Morgunblaðið - 04.10.1987, Side 18

Morgunblaðið - 04.10.1987, Side 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987 Ljósmóðurstaifið ersvojákvætt í eðli sím Rabbað við ljósmæðranemana Guðnýju Bjarnadóttur og Ingigerði Guðbjörnsdóttur Ljósmóðirin verður að hafa til að bera næman mannlegan skilning.Og hún hefur óhjákvæmilega áhuga á fólki. Annars væri hún varla að fara í starf, sem allt byggir á samskiptum, einatt mjög tilfinningarikum. Fæðing nýs einstaklings er í senn svo náttúrlegur og stórkostlegur atburður, að ekki ekki til annars jafnað. “ m þetta voru þær á einu máli ljósmæð- ranemamir Guðný Bjama- dóttir, sem er á öðru ári í skólanum og Ingigerður Guðbjöms- dóttir, sem byijaði í haust. Guðný lauk hjúkmnarprófi fyrir allnokkr- um ámm, en ákvað síðan að bæta ljósmæðranáminu við, en Ingigerð- ur lauk hjúkmnamáminu fyrir rösku ári. Skilyrði fyrir inngöngu í Ljósmæðraskólann nú er hjúkmna- rmenntun og námstími tvisvar sinnum níu mánuðir og frí yfir sumarið. Ljósmóðurstarfið er já- kvætt í eðli sínu Guðný Bjamadóttir á sveitfesti í Vestmannaeyjum, og þangað er hún staðráðin að fara, þegar hún hefur lokið náminu.„Ég hef lengi haft hug á að fara í ljósmæðranám- ið,“ segir hún. „Vegna þess hve það er í eðli sínu jákvætt og ijölbreytt. Þar sem fæðing og meðganga telst ákaflega eðlilegur hlutur og ekki sjúkleiki, beinist athyglin ekki að hinum neikvæðari þáttum. Það er svo endumærandi. Auðvitað kemur fyrir, að eitthvað beri út af, en í langflestum tilfellum em það bara ósköp eðlilegir kvillar. Svo mikið forvamarstarf, kynning og fleira er komið með í reikninginn, að bamshafandi konur fá að vita jafn- skjótt og bólar á einhveiju athuga- verðu og em þá lagðar inn ef þurfa þykir. Ami eitthvað að fóstri upp- götvast það í fleiri tilfellum en ekki. Eg hef verið ánægð í hjúkmna- rstarfínu, en því er ekki að neita, að mér finnst starf ljósmóðurinnar sem sagt jákvæðara og indælla, maður er að vinna með konum á bameignaraldri, það er mikið að gerast hjá þeim og skemmtilegt að fá að verða þátttakandi í þessari jákvæðu framvindu í lífí þeirra. Meðan á náminu í Ljósmæðra- skólanum stendur, vinna nemar nokkum tíma á hinum ýmsu deild- um til að fá sem gleggsta innsýn í marga þætti starfsins.A göngu- deild, þar sem fram fer mæðraskoð- un, meðgöngudeild, en þar liggja verðandi mæður vegna einhvers sjúkleika, vökudeild nýbura, sem þurfa sérstaka sinnu og bama sem eru fædd fyrir tímann. Skurðstofu, meðal annars til að geta aðstoðað við keisaraskurð ef það kæmi upp á. Þá er fæðingargangurinn og svo sængurkvennagangur, þar sem fylgzt er með konunum eftir fæð- inguna. Mæðravemd hérlendis er mjög afgerandi svo og öll umönnun fyrir og eftir bamsburð. Samt verður það vafalaust alltaf þannig, að einhvers kvíða gæti hjá konum. Þessi tími er alltaf sérstakur. Sama hversu oft kona eignast barn. Nú held ég að konur séu meðvitaðri um líkama sinn og starfssemi hans en áður. En samt er alltaf dálítill kvíði af þeim toga sem vanfærar og síðan fæðandi konur þekkja einar og sprettur upp af tilfinningasviðinu. En ljósmæðra er líka að hjálpa þeim að glíma við þennan kvíða, svo að hann verði viðráðanlegri, ef ég mætti orða það svo. Ég held, að allar konur spyiji fyrst, hvort sé allt í lagi með bar- nið eftir fæðinguna. Ég hef aldrei vitað til, að annarrar spumingar sé spurt fyrst. Langflestar bamshaf- andi konur nú eru þó búnar að fara í sónar, og konum 35 ára og eldri er boðið upp á að tekin sé legvatns- prufa. Þar með kemur tiltölulega snemma á meðgöngunni fram, ef eitthvað er að. En ekki er það alveg óbrigðult og þessi kvíðakennd, sem ég var að tala um, er afar eðlileg í sjálfu sér. Ljósmóðir á að geta unnið mjög sjálfstætt og hún á að vera fær um að greina, ef eitthvað er að fara FÆÐINGARDEILD ■ ■ VOKUDEILD SKURÐDEILD ÁLMA B MEÐGÖNGU1" / Guðný Bjarnadóttir I Ingigerður Guðbjömsdóttir úrskeiðis í fæðingu og kallar þá til lækni. Fæðandi konu er mikils virði að mynda tengsl við ljósmóðurina, meðan dregur að fæðingu og þess vegna er mikilvægt, að ljósmóðirin geti fylgt konunni þar til fæðing er afstaðin. Auðvitað verður þvi ekki alltaf viðkomið, og alls konar ástæður geta verið fyrir því, einkum á hinum stærri stofnunum. Núorðið liggur við að það heyri til undan- tekninga, ef faðir eða annar nákominn ættingi er ekki viðstadd- ur fæðinguna. Eg held, að það sé ákaflega gott, að faðirinn fylgist með, sennilega tengist hann bam- inu í senn fyrr og öðruvísi. Ég er ákaflega ánægð að hafa farið í námið. Það er vel uppbyggt og lærdómsríkt. Og ég hlakka til að starfa við það. Lykilatriðið er sem sagt að hafa ánægju af að umgangast fólk. Þessi ferill,- þung- un, meðganga, fæðing- er gleðileg- ur og gefandi. Og hver fæðing er einstök. Ég held, að maður hrífíst í hvert skipti og alla tíð,“ sagði Guðný. Ég- er að láta gamlan draum rætast „Með því að fara í Ljósmæðra- skólann er ég að láta rætast gamlan draum,“ sagði Ingigerður Guð- bjömsdóttir.„Ég held að ég hafi haft áhuga á ljósmæðrastarfínu frá unglingsaldri. í ættinni vom nokkr- ar ljósmæður, kannski þetta sé bara í genunum. Eftir allanga búsetu erlendis, ferðalög og bameignir ákvað ég að tímabært væri að gera eitthvað í málinu. Ég sótti um inn- göngu eftir ég átti fyrra bamið mitt fyrir níu ámm, en hjúkmna- rfræðingar höfðu þá forgang. Svo að ég fór í öldungadeildina og svo í Hjúkmnarskólann og var í síðasta árganginum, sem útskrifaðist úr gamla skólanum. Mér fannst til mikils að vinna, en ég sé líka í hendi mér, að það er gott að hafa lífsreynslu með sér þegar út í þetta er farið. Skilningur á mannlega þættinum er ekki síður mikilvægur, þótt að hvað grípi inn í annað og þekkingin og hæfnin til að vera viðbúin öllu sé auðvitað gmndvall- aratriði. En ljósmóðir hjá fæðandi konu þarf að skynja andlegt ástand konunnar líka. Persónuleiki getur oft ráðið því hvort konan getur haft stjóm á sér þegar hún er að fæða. Sömuleiðis góð þekking á því sem gerist. Vitn- eskja um eigin Ííkama og starfssemi hans. Þetta getur verið fæðandi konu til ómetanlegs stuðnings.“EP Ingigerður var að koma úr tíma í fósturfræðum, þegar við spjölluð- um saman.„Fósturfræði er um þróun frá getnaði til fæðingar, þroska fósturs á fyrstu vikunum. Það er svo óhemjumikið að gerast á þessum tíma. Svo læmm við lífeðl- isfræði, með áherzlu á lífeðlislega virkun á vöðva, tauga- og skyn- boðin. Við læmm nýburafræði og við læmm um meðgönguna. Þá er ég að tala um eðlilega meðgöngu og fæðingu. Nemarnir læra og fæð- ingarfræði og meðferð sængur- kvenna og við æfum okkur- með því að nota gínur fyrst. Við nemum líffærafræði og við lesum sögu ljós- mæðrafræðslu frá upphafi. Þetta og fleira er á bóklega námskeiðinu, sem byrjað er á og stendur í sex vikur. Fæðingin sjálf er ekki hjúkmn. Aðhlynning eftir fæðingu tengist hjúkmn. Þó má auðvitað deila um allar svona skilgreiningar og kannski má tengja alla aðhlynningu eins lags hjúkmnarstörfum. Ég held að starfíð höfði ekki síður til kvenna nú en áður. Að minnsta kosti til þeirra sem hafa ákveðna þekkingu og áhuga á manneskjunni og því sem gerist í henni þennan tíma. Óneitanlega er það sérhæfð kvenleg reynsla fæða bam og eftir því sem ég læri meira um þessa þróun og hvað gerist- sem ég hygg að ætti að kynna konum almennt miklu betur - verð ég æ stoltari af því að vera kona. Það er stórmerki- legt að búa í svona fjölhæfum likama og upplifa þau forréttindi sem honum fylgja. Konulíkaminn er eiginlega kraftaverk. Hann getur tekið að sér að fóstra í sér líf og hann getur þanizt út eftir þörfum og síðan farið í samt lag... Og hugsa sér öll þau átök sem verða í líka- manum, bara við eðlilega meðgöngu og fæðingu. Allt það álag sem fylg- ir. Svo lagar líkaminn sig að því að breytast aftur. Hvað sem ýmsum öðrum þáttum líður - mér fínnst það forréttindi að fá að vera kona.“ TextiiJóhanna Kristjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.