Morgunblaðið - 18.10.1987, Page 58

Morgunblaðið - 18.10.1987, Page 58
'<S*M *«< **tow* 'fW'.UM í Reykjavík hjá Bjarna heitnum Jónssyni í júlí 1930, og drifu sig síðan austur og var fátt um fínar veislur. Hann riflaði þetta einmitt upp með mér fyrT á þessu ári við brúðkaup mitt og sagði þá: „Gestir voru nú engir, en mig minnir að við höfum fengið okkur sitt hvorn snúðinn." Ja, þvílíkir tímar miðað við það sem nú er. Síðan hófu þau búskap í Úthlíð, fyrst ásamt Er- lendi bróður ömmu, en seinna bjuggu þau einn vetur með Ólafi Þorvaldssyni og konu hans. Nýtt íbúðarhús var byggt á jörðinni 1931 af eigendum jarðarinnar sem voru Reykvíkingar og var Magnús Sig- urðsson bankastjóri fyrir eigendum. Var þetta hið glæsilegasta hús og bjuggu þau afí og amma þar allan sinn búskap og stendur húsið enn algerlega óskemmt, nú 56 ára gam- alt. Gísli langafí og Sigríður langamma bjuggu þar einnig alla tíð meðan þau lifðu þó þau hefðu búskap á næstu jörð, Hrauntúni. Þama fæddust síðan bömin hvert af öðm og urðu alls sjö talsins. Þau em, talin í aldursröð: Gísli, ritstjóri og listamaður, f. 1930; kona hans er Jóhanna Bjamadóttir og eiga þau tvö böm. Ingibjörg, læknaritari, f. 1933; maður hennar er Hróar Bjömsson og eiga þau fjögur böm. Bjöm faðir undirritaðs, bóndi í Úthlíð f. 1935, móðir mín er Ágústa Ólafsdóttir húsfreyja og við emm flögur systkinin. Sigrún starfsmað- ur bæjarskrifstofa Kópavogs, f. 1937; maður hennar er Guðmundur Arason og eiga þau þrjú böm. Kristín, húsfreyja í Haukadal í Bisk- upstungum, f. 1940; maður hennar er Greipur Sigurðsson og eiga þau tvö böm. Jón Hilmar, háskólakenn- ari og fyrmm bóndi í Úthlíð, f. 1944, og yngstur er Baldur, raf- eindavirki, f. 1948; kona hans er Kristbjörg, fóstra, og eiga þau eitt bam. Bamabömin em þannig orðin 16 og bamabamabömin em 6, þannig að afkomendumir em núna 29 við fráfall afa. 1971 hættu afí og amma búskap eftir 40 ár, en þá höfðu þau búið síðustu 10 árin í félagi við föður minn. Við þeirra hlut í búinu tók nú Jón sonur þeirra, en þau héldu heimili saman í gamla bænum. Þannig héldu þau raunvemlega áfram búskap þó þau stæðu ekki lengur í sjálfstæðum rekstri. Þetta var langur tími og oft erfið ár, en samstaða og samhjálp bændanna á næstu bæjum létti þó starfíð til muna. Þar minntist afi oft Guð- mundar heitins bónda í Austurhlíð, en þeir vom saman á refaveiðum um áratuga skeið. Einnig var mik- ill samgangur við frændfólkið í Dalsmynni, en Erlendur bróðir ömmu og Guðrún kona hans áttu böm á svipuðu reki og afí og amma. Reynda má segja að sambýlið þama við hlíðina hafí verið nánast ein stór flölskylda og svo er enn. 1978 fluttu þau síðan suður til Kópavogs eftir að Jón varð að bregða búi vegna alvarlegs vinnuslyss. Vom þá liðin 50 ár frá því afí kom fyrst í Úthlíð og kvaddi hann jörðina með miklum trega, jörðina sem hann hafði byggt og ræktað jafnhliða því að koma bömum sínum til fullorð- insára og skapa þjóðarbúinu arð. Þama var mest allt ævistarfið og ekki hægt að segja annað en við- skilnaðurinn væri glæsilegur. Jörðin orðin einkaeign hans eftir að hann keypti hana 1942, og rækt- unin stækkað úr nánast engu í 100 hektara tún og húsakostur fyrir 500 fjár og 30 kýr. Það er með ólíkindum hversu stórfenglegt þjóðfélag afí og hans kynslóð hefur náð að skapa á þessu harðbýla landi með dugnaðinn og bjartsýnina eina að vopni. Og þann- ig man ég fyrst eftir afa, sívinnandi svo að maður vissi ekki fyrr en löngu seinna að eitthvað væri til sem heitir frítími. Ég hef eflaust ekki verið hár í loftinu þegar ég var sendur í fyrsta sinn með matar- bita til hansút á tún þar sem hann var að sinna heyskap eða valta flag, því þá var ekki verið að gefa sér tíma til að fara heim í mat, slíkur var hugurinn. Og þá var manni þakkað með mikilli gleði fyrir að koma með bitann frá ömmu. Oft fór maður líka upp í „Ömmuhús", en það kölluðum við krakkamir MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18*. OKTÓBER 1987 Minning: Sigwður Jóns- son frá Úthlíð Hinn 11. október síðastliðinn andaðist í Landspítalanum ástkær afí minn, Sigurður Tómas Jónsson, sem lengst af var bóndi I Úthlíð í Biskupstungum. Hann fæddist 25. febrúar árið 1900 í Brautarholti á Kjalamesi og var því á 88. aldurs- ári er hann kvaddi þennan heim eftir langa og farsæla ævi. Foreldr- ar hans voru Jón Einarsson Jóns- *■ sonar frá Stuðlum í Ölfusi og Guðrún Jónsdóttir Jónssonar frá Neðra-Apavatni í Laugardal og hann var því Amesingur í ættir fram. Afí var áttundi í röðinni af systkinum sínum, en alls eignuðust þau Jón og Guðrún 12 böm og komust 10 þeirra til fullorðinsára. Þriggja ára gamall fluttist hann ásamt foreldrum sínum að Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd, en sex ára np - gamall fer hann til Kristínar, ömmu sinnar, og Margrétar móðursystur sinnar að Leirá í Leirársveit í Borg- arfírði, og manns hennar, Guðna. Minntist hann þessara tíma með nokkrum trega því þetta voru erfíð ár fyrir ungan dreng að vera hrifínn þannig frá móður sinni á viðkvæm- um aldri. Á Leirá er hann síðan til 16—17 ára aldurs, en fer þá til Reykjavíkur að vinna fyrir sér og starfaði hann þá meðal annars við að keyra út mjólk og kol. Á þessum ámm eignaðist hann marga kunn- ingja sem hann minntist alja tíð og má þar sérstaklega nefna Ólaf Þor- valdsson og Sigrúnu konu hans, en Ólafur varð seinna landskunnur fræðimaður og þingvörður; einnig Bjöm Jónsson bróðir þeirra Ríkharðs og Finns listamanna, en m € þeir Ólafur og Bjöm settu síðan saman bú ásamt afa að Stakk- hamri á Snæfellsnesi. Ekki varð sá félagsbúskapur þó langur því Bjöm andaðist fyrsta veturinn er þeir vom fyrir vestan. Á þessum tíma eignaðist afí marga kunningja fyrir vestan sem hann hélt kunningsskap við alla tíð, og þótti okkur krökkun- um í Úthlíð oft kyndugt er hann kynnti sig sem Sigurð á Stakk- hamri fyrir mönnum sem ættaðir vom að vestan og könnuðust við hann þannig. Árið 1925 fór hann síðan á Hvítárbakkaskólann í Borg- arfírði og með því að fóma aleig- unni tókst honum að vera þar annan vetur og bjó hann að þessum skóla- ámm alla tíð. Á 85 ára afmælinu með flölskyldu sinni gat hann enn þulið stóran hluta kveðskaps Egils Skallagrímssonar sem hann nam á skólanum og máttum við háskóla- borgarar nútímans láta kveða okkur í kútinn í þeim efnum, þannig hafði námið verið stundað af kappi að slíkt entist alla ævi. Næstu þijú ár var afi lausamaður í kaupavinnu og í vegavinnu á sumrin en stund- aði gegningar og kennslu á vetmm, en 1928 verða síðan þáttaskil í lífí hans er hann fer austur að Mið- húsum í Biskupstungum að hjálpa Einari bróður sínum er þar bjó þá en hafði veikst. Á Miðhúsum kynnt- ist hann ungri stúlku sem bjó á næsta bæ, Úthlíð. Þetta var amma mín, Jónína Þorbjörg, dóttir hjón- anna Gísla Guðmundssonar bónda í Úthlíð og Hrauntúni og konu hans Sigríðar Ingvarsdóttur sem þá höfðu búið í Úthlíð frá árinu 1916. Þá var líka í Úthlíð Erlendur bróðir ömmu er seinna bjó á næsta bæ, Dalsmynni. Afí og amma giftu sig SÍGILDAR ALÞÝÐLEGAR HEIMS- BÓKMENNTIR • Frá upphafi menningar hafa íslendinga sögur verið kjöi- festan i lífi okkar sem þjóðar. • Nú geta allír lesið Islendinga sögurnar í nýrri og aðgengiiegri lítgáfu. • Með bökunurn fylgir vandað kort serri tengir sarnan land og sögu. • íslendinga sögur - dýrmæt eign. Gjöf sem gleður. . ;V € I /; ■íGUtv ^vort d ftvtiu Laugavegi 8. Sími: 622229 ÍMmípI vsajar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.