Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
13
Eitt til tvö prósent
fyrir dreifbýlið, takk!
miður ekki glöggur skilningur á
skaðlegum áhrifum þess að beita
bankakerfinu með þessum hætti —
ekki fyrr en allt of seint. Mér finnst
trúlegt, að afurðalánakerfið hefði
verið afnumið miklu fyrr en raun
varð á, ef stjómmálamenn hefðu
átt sér minni bein ítök í bankakerf-
inu.
VII. Útvegsbankinn
og Hafskip
Eitt dæmi enn blasir við, og það
varðar áfall Útvegsbankans vegna
viðskipta hans við Hafskip og end-
urreisn bankans á kostnað ríkisins
eftir það. Um þetta er þó líklega
rétt að segja fátt, þangað til fleiri
kurl koma til grafar við frekari
rannsókn málsins. Mér virðist, að
það geti varla verið tilviljun, að það
var ríkisbanki, sem tapaði á einu
ári (1985) hærri fjárhæð en nam
samanlögðum hagnaði allra hinna
viðskiptabankanna það ár — og það
fyrst og fremst á viðskiptum við
fyrirtæki, sem verulegir stjóm-
málahagsmunir kunna að hafa
verið bundnir við.
Auðvitað geta einkabankar líka
orðið fyrir miklu tjóni í sviptingum
viðskiptalífsins, en þess eru fá
dæmi úr fjármálaheiminum, að
virtur banki tapi yfir 80% af eigin
fé á viðskiptum við eitt fyrirtæki á
einu ári eins og henti Útvegs-
bankann 1985 og tapi svo næstum
öllum afgangnum árið eftir.
Traustur banki dreifír vanskila-
hættunni á marga ólíka lántakend-
ur og fylgist vandlega með afkomu
helztu viðskiptavina sinna til að
geta gripið tímanlega í taumana,
ef á þarf að halda.
VIII. Niðurlag
Síðustu ár hefur orðið uppsveifla
í einkavæðingu viðskiptalífsins víða
um heim. Þótt þessi þróun eigi sér
að sumu leyti hugmyndafræðilegar
rætur, felur hún í sér nokkra viður-
kenningu á því sjónarmiði, að
einkarekstur henti betur í ýmsum
greinum atvinnulífsins, þar sem
ríkisrekstur hefur tíðkazt áður.
Þannig hefur franska ríkisstjómin
nú í hyggju að selja ríkisbanka
aftur í hendur einkaaðila, en nokkr-
ir helztu viðskiptabankar Frakk-
lands hafa verið í ríkiseign síðan
1946 og enn aðrir voru þjóðnýttir,
eftir að sósíalistastjóm Mitterrands
Frakklandsforseta komst til valda
þar 1981. Svipað á við um Portúg-
al. Viðskiptabankar þar voru
þjóðnýttir eftir byltinguna í landinu
1974, en nú hyggst portúgalska
ríkisstjómin selja einkaaðilum
ríkisbankana. Þá hefur ríkisstjóm
Nýja Sjálands áform um að selja
hlutafé ríkisbanka í því landi. Hins
vegar sýnir ríkisstjóm Ástralíu ekki
merki þess, að hún hyggist selja
ríkisbankann þar, en hann er að-
eins einn (ef frá eru taldir nokkrir
örlitlir dreifbýlisbankar) og ekki
stór í samanburði við áströlsku
einkabankana, en samt er hann
umdeildur eins og minnzt var á að
framan.
Hvergi í nágrannalöndum okkar
er þó talið eðlilegt eða æskilegt,
að ríkið eigi og stjórni 75% af
bankakerfinu (þ.e. af viðskipta-
bönkum og sparisjóðum) eins og
hér. Þessu þarf að breyta í betra
horf til samræmis við skynsamleg
rök og reynslu annarra þjóða.
Jafnvel þótt menn fallist á þetta
sjónarmið í meginatriðum, er eðli-
legt, að ágreiningur sé um, hversu
langt eigi að ganga í einkavæðing-
arátt í bankakerfínu og hversu
hratt. Engum dettur í hug að leggja
til, að allir ríkisbankamir verði
seldir í einu vetfangi. Mér sýnist,
þegar allt er skoðað, að markmiðið
mætti til dæmis vera að snúa nú-
verandi stærðarhlutföllum við
nokkum veginn með því að draga
úr eignarhlut ríkisins í bankakerf-
inu úr 75% í fjórðung eða þriðjung
eða þar um bil í áföngum. Tímann,
sem slík skipulagsbreyting tekur,
væri vert að nota vel til að kanna,
hvort brýna nauðsyn beri til þess,
að ríkið reki banka, og leiða málið
til lykta í ljósi niðurstöðunnar.
Höfundur er prófessor íþjóð-
hagfræði við Háskóla fslands.
eftir Guðmund
Magnússon
Inngangur
„Vegurinn til vítis er varðaður
góðum áformum, sem aldrei eru
framkvæmd." Það búið að viðhafa
mörg orð og stór um nauðsyn þess
að styrkja og efla byggð í dreifbýli.
Því miður hefur oft orðið minna
úr framkvæmdum. Látum svo vera.
Ég hygg, að allir séu sammála
um nauðsyn endur- og framhalds-
menntunar á sem flestum sviðum
þjóðlífsins. En hvemig á að veita
þessa menntun svo að flestir, helst
allir, sem áhuga hafa, fái notið
hennar? Ég hef enga nenningu til
þess að upphefja hér eitthvert dreif-
býlisjarm. En það er deginum
ljósara, að þessi mál verða ekki að
gagni leyst nema með því að færa
menntunina sem allra mest heim í
hérað. Þetta á við í öllum greinum
atvinnu- og menntamála.
Skólinn í dreifbýli
Skyldunámsskólinn leggur grunn
að framtíð bamanna. Honum eru
sett ströng fyrirmæli um kennslu
og uppeldi nemenda sinna.
Þekking breytist ört, viðhorf
einnig. Af þessu leiðir að endur-
og framhaldsmenntun kennara er
eitt brýnasta verkefnið í skólastarf-
inu. Lög um orlof kennara og ágætt
starf Endurmenntunardeildar KHI
leysa ekki þennan vanda nema að
hluta til.
Fram að þessu hafa svo til allir
möguleikar í framhaldsnámi kenn-
ara verið í Reykjavík eða erlendis.
Afleiðingin hefur svo orðið sú, að
margir þeir kennarar, sem farið
hafa í framhaldsnám, hafa ekki
skilað sér aftur í heimabyggð að
Guðmundur Magnússon
„Þekking breytist ört,
viðhorf einnig. Af
þessu leiðir að endur-
og framhaldsmenntun
kennara er eitt brýn-
asta verkefnið í skóla-
starfinu. Lög um orlof
kennara og ágætt starf
Endurmenntunardeild-
ar KHÍ leysa ekki
þennan vanda nema að
hluta til.“
loknu námi. Hitt er þó öllu verra,
að almennt hafa kennarar í dreif-
býli ekki treyst sér til að fara í
framhaldsnám af ástæðum, sem
öllum eru kunnar. Það má því ljóst
vera, að leiðin til að ná verulegum
árangri í þessum efnum, er sú, að
koma á skipulögðu framhaldsnámi
úti í fræðsluumdæmunum, færa
menntunina heim í hérað, skólann
til fólksins.
Framhaldsnám
í sérkennslu
Fimmtán grunnskólakennarar
(13 af Austurlandi og 2 af Norður-
landi eystra) stunda nú framhalds-
nám í sérkennslufræðum hér á
Austurlandi með nýju sniði. Kenn-
araháskólinn ber faglega ábyrgð á
þessu námi og stendur straum af
kostnaði þess ásamt Fræðsluskrif-
stofu Austurlandsumdæmis. Námið
tekur tvö ár, en jafngildir eins vetr-
ar námi við KHI. Hér er um tilraun
að ræða í anda þess, sem áður er
sagt. Hvemig til tekst verður
reynslan að skera úr.
Ég hygg, að enginn þessara
kennara hefðu farið í hefðbundið
framhaldsnám. Það segir sína sögu
og vissulega lofar þátttakan í námi
þessu góðu.
Og til marks um áhuga heima-
manna í þessum efnum skal þess
að verðleikum getið hér, að Sam-
band austfírskra kvenna gefur kr.
200.000 til tækjakaupa vegna þessa
náms og flestir þátttakendur fá
ferða- og dvalarstyrki frá hlutaðeig-
andi sveitarfélögum.
Eitt til tvö
prósent, takk!
Er þá komið að meginmáli þessa
greinarkoms. Hvemig á að tryggja
fjármagn til framhaldsmenntuna
kennara í dreifbýli?
Tillaga mín er þessi: Ákveðnun
hundraðshluta af heildarkostnað
skólahalds í dreifbýli verði varið ti
framhaldsmenntunar kennara þar.
Hvað gæti þetta þýtt? Dæmi
Áætlaður kostnaður vegna grunn
skólahalds í Austurlandsumdæm
árið 1988 gæti orðið kr. 160 millj.
Eitt prósent þýðir þá 1,6 milljói
og tvö prósent helmingi meira.
Áskorun — Lokaorð
Ég skora hér með á ráðherr:
mennta- og fjármála að taka þess
mál til rækilegrar athugunar. Éj
legg til, að þeir feli einhveijum a:
starfsmönnum sínum að setja fran
tillögur í málinu tímanlega fyrii
gerð fjárlaga 1989. Það hefur verii
skipuð nefnd af minna tilefni oj
tillögugerð þessi þarf ekki að kost:
mikið.
Og ef einhver skyldi halda, ai
hér sé eitthvert bákn í uppsiglingu
þá er það mikill misskilningur.
framkvæmd yrði þetta þannig: Ráð
herra setur um þetta skýrar oj
fastmótaðar reglur og felu
fræðsluskrifstofum (fræðslustjór
um og fræðsluráðum) framkvæmd
ina heima í héraði. Með því að far:
þá leið, sem hér er bent á, vær
árlega trygg fjárveiting til þess;
mikilvæga máls.
Með náinni samvinnu við KH
og aðrar þær stofnanir, sem fram
haldsmenntun sinna, er hægt a
lyfta Grettistökum í menntunarmál
um kennara í dreifbýli. En gó
áform duga skammt nema þeim s
komið í framkvæmd.
Höfundur er fræðslustjóri & Aust■
urlandi.
Í&MARLEY
FLOORS
Marleyflex
Slitsterkar vinyl-gólfflísar
MARLEYFLEX vinyl-gólfflísar frá MARLEY FLOORS sameina góða
endingu, fallegt útlit, gæði og gott verð. Sérlega hentugar á verslunar-
húsnæði, skrifstofur, skóla, sjúkrahús og aðra þá staði sem mikið
mæðir á. MARLEYFLEX vinyl-gólfflísar eru asbestfríar og fást í fimm
litum. Stærð 30x30 cm og þykkt 2.5 mm. Ávallt fyrirliggjandi.
VECCFÓÐRARINN -
MÁLNING & JÁRNVÖRUR
Síðumúla 4, 108 Reykjavík.
Símar 687171 og 687272.
Heildsala:
Marinó
Pétursson hf.
32 Sundaborg, 124 Reykjavík.
Sími 681044.