Morgunblaðið - 04.10.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
B 17
Tvær nýjar
með Donald
Sutherland
Hann leikur kvensaman málara
og prest í morðingjaleit í nýjustu
myndunum sínum
Donald Sutherland hefur
ekki sést mikið í bíó hér að
undanförnu. Síðustu myndirnar
sem við sáum með honum voru
Raunir saklausra (Ordeal By
Innocence), frekar misheppn-
uð útgáfa af sögu Agöthu
Christie og The Catholic Boys,
unglingamynd sem hann fór
með aukahlutverk í.
Nýlega voru frumsýndar
tvær mjög ólíkar myndir með
honum vestra, The Wolf at the
Door og The Rosary Murders.
„The Wolf“ er gerð í sam-
vinnu Dana og Frakka og segir
frá erfiðleikatímabili í ævi mál-
arans Paul Gauguin á árunum
1893 til 1895. Sutherland er
þriðji leikarinn til að fara með
hlutverk málarans í kvikmynd
en George Sanders lék Gaugu-
in í The Moon and Sixpence
og Anthony Quinn lék hann í
Lust for Life. Walter Goodman
hjá The New York Times þykir
Sutherland bera af.
Leikstjóri myndarinnar er
Henning Carlsen en þess má
einnig geta að Max Von Sydow
leikur August Strindberg.
Þegar myndin hefst er
Sutherland í The Rosary Murd-
ers.
Donald Sutherland í myndlnnl
Wolf at the Door.
Gauguin 45 ára og helstu
áhugamál hans eru annars
vegar vinnan og hins vegar
stúlkur þrjátíu árum yngri en
hann. Málarinn er óbifanlega
trúr list sinni en hryllilega ótrúr
konum. Hann yfirgaf danska
eiginkonu og fimm börn þeirra,
franska hjákonu sína og barn
þeirra og þegar myndin hefst
hefur hann sagt skilið við 13
ára „eiginkonu" á Tahiti, þar
sem hann dvaldi í tvö ár, og
flúið til Parísar. Nefndi einhver
Kasanóva.
í hinni myndinni, The Rosary
Murders, leikur Sutherland
kaþólskan prest rétt eins og í
áðurnefndri unglingamynd.
Leikstjóri er Fred Walton og
hann skrifaði handritið ásamt
rithöfundinum Elmore Leon-
ard. Morðingi drepur kaþólska
presta í Detroit og hempu-
klæddur Sutherland er settur í
rannsókn málsins.
Sumsé, nóg að gera hjá Sut-
herland þótt lítið sjáist af
honum hér um slóðir.
Nú skaltu bregða undir þig betri
fætinum og koma með okkur
þangað sem þægilegur sumarylur
ríkir allt árið. Þar ægir öllu saman
á þann skipulagða hátt, sem
móður náttúru er einni fært að
gera.
LANDSLAG: Eldfjöll, stórkost-
leg gljúfur, hellar, eyðimerkur-
hólar, flatlendi, klettar og unaðs-
legar strendur og hlýr sjór.
GRÓÐURFAR: Flóra Evrópu og
Afríku í sátt og samlyndi.
MANNLÍF: Allar tegundir af
jarðarbúum við störf, skemmtan-
ir og letilíf.
SAGA OG UMMERKI: Cro-
Magnonmaðurinn, hið horfna
Atlantis, Kólumbus - nei annars
komdu bara og sjáðu allt með eig-
in augum. Hvort sem þú ert nátt-
úruunnandi, mannlífsunnandi,
næturlífsunnandi eða ólæknandi
sóldýrkandi, þá er þetta staður
fyrir þig.
VIÐ ERUM AÐ TALA UM
KANARÍEYJAR!
BROTTFARIR:
1. ferð27dagar 01-11/87
3ja vikna 27-11/87
2javikna 11-03/88
GISTING OG VERÐ FYRIR
FULLORÐNA í ÞRjÁR VIKUR:
Smáhýsi; (bungalow) San Valentin
Park, Bungalow Holican, Bunga-
low Princess; . frá kr. 45.144,-
íbúðahótel; Corona Blanca,
............... frá kr. 42.804.-
Hótel; Catarina Playa og Buena-
ventura; ...... frá kr. 47.804,-
með kvöldverði... kr. 53.078.-
FARARSTJÓRAR í þessum ferð-
um verða þær AUÐUR og
KLARA og það mun áreiðanlega
gleðja þá farþega sem hafa
kynnst þeim úr fyrri ferðum
okkar.
REISUKLÚBBURINN
ATLANTIK FERÐAMIÐSTÖÐIN POLARIS TERRA ,
Hallveigarstíg 1 Aðalstræti 9 Kirkjutorgi 4 Snorrabraut 27-29
Símar 28388-28580 Sími 28133 Sími 622011 Sírni 26100
SAGA TRAVEL
Suðurgötu 7
Sími624040
/0
REISUKLÚBBNUM TIL HINS EILÍFAVORS!