Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987 27 =4- Jltargt Útgefandl Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, . Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöal- stræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Seljum ríkisfyrirtæki Aðalverkefni Jóns Baldvins Hannibalssonar sem fjár- málaráðherra er að draga úr halla á ríkissjóði. Ljóst er að verulega vantar upp á að tekjur ríkisins standi undir útgjöldum á þessu ári og ráðherra hefur lítið svigrúm til að lækka út- gjöld eða hækka tekjur umfram það sem þegar hefur verið ákveðið í fjárlögum og í bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinn- ar. A næsta ári eru möguleikar á að draga verulega úr hallan- um þó ekki verði honum eytt. Þegar ríkið eyðir meiru en það aflar hefur það mikil áhrif í þjóðarbúskapnum, um það verður ekki deilt. Auðvitað skiptir máli hvemig umfram- eyðslu ríkisins er mætt, með yfirdrætti í Seðlabanka, inn- lendri eða erlendri lántöku. Morgunblaðið hefur oft áður bent á þá hættu sem efna- hagslífinu er búin þegar ríkis- sjóður gengur fram með slæmu fordæmi. Jón Baldvin Hanni- balsson verður því að leysa verkefni sitt á næstu þremur árum, eins og sagt er í stefnu- yfírlýsingu ríkisstjómar Þor- steins Pálssonar. Ætlun ríkisstjómarinnar er að einfalda telq'uöflun ríkisins og gera hana réttlátari og skil- virkari. En einnig á að endur- skoða útgjöld ríkisins, „þannig að gætt verði fyllsta aðhalds og spamaðar og þau vaxi ekki örar en þjóðartekjur". Dr. Sig- urður B. Stefánsson, hagfræð- ingur, fjallar um ríkisfjármálin í grein í viðskiptablaði Morgun- blaðsins í síðustu viku og bendir á að endurskoðun skattkerfís- ins sé að verulegu leyti tækni- legt atriði, „og þess eðlis að við getum nýtt okkur reynslu annarra þjóða við endurbæt- umar. Þess vegna ætti ekki að reynast ómögulegt að ljúka þeim fyrir mitt kjörtímabil eins og segir í starfsáætlun ríkis- stjómarinnar. Endurbætumar munu vafalaust skila einfald- ara, réttlátara og skilvirkara skattkerfi, en að líkindum ekki miklu meiri skatttekjum. Lyk- illinn að jafnvægi í ríkisbú- skapnum er því í útgjaldahlið- inni“. Ríkissjóður getur ekki geng- ið lengra í álögum á einstakl- inga og fyrirtæki. Fjármálaráð- herra verður, nauðugur viljugur, að draga úr útgjöldum ríkisins, hætta að eyða um efni fram. Langstærsti hluti ríkisút- gjalda er bundinn samkvæmt lögum og því erfítt að minnka útgjöldin. Það tekur nokkur ár, ekki síst af pólitískum ástæð- um. A meðan verður ríkissjóður að leita annarra leiða. Og ríkis- sjóður getur haft verulegar telgur af sölu ríkisfyrirtækja. Þegar ríkisstjóm Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks var mynduð árið 1983 bundu margir vonir við að rösklega yrði gengið til verks við sölu ríkisfyrirtækja. Þær vonir bmgðust að miklu leyti. Að vísu seldi ríkið hlutabréf í Iðn- aðarbankanum, Eimskip og Flugleiðum, auk Siglósíldar og Landssmiðjunnar. Ráðherrun- um varð ekki mikið meira úr verki. I stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnar Þorsteins Pálssonar segir að stefnt sé að því að selja hlutabréf í eigu ríkisins og vonandi verður meira úr verki nú en áður. Fyrirtæki í eigu ríkisins, sem öll rök mæla með að eigi að vera í eigu ein- staklinga og félagasamtaka þeirra, em mörg. Landsvirkjun, Póstur og sími, Landsbankinn, Búnaðarbankinn, __ Ferðaskrif- stofa ríkisins, Aburðarverk- smiðjan, Sementsverksmiðjan, Steinullarverksmiðjan, Rflcis- skip, og Tunnuverksmiðja ríkisins em dæmi um nokkur fyrirtæki sem em í eigu ríkisins að öllu leyti eða að hluta, og sem rétt er að gefa almenningi kost á að eignast. Og um leið gæti ríkissjóður aflað tekna til þess að standa undir hallanum þann tíma sem það tekur að koma skikkan á útgjöldin. Undirbúningur að sölu fyrir- tækjanna tekur tíma og hann verður að vanda. Best væri að ríkisstjómin gerði áætlun um einkavæðinguna nokkur ár fram í tímann. Þannig vita all- ir hvaða fyrirtæki verða seld, hvenær þau verða seld og hversu stór hluti hlutafjár verð- ur seldur. Undirbúningur og skipulag getur ráðið úrslitum um það hvemig til tekst. Þátttaka almennings í at- vinnurekstri er mikilvæg en eins og skattareglum er háttað letja þær fólk fremur en hvetja til að setja sparifé sitt í fyrir- tæki. Skattkerfisbreytingar ríkisstjómarinnar verða að miða meðal annars að því að leiðrétta þetta. Rök em fyrir því að veita þeim, er kjósa að leggja fé í fyrirtælq'arekstur fremur en í annað, skattaíviln- anir. Endurreisn finnskrar menningar í N-Svíþjóð Barátta íbúanna í Pajala fyrir varðveislu uppruna síns Morgunblaðið/Marteinn Ringmar Bertil Isaksson, formaður menningarnefndarinnar Pajala og fram- kvæmdastjóri 400 ára afmælisnefndar byggðarlagsins. Hann er höfundur þeirrar hugmyndar að bjóða ólofuðum konum frá Stokk- hólmi og Helsingfors til Pajala til að kynnast þar piparsveinum. Ingegard Fredriksson kennari. Þegar hún var í skóla var bannað að tala finnsku, en á myndinni sýnir hún kennslugögn, sem nú eru not- uð til að böm geti lært um uppmna sinn og menningu. eftirMartein Ringmar Pajala er sveitarfélag lengst í norðri í Svíþjóð, á því svæði sem á sænsku nefnist Tomedalen, Tome-dalur. Tré og mýflugur em í milljónatali í Pajala, manneskjur era um 10.000, flestar karlkyns. Atvinnuleysi er áberandi meira en í Suður-Svíþjóð og níu af tíu ungl- ingum fara suður á bóginn í skóla og vinnu. Stelpumar fara næstum því allar, en ógiftir karlmenn á aldrinum 20—60 ára era helmingi fleiri en ógiftar konur. Það er ekki á hveijum degi sem nafn Pajala birtist í blöðum út um allan heim, en það gerðist í vetur þegar fréttist að til stæði að bjóða konum í Helsingfors og Stokk- hólmi sérstakar rútuferðir til Pajala til að kynnast piparsveinun- um. Þessari frétt var slegið upp fyrst í Svíþjóð og hún fór síðan með straumi fréttastofanna í kringum hnöttinn. Maðurinn bak við hugmyndina heitir Bertil Isaksson, formaður menningamefndar Pajala og framkvæmdastjóri 400 ára af- mælis Pajala-byggðar, sem haldið er hátíðlegt í ár. Formaður menn- ingamefndar og „kvennarútur", hvernig kemur það heim og sam- an? „Illa að margra dómi, enda hef ég verið gagnrýndur mjög af kon- um í sveitarstjóminni sem hefur tekið þá ákvörðun að á vegum sveitarfélagsins aki engar svoleiðis rútur. En nú era kaupmennimir hér famir að tala um að sjá um þetta. Það sem fyrir mér vakti var tvennt, þetta 400 ára afmæli á að sjálfsögðu að gera sem mest úr sögu okkar, en við viljum líka sýna trú á framtíðina, að hér sé ekki eintómt atvinnuleysi, fólks- fækkun og afturför. Og ef við vinnum með framtíðina í huga megum við ekki gleyma hinu ójafna hlutfalli milli kynjanna í öllum Tome-dalnum. Engar kon- ur, engin böm. Engin böm, engin framtíð. Með þessari hugmynd vildi ég koma umræðunum svolítið af stað. Þá vildi ég líka vekja athygli á afmælinu í heild sinni. Hér verða hátíðarhöld í allt sumar og haust, sýningar, veislur, framflutt leikrit, o.s.frv. Ef allt hefði gengið sinn vana gang hefðum við fengið nokkrar línur í blöðunum hér í Norður-Svíþjóð og búið. En af því ég hef sjálfur unnið í blaða- mennsku veit ég í hvaða spotta á að kippa til þess að koma blaða- mönnum af stað. Og það tókst vonum framar; afmælið hefur fengið ólíkt meira umtal af því ég kryddaði það með „kvennarútun- um“.“ í Englandi gerði eitt síðdegis- blaðanna sérstaklega mikið úr kvennaleysinu í Pajala, með þeim afleiðingum að tæplega hundrað bréf hafa borist frá einstæðum konum í Englandi, merkt „Pipar- sveinarnir í Pajala, c/o Bertil Isaksson". Þær hafa allar fengið svar; fjölritað bréf frá Bertil Isaks- son þar sem hann segist því miður ekki geta tekið að sér að fínna viðtakendur, en þær séu allar vel- komnar til Pajala í heimsókn þegar afmælishaldið nær hápunkti í byrj- un október. Hugsjónamaður mótaður af reynslu Bertil Isaksson er samt ekki maður sem selur sálu sína fyrir dálksentimetra; frekar er hann hugsjónamaður sem reynslan hef- ur kennt að það er ekki nóg að tilgangurinn sé góður ef meðalið er ekki í lagi. 1981 var hann einn af stofnendum STR-T, sem út- leggst „Svenska Tornedalingars Riksförbund-Tomionlaaksolaiset" og hefur frá upphafí verið ritstjóri fyrir blað samtakanna, „Met“, „Við“ á fínnsku mállýskunni í Tome-dalnum. STR-T-samtökin vilja he§a til vegs og virðingar þá finnsku menningu sem ennþá er lifandi í Norður-Svíþjóð; þau krefjast meðal annars að finnskan verði opinbert mál á þessu svæði til jafns við sænskuna og skyldun- ám í skólum. Þetta era fjarri því vinsælar hugmyndir hjá öllum því hér hafa margir virt að vettugi eigið mál og menningu. En á síðustu áram hefur afstaðan gagn- vart finnskunni orðið mun jákvæð- ari; samtökin STR-T era e.t.v. bæði orsök og afleiðing þessarar breytingar. „Ég get nefnt lítið dæmi. Við höfum hannað sérstakt merki fyr- ir afmælið og á því stendur „Pajala 400 ár/vuotta“, sem sé bæði á sænsku og fínnsku. Ég hef ekki heyrt um nein neikvæð viðbrögð eins og hefði vissulega orðið fyrir fímm áram. Þá vora t.d. margir öskuvondir vegna þess að Met- blaðið birti greinar á okkar mállýsku. Nú hafa þessar raddir þagnað, mönnum fínnst fínnskan ekki lengur óeðlileg í þessu sam- hengi.“ Stofnendur STR-T-samtakanna vora flestir á aldur við Bertil Isaks- son, um þrítugt. Gagnstætt for- eldram sínum hafa þeir ekki átt við erfíðleika að stríða vegna lé- legrar sænskukunnáttu og fínnsk- an er þeim ennþá eðlilegt mál. Þeir hafa notið góðs af því að kunna bæði málin og vilja nú varð- veita fínnskuna. „Allt of margir hér hafa skammast sín vegna þess hvað þeir töluðu lélega sænsku og þeg- ar komið er til Finnlands þá þykir mállýskan okkar ekki nógu fín, alltof gamaldags eða sænskuskot- in. Við viljum uppræta þessa minnimáttarkennd. En nú týna bömin móðurmálinu, þau tala yfír- leitt sænsku sín á milli. Við höfum ekki getað stöðvað þá þróun en hún er samt hægari nú en fyrir fáeinum árarn." Leikrit á nýju ritmáli Vakningin í Torne-dalnum sýnir sig líka í bókaútgáfu og leikritun. Bertil Isaksson tekur þátt í leikriti sem verður framflutt í byijun október en það er fyrsta leikrit sem eingöngu verður flutt á tomedais- fínnsku. Leikritið nefnist „Kuutot eli tarpheettomat ihmiset" (Fjöl- skyldan Kuuto eða hinar óþörfu manneskjur) og sýnir í hnotskum sögu þessa svæðis á 20. öld, niður- lægingu tungunnar, atvinnuleysið, hinar hörðu pólitísku deilur, fólks- flóttann, sérstakar trúarhreyfíng- ar. Höfundur leikritsins er Bengt Pohjanen, prestur sem hefur sagt af sér prestsskap, og rithöfundur sem hefur samið skáldsögur á sænsku og þýtt mikið úr fínnsku, m.a. Antti Tuuri, sem líka hefur komið út á íslensku. Ég innti hann eftir ástæðunni fyrir því að hann nú skrifar á móðurmáli sínu, tomedalsfinnsku: „Það var svolítið fyrir tilviljun. Sænskan er mitt fyrsta mál sem rithöfundur en svo var ég beðinn um að semja eitthvað á finnsku og lesa upp í svæðisútvarpinu hér. Úr því varð stutt skáldsaga sem síðan var gefín út og mjög vel tekið. Þetta hafði í för með sér að aðrir tóku sig til og gáfu út bækur á tomedalsfinnsku. Mér finnst sjálfum heillandi að ennþá skuli vera til þjóð sem þarfnast bæði ritmáls og höfunda og ég varð þeirrar náðar aðnjótandi að byija.“ Bengt Pohjanen skrifar jöfnum höndum á sænsku, ríkisfínnsku og á mállýskunni. Hann las í vetur í útvarp framhaldssögu um Kuuto, kommúnista og áhanganda mjög sérstakrar trúarhreyfíngar á fjórða áratugnum. Leiðtogi hennar var Finninn Korpela sem var sann- sögulegur maður, en hvemig var það með Kuuto? „Nei, hann var ekki til í vera- leikanum, en hann er til nú. Þessi fígúra hitti greinilega beint í mark því menn höfðu samband við mig meðan á upplestri stóð og sögðust hafa hitt þennan Kuuto, þannig að nú orðið veit ég nákvæmlega hvemig hann leit út og hvemig hann talaði. Stundum fínnst mér hann meira lifandi en hinir sem vora það í raun.“ — Hvað heldur þú um framtíð fínnskrar tungu í Norður-Svíþjóð? „Örlög hennar era enn óráðin. Það stoðar lítið með sámtök, bóka- útgáfu og leikritun ef fólkið sjálft hrífst ekki af eigin máli og leit að eigin sjálfsímynd.“ — Hefur þú orðið var við slíka „vakningu"? „Já, tvímælalaust. Ég ferðaðist síðastliðinn vetur í þijá mánuði og heimsótti skóla og dagheimili í öllum Tome-dalnum, talaði við bömin og foreldra þeirra um þessa menningararfleifð okkar og hvem- ig hún hefur nýst mér í mínu starfí. Og viðbrögðin vora mjög jákvæð. Það er eitthvað að gerast hér núna. Við getum aldrei ætlast til að fínnskan verði fyrsta málið, en sem annað mál við hliðina á sænskunni held ég hún eigi framtíð, m.a. vegna nálægðar við Finnland. Við þurfum á fínnskunni að halda hér.“ Tilraunir í skólum Heimsóknir Bengts Pohjanen í skólana var þáttur í tilraunastarf- semi sem nefnist „Undervisning í mángkulturell bygd“ (Kennsla í byggð margra menninga) sem hófst í Tome-dalnum 1980. Á síðastliðnum vetri tóku u.þ.b. 140 kennarar og fóstrar og 1.500 böm þátt í starfseminni sem hefur vak- ið athygli víða. í henni er menning umhverfísins gerð að grandvelli í öllum fögum. Þetta þykir kannski sjálfsagt en hefur ekki verið það í Tome-dalnum. Þar hefur skólinn ekkert tillit tekið til þess að tunga og menning er öðravísi en í öðram landshlutum. Henning Johansson, prófessor í kennslufræði í Umeá, vildi snúa dæminu við; láta sníða skólann eftir bömunum en ekki öfugt. Hann er sjálfur frá litlu þorpi nyrst í Tome-dalnum og var tvítyngdur þegar hann byijaði í skólanum, á fínnsku og samísku. Öll kennsla var strax frá upphafi á sænsku, máli sem enginn í bekknum talaði eða skildi. „Þessi aðferð að refsa bömum af því að þau töluðu móðurmál sitt, að „lemja í okkur sænskuna", eins og sagt var, fínnst okkur núna mjög einkennileg. En okkur ber að muna að þessir kennarar vora ekki vondar manneskjur sem nutu þess að pína böm. Markmið þeirra var að kenna börnunum sænsku á sem stystum tíma, og á þessum áram héldu menn að ekki rýmdist nema eitt mál í barna- hausum, og því minni finnsku sem bömin töluðu því meira myndu þau læra í sænsku. En nú vitum við að staðreyndir rengja þetta. Ég átti sjálfur í erfiðleikum með að læra alls konar hugtök í sænsku, ég var kominn upp undir tvítugt áður en ég skildi þau til fulls. Ef ég hefði fengið að nota finnskuna sem grann hefði ég lært sænskuna miklu fyrr.“ Henning Johansson hafði sam- band við kennara í Tome-dalnum og kynnti hugmyndir sínar um hvemig mætti breyta kennslunni og 1980 byijuðu fjórir bekkir að starfa samkvæmt þeim. í hveiju era þessar hugmyndir frábragðnar hefðbundinni skólavinnu? „Kennarar sem taka þátt í þessu þurfa fyrst og fremst að breyta hugsunarhætti sínum. Þeir verða alltaf að hafa það bak við eyrað að tengja kennsluna menningu og reynslu bamanna, jafnvel í stærð- fræði. Það getur samt verið mikill munur á því hvemig kennarar fara að í einstökum tilfellum, því þetta er stórt svæði og hinn menningar- legi bakgrannur mismunandi. En eitt er þó sameiginlegt öllum; bekkir sem taka þátt í þessu leita oft út fyrir veggi skólans og búa oft til eigin kennslugögn.“ — Hvernig bragðust foreldrar við þessu? „Langflestir vora jákvæðir, en þátttaka foreldra skiptir miklu í þessari starfsemi. Þó vora nokkrir áhyggjufullir út af sænsku- og stærðfræðikunnáttu bamanna, því að í samræmdum prófum hafa Tomedals-bömin ávallt verið í neðri kantinum. Og þá hafa menn kennt fínnsku menningunni um. Við sögðum foreldram að í þriðja bekk yrðu sérstök próf til saman- burðar við aðra landshluta. En foreldramir áttuðu sig mjög fljót- lega á muninum, samanborið við eldri systkini. Þessi böm vora fljót- ari að læra að lesa, áhugasamari um bóklestur og skólavinnu yfír- leitt.“ — Hvemig kemur finnskan inn í þessa kennslu? „Okkar markmið er ekki að kenna bömunum fínnsku, en við viljum breyta hugsunarhættinum þannig að menn líti ekki lengur á hana sem eitthvað sem er til traf- ala heldur sem auð sem við eigum hér ókeypis. Hér era þannig að- stæður fyrir hendi að böm geta fljótlega orðið tvítyngd. Það er ekkert merkilegt, það hefur gerst í aldaraðir. Það merkilega er hvemig skólinn hefur getað verið svo skyni skroppinn að notfæra sér það ekki.“ Gjörbreytt viðhorf Ingegárd Fredriksson er kenn- ari í Kangos, litlu þorpi, 50 kílómetra frá Pajala. Hún hefur tekið þátt 5 tilraunastarfsemi Hennings Johansson frá upphafi og fór í sumar til Kanada á þing minnihlutahópa til að segja frá reynslu sinni. „Ég var búin að kenna í átján ár þegar Henning Johansson spurði mig hvort ég vildi taka þátt í þessu. Eg vildi fyrst fá að vita nákvæmlega hvemig ég ætti að fara að, enda vön því. En ég var beðin um að lesa fræðirit um sam- bandið milli skóla, bama og heimila. Ég lá yfír þessu allt suma- rið og fann þar eina setningu sem hreif mig; „mestu skiptir að böm- in þekki upprana sinn“. Og ég ræddi þetta við samkennara minn og við ákváðum að hafa sögu Kangos sem þema yfír veturinn. Ég náði í það sem til var af bókum um Tome-dalinn en skildi fljótlega að ég yrði að leita aðstoðar hjá öðram. Ég hringdi í eldra fólk og það var undir eins til í að koma á sveitasafnið hér og segja frá. Bömin mættu með blöð, blýant og krít og á tímabili voram við með alla kennsluna þar. Við kom- um umræðum af stað í öllu þorpinu, hvað hét fyrsti íbúinn o.s.frv. Foreldrar mættu í tíma og sögðu frá sínum skólaáram og tómstundaiðju." — Hvað hefur þetta þýtt fyrir þig persónulega? „Það er ekki of sterkum orðum sagt að það hafí gjörbreytt lífí mínu, ég fínn rætur mínar hér mun meira en áður. Ég hafði eng- ar sérstakar tilfínningar til þessar- ar byggðar og ég held að það stafi af því að það var ekkert talað um Tome-dalinn á mínum skólaáram, ekki heldur í kennaraskólanum. Þess vegna eram við haldin minni- máttarkennd og eram ekki vön að telja menningu okkar nokkurs virði. En átthagafræðslan hefur gjörbreytt viðhorfum mínum og ég held margra annarra líka. Ég skammast mín þegar ég hugsa um það hvemig við stelp- umar í skólanum klöguðum í kennarann þegar strákamir töluðu fínnsku í frímínútum. Þeir vora miklu duglegri að halda fínns- kunni og vora látnir sitja eftir. En við stelpurnar vildum gera kennaranum til geðs og kjöftuðum frá. Hugsa sér, svona var þetta! Nú verður fínnskan eðlilegur þáttur af kennslunni á sama hátt og hún er það í umhverfinu. Þegar við hittum eldra fólk talar það yfírleitt fínnsku og ég túlka þá ef einhver bamanna skilja ekki. Þá höfðum við smá sýningu á búskap- arháttum hér áður fyrr og við skrifuðum öll heiti upp á báðum málunum." — Heldur þú að til séu foreldrar í Tome-dalnum sem sjá eftir því nú að hafa ekki kennt bömum sínum finnsku? „Tvímælalaust, ég þarf ekki að leita lengra en til sjálfrar mín. Maðurinn minn og ég höfum alltaf talað finnsku okkar á milli, en sænsku við dætur okkar. Þær skilja fínnskuna og á seinni áram hef ég tekið eftir því að þær segja setningar á fínnsku við mig sjálf- krafa, mér til mikillar gleði. Ég vona að það sé ekki langt í það að þær tali hana alveg. Finnska er valfag í skólum í Tome-dalnum, einn eða tveir tímar á viku. Þá er annaðhvort kennd tomedalsfinnska fyrst og síðan ríkisfínnska eða farið beint í ríkisfínnskuna. U.þ.b. helmingur af skólabömunum tekur nú þátt í slíkri kennslu. Höfundur er blaðamaður í Svíþjóð. Bitbein Svía og Rússa í stríðinu 1809 milli Svíþjóðar og Rússlands náðu Rússar völdum í Finnlandi. Eftir að styijöldinni lauk gekk illa að semja um nýju landamærin. Rússar vildu ná öllu svæði þar sem bjó fínnskumæl- andi fólk, Svíar aftur á móti halda sem mestu. Svo er sagt að samn- ingamenn hafí farið á fund Rússlandskeisara og að hann hafí dregið strik mitt á milli og sagt: Hér eiga landamærin að vera. Nýju landamærin, sem fylgja Tome- og Muonio-fljótunum, skiptu gömlu menningarsvæði í tvennt, m.a. kirkjusóknum var skipt. Almenningur í Övertomeá, Svíþjóðarmegin, tók svo miklu ástfóstri við gömlu kirkjuna sína Finnlandsmegin, að hann hélt áfram að sækja hana þótt búið væri að byggja nýja, þangað til biskup lagði sérstakt bann við að fara til Rússlands í kirkju. Landamærin breyttu í fyrstu afskaplega litlu; menn héldu áfram að hittast, eiga vöraskipti og giftast sama hvað heimsins herrar sögðu, enda langt bæði til Stokkhólms og Pétursborgar. En í lok 19. aldar fóra Oscar konung- ur II. og herforingjar í Stokkhólmi að hafa áhyggjur vegna þess finnskumælandi minnihluta sem bjó Svíþjóðarmegin. Þýskaland var þá nýbúið að ná miklum hluta af Suður-Danmörku, m.a. á þeim forsendum að þar byggi þýsku- mælandi fólk og konungur óttað- ist að Rússlandskeisari gæti leikið sama leikinn í Norður-Svíþjóð. Sú ákvörðun var tekin að gera íbúana sænskumælandi. Ríkið bauð þá öllum sveitarstjómum á þessu svæði að annast skólarekstur, þeim að kostnaðarlausu, með því skilyrði að öll kennsla yrði á sænsku. Ríkisskólunum var tekið tveimur höndum af fátækum hreppsnefndum og engum datt í hug að krefjast þess að móðurmál- inu væri sinnt í þessum skólum. í kringum 1920 var sænskan orð- in allsráðandi í skólum og upp kom sú merkilega staða að skóla- böm mættu í skóla þar sem þau fyrstu árin varla skildu orð af því sem fram fór, sama þótt kennar- amir í flestum tilfellum væru fínnskumælandi líka. Bömunum var m.a. bannað að tala fínnsku í frímínútum og urðu þau að sitja eftir, borga sekt eða vora hýdd, ef ekki gegndu. Þetta bann var formlega afnumið 1957. Eftir að fyrri heimsstyijöldinni lauk var þingað í Versölum um ný landamæri í Evrópu. Álandsey- ingar lýstu þá einróma yfír að þeir vildu tilheyra Svíþjóð. Vald- höfum í Finnlandi, sem þá var nýbúið að ná sjálfstæði, sámaði mjög vegna þess og upp kom sú hugmynd að ná Tome-dalnum í skiptum fyrir Álandseyjar. Hófst mikill áróður í Finnlandi út af þessu og var mikil áhersla lögð á hversu bæld fínnsk tunga væri í Tome-dalnum. En sá galli var að menn þar höfðu engan áhuga á að tilheyra Finnlandi og þegar sænsk yfírvöld gerðu umfangs- mikla könnun hvort einhveijir væru fylgjandi kennslu á fínnsku var sagt yfirgnæfandi nei við því. Menn skildu það þannig að ef þeir vildu tilheyra Svfþjóð áfram þá yrðu þeir að fóma móðurmál- inu. Aðrir kostir gæfust ekki. Með Tome-dælingum efldust með tímanum neikvæðar tilfínningar gagnvart eigin máli og arfleifð, og upp úr 1960 tóku æ fleiri for- .eldrar upp þann sið að tala eingöngu sænsku við bömin þó þeir töluðu fínnsku sín á milli. Það hefur haft í för með sér að fínnsk tunga á í hættu að glatast í Norður-Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.