Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
Vísindin #
eflaalladáð
eftirÞorgeir
Þorgeirsson
Þegar ég var unglingur voru
hérlendis margir spámenn. Varla
sá örbjargarstaður á landinu að þar
byggi ekki maður sem spáði f flug
fugla, píramídakort, stjömur eða
drauma sína og dularsambönd við
æðri vitsmunaverar á hærra bylgju-
sviði. Tvent áttu þessir spámenn
að jafnaði sameiginlegt. Þeir litu
svo á að við íslendingar væram
beinlínis útvalin þjóð og fólk virtist
líta á orð þeirra barasta einsog
hvert annað marklaust buil.
En það er sjaldnast alt sem sýn-
ist.
Núorðið fæ ég ekki betur séð en
jafnaldrar mínir hafi meiren lítið
mark tekið á spámönnum þjóðar-
innar — minstakosti þeirsem í
valdastólana komust. Enda mun
það gömul saga að hugsanir spá-
mannanna verði notadrjýgri eftir-
komendunum en þær gátu orðið
samtíðinni. Það liggur í spámanns-
inns eðli.
Og varla er það heldur tilviljun
að framsóknarmenn virðast sérlega
opnir fyrir orðum framliðinna spá-
manna, nú sem fyr, einkanlega
þegar peningalegir hagsmunir era
í veði.
Og því er það nú að gerast sem
allir þessir spekingar höfðu spáð:
ísland hefur orðið sérstöku hlut-
verki að gegna í samfélagi þjóðanna
einsog vera ber með fólk sem spá-
fuglar, víbrasjónir alheimsins,
gangur himintungla og píramídinn
mikli hafa útvalið til sérstakra af-
reka í veröldinni.
Hvað er til marks um það?
Vesturí Bandaríkjunum situr nú
(20.7.1987) harðsnúið lið undir for-
ystu Halldórs Ásgrímssonar og
útlistar vísindaveiðar fyrir stjórn-
völdum þarflandi.
Uppí Dómsmálaráðuneyti situr
enn harðsnúnara lið undir forystu
Þorsteins Geirssonar og undirbýr
aðra Bjarmalandsför sem fara á
með haustinu. Til Strassburg að
útskýra sögulegt vísindaréttarfar
okkar fyrir Mannréttindanefnd Evr-
ópuráðsins.
Hvað era þessar vísindaveiðar
og hvemig fyrirbæri er vísindarétt-
arfar? Þar er einmitt komið að
sérstöku framlagi Landans á sviði
alþjóðlegra samskipta.
Það er einsog aðrar þjóðir hafl
átt í nokkram örðugleikum með að
skilja hagkvæmnissjónarmiðið til
fullnustu. Jafnvel þærsem lofsyngja
þó peningahyggju að öðra leyti. Það
hefur því komið í hlut eftirkomenda
spámannakynslóðarinnar miklu á
Landinu bláa að kenna heims-
byggðinni þetta sjónarmið.
Kr. 2450 Kr. 2850
Efþú ..þá
ert bendum
í vafa... ► Litir. Svart, hvitt. við á... ►
Tegnr. 758. Litir: Hvítt, svart, brúnt.
Hb, Tegnr. 1469. m
v \
SKÓMAGASÍN SKÓMk^kSÍN
Kr. 2.820
..spor
í rétta
átt... ►
Litir: Hvitt,
..við
eigum
skóna.
SKÓMAGASÍN
LAUGAVEGI 97, SÍMI 624030
Bakpokar
Það getur verið erfitt að velja sér
bakpoka. Stærðir, efni og útlit er
mjög mismunandi. Karrimor kann
réttu tökin á öllum þeim þáttum sem
prýða þurfa góðan bakpoka.
Skátabúðin selur karrimor bakpoka
sem henta þörfum allra. Mundu að
ráðleggingar okkar eru byggðar á
reynslu.
SKÁTABÚÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045
Þorgeir Þorgeirsson
„Hvað eru þessar
visindaveiðar og hvern
ig fyrirbæri er vísinda-
réttarfar? Þar er
einmitt komið að sér-
stöku framlagi Land-
ans á sviði alþjóðlegra
samskipta.“
Og vísindasjónarmiðið í alþjóð-
legum samskiptum.
Aðferð vor er einföld og snjöll:
Við göngum hiklaust í hvaða al-
þjóðasamtök sem stofnuð era,
undirritum hvem alþjóðasáttmála
er býðst og látum heimsbygðina
trúa því í einfeldni sinni fyrstístað
að þetta sé gert í því augnamiði
að hlýða settum regium.
En hugsun okkar er skarpari en
þeirra og því höfum við aldrei ætlað
okkur þvflíka einfeldni. Þannig
höndla ekki útvaldar þjóðir. Við
þiggjum að vísu með þökkum alt
sem þessir alþjóðasáttmálar geta
fært okkur og geram aldrei neinn
ágreining þegar svo stendur á. En
lengra nær friðsemd okkar heldur
ekki.
Útvaldar þjóðir hegða sér líktog
dekurböm. Það er nú einusinni
þeirra háttur og það eina sem hægt
er að þekkja þær á. Meðan Hval-
veiðiráðið færði okkur tóman
hagnað og velsælu höfðum við þar
góða vist og hljóða.
Þegar Hvalveiðiráðið gerir um
það löglega samþykt að við megum
ekki veiða hvali lengur finst okkur
hinsvegar nóg komið. Það kostar
okkur peninga að hætta þessu og
við snúum okkur að því að vísinda-
LEIÐRETTING
í matarþættinum í síðasta
föstudagsblaði, þar sem fjallað var
um tómata, misritaðist næringar-
efnatafla fyrir 100 g af tómötum.
Rétt tafla birtist hér með:
Hitaeiningar 14
Vatn 93,4 g
Hvíta 0,9 g
Kolvetni 5,6 g
Trefjaefni 1,5 g
C-vítamín 20 mg