Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
tv r
15
Upplím-
ingar
IWIyndlist
Valtýr Pétursson
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg er
nú sýning á upplímdum myndum
eftir ungan listamann að nafni Jón
Laxdal Halldórsson (ekki leikar-
ann). Ekki man ég eftir að hafa séð
verk eftir Jón áður, en það eru
engar fréttir, að menn komi í fýrsta
sinn fram með myndverk sín í Ný-
listasafninu. Það er annars orðið
svo fjölmennt á þessu sviði, að auð-
velt er að ruglast í ríminu, og alltaf
bætast fleiri og fleiri í þann hóp,
er kallar sig myndlistarmenn.
Þessi sýning Jóns Laxdals er
nokkuð sérstæð í eðli sínu. Hann
leitar fyrir sér á áður ókunnum
miðum í myndlist hér á landi, og
ég sé ekki betur en að hann fari
allar götur aftur til rússneska kon-
struktívistans Tatlins og félaga
hans í verkefnavali sínu. Jón notar
mjög letur í myndir sínar og meira
að segja rússneskt lesmál, og má
með nokkrum sanni segja, að það
sé myndrænna í eðli sínu en það,
sem við notum. Áhrifin frá kons-
trúktívu myndmáli rússnesku felast
þó meir í meðferð Jóns á klipp-
myndum sínum, sem eru megfin-
þáttur þessarar sýningar.Ég kem
ekki fyrir mig, að hafa rekið mig
fyrr á áhrif frá þessu merka tíma-
bili í rússneskri list hér á landi. sú
var tíðin, að við gömlu gauramir
skreyttum myndir okkar stöku sinn-
um með letri í anda Braques, en
það er löngu liðin tíð, og rússneskt
letur sást aldrei í verkum okkar.í
sumum stærri mynda sinna teiknar
Jón með ákveðinni og þróttmikilli
línu, en það eru minni myndimar á
þessari sýningu, sem mér finnst
vera það, sem máli skiptir. Þær em
margar hveijar mjög aðlaðandi og
ná fyllilega tilgangi sínum.
Jón Laxdal virðist leita fyrir sér
og er enn sem komið er mjög upp-
tekinn af ýmsum möguleikum.
Hann hefur fullgildar ástæður fyrir
myndgerð sinni, og hann á áreiðan-
Iega eftir að fínna persónulegri
leiðir en hér koma fram.
Grafíkí
Gangskör
Hanna Bjartmars hefur komið
fyrir tæpum tuttugu grafíkmyndum
í Gallerí Gangskör. Þetta er ekki
veigamikil sýning, hvorki í efnisvali
né fjölbreytni. Ef ég sé rétt, em
þetta ætingar, sem em flestar gerð-
ar um sama temað: fugla og andlit
og andlitið eitt saman. Annað er
ekki fínnanlegt sem viðfangsefni.
Þetta er nokkuð þröngt svið og
gefur ekki mikla möguleika til
umijöllunar.
Tæknilega séð virðist mér þetta
allt í lagi, þokkaleg verk, en mynd-
imar í Gangskör segja mér hvorki
eitt né neitt, svo að þessar línur
verða aðeins til að minna á, að
þessi sýning er í gangi í miðbænum,
og það getur vel verið, að einhveij-
ir, sem.eiga þama leið um og líta
inn, finni sér unað í þessum verkum
— ekki vil ég verða til að spilla því
með þessum fáum línum, en ég hlýt
að viðurkenna, að ég hef ekki meira
til málanna að leggja að sinni.
í útlöndum eni greinar sem þessi
kallaðar „eldspýtustokka umsagn-
ir“, og er þá átt við lengd lesmáls-
ins, og vilja margir fá slíkt frekar
en ekki neitt. En þetta var útúrdúr
og kemur þessari sýningu ekkert
við.
Getur Breytt Mklju
- da Vinci gerði það!
Þegar málun stendur fyrir dyrum eyðirðu oft
miklum tíma í leitina að réttu litunum.
Þar getur áratuga reynsla okkar í faginu
og fullkominn búnaður til
endalausra möguleika í
litablöndun hjálpað þér svo um munar.
r»\ . m0ÉM3
Við gefum þér
góð ráð um
hvemig þú nærð góðum árangri í
samsetningu á litum, gólfefnum, veggfóðri o.s.frv.
- Og ekki bara það, heldur eigum við
öll efni og áhöld til að vinna verkið vel.
Síðumúla 15, sími (91)84533
- RÉm Luurinn!
4