Morgunblaðið - 30.10.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
35
• •
Ollum Bjarnfirðing--
um boðið til veislu
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
LOKAVEISLA var haldin af kon-
um þeim í Bjarnarfirði er ráku
sumarhótelið á Laugarhóli f sum-
ar. Buðu þær þriðjudaginn 20.
október til kvöldveislu mökum
sínum og öðrum íbúum fjarðar-
ins, er heima sátu án þeirra í
sumar, meðan þær unnu við störf
sín á hótelinu. Veislu þessa sóttu
allir íbúar Bjamarfjarðar og
gestir er þar vom staddir. Meðal
annars vom þaraa þrír skóla-
stjórar er starfað hafa við
Klúkuskóla.
Það var mikill fagnaður í kvenna-
veislu aldarinnar í Bjamarfírði um
daginn. Eftir að lokið var starfí og
frumuppgjöri hótelrekstrar kvenn-
anna hér í sumar, auk þess sem
lokið var smölun og slátmn Qár í
firðinum, buðu þær ölium íbúum
byggðarinnar og gestum þeirra er
staddir vom á heimilum þeirra, til
kvöldveislu, sem jafnaðist á við það
besta á betri hótelum borgarinnar.
Gestir nutu góðra veitinga.
Hótelreksturinn hafði gengið vel
í sumar og töldu þær því ástæðu
til að fagna þessu, auk þess sem
haustannir vom að mestu leyti hjá
liðnar.
Þá var einnig stóraftnæli þennan
dag, en Ingibjörg Sigvaldadóttir
húsfreyja á Hóli, eiginkona Ingi-
mundar Ingimundarsonar, héraðs-
höfðingja dalsins, varð 75 ára
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Hótelstýrumar sem ráku sumarhótelið á Laugarhóli í sumar.
þennan dag, en hún er fædd 20.
október 1912, dóttir hjónanna Guð-
bjargar Einarsdóttur og Sigvalda
Guðmundssonar, bónda í Sandnesi.
Hafa þau hjón, Ingibjörg og Ingi-
mundur eignast sex böm. Bámst
henni einnig gjafír og heillaóskir.
Má geta þess hér að í bókinni ís-
lenskir samtíðarmenn segir svo um
hana, þar sem sagt er frá ævi-
hlaupi Ingimundar manns hennar:
„Það er fyrst og fremst konan sem
hefír gert mér og öðmm mögulegt
að starfa í félögum og við önnur
trúnaðarstörf. Kona má aldrei
gleymast þegar störf bóndans em
metin."
Tveir fyrrverandi skólastjórar
Klúkuskóla tóku þátt í þessari
veislu, þeir Einar Unnsteinsson og
Magnús Rafnsson, auk núverandi
skólastjóra við skólann.
Skemmtu sér allir þaraa hið
besta fram eftir kvöldi og nutu ijöl-
breytts maðseðils kvennanna.
- SHÞ.
FÉLAGSMAN NADAGAR
í STÓRMARKAEN KRON
Það borgar sig að vera félagsmaður í KRON.
Laugardaginn 31. október efnum við til sérstaks
félagsmannadags. Þá veitum við félags-
mönnum 5% afslátt af öllum vörukaupum
í Stórmarkaði KRON, einni allraódýrustu
verslun höfuðborgarsvæðisins.
Tilboðið gildir líka laugardagana
7., 14. og 21. nóvember.
Félagsmenn, notið tækifærið
og gerið hagstæð innkaup, m.a.:
Appelsínur kg. kr. 51,50_____________
Epli, rauð kg. kr. 59,50 Egg kg. kr. 79,-
Kartöflur kg. kr. 65,- Barber tekex kr. 21,50
Blanda, hreinn appelsínusafi kr. 49,-________
Sanitas gosdr. 2 Itr. kr. 99,- Dauer bjór 450 ml. kr. 49,-
- 5% félagsmannaatsláttur.
FYRIR FRAMTÍÐINA
Auk þess á sérstöku félagsmannatilboði:__________
Kitchen Aid hrærivél kr. 14.370,- (venjul.verð 17.245,-)
Samsung myndbandstæki kr. 29.900,- (venjul.verð 35.900,-)
Braun Multipractik kr. 6.170,- (venjul.verð 7.980,-)
Skrifborðssett kr. 1.590,- (venjul.verð 1.924,-)
Tilboðið giidir meðan birgðir endast.
KKN
Munið félagsskírteinin.
Gerist félagar.
Það er hægt t.d. í Stórmarkaði KRON á
laugardaginn og áskrifstofu KRON, sími 22110.
■