Morgunblaðið - 05.09.1987, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987
Karl Th. Birgisaon.
Morgunblaðið/Bjami
Reifst stundum við Jón
á MR-fundum
- segir Karl Th. Birgisson, upplýs-
ingafulltrúi fjármálaráðuneytisins
Karl Th. Birgisson er nýráðinn upplýsinga fulltrúi fjármálaráðu-
neytisins. Fólk í fréttum heimsótti Karl í skrifstofu hans í
Arnarhvoli til að forvitnast um manninn og starf hans; en staða
upplýsingafulltrúa er ný af nálinni, og stofnuð af núverandi fjár-
málaráðherra, Jóni Baldvini Hannibalssyni.
Karl er aðeins 23 ára, og því
fannst blaðamanni rétt að
spyija hvort hann væri „ungur
maður á uppleið" og stefndi á
frama f stjómmálum. Karli var
greinilega ekki vel við að vera
stillt þannig upp við vegg, og
sagði að sér leiddist allt „karrí-
er“-tal. „Mér er meinilla við
skipulagningu lífsins" sagði Karl,
„Ég hyggst halda áfram mínu
námi að einhveijum tíma liðnum,
og það getur vel verið að ég verði
búinn að fá nóg af pólitík um
þrítugt."
Karl sagði að starf upplýsinga-
fulltrúa fælist í úrvinnslu og
miðlun upplýsinga frá ráðuneyt-
inu og stofhunum þess til fjöl-
miðla, stjómkerfisins og
almennings. Karl hefur líka á
sinni könnu dagleg samskipti við
fjölmiðla og þá sem til Ijármála-
ráðuneytisins leita varðandi
upplýsingar, auk þess sem hann
sinnir ýmiskonar aðstoð við ráð-
herra.
Er þörf á þessarri nýju stöðu?
Karl sagði að svo væri, ráðning
sérstaks upplýsingafulltrúa væri
liður f hugmyndum Alþýðuflokks-
ins um að færa starfshætti stjóm-
kerfisins í nútímalegra horf, og
svo væri fjármálaráðuneytið und-
irmannað miðað við mörg önnur
ráðuneyti og stofnanir, þar sem
mjög margir ættu erindi þangað.
„Það ná meiri pólitísk veður hing-
að inn en í flestar aðrar stofnanir,
því hér höldum við um budduna"
sagði Karl.
„Ertu orðinn kerfiskarl?" spurði
blaðamaður. „Vonandi ekki. Auð-
vitað er ákveðin hætta á að detta
inn í þann farveg sem fyrir er“
svaraði Karl, en benti síðan á að
staðan fylgi ráðherranum, og því
sé tryggður ákveðinn hreyfanleiki
í kerfinu. Slíkur hreyfanleiki sé
til góðs, því hann tryggi það að
nýtt og áhugasamt fólk komi inn
í stjómkerfíð, og fólk með reynslu
af kerfinu fari aftur út í atvinn-
ulífið. Karl bætti sfðan við að
auðvitað sé líka nauðsynlegt að
hafa menn sem eru ráðnir til langs
tfma, og gjörþekkja starfsvenjur
f viðkomandi stofnun.
Karl sagðist hafa haft áhuga á
stjómmálum frá því hann var
unglingur, en ekki hafa orðið mjög
virkur fyrr en hann byijaði að
starfa með Bandalagi Jafnaðar-
manna, en hann gekk svo til liðs
við „endumýjaðan Alþýðuflokk".
Þekkti hann Jón Báldvin áður?
„Já, við rifumst stundum á mál-
fundum í MR“, sagði Karl, en
varla hefur það þó verið alvar-
legt, a.m.k. kom þeim prýðilega
saman þegar Karl var starfsmað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins.
Nafn Karls hefiir sést í ijölmiðl-
um upp á síðkastið í sambandi
við deilur um mannaráðningar
fjármálaráðherra og Útvegs-
bankamálið. Blaðamaður spurði
hvemig það sé að standa allt í
einu í sviðsljósinu. „Mér satt að
segja leiðist stundum þetta puður
sem er í fjölmiðlum, yfirleitt að
tilefnislausu," sagði Karl, „en
þetta er hluti af því að starfa í
stjómmálum, og ég tek það ekki
nærri mér.“
Að lokum var Karl spurður
hvort Jón Baldvin hefði farið eftir
ábendingu hans, sem birtist í einu
blaðanna fyrir skömmu, um að fá
sér klippingu. „Ég hef nú bara
gleymt að athuga það“ sagði
Karl, og bætti við að það væri
undarlegt fréttamat að gera svona
mikið veður út af þessarri litla
setningu, sem hefði frekar verið
sögð í hálfkæringi, en hitt.
Hvemig lítur nánasta framtíð
út hjá Karli Th. Birgissyni? Karl
sagði að hann stefndi að því að
fara í framhaldsnám í stjóm-
málafræði eða einhveiju tengdu
því - en Karl nam heimspeki og
stjómmálafræði í Indiana-fylki í
Bandaríkjunum - „en fyrst ætla
ég að fylgja úr hlaði því verki sem
nú er að hafið í að endurskipu-
leggja vinnubrögð í stjómkerf-
Reuter
Páfagaukurinn Louro, og eigandi hans, Perola.
Orðljótur fugl
Hann Louro ætti strangt til tekið ekki að fá umfjöllun hér í „Fólk
í fréttum", þar sem hann er páfagaukur í borginni Sao Paulo
í Brasilíu. En Louro hefur nú gerst sekur um einkar mannlegan
breyskleika, sem er það að tala illa um náungann, og goggurinn
hefiir komið honum í klandur.
Nágranni Louros hefur nefnilega kært gauksa fyrir meiðyrði, og
áttu réttarhöldin að hefjast nú á fimmtudaginn. Þetta höfum við eft-
ir Reuter-fréttastofunni, svo að enginn haldi nú að við séum að skrökva
þessu.
Það fylgdi hins vegar ekki fréttinni hvað páfagaukurinn talandi
átti að hafa sagt - kannski var það alls ekki prenthæft - og við höf-
um enn ekki frétt hvort dómur hafi gengið í málinu. Varla er þó hægt
að dæma Louro til að greiða fjársektir, og fangelsisvist væri eigin-
lega tvíverknaður, því við getum ekki annað séð en að hann sé þegar
á bak við rimlana. Louro lætur allt þetta fjaðrafok sér í léttu rúmi
liggja, og ætlar sér alls ekki að halda goggi yfír þessarri atlögu að
málfrelsinu, sem hann telur réttilega að séu grondvallargauksréttindi.
Lið Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli sem varð Norðurlandameist-
ari í knattspymu.
Islenskir slökkvi-
liðsmenn sigursælir
NORÐURLANDAMÓT flugvall-
arslökkviliða í knattspyrnu sem
haldið er árlega, var að þessu
sinni haldið hér á landi. Keppt
var á Iðavöllum í Keflavík þar
sem Slökkviliðið á Keflavíkur-
flugvelli atti kappi við frændur
vora, Norðmenn og Svía og báru
sigur úr bítum.
M
Islensku knattspymukappamir
sem voru áberandi úthaldsmeiri
en gestimir, sigroðu Svía 3:1 og
Norðmenn 12:2. Svíar tryggðu sér
annað sætið á mótinu með auðveld-
um sigri á þreyttum Norðmönnum,
8:2.
Slökkviliðið varð því Norðurlanda-
meistari í annað sinn, en liðið varð
einnig Norðurlandameistari árið
1985. Finnar sem sigruðu á mótinu
í fyrra og Danir voru hinsvegar
ekki með að þessu sinni.
Þess má geta að leikmenn Svía og
Noregs dvöldu hér á landi í góðu
yfirlæti í fimm daga áður en þeir
héldu heim á leið.