Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
47
Nýja
Maginot-
línan
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Jon Connell: The New Maginot
line. Secker & Warburg 1986.
Frakkar jusu óhemju fjármagni
til virkisgerða á landamærum
Frakklands og Þýskalands fyrir
heimsstyijöldina síðari. Þeir treystu
á hátækni í styijaldarrekstri við
gerð þessa mannvirkis. Virkin áttu
að tryggja öryggi Frakklands við
þýska innrás. Svo braust síðari
heimsstyijöldin út og virkin voru
mönnuð, en komu ekki að neinu
haldi, Þjóðveijar hundsuðu þau og
réðust inn í Frakkland framhjá
þessum rammefldu, tæknibúnu
virkjum.
Jon Connell er fréttaritari
Sunday Times í Washington, sér-
grein hans varnarmál. Inntak
þessarar bókar hans eru varnarmál
á villustigum. Hann telur að óhemju
fjármagni sé varið til hermála og
vamarmála, en spyr hvort öll þessi
eyðsla komi að gagni, ef stytjöld
brytist út. Connell sýnir fram á, að
miklu af fjármagninu sé varið til
kaupa og uppsöfnunar óhentugs
búnaðar, sem hann telur að komi
að litlum eða engum notum ef til
styijaldar drægi. Talsverður hluti
þessa vopnabúnaðar sé gagnslaus.
Ýmiss konar rafeindatæki eru al-
gjörlega misheppnuð, en þau kosta
of fjár. Connell telur upp dæmi um
slíkan búnað sem hafi verið beitt
við heræfingar og nefnir í því sam-
bandi ýmsa kátlega atburði, eins
og þegar eitt af þessum tækni-
undrum lýsti stríði á hendur
nokkrum salernisskúrum og_ annað
sem gerði engan greinarmun á
skriðdreka og kletti.
Connell telur að oftrú manna á
tækninni sem slíkri, ekki ólíkt
furðuhugmyndum frumstæðra
þjóða, t.d. um örtölvubyltinguna,
sem talin er munu leysa öll vanda-
mál innan fárra ára.
Þessi síbemska afstaða minnir
einnig á viðhorf og tal pólitíkusa
um „líftæknina", sem þeir fjasa
endalaust um, án þess að hafa hug-
mynd um hvað hugtakið líftækni
merkir. Connell álítur að mikið
skorti á að áhrifamenn innan NATO
geri sér alvöru þessa ástands fylli-
lega ljósa. Hann telur að notkun
kjarnorkuvopna í varnarskyni sé
óraunsær úrkostur og að stjömu-
stríðsáætlanir Reagans séu vísinda-
órar. Eftir Challenger-sllysið og
Chemobyl ætti mönnum að vera
ljóst, að kjarnorka er ekkert svar
við orkuþörf mannkynsins og allt
tal um leiðsögn tæknikratanna og
kjamorkuvísinda feli í sér útþurrk-
unarhættu alls lífs hér á jörðu.
Höfundurinn sýnir ljóslega fram
á að tæknikratar ráði ekki við þau
öfl sem þeir hafa leyst úr læðingi,
fremur en lærisveinn galdramanns-
ins í Grimms-ævintýmm og að þeir
geti leyst pólitísk vandamál sé fá-
ránlegur hugarburður. Með því að
halda áfram fjáraustri samkvæmt
ráðleggingum tæknikratanna
myndu vestræn ríki verða gjald-
þrota innan tíðar. Connell telur
brýna nauðsyn á nýjum viðmiðun-
um, m.a. með því að láta tækniæv-
intýri og vísindaskáldsögur lönd og
leið og byggja meira á kenningum
von Clausewitz og raunsærra her-
fræðinga og herforingja. Eins og
nú hagar til eiga Vesturveldin mun
betri og geðþekkari stöðu í alþjóða-
málum og með því að beita því
forskoti sem þar er má gera allan
sovéskan áróður marklausan. Conn-
ell telur að það beri að leggja meiri
áherslu á hefðbundna hemaðar-
tækni, Vesturveldin eigi þar
auðveldan kost.
Þessi bók Connells er skrifuð af
mikilli þekkingu á viðfangsefninu
og raunsæju mati á stöðunni nú.
dömufatnaður..!
barnafatnaður..!