömur eða drauma sína og dularsambönd við æðri vitsmunaverar á hærra bylgju- sviði. Tvent áttu þessir spámenn að jafnaði sameiginlegt. Þeir litu svo á að við íslendingar væram beinlínis útvalin þjóð og fólk virtist líta á orð þeirra barasta einsog hvert annað marklaust buil. En það er sjaldnast alt sem sýn- ist. Núorðið fæ ég ekki betur séð en jafnaldrar mínir hafi meiren lítið mark tekið á spámönnum þjóðar- innar — minstakosti þeirsem í valdastólana komust. Enda mun það gömul saga að hugsanir spá- mannanna verði notadrjýgri eftir- komendunum en þær gátu orðið samtíðinni. Það liggur í spámanns- inns eðli. Og varla er það heldur tilviljun að framsóknarmenn virðast sérlega opnir fyrir orðum framliðinna spá- manna, nú sem fyr, einkanlega þegar peningalegir hagsmunir era í veði. Og því er það nú að gerast sem allir þessir spekingar höfðu spáð: ísland hefur orðið sérstöku hlut- verki að gegna í samfélagi þjóðanna einsog vera ber með fólk sem spá- fuglar, víbrasjónir alheimsins, gangur himintungla og píramídinn mikli hafa útvalið til sérstakra af- reka í veröldinni. Hvað er til marks um það? Vesturí Bandaríkjunum situr nú (20.7.1987) harðsnúið lið undir for- ystu Halldórs Ásgrímssonar og útlistar vísindaveiðar fyrir stjórn- völdum þarflandi. Uppí Dómsmálaráðuneyti situr enn harðsnúnara lið undir forystu Þorsteins Geirssonar og undirbýr aðra Bjarmalandsför sem fara á með haustinu. Til Strassburg að útskýra sögulegt vísindaréttarfar okkar fyrir Mannréttindanefnd Evr- ópuráðsins. Hvað era þessar vísindaveiðar og hvemig fyrirbæri er vísindarétt- arfar? Þar er einmitt komið að sérstöku framlagi Landans á sviði alþjóðlegra samskipta. Það er einsog aðrar þjóðir hafl átt í nokkram örðugleikum með að skilja hagkvæmnissjónarmiðið til fullnustu. Jafnvel þærsem lofsyngja þó peningahyggju að öðra leyti. Það hefur því komið í hlut eftirkomenda spámannakynslóðarinnar miklu á Landinu bláa að kenna heims- byggðinni þetta sjónarmið. Kr. 2450 Kr. 2850 Efþú ..þá ert bendum í vafa... ► Litir. Svart, hvitt. við á... ► Tegnr. 758. Litir: Hvítt, svart, brúnt. Hb, Tegnr. 1469. m v \ SKÓMAGASÍN SKÓMk^kSÍN Kr. 2.820 ..spor í rétta átt... ► Litir: Hvitt, ..við eigum skóna. SKÓMAGASÍN LAUGAVEGI 97, SÍMI 624030 Bakpokar Það getur verið erfitt að velja sér bakpoka. Stærðir, efni og útlit er mjög mismunandi. Karrimor kann réttu tökin á öllum þeim þáttum sem prýða þurfa góðan bakpoka. Skátabúðin selur karrimor bakpoka sem henta þörfum allra. Mundu að ráðleggingar okkar eru byggðar á reynslu. SKÁTABÚÐIN Snorrabraut 60 sími 12045 Þorgeir Þorgeirsson „Hvað eru þessar visindaveiðar og hvern ig fyrirbæri er vísinda- réttarfar? Þar er einmitt komið að sér- stöku framlagi Land- ans á sviði alþjóðlegra samskipta.“ Og vísindasjónarmiðið í alþjóð- legum samskiptum. Aðferð vor er einföld og snjöll: Við göngum hiklaust í hvaða al- þjóðasamtök sem stofnuð era, undirritum hvem alþjóðasáttmála er býðst og látum heimsbygðina trúa því í einfeldni sinni fyrstístað að þetta sé gert í því augnamiði að hlýða settum regium. En hugsun okkar er skarpari en þeirra og því höfum við aldrei ætlað okkur þvflíka einfeldni. Þannig höndla ekki útvaldar þjóðir. Við þiggjum að vísu með þökkum alt sem þessir alþjóðasáttmálar geta fært okkur og geram aldrei neinn ágreining þegar svo stendur á. En lengra nær friðsemd okkar heldur ekki. Útvaldar þjóðir hegða sér líktog dekurböm. Það er nú einusinni þeirra háttur og það eina sem hægt er að þekkja þær á. Meðan Hval- veiðiráðið færði okkur tóman hagnað og velsælu höfðum við þar góða vist og hljóða. Þegar Hvalveiðiráðið gerir um það löglega samþykt að við megum ekki veiða hvali lengur finst okkur hinsvegar nóg komið. Það kostar okkur peninga að hætta þessu og við snúum okkur að því að vísinda- LEIÐRETTING í matarþættinum í síðasta föstudagsblaði, þar sem fjallað var um tómata, misritaðist næringar- efnatafla fyrir 100 g af tómötum. Rétt tafla birtist hér með: Hitaeiningar 14 Vatn 93,4 g Hvíta 0,9 g Kolvetni 5,6 g Trefjaefni 1,5 g C-vítamín 20 mg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.