Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 20
:0 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987 ^eytendasamtökin: Framleiðendur verði sviptir leyfi ef hætta er á salmonellusmitim 7EGNA fregna undanfarið um ð salmonellumengað svína- og júklingakjöt sé á markaðnum lafa Neytendasamtökin sent frá ér fréttatilkynningu þar sem tau krefjast meðal annars að leilbrigðisfulltrúar og Hollustu- 'ernd ríkisins herði eftirlit sitt neð öllum stigum framleiðslunn- ir. Þeir framleiðendur verði iviptir leyf i til búskapar, slátrun- ir eða vinnslu þar sem aðstæður léu ekki nógu góðar til að tryggt lé að framleiðsluvara þeirra sé ismituð. Einnig krefjast samtökin þess að sláturhúsum og vinnslustöðvum verði gert skylt að hafa öflugt innra eftirlit með fra’mleiðslu sinni og fylgjast náið með búum sem slátrað er frá. Þar sem líkur eru á að salmon- ellusýkingar geti átt rætur að rekja til meindýra og fugla, sem nærast á sorpi og fískúrgangi, beri að stór- auka almennar mengunarvarnir og koma sorpeyðingar- og holræsa- málum í sómasamlegt horf. Neyt- endasamtökin kreíjast þess síðan að eftirlit með öllu fóðri verði hert Úrsögri Guðmundar J. kemur mér ekki á óvart - segir Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins „f SJÁLFU sér kemur mér þessi úrsögn Guðmundar J. Guð- mundssonar ekki algjörlega á óvart miðað við það sem á und- an var gengið. En auðvitað getur þetta haft ákveðin áhrif bæði fyrir Alþýðubandalagið og V erkalýðshreyf inguna,“ sagði Svavar Gestsson formað- ur Alþýðubandalagsins er Morgunblaðið spurði hann um hugsanleg áhrif úrsagnar Guð- mundar J. Guðmundssonar úr Alþýðubandalaginu. Svavar sagði að það væri hins vegar útilokað fyrir sig á þessu stigi málsins að hafa uppi getgát- ur um það í hveiju áhrif úrsagnar- innar yrðu fólgin. „Ég treysti mér því ekki til að segja frekar um málið á þessu stigi," sagði hann. Svavar var spurður að því hvort hugsanlegt væri að fleiri fylgdu í kjölfarið. Hann sagði að sér væri ekki kunnugt um það. Hann hefði reyndar ekki trú á því, enda hefði Guðmundur lýst því yfir að þetta væri hans persónulega ákvörðun og lagt á það mikla áherslu. Birna Kristjánsdóttir ásamt einu verka sinna. Morgunblaðið/Sverrir Litir og fletir í FIM salnum tlRNA Kristjánsdóttir opnar lyndlistarsýningu í FÍM salnum, iarðastræti 6, í dag, föstudaginn 4. ágúst. Sýningin sem ber hei- ið Litir og fletir verður opin aglega frá kl. 14.00-19.00 og tendur til 30. ágúst. Þetta er fyrsta einkasýning Bimu lér á landi, en hún hefur tekið þátt samsýningum í Bandaríkjunum iar sem hún hefur dvalið undanfar- in ár. Hún lauk BFA-gráðu (Bachel- or of Fine Arts) frá listadeild háskólans í Iowa vorið 1986 með textíl-list sem aðalgrein og hefur síðan lagt stund á framhaldsnám í myndlist í Kalifomíu. Verkin á sýningunni eru unnin á síðastliðnum 12 mánuðum. Auk þess að mála klippir Bima, litar og límir efni sem mynda lagskipta fleti. Verkin á sýningunni eru öll til sölu. Aðgangur er ókeypis. og að stóraukin verði fræðsla til almennings og þeirra sem starfa við matvælagerð, þannig að öllum verði ljóst hvað beri að gera til að hindra matarsýkingar. Að lokum beina Neytendasam- tökin því til almennings að temja sér varúð í meðhöndlum á hráum kjötvömm. Salmonella drepst við 70 stiga hita og er því ekki hættu- leg í fullsoðnu eða steiktu kjöti, ef það hefur verið meðhöndlað á réttan hátt hrátt. Vekja samtökin sérstak- lega athygli á eftirfarandi atriðum: —Hrátt kjöt þarf að taka tíman- lega úr frysti svo að tryggt sé að það sé að fullu þítt þegar steiking eða suða hefst. -Vel verður að gæta að því að hrátt kjöt eða blóðvatn úr því kom- ist ekki í snertingu við aðra matvöru sem fær aðra matreiðslu eða er fullsoðin. -Vandlega verður að þrífa öll ílát og áhöld sem notuð hafa verið við meðhöndlun á hráu kjöti. -Gæta verður vel að því að kjöt- ið sé vel soðið eða steikt. -Matvæli séu geymd við hitastig undir 10 gráðum og tilbúnum mat haldið heitum við hitastig yfir 60 gráðum. Ólafur Hauksson Björgvin Halldórsson Stjarnan: Ólafur Hauksson ráðinn útvarpsstjóri ÓLAFUR Hauksson hefur verið ráðinn útvarpsstjóri hjá Stjörn- unni og Björgvin Halldórsson hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri dagskrár- og kynningardeildar stöðvarinnar. Ólafur var áður framkvæmda- stjóri og ritstjóri hjá Sam-útgáf- unni sem gefur út tímaritin Samúel og Hús og Híbýli. Ólafur hefur starfað við blaðamennsku í 14 ár, fyrst hjá dagblaðinu Vísi og síðan hjá Sam-útgáfunni. Hann hefur einnig verið umsjónarmaður þátta í útvarpi og sjónvarpi. Ólafur hefur BS-gráðu í fjölmiðlun frá Univers- ity of Oregon í Bandaríkjunum. Hann er 34 ára gamall. Björgvin er 36 ára gamall Hafn- fírðingur. Björgin hefur starfað að markaðsmálum fyrir veitingastað- ina Broadway og Hollywood. Ólafsvík: Vigdís verður heiðurs- gestur afmælisins Heimsækir fleiri staði á Snæfellsnesinu FORSETI íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, leggur af stað f opinbera heimsókn til Ólafsvíkur laugardaginn 15. ágúst næst- komandi. Tilefni heimsóknarinn- ar er 300 ára verslunarafmæli Ólafsvíkur en Vigdís mun einnig heimsækja fleiri staði i Snæfells- nes- og Hnappadalssýslu dagana 15. til 18. ágúst. í för með forset- anum verður Kornelíus Sig- mundsson forsetaritari og kona hans Inga Hersteinsdóttir. Lagt verður af stað snemma laugardagsmorguninn 15. ágúst og gert ráð fyrir að komið verði að sýslumörkum við Hítará kl. 10.00. Þar verður stutt móttökuathöfn en kl. 11.00 verður komið að bæjar- mörkum Ólafsvíkur við Fossá þar sem bæjarstjóri Ólafsvíkur Kristján Pálsson og bæjarstjómin tekur á móti forsetanum. Um hádegisbil eða kl. 12.15 verð- ur hátíðarfundur bæjarstjómar í gamla pakkhúsinu að viðstöddum forseta íslands. Eftir fundinn verð- ur hádegisverður í boði bæjarstjóm- ar Ólafsvíkur á Hótel Nesi. Dagskráin hefst aftur með því að Vigdís opnar málverka-, ljós- mynda-, og sögusýningu í grunn- skólanum í Ólafsvík. Þá verður farið í heimsókn á dvalarheimilið Jaðar og hátíðarsvæðið við gamla pakk- húsið skoðað. Forsetinn mun síðan leggja blómsveig að styttu stjó- mannsins í Sjómannagarðinum og gróðursetja tré í garðinum. Kvöldverður verður í félags- heimilinu í boði bæjarstjómar Ólafsvíkur. Að honum loknum hefst dagskrá í nýja félagsheimilinu á Klifí. Þar verður flutt erindi um félagsheimilið og mun forseti ís- lands opna það formlega og sóknarprestur staðarins vígja það. Síðan verður fjölbreytt dagskrá fram eftir kvöldi. Dagskrá sunnudagsins hefst með hátíðarguðsþjónustu í Ólafsvíkur- kirkju kl. 11.00 _ og mun séra Guðmundur Karl Ágústsson sókn- arprestur predika. Eftir hádegisverð verður farið frá Ólafsvík áleiðis til Hellissands. Þar munu sveitarstjórinn og sveitar- stjómin taka á móti forsetanum. Ekið verður um staðinn, sjómanna- garðurinn heimsóttur og tré gróðursett. Síðan verður opið hús og kaffísamsæti í skólahúsinu. Farið verður frá Hellissandi kl. 17.00 áleiðis að Búðum þar sem sveitarstjómir Staðarsveitar og Breiðuvíkurhrepps bjóða til kvöld- verðar. Um kvöldið verður opið hús fýrir íbúa hreppanna. A mánudagsmorguninn kl. 9.00 verður lagt af stað til Grundarfjarð- ar og vistheimilið Kvíabryggja heimsótt á leiðinni. Komið verður til Grundarfjarðar fyrir kl. 11.00 og þá verður ekið um bæinn, tijá- plöntur skoðaðar, leikskólinn heimsóttur og kirkjan skoðuð. Hádegisverður í boði sveitar- stjómar Eyrarsveitar verður í safnaðarheimili staðarins og á eftir Farið verður frá Grundarfírði kl. 15.00 áleiðis til Stykkishólms. Þar mun bæjarstjórinn Sturla Böðvars- son og bæjarstjóm Stykkishólms taka á móti forsetanum í Hólm- garði. Dvalarheimili aldraðra verður heimsótt kl. 16.30 og grunnskólinn í Stykkishólmi strax á eftir. Kl. 18.00 mun forseti íslands opna sýn- ingu í norska húsinu á vegum byggðasafnsnefndar. Kvöldverður í boði bæjarstjómar og sýslunefndar verður á Hotel Stykkishólmi en síðan verður mót- taka og kaffíboð fyrir bæjarbúa í Félagsheimilinu um kvöldið. Dagskrá þriðjudagsins hefst kl. 9.00 með heimsókn til St. Frans- iskussystra í klaustrinu. Kl. 10.00 verður farið í bátsferð að Þingvöll- um, ekið þaðan að Helgafelli og gengið á fellið. Síðan verður há- degisverður á Hótel Stykkishólmi. Farið verður frá Stykkishólmi kl. 14.00 áleiðis að félagsheimilinu Breiðabliki. Þar munu sveitarstjóm- ir Miklaholts-, Eyja-, Kolbeins- staða- og Skógarstrandarhrepps halda kaffísamsæti fyrir forsetann. Sýslunefnd verður einnig á staðnum og mun kveðja forsetann við lok samsætisins. Áætlað er að lagt verði af stað frá Breiðabliki áleiðis til Reykjavík- ur kl. 17.30 á þriðjudeginum og lýkur þar með opinberri heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, til Ólafsvíkur og Snæfells- og Hnappadalssýslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.