Morgunblaðið - 18.10.1987, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1987
63
íslenskur sigur á alþjóða
skákmótinu í Olafsvík
Clifton Chenier, konungur zydecotónlistarinnar.
Skák
Margeir Pétursson
JÓNI L. Árnasyni, stórmeistara,
tókst að komast upp fyrir Danann
Henrik Danielsen í Iokaumferð
alþjóðlega skákmótsins í Ólafsvfk
sem lauk í fyrradag. Danielsen
hafði leitt mótið næstum allan
tímann, en fataðist flugið á loka-
sprettinum og fékk aðeins einn
vinning úr þremur síðustu skákun-
um. Eftir að hafa verið mistækur
í byijun hrökk Jón hins vegar í
stuð og hlaut 3»/2 úr fjórum síðustu
skákum sinum. Björgvin Jónsson
úr Njarðvík var sá sem mest kom
á óvart á mótinu, hann náði að
deila þriðja sætinu með Dananum
Lars Schandorff.
Þrátt fyrir að árangur Björgvins
sé mjög góður olli það miklum von-
brigðum að hann skyldi ekki ná sjö
vinningum og ná áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli. Honum
nægði jafntefli í þremur síðustu
skákunum, en tapaði óvænt fyrir
Tómasi Bjömssyni í næstsíðustu
umferð eftir að hafa haft jafntefli
í hendi sér í endatafli.
Þrátt fyrir þennan klaufaskap í
lokin var Björgvin tvímælalaust
maður mótsins og það verður fróð-
legt að fylgjast með honum á
svipuðu móti, sem fyrirhugað er að
halda í Keflavík í næsta mánuði.
Björgvin undirbjó sig vel fyrir þetta
mót og reyndar einnig íslandsmótið
á Akureyri, en stuttu fyrir íslands-
mótið kom upp úr kafínu að hann
gæti ekki fengið að vera með, þar
sem allir rétthafar myndu nýta
sæti sín. Kom það mörgum á óvart
að ekki væri rúm fyrir sigurvegar-
ann á Haustmóti TR 1986 í næstu
landsliðskeppni á eftir.
Það kemur mönnum oft í mikið
baráttuskap að vera slíku misrétti
beittir og Björgvin byijaði mótið í
Ólafsvík með því að vinna þá Jón
L. Ámason, Karl Þorsteins og Dan
Hansson í þremur fyrstu umferðun-
um. Þá komu tvö töp í röð fyrir
Þresti og Schandorff, en Björgvin
náði sér aftur á strik. Aðalatriðið
er að styrkleikinn er til staðar þótt
slysið gegn Tómasi hafi komið í veg
fyrir að áfanginn næðist.
Flestir hinna íslendinganna ollu
vonbrigðum, sérstaklega alþjóðlegu
meistaramir Karl Þorsteins og
Sævar Bjamason sem tefldu langt
undir styrkleika. Þess hafði verið
vænst að Þröstur Þórhallsson
myndi ljúka við alþjóðatitilinn á
mótinu, en í lokin þegar hann
mætti Jóni L. og Karli höfðu þeir
báðir hrokkið í liðinn og Þröstur
tapaði þeim skákum.
Tómas Bjömsson komst mjög vel
frá þessari frumraun sinni í lokuðu
alþjóðlegu móti og tefldi af miklu
meira öryggi en nýliðar í slíkri
keppni ná yfirleitt að sýna. Ljósi
punkturinn við árangur íslending-
anna í heild er meðferð þeirra á
þeim Bator og Haugli, sem voru
valdir til mótsins af skáksambönd-
um sínum, þar sem þeir þykja
standa hvað næst því í sínum lönd-
um að verða alþjóðlegir meistarar.
Um einstök úrslit á mótinu vísast
til meðfylgjandi töflu.
Síðasta umferð mótsins varð ekki
nærri eins spennandi og hún hefði
getað orðið, því þeim Henrik Dani-
elsen og Ingvari Ásmundssjmi var
leyft að tefla skák sína í henni fyrir-
fram. Það var því vitað að Jón yrði
að sigra Haugli til að verða einn
efstur, en jafntefli myndi nægja til
að deila efsta sætinu með Danan-
um. Jón vann Haugli örugglega og
sigraði þar með á mótinu, eins og
búist var við fyrirfram. Hins vegar
kom á óvart að leiðin til sigurs yrði
jafn þymum stráð og raun bar vitni.
Eftir tvo slæma skelli gegn Björg-
vin og Dan virtist Jón úr leik, en
þar sem Danielsen slakaði á dugði
góður endasprettur til sigurs. Þrátt
fyrir að hafa hreppt efsta sætið er
Jón þó vafalaust fremur óánægður
með frammistöðu sína.
Skákmótið var haldið í tilefni af
300 ára verzlunarafmæli Ólafsvíkur
og fór fram við hinar beztu aðstæð-
ur í nýju og stórglæsilegu félags-
heimili staðarins. Einmitt á meðan
mótið stóð jrfir stóð mikill styr inn-
anbæjar um kostnaðinn við bygg-
ingu þess. Féll mótið því miður
nokkuð í skuggann af þessum deil-
um.
Ólafsvíkingar eiga þakkir skák-
hreyfingarinnar skildar fyrir að
hafa gengist fyrir þessu móti og
gefið mörgum af okkar ungu og
efnilegu skákmönnum verðskuldað
tækifæri til að spreyta sig.
Skákstjórar á mótinu í Ólafsvík
voru Torfi Stefánsson Hjaltalín,
sem jafnframt var mótsstjóri, Einar
H. Bjömsson og Gylfi Scheving, en
dómari var Jóhann Þórir Jónsson.
í framkvæmdastjóm mótsins
vom þeir Kristján Pálsson, Her-
mann Hjartarson, Herbert Hjelm,
Einar Bjömsson, Hilmar Viggós-
son, Jóhann Þórir Jónsson og Torfí
Stefánsson Hjaltalín.
Við skulum að lokum líta á
snaggaralega skák úr síðustu um-
ferð mótsins:
Hvítt: Sævar Bjarnason
Svart: Karl Þorsteins
Drottningarpeðsbyijun
I. Rf3 — Rf6 2. d4 - g6 3. Bg5
- Bg7 4. Rbd2 - d5 5. e3 - 0-0
6. Bd3 - c5 7. c3 - Rbd7 8. 0-0
- He8 9. a4 — e5 10. dxe5 —
Rxe5 11. Rxe5 - Hxe5 12. Rf3 -
He8 13. a5 — Be6 14. Da4 - h6
15. Bh4 - Bd7 16. Bb5?
Eftir þennan óheppilega leik nær
svartur mjög öflugu frumkvæði og
sóknarfæmm á kóngsvæng, því
honum tekst að loka bæði biskup
og drottningu hvíts úti á drottning-
arvængnum. Sævari hlýtur að hafa
yfirsést öflugt svar sVarts.
16. - He4! 17. Db3 - c4 18. Da4
- Bg4 19. Bxf6
Þetta em óhagstæð uppskipti,
en hvítur átti ekki aðra leið til að
forða liðstapi.
19. - Bxf6 20. Rd2 - He5 21.
a6 — bxa6 22. Bxa6 — Hb8 23.
b4 - Hh5 24. Ha3 - Be5 25. g3
- Df6!
Svartur er með frítt spil á kóngs-
væng og eftir þennan leik ræður
hvítur ekki við neitt. Ef 26. Dc2
þá 26. - Be2 27. Hel - Bd3 28.
Dcl - Hxh2!
26. f3 - Be6 27. Hcl - Hxh2!
28. Kxh2 - Dh4+ 29. Kgl -
Bxg3 og hvitur gafst upp.
Haustmót Taflfélags
Reykjavíkur
Fimm umferðum er nú lokið á
haustmótinu og er þátttaka í al-
mennum flokkum að venju góð. 96
hófu keppni í almennum flokkum
en keppni í unglingaflokki átti að
hefjast í gær. Raðað er niður í fjóra
12 manna flokka eftir stigum, en
í hinum fimmta tefla 48 keppendur
eftir Monrad-kerfi. Fyrir sjöttu
umferðina í dag var staða efstu
manna þessi:
A-flokkur:
1. Ásgeir Þór Amason 4 v.
2. Andri Áss Grétarsson 3V2 v.
3. Sigurður Daði Sigfússon 3 v. og
biðskák.
4. Jón Garðar Viðarsson 3 v.
B-flokkur:
1. Ögmundur Kristinsson 5 v.
2. Héðinn Steingrímsson 4 v.
3. Þráinn Vigfússon 3V2 v.
4. Eiríkur Bjömsson 3 v.
C-flokkur:
1.-3. Vigfús Ó. Vigfússon, Einar
T. Óskarsson og Eggert ísólfsson
3V2 v. 4. Hrannar Baldursson 3 v.
og biðskák,
D-flokkur:
1. Axel Þorkelsson 4V2 v.
2. -4. Ólafur B. Þórsson, Siguijón
Birgisson og Magnús Armann 3 v.
E-flokkur:
1. Magnús K. Jónsson 4V2 v.
2. -7. Þorsteinn Davíðsson, Ingi-
mundur J. Bergsson, Sverrir
Sigurðsson, Amór Gauti Helgason,
Valgarð Ingibergsson og Sigurður
Páll Sigurðsson 4 v.
Skákstjóri á haustmótinu er Ólaf-
ur Ásgrímsson, alþjóðlegur skák-
dómari.
Blús
Árni Matthíasson
Fá fylki Bandaríkjanna geta
státað af meiri fjölbreytileika
í tónlist en Louisiana. í fylkinu
er New Orleans, í hverri jassinn
gæti verið upp runninn, og því
til viðbótar finnst í fenjunum
fenjablús og hvítir íbúar Suð-
ur-Louisiana, sem flestir eru
frönskumælandi, hafa sína caj-
untónlist sem byggist á fiðlu-
og harmonikkuleik. Svartir íbú-
ar Suður-Louisiana hafa einnig
sína tónlistarhefð sem byggist
á harmonikkuleik. Sú tónlist
sem þeir leika er ýmist kölluð
zydeco eða zodico og er oftar
en ekki náskyld blúsnum. Text-
arnir fjalla einatt um kvenfólk
og ástarsorg, en þeir eru marg-
ir sungnir á frönsku málkvæmi
sem kallast patois, eða þá á
ensku.
Harmonikkuleikurinn í zydeco-
tónlist hefur þróast samhliða
harmonikkuleik hvítra cajun tón-
listarmanna, en samt var ekkert
tekið upp með zydeco harmon-
ikkuleik fyrr en eftir 1940. Til
vitnis um að harmonikkan hafi
verið notuð til að leika blús eða
blúsblendna tónlist eru upptökur
með Leadbelly frá árinu 1943.
Til eru þó upptökur frá árinu
1934 sem á eru einn blús, leikinn
á harmonikku og þvottabretti,
sem gaf taktinn, og eitt zydeco-
lag.
Á árum seinni heimsstyijaldar-
innar fluttu margir frönskumæl-
andi svertingjar úr sveitunum til
borga eins og Houston, Galveston
og Port Arthur. Það er þar sem
zydecotónlistin eins og við þekkj-
um hana í dag, varð sennilegast
til. Þar komust svartir zydecotón-
listarmenn í kynni við rythma-
blúsinn, sem hafði mikil áhrif í
þá átt að færa tónlistina frá cajun-
tónlist og nær blúsnum.
Sú zydecotónlist sem varð úr
þeim bræðingi er sú zydecotónlist
sem leikin er enn þann dag í dag
af Clifton Chenier, Femest Arce-
naux, Rockin’ Sidney, Queen Ida
o.fl., o.fl. Konungur zydecotónlist-
arinnar er Clifton Chenier, en
hann var einn af fyrstu tónlistar-
mönnunum sem tók upp zydeco-
tónlist og um leið sá sem einna
mest áhrif hefur haft á þróun
hennar.
Clifton Chenier fæddist í Opelo-
usas í Louisiana árið 1925. Hann
lærði undirstöður hljóðfæraleiks
af föður sínum. Tónlistarferil sinn
hóf hann með bróður sínum Cleve-
land, sem lék á þvottabretti, en
þeir léku með hljómsveit Clarence
Garlows 1942. Eftir það hætti
Clifton að fást við tónlist fram
undir 1950 að hann stofnaði sína
eigin hljómsveit og gerði hljóð-
færaleik að aðalstarfi. Fjrstu
upptökur Cliftons voru gerðar
1954 og síðan þá hefur hann gef-
ið út ógrynni af plötum og skemmt
um allan heim. Flestar plötur hef-
ur hann tekið upp fyrir Arhoolie
merki Chris Stachwitz og á þeim
plötum eru og hans bestu upptök-
ur, en áður en hann fór þangað
tók hann mikið upp fyrir Jay Mill-
er, sem áður hefur verið getið
hér. Miller tók upp mikið af Louis-
ianatónlist og þá að sjálfsögðu
zydecotónlist einnig og þegar
Flyright plötufyrirtækið breska,
sem keypti útgáfurétt á upptökum
Jay Miller, ákvað að gefa út safn-
plötu með zydeco, var ein plata
ekki nóg, þær urðu tvær og ekki
er útséð með að þær verði ekki
fleiri.
Clifton á tvær plötuhliðar af
þeim §órum sem ég ætla að geta
hér og það að verðleikum. Clifton
var snjall harmonikkuleikari og
söngvari og sveit hans var skipuð
valinkunnum tónlistarmönnum,
hveijum öðrum betri. Á plötunum
eru og minni spámenn sem samt
eru framúrskarandi skemmtilegir.
Þar má nefna Femest Arceneaux,
en hjá honum má greina meiri
blúsáhrif en hjá Clifton. Annar
snjall tónlistarmaður sem lög á á
plötunum tveimur er Rockin’
Dupsee, sem á ijögur lög, þar á
meðal einn magnaðan blús sem
heitir bara Blues. Einn merkari
tónlistarmannanna á plötunum er
Marcel Dugas. Hans tónlistarferill
næar allt aftur til 1928, að hann
var farinn að leika á harmonikku,
þá tólf ára, með bróður sínum sem
lék á þvottabretti. Þegar þær upp-
tökur sem á Zydeco Blues 2 eru
vom gerðar 1974 var hann því
búinn að vera spila zydeco opin-
berlega í nær fímmtíu ár. Hann
á tvö lög á plötu tvö, bæði nærri
blús, en annað er reyndar hans
útsetning á Jimmy Reed laginu
góða You Got Me Running. Loka-
lagið á plötu tvö er skemmtilegt
frávik frá harmonikkuleiknum, en
þar leikur Joseph Bob á munn-
hörpu lagið Snap Beans Aren’t
Salty, sem er hreinræktað zydeco-
lag án harmonikku. Lagið er ensk
útgáfa á Les Haricots Sont Pas
Sales, en heitið á tónlistinni,
zydeco, er einmitt fengið sem
hljóðsamruni úr fyrstu orðunum
tveim, les haricots.
Þegar best lætur er að finna f
zydeco tónlistinni allt það helsta
sem menn leita í blúsnum, enda
er hún grein af svartri tónlistar-
hefð líkt og blúsinn. Óhætt er að
mæla með plötunum Zydeco Blues
1 og 2 fyrir alla þá sem hlusta á
svarta tónlist. Harmonikkuunn-
endum má einnig benda á að
kynna sér zydeco.
0LfíF5//k /Q8T- STIG 1 2 3 H s (0 7 s 9 10 U ii VINN. RÓÐ
1 JÓN L. 'fifWfísON 2S5S É 'k 0 'A \ 1 1 'k \ O 1 Tk i
2 U. DfíNIELSEN C Danw) 21/5 "'/2 m 'A 'A 'A \ 'k \ A \ \ 0 1 2.
-T iZJÓfíeviN JoNssoN 2.7,10 \ 'A Ym O \ O i 'k 'k O \ \ C'k 3-y.
H L. SCHfíNVONFF 2385- 'k 'k 1 m L 'k •k 'k lQ A \ •k (o'/i 3-7
5 KfíRL P0RSTEINS 2115 O ‘k O 1 'k \ \ 'A 1 •h (p S-C
(0 þRÓSTUR þÓRNfíLLSS. 2315 0 O \ A 0 m 'k 1 \ 'k \ 'k 6 s-í
7 iNGVfíR /físmuvDssoN 23 ?5 0 'k O •k 'A •k V/Á £22 'k 'k 'A 'k \ 5 7
S SFLVfíR /ZJfíRNfíSON ZlSS 0 0 'k 'k O O A' É \ 'k •A \ k'k Uö.
9 R. ftfíTOR CSS'/’jóé) 2105 '/2 'A 'k \ O O 'k 0 y//, Y/Á 'k 'k k k'k 8-/0.
10 TÓMfíS Í3JÖRNSS0N 2215 0 O \ ‘k '/z 'k 'k A 'k y/A o •k T/i 8-10.
U VfíN J-lfíNSSoN 2 l°lb \ O O O 0 0 'k 'k 'k L é 7i k l/'/2.
12 L p. NfíUG-U CLVoregi) 2710 0 \ 0 'k 'A 'k O O 'k 'k h m V II-/2.