Morgunblaðið - 05.09.1987, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987
59
Óviðeig-
andi frétta-
flutningur
Ágæti Velvakandi.
Á baksíðu Morgunblaðsins hinn
26. ágúst segir frá manni nokkrum,
sem hafði sálgað mink með malar-
skóflu í matartímanum. Með fylgir
mynd af manninum, ásamt veiði-
dýri og vopni.
Góðir Akureyrarþættir
Mér fínnst nú heldur ógeðfellt
að svona aðforum sé flaggað. Vissu-
lega er minkurinn skaðræðiskvik-
indi og á sjálfsagt ekkert gott skilið.
Það er snaggaralega gert að ná að
króa af mink og vinna á honum.
En er þetta það fréttnæmt að heima
eigi á útsíðu stærsta dagblaðs
landsins?
Mörður
Til Velvakanda
Mánudagur 31. ágúst. Ég lá fyrir
og las í hinu ágæta riti að norðan
Heima er best. í þetta sinn átti ég
erfítt með að festa hugann við efnið
það var eitthvað sérstakt sem stóð
í vegi fyrir því. Allt í einu rofaði
til eins og gluggi væri opnaður. í
gærkvöldi hafði ég ásett mér að
hringja í Velvakanda og biðja hann
að birta fyrir mig þakklætiskveðjur
til Sigrúnar Stefánsdóttur fyrir hina
prýðilegu þætti frá Akureyri. Það
verður enginn svikinn af því að
eyða kvöldstund fyrir framan skjá-
inn þegar hún er veitandinn. Kærar
þakkir Sigrún, val efnis og fram-
setningin var bæði augna og
eymayndi.
Filippía Kristjánsdóttir
Þessir hringdu . . .
Góðir g’olfþættir á
Stöð2
Valur Hrannar hringdi:
„Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til Stöðvar 2 fyrir öldungis
frábæra golfþætti og góðar mynd-
ir frá spennandi mótum. Þulurinn
er frábær og veit hvað hann er
að segja og gefur það þáttunum
aukið gildi. Aðeins eitt vil ég
minnast á, sem fer svolítið illa í
mig, en það er „potið“. Það er
alls ekki um neitt pot að ræða —
við skulum pútta áfram í golfínu,
en pota annars staðar. Bestu
þakkir fyrir mig.“
Gullúr
Gullúr fannst á Barónstíg fyrir
skömmu. Eigandi þess getur
hringt í Lindu í síma 99-3310.
Hreinsiefnið Magic
Kona hafði samband við Vel-
vakanda og spurðist fyrir um
hvort heinsiefnið Magic væri fá-
anlegt einhvers staðar. Sagði hún
að Sambandið hefði flutt þetta
efni inn á sínum tíma og bæri það
af öðrum blettahreinsiefnum.
Þessari fyrirspum er hér með
komið á framfæri.
Þakkir til hreinsunar-
deildar
Húsráðandi við Njörfasund -
hringdi:
„Eg vil færa starfsmönnum
hreinsunardeildar borgarinnar
þakkir. í þrjátíu ár hef ég þegið
þjónustu þeirra sem ætíð hefur
verið ynnt af hendi af háttvísi og
greiðvikni. Því vil ég koma kveðju
þessari til skila."
Ljósgrábröndóttur
köttur
Ljósgrábröndóttur högni,
líklega um fjögura mánaða gam-
all, fannst við Hamraborg í
Kópavogi fyrir nokkm. Eigandinn
er beðinn að hringja í síma 45093.
Gleraugu
Gleraugu með dökkri umgerð í
brúnu leðurhulstri töpuðust í Álf-
heimum eða við Vogaskóla.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hafa samband við Hallgrím í
síma 681702.
Grábröndóttur fres-
köttur
Grábröndóttur og hvítur fres-
köttur hefur undanfama daga
verið í óskilum í Háaleitishverfí.
Honum hefur verið komið fyrir í
gæslu á Dýraspítalanum. Kattar-
eigendur. Merkið ketti ykkar, þá
er á auðveldan hátt hægt að koma
þeim til skila, annars eiga þeir á
hættu að vera aflífaðir eða það
sem verra er, að verða svangir
og hraktir útigangskettir.
HEILRÆÐI
Ferðafólk
Farið varlega í óbyggðum og fjallaferðum eftir að
hausta tekur, hafið með ykkur ljós og merkjabúnað.
Fylgist vel með veðri og farið ekkert án þess að láta
aðra vita um ferðir ykkar.
Að þýða frá
orði til orðs
Til Velvakanda
Oft hefur verið ritað og rætt um
þýðingar kvikmynda fyrir sjónvarp.
Margir telja þær fyrir neðan allar
hellur, en aðrir taka upp hanskann
fyrir þýðendur. Það vil ég gjaman
gera í stuttu máli nú, því í Helgar-
póstinum 27. ágúst sl. finnst mér
ómaklega vegið að einum þýðanda.
Sjálfur fékkst ég eitt sinn lítillega
við slíkar þýðingar og skil því vanda
þýðandans.
í stuttum pistli blaðamanns HP
er fjallað um þættina um Harvey
Moon, sem sýndir em á Stöð 2. Þar
segir réttilega að þættimir séu hin-
ir vönduðustu. Hins vegar hefur
blaðamaðurinn fundið hjá sér þörf
til að fetta fíngur út í þýðinguna.
Þar sem ég horfí gjaman á þessa
vönduðu þætti get ég ekki stillt
mig um að mótmæla blaðamannin-
um. Hann telur upp nokkur dæmi
sem honum þykir sanna að þýðand-
inn sé ófær um að sinna starfi sínu.
Flest atriðin lýsa smámunasemi og
skilningsskorti á starfí þýðandans.
Sem dæmi má nefna að blaðamað-
urinn vill að setningin „Go back to
your fancy-piece“ sé þýdd „Farðu
aftur til drósarinnar þinnar", sem
er öldungis rétt þýðing. Þýðandi
þáttanna skrifaði hins vegar:
„Farðu aftur að skemmta þér“, sem
breytir merkingunni ekki neitt,
nema setningin sé slitin úr sam-
hengi. Þýðingar verða að vera
stuttar, því sjónvarpsskjárinn býður
ekki upp á annað. í þessu tilfelli
munar 8 bókstöfum á iengd setn-
inganna.
Annað dæmi, sem blaðamaðurinn
telur lýsa slæmri þýðingu: „I hope
you haven’t started to gamble aga-
in“, sem blaðamaður vill að sé þýtt:
„Ég vona að þú sért ekki byijaður
á fjárhættuspilamennskunni aftur".
Þetta er vissulega rétt þýðing, en
í þessu tilfelli breyttist merking
ekki neitt þó þýtt væri: „Ég vona
að þú farir ekki í sömu gömlu
klíkuna" Og hvort ætli fari betur á
skjánum? Mér telst svo til að þama
muni 20 bókstöfum. Flest eru dæmi
blaðamanns af svipuðum toga.
Við ættum að einbeita okkur
að því efni sem er illa þýtt, því af
nógu er að taka, en ekki láta smá-
muni gera okkur gramt í geði. Það
er bara til að eyðileggja fyrir okkur
ánægjuna af jafn ágætum þætti og
Harvey Moon.
Sjónvarpsáhorfandi.
markviss þjálfun
Strákar — Stelpur!
Konur — Menn!
JA22 SPORfÐ
HVERFISGATA 105 SIMI 13880
JAZZ SPOR/Ð
Vönduð kennsla — markviss þjálfun
Viltu verða dansari eða dansa þér til ánægju?
Jazz-ballett Jazz-dans
Nýtt! Skólakort:
Jazz-ballett.klassísk tækni.stepp.danstími.Aerobic
Innritun í s: 13880, 84758, 13512.
ÞITT EIGIÐ HUS A SPANI
Komið í sólina og hitann í Ciudad Quesada (Alicante)
á Costa Blancaströndinni. Hefur þú hugleitt möguleik-
ann á að eignast þitt eigið hús á Spáni?
RAÐHÚSFRÁ .................ÍSL.KR. 879.120,-
SÉRSTAKT TILBOÐ í HAUST:
EINBÝLISHÚS M/BÍLSKÚR.....ÍSL.KR. 1.566.000,-
Ciudad Quesada er íbúðarhverfi sem liggur í litlum
vogi með stórfenglegu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Hverf-
ið er fyrsta flokks staður með alþjóðlegu yfirbragði. Þar
búa margir allt árið. Quesada er gróið svæði og fékk
2. verðlaun í samkeppni sem haldin var meðal 350
slíkra staða á Costa Blancaströndinni. Þar voru hafðir
til viðmiðunar verðleikarnir: Gæði, næði, viðmót og
umhverfi.
Þjónusta sem opin er alla daga: 3 stórmarkaðir, 10
sérverslanir, margir veitingastaðir og barir. Jafnframt
eru margar sundlaugar og vatnagarður, 2 diskótek, 10
tennisvellir, 18 holu golfvöllur, stór heilsugæslustöð,
læknir og apótek.
Við skipuleggjum sýningarferðir á fimmtudögum með
heimkomu á mánudögum.
Verð ferðarinnar dregst frá við kaupsamning.
KOMIÐ Á KYNNINGU OKKAR SEM HALDIN VERÐUR
Á HÓTEL SÖGU LAUGARDAGINN 5. OG SUNNUDAG-
INN 6. SEPTEMBER, BÁÐA DAGANA FRÁ KL. 11.00
TIL 19.00.
AÐALUMBOÐSMENN FYRIR NORÐURLÖND,
BODIL & ERLING B0E
LANGER0D 3157 BARKÁKER NORGE
SÍMI: (47-33) 80162 - 62679.