Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987 tilraun til að hætta þegar ég neydd- ist til að fara frá. Ég lenti í umferðarslysi árið 1976 og var sjúklingur í hálft ár. En það var einhvem veginn engin leið að hætta. Síðar hef ég stundum reynt að fara frá Sjallanum en alltaf lent þar inn aftur. Staðreyndin er sú að ég hef allt- af átt afskaplega góð samskipti við þá sem hafa átt húsið og rekið það. Þar hefur ekki skipt neinu máli þó að við höfum verið á alger- lega öndverðum meiði í pólitíkinni. Húsbændur mínir hafa ævinlega komið fram sem sannir heiðurs- menn og þrátt fyrir pólitískar deilur yfir kaffibolla hefur pólitíkin aldrei náð að spilla neinu í þessum sam- skiptum. Svo er annað. Sjallinn er og hef- ur alltaf verið afar heillandi hús, jafnt þegar gamla innréttingin var og núna eftir breytingamar. Þetta er eins konar hringleikahús þar sem aldrei er hægt að sjá fyrir hvemig kvöldið verður. Gamli Sjallinn var viðkvæmt hús og sá nýi er það líka. Hljómurinn í húsinu fer svo mikið eftir fjölda gestanna og hvar þeir eru og það er mjög erfitt að stjóma hljóðinu svo vel sé. Margar aðkomu- hljómsveitir hafa brennt sig illilega á þessu og spilað á óhugnanlegum styrk, bara vegna þess að menn hafa ekki kunnað á húsið. Og það er fleira sem heillar á þessum stað. Mér hefur til dæmis ekki enn tekist að finna formúlu fyrir því hvaða lög á að spila á balli í Sjallanum. Það er einfaldlega ekki hægt því það fer algerlega eftir gestunum hveiju sinni. Ég get aldr- ei sest niður heima hjá mér og raðað upp lagalista kvöldsins. Það yrði álíka og að senda segulbandsspólu á staðinn og sitja sjálfur heima. Reglan virðist einfaldlega vera þessi: Það verður að spila á fólkið í húsinu, stemmningu kvöldsins, rétt eins og sé verið að spila á hljóð- færi. Engin tvö kvöld eru eins og þess vegna vinnum við ekki eins og vélar." Staldrað við á tímamótum — Á tuttugu og fimm ára ferli hljómsveitarinnar hljóta margir tónlistarmenn að hafa komið við sögu. Veistu hve margir hafa spilað í Hljómsveit Ingimars Ey- dai ef allt er talið? „Þeir eru trúlega færri en mætti halda. Ætli þetta séu ekki einhvers staðar innan við fjörutíu manns. Ég hef verið svo lánsamur að flest- ir hafa flengst ótrúlega í hljómsveit- inni. Þetta er eins og meðalseta í ríkisstjórn, eitt til tvö kjörtímabil að jafnaði. Finnur bróðir minn Eydal hefur spilað með mér lengst allra manna og Helena Eyjólfsdóttir, kona hans, söng lengi í hljómsveitinni. Ég man þegar Finnur sagði mér fyrst frá þeirri söngkonu. Það var 1958 þeg- ar við vorum með Atlantik. Hann hafði verið í Reykjavík og heyrt í söngkonu sem hann spurði hvort hann ætti að reyna að fá til að koma norður. Ég spurði náttúrulega hvemig hún væri og hann sagði að hún væri með gleraugu! Mér þótti það einkennilegt svar því ég vildi vita hvemig hún syngi. Hvað um það, Reykvíkingurinn Helena tók niður gleraugun, kom norður og er nú einhver mesti Akureyringur sem ég þekki. Grímur Sigurðsson, sem er bassaleikari og söngvari núna, hef- ur spilað með mér lengi. Þegar hann byijaði átti hann að spila á bassa en atvikin höguðu því svo að hann var gítarleikari um árabil auk þess að syngja og spila á trompett. Síðan fór hann til útlanda til náms en kom aftur og er enn. Inga Ey- dal hefur sungið með mér í meira en áratug. Það er svo merkilegt að þegar við erum í Sjallanum störfum við eins og hveijir aðrir tónlistar- menn og eigum ekkert sameiginlegt annað en tónlistina. Þegar við kom- um 'svo út fyrir dymar að vinnu lokinni erum við faðir og dóttir á ný. Nú, Þorleifur Jóhannsson, nautn í því að spila fyrir þá eitt og eitt djasslag á meðan þeir em að borða matinn sinn. Um það bil sem ég byijaði að spila í hljómsveit, þrettán ára gam- all, fórum við Finnur bróðir minn að grúska í djassi. Eftir að hann fann klarinett uppi á háalofti á Gils- bakkavegi 5 vorum við að eilífu merktir. Þá var sjálfgefið að við fikmðum okkur áfram í djassinum á píanó og klarinett og við emm ekki hættir enn. Við dmkkum í okkur gömlu meistarana þegar við komumst yfir plötur með þeim og þetta var gert í fullkominni alvöm. Það er enginn vafi að þetta djass- nám okkar hefur greitt okkur leið að annarri tónlist sem við höfum síðar spilað." Tónlistarmaðurinn og- tæknibyltingin — Hvernig líður píanóleikar- anum í því flóði af rafeindabún- um hljómborðum sem hafa dunið yfir síðustu árin? „Þetta er óskaplega spennandi tími og þróunin er svo ör að maður má hafa sig allan við til að fylgjast með. Það er svo ör þróun að í hvert skipti sem maður kaupir sér nýjasta og fullkomnasta hljómborðið er maður aðeins of snemma í því — annað og fullkomnara er rétt ókom- ið. Gömlu og hefðbundnu hljóðfærin verða áfram til, á því er ekki vafí, en staðreyndin er sú að hljómborðin em að taka völdin. Þau keppa við öll hljóðfæri nema ef til vill gömlu píanóin. Og þó. Það em komin staf- ræn hljómborð sem skrá píanótón svo vel að ekki heyrist munur nema magnari og hátalarar séu bilaðir eða lélegir. Satt að segja er ekki nema um tvennt að ræða: að fylgjast með í þessari þróun eða setjast í ruggu- stólinn fyrir fullt og fast.“ Að fara eða fara ekki á botninn — Fordómarnir segja að hljómsveitarmenn séu óreglu- samir en þú stendur uppi eftir öll þessi ár bindindismaður og templari. „Já, mörgum finnst það skrítið. En sá sem vinnur þetta starf ber tilfínningar sínar á torg, gefur það sem hann getur til að þjóna við- skiptavininum og það er í sjálfu sér dásamlegt. Þegar maður er búinn að spila á balli og gengur út í nótt- ina er eins og maður sé að koma úr erfiðu prófi. Öll skilningarvitin em opin og fersk og allt verkar á mann sem nýtt og heillandi. Þegar svo er ástatt er ákaflega freistandi að hressa sig á einhveiju og vinsæl- um tónlistarmanni er alltaf og alls staðar boðið áfengi. En það er trú- lega erfiðast af öllu að hressa sig á þessu og gæta þess jafnframt að renna ekki af stað niður brekkuna, og hún er brött. Ég er því miður búinn að sjá margan góðan mann- inn fara þessa leið. Og leiðin til botns er fljótfarin. Þess vegna vil ég af heilum hug gefa ungum tón- listarmönnum það ráð að afneita slíkum vímugjöfum. Ef maður á að endast verður maður að vera alls- gáður og þannig getur maður lagt sig allan fram. Ég veit ekki hvort ég hef sem stúkumaður leyfi til að segja það sem mig langar til að nefna í fram- haldi af þessu, en ég geri það samt. Það er þetta: Miðað við pillur og sprautur og þau hörðu eiturlyf sem sumir eru því miður svo ólánsamir að láta í sig þá er brennivínið hreinn og klár barnaleikur. Þó að leiðin til botns á ferli áfengisdrykkju sé stutt er hún ennþá styttri og fljótfamari hjá eiturlyfjaneytandanum. Og það- an eiga fáir afturkvæmt. Það er sorgleg staðreynd hvað margir ómetanlegir listamenn hafa lent á þessari braut fyrr og síðar og þar með er saga þeirra öll. Und- antekningarnar eru svo sárafáar og þeir fáu sem hafa náð að krafla sig upp úr skelfingunni verða aldrei samir eftir það. Því miður. Sumir halda að það hljóti að vera ómögulegt að skemmta ódrukkinn drukknu fólki, en þetta er vel hægt. Það kostar að vísu það að maður beiti sérstökum hugsunargangi, stilli sig inn á sérstaka bylgjulengd, en það er vel mögulegt." — Nú þegar þú stendur á tíma- mótum, ert þú að segja skilið við dansleiki og danstónlist? „Nei, biddu fyrir þér, alls ekki. Þetta er spennandi starf þó að það sé ótrúlega slítandi, og satt að segja er sama spennan fyrir hvert skipti sem ég fer á sviðið: Hvernig verður kvöldið? Hvemig tekst okkur að gera eins vel við gestina í kvöld og hægt er. Sannleikurinn er sá að það má ekkert út af bera. Eitt lag, ein mistök geta eyðilagt fyrir mér helg- ina. En þetta er svo stór hluti af lífí _mínu. Á meðan góðir hljóðfæraleikarar nenna að spila með mér, á meðan konan mín segir ekki stopp, en starfíð og amstrið í sambandi við það lendir ekki síst á henni og fjöl- skyldunni, og á meðan áheyrendur em svo vinsamlegir að leggja við eyran, þá langar mig til að halda áfram.“ Viðtal: svpáll trommuleikarinn minn núna, hefur líka verið með mér mjög lengi. Minnisstæðustu söngvaramir af mörgum öll þessi ár era Vilhjálmur Vilhjálmsson og Þorvaldur Hall- dórsson og þeir dvöldu við í mörg ár og sungu meðal annars með hljómsveitinni á mörgum plötum. — Og nú hefur þú safnað sam- an ýmsum af þessum listamönn- um til að rifja upp liðna tíð. „Já, þegar við áttuðum okkur á því að þetta hafði staðið í 25 ár, og satt að segja þurfti ég að reikna dæmið nokkram sinnum áður en ég trúði niðurstöðunni, þá ákváðum við að gera svolitla úttekt og skoða ferilinn, ná í þá sem til næðist og ættu heimangengt og gera svolítið kvöldprógramm. Niðurstaðan er sýning þar sem við eram tólf hljóð- færaleikarar og söngvarar á sviði og auk þess tæknilið, dansarar, leik- arar og leikstjóri. Þetta verður um það bil eins og hálfs tíma skemmt- un með tónlist og ýmsum atvikum sem hafa komið fyrir á ferlinum og við vonum að þeir sem hafa átt gleðistundir með okkur komi og rifji upþ með okkur liðna tíð. Mér líst vel á þetta, þetta verður skemmti- legt held ég og mér er efst í huga þakklæti til allra þeirra fjölmörgu sem hafa hjálpað til að gera þetta að veraleika. Þar á ég ekki síst við Sögu Jónsdóttur leikstjóra sem hef- ur séð um að koma þessu öllu í sögubúning." Góð sveifla verkar beint á tilf inningarnar — En víkjum aðeins að öðru. Danstónlistarmaðurinn Ingimar Eydal hefur komið viðar við í tónlistinni en að spiia á dansleikj- um. „Ég er nú hræddur um það. Eig- um við ekki að orða það svo að ég hafí alltaf haft hliðarspor í tónlist- inni til að hugga mig við. Þetta er djassinn. í flestum tónlistarstefnum gilda ákveðin lögmál, en sá sem ævinlega hagar sér eftir lögum er eins og bundinn í báða skó. Það er tii vönduð og vel samin tónlist sem er rétt eftir formúlunni og góð sam- kvæmt henni, en hún hefur ekki þann neista sem er að fínna í djass- inum. Djassinn gefur manni frelsi. Þessi blanda af Afríkuhefð og tón- iist Vesturlanda hefur gífurlegan lífsneista og góð sveifla verkar beint á tilfínningar manna. Djassinn er eins og áminning til hvíta kyn- stofnsins að lokast ekki inni í formúlum og akademiskum þanka- gangi. Þegar maður er búinn að spila góðan djass og hefur tekist allvel upp þá þarf maður ekkert meir. Maður er sáttur við lífið og tilverana. Upphaflega ætlaði ég að nota þennan vettvang, spila djass fyrir fólk hvort sem því líkaði betur eða verr, en það var náttúralega ekki hægt. Ég hef þá verið eins og þeir ungu tónlistarmenn nútímans, sem mér þykja alltaf hrífandi, sem vilja ekki gefa því gaum hvort fólk vill hlusta á þá eða ekki. Líta ekki á starf sitt sem þjónustu heldur hafa í heiðri listræn markmið. En ég held núorðið að danshúsin séu ekki réttur vettvangur til að halda þar námskeið í tónlist fyrir gestina. Þó verð ég að viðurkenna að mér er Slökkvistöðin er í næsta húsi við Sjallann. í þessu slökkviliði, árið 1986, eru í fremstu röð: Inga Eydal, Grimur Sigurðsson og Brynleif- ur Hallsson. Ingimar Eydal er i miðju en efst eru Þorleifur Jóhanns- son og Snorri Guðvarðarson. Á Mallorka sumarið 1974: Bjarki Tryggvason, Helena Eyjólfsdóttir, Finnur Eydal, Grimur Sigurðsson og Ingimar Eydal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.