Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
Offramboð fellir verð á karfa í Þýzkalandi:
Ömurlegt að menn fari
ekki eftir leiðbeiningum
segir ÁgTÍst Einarsson, útgerðarmaður
VERÐ á ferskum karfa í Þýzka-
landi er nú failið og er það að
minnsta kosti í fjórða skiptið á
þessu ári, sem svo fer að frátöldu
ormamálinu svokallaða. Ástæðan
er, eins og í fyrri skiptin, offram-
boð. Karfi fór i gær og fyrradag
á lágmarksverði, um 35 krónur
og talsvert tap er á slíkum út-
flutningi. Ágúst Einarsson,
útgerðarmaður Viðeyjar RE, seg-
ir að það sé ömurlegt að menn
fari ekki eftir leiðbeiningum frá
mörkuðunum, heldur yfirfylli þá
og valdi sjálfum sér og öðrum
verulegu tapi.
Viðey RE seldi afla sinn í Brem-
erhaven á miðvikudag og fimmtu-
dag, alls 239 tonn, mest karfa.
Heildarverð var 9,5 milljónir króna,
meðalverð 39,89. Verð fyrir karfa
var heldur lægra, bæði úr gámum
og afla Viðeyjar, en fyrir aðrar fisk-
tegundir var verð þokkalegt, enda
minna framboð af þeim. Framboð í
næstu viku á þessum markaði er enn
meira en í þessari og vænta menn
mikilla erfíðleika þá.
Ágúst Einarsson sagði, að ástæða
verðfallsins væri einföld, of mikið
framboð. Vitað hefði verið með um
þriggja vikna fyrirvara að tvö skip
frá Islandi yrðu á markaðnum á
þessum tíma og talsvert framboð
væri af físki frá heimamönnum. Því
hefðu menn ytra beðið um að enginn
karfí yrði sendur utan í gámum.
Viðbrögð gámaútflytjenda hér hefðu
hins vegar verið þau að senda á
þriðja hundrað tonn í gámum inn á
markaðinn. Markaðurinn réði við um
500 tonn og gámunum hefði algjör-
lega verið ofaukið.
„Við sitjum agndofa yfír þessu"
sagði Ágúst. „LIÚ hefur stjómað
siglingum skipanna með góðum ár-
angri í fjölda ára, en engin stjóm er
á útflutningi í gámum. Miðað við
500 tonn á viku er hægt að fá 55
ti! 60 krónur á kíló af karfa að
meðaltali, en svo hrúga menn físki
inn, þrátt fyrir viðvaranir og fella
verðið fyrir sjálfum sér og öðrum.
Það tapa allir á þessu. Síóan fara
málin þannig, að menn halda að sér
höndum, senda lítið út og eftirspum
umfram framboð hækkar verðið
óeðlilega mikið. Þá fer skriðan af
stað aftur og verðið fellur. Þetta
kallar allt á miðstýringu á útflutn-
ingi á ferskum físki. Það er ömuleg-
ast þegar menn fara ekki eftir
leiðbeiningum. Þetta er vont mál
fyrir alla, bæði seljendur og kau-
pendur. Markaðurinn í Þýzkalandi
er góður, sé hann stundaður af skyn-
semi, en svona háttalag eyðileggur
hann,“ sagði Ágúst Einarsson.
VEÐURHORFUR í DAG, 30.10.87
YRRLIT á hódegi í g»r: Yfir íslandi er 1019 miilibara hæðar-
hryggur en á Grænlandshafi er 1010 millibara smálægð sem
hreyfist austsuðaustur.
SPÁ: f dag verður hæg, breytileg átt á landinu, smá él eða slydduól
í fyrstu við norðausturströndina en víðast annars staðar úrkomu-
laust. Hiti verður víða 1—3 stig við sjávarsíðuna en 4—6 stiga frost
inn tii iandsins.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
LAUGARDAGUR: Suðlæg eða suðvestlæg átt og fer að hlýna.
Þykknar upp um sunnan- og vestanvert landið og fer að rigna
þegar líður á daginn.
SUNNUDAGUR: Suðlæg átt og víða 4-stiga hiti. Rigning um sunn-
an- og vestanvert landið en þurrt aö mestu Norðaustanlands.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hátfskýjað
m Skýjað
Alskýjað
•á
x Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■\ 0 Hitastig:
10 gráður á Ceisius
\j Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær aö ist. tíma httl veftur Akurayri +4 léttakýjaft Reykjavlk +2 léttskýjað
Bergen 8 léttskýjað
Helsinki 7 léttskýjað
Jan Mayen +8 snjókoma
Kaupmannah. 8 þokumóða
Narssarssuaq +1 alskýjað
Nuuk 0 snjókoma
Osló 7 rignlng
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 12 Þokumóða
Aþena 12 alskýjað
Barcelona 20 láttskýjað
Berlin 9 léttskýjað
Chlcago 0 skýjað
Feneyjar atskýjað
Frankfurt 12 mlstur
Glasgow 8 mistur
Hamborg 7 rlgning
Las Palmas 22 skýjað
London 10 mlstur
LosAngeles 18 skýjað
Lúxemborg 11 þoka
Madrfd 10 þokumóða
Malaga 19 léttskýjað
Mallorca 21 skýjað
Montroal 0 léttakýjað
NewYork 6 helðskirt
Parfs 12 skýjað
Róm 21 þokumóða
Vin 6 léttskýjað
Washlngton 3 alskýjað
Wlnnlpeg 2 hálfskýjað
Valencla 21 láttskýjað
Að afhendingunni lokinni. Auk þeirra Ragnars og Taka Yama eru
á myndinni Jóhann Kiesel, framkvæmdasfjóri Týlis hf., og Björk
Hreiðarsdóttir, hárgreiðslumeistari, eiginkona Ragnars.
RAX fær viður-
kenningu frá Canon
JAPANSKA ljósmyndavörufyr-
irtækið Canon og umboðsaðili
þess á íslandi, Týli hf., afhentu
f gær Ragnari Axelssyni, ljós-
myndara við Morgunblaðið,
myndavél Canon F-1 N, sem
fyrirtækið telur sína fullkomn-
ustu myndavél fyrir atvinnuljós-
myndara.
Þessa viðurkenningu má rekja
fyrst og fremst til forsíðumynda,
sem Ragnar Axelsson tók og
Morgunblaðið birti af leiðtoga-
fundinum í Reykjavík fyrir rétt
rösku ári. Þessar myndir vöktu
ekki aðeins athygli hér á landi,
heldur og víða erlendis og m.a.
birtust myndir af þessum forsíðum
í síðasta tölublaði tímarits Canon-
fyrirtækisins, sem dreift er um
allan heim.
Þetta mun vera í fyrsta skipti,
Ragnar Axelsson tekur við ljós-
myndavélinni úr hendi markaðs-
stjóra Canon í Evrópu, K. Taka
Yama.
sem íslenzkur fréttaljósmyndari,
hlýtur viðurkenningu sem þessa.
Húsavík:
Útibússtj óraskipti
í Landsbanka Islands
SIGURÐUR Pétur Björnsson
lætur um mánaðamótin af störf-
um vegna aldurs sem útibús-
stjóri Landsbankans á Húsavik,
en því starfi hefur hann gegnt
frá stofnun útibúsins 1962. Að-
ur var hann sparisjóðsstjóri á
Húsavík frá 1943.
Bankaráðið hefur ráðið Áma
Sveinsson útibússtjóra á Húsavík
frá 1. nóvember nk. Hann hefur
undanfarin 7 ár verið útibússtjóri
í Neskaupstað og þar áður um
langt skeið starfsmaður endur-
skoðunardeildar bankans.
Árni Sveinsson
Rómarsáttmálinn:
Nefnd undirbýr
aðild íslands
Menntamálaráðuneytið hefur
nýlega skipað nefnd til að und-
irbúa aðild íslands að Rómar-
sáttmálanum um vernd listflytj-
enda, hljóðritaframleiðenda og
útvarpsstofnana.
Fyrsti fundur nefndarinnar
verður 3. nóvember nk. og er gert
ráð fyrir að hún ljúki störfum fyr-
ir næstu áramót.
Nefndina skipa: Þórunn J. Haf-
stein lögfræðingur, sem er
formaður, Baldur Guðlaugsson
hrl., Helgi R. Magnússon lögfræð-
ingur, Gunnar Guðmundsson hdl.
og Erla Svanhvít Ámadóttir hdl.,
sem er tilnefnd af frjálsu útvarps-
stöðvunum.