Morgunblaðið - 18.10.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1987
45
Franskar
á fimmtudags-
kvöldum
Úr myndinnl Tendre poulet eftlr Philippe de Broca.
Úr myndinni Police python, sem endursýnd verður f kvikmyndaklúbbn-
um 17. des.
Kvikmyndaklúbbur Alliance
Francaise er byrjaður starf-
semi sína aftur og hefur fært
út kvíarnar því hann sýnir nú
franskar myndir á þremur
sýningum hvert fimmtudags-
kvöld í Regnboganum.
Myndirnar eru frá ýmsum
tímum, allt frá 1935 til 1983.
Myndirnar Police python eftir
Alain Corneau frá 1976 með
Yves Montand og Simone Sig-
noret í aðalhlutverkum og Ce
cher Victor (Kæri Victor) eftir
Robin Davis frá 1974 með
Bernard Blier og Jacques Dufil-
ho í aðalhlutverkum, hafa
þegar verið sýndar en Police
python verður endursýnd þann
17. des.
Aðrar myndir sem boðið
verður uppá fram að áramót-
um eru eftirtaldar (upplýsingar
eru fengnar úr sýningarskrá):
La Kermesse héroique
(Hetjuhátíðin) eftir Jacques
Feyder frá 1935, sígild mynd
frá gullöld franskrar kvik-
myndagerðar. Hún gerist á 17.
öld í flæmskumælandi hluta
Belgíu og hefst á því að til-
kynnt er koma vafasams
manns, hertogans af Olivares,
landstjóra Spánverja í Hol-
landi, í smábæinn Boom.
Konurnar í bænum ákveða að
taka á móti gestunum með
eftirminnilegum hætti (sýnd
15. okt.).
L’année derniére á Marien-
bad (Síðasta ár í Marienbad)
eftir Alain Resnais, sem leik-
stýrir, og Alain Robbe-Grillet,
sem skrifar handritið, frá 1961,
draumkennd mynd sem hver
áhorfandi verður að túlka eftir
eigin hugmyndaflugi (sýnd 22.
okt.).
Tendre Poulet eftir Philippe
de Broca frá 1977. Þetta er
löggumynd í léttum dúr með
Annie Girardot, Philippe Noiret
og Cahterine Alric í aðalhlut-
verkunum en myndin segir frá
kvenlögregluforingja og
grískukennara sem hittast aft-
ur eftir fjölda ára (sýnd 29.
okt.).
Le vieux fusil (Gamli hólkur-
inn) eftir Robert Enrico, sem
leikstýrir, og Pascal Jardin,
sem skrifar handritið, frá 1976
með Philippe Noiret, Romy
Schneider og Jean Bouise.
Myndin gerist árið 1944. Eigin-
kona og dóttir læknis eru
myrtar og læknirinn ákveður
að leita hefnda (sýnd 5. nóv.).
Le signe du lion (Ljónsmerk-
ið) eftir Eric Rohmer frá 1959
með Jill Olivier og Jess Hahn
í aðalhlutverkunum. Þetta er
fyrsta mynd Rohmers í fullri
lengd en Claude Chabrol fram-
leiddi hana. Sýningar á henni
hófust ekki fyrr en 1962 og var
henni ekki mjög vel tekið af
áhorfendum þótt gagnrýnend-
ur lofuðu hana mikið. Myndin
segir frá Ameríkana sem fer í
hundana í París (sýnd 12.
nóv.).
Adieu Philippine (Bless,
Philippine) eftir Jacques Rozier
frá 1962. Rozier tilheyrir
frönsku nýbylgjunni og þessi
mynd hans er lýsing á Frakkl-
andi þegar það átti í stríði við
Alsír. Hún segir sögu ungs
mans sem kallaöur er í herinn
(sýnd 19. nóv.).
Les trois couronnes du
matelot (Hinar þrjár krónur sjó-
mannsins) eftir Raoul Ruiz frá
1983. Sjómaður segir ungum
námsmanni sögu sína en
myndin byggir eingöngu á yfir-
náttúrulegum fyrirbærum og
gegnir endurholdgunin þar
miklu hlutverki. Ruiz er frá
Chile og var sérlegur kvik-
myndaráðgjafi Salvadors
Allende. Þegar stjórninni var
steypt af stóli var Ruiz í Frakk-
landi (sýnd 26. nóv.).
Si j’étais un espion (Ef óg
væri njósnari) eftir Bertrand
Blierfrá 1967. Blier, sem leikur
sjálfur í þessari spennumynd
sinni, er frægur fyrir m.a. Les
valseuses (sýnd 3. des.).
Moi, un noir (Ég, sverting-
inn) eftir Jean Rouch frá 1958.
Myndin er eintal Ivoirien frá
Treichville sem segir frá sjálf-
um sér fyrir framan myndavél-
ina. Rouch er þjóðfræðingur
og kvikmyndagerðarmaður,
myndir hans eru ekki langt frá
því að vera heimildamyndir;
hann segir frá raunveruleikan-
um eins og hann kemur fyrir.
Tannlæknastofa
Hef opnað tannlæknastofu á
Garðatorgi 3, Garðabæ.
Engilbert Ó. H. Snorrason,
tannlæknir.
Sími656844.
HAGRÆÐINGARFÉLAG ÍSLANDS
Mánudaginn 19. október kl. 15.00:
- Flutningatækni.
- Skipulagning dreifikerfa.
- Sjálfvirkni og stýritækni.
Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Mjólkursamsöl-
unnará Bitruhálsi 1.
Þátttakendum gefst kostur á að skoða starfsemina og
fræðast um og ræða framangreinda þætti, sem eru
með því fremsta sem gerist hér á landi.
Margt í því skipulagi og þeirri tækni sem þarna er nýtt
getur nýst öðrum fyrirtækjum þó óskyld séu.
Pétur Sigurðsson tæknilegur framkvæmdastjóri
og Brynjar Haraldsson rekstrarráðgjafi munu
kynna starfsemina og svara fyrirspurnum um
málefni þessa fundar.
Félagsmen og aðrir áhugamenn um f ramangreint
efni eru hvattirtil að mæta stundvíslega kl. 15.00.
Stjórnin.
OffiAUGiySINOAWONUSTAN SJA
Pósthússtræti 13, sími 22477,
í hjarta Reykjavíkur á homi Pósthússtrætis og Kirkjustrætis.