Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
Tilboð í HafQarðará, Oddastaðavatn og tiu jarðir:
Vilja kaupa fyr-
ir liðlega 100
milljónir kr.
Að sögn oddvita Kolbeinsstaðahrepps.
Heimamenn kanna stöðu sína í málinu
ÓTTAR Yngvason lögmaður og
Páll Jónsson, eigandi ferðaskrif-
stofunnar Pólaris, hafa gert
samning nm kaup á Oddastaða-
vatni, Haffjarðará, sem er ein
af betri laxveiðiám á landinu, og
tiu jörðum í Eyjahreppi og Kol-
beinsstaðahreppi i Hnappadals-
sýslu fyrir liðlega 100 miiyónir
króna sem greiðast eiga núver-
andi eigendum, börnum Richards
Thors, á iiðlega einu ári að sögn
Guðmundar Albertssonar odd-
vita Kolbeinsstaðahrepps.
Óttar Yngvason hefur verið lög-
maður eigendanna í mörg ár en
Páll Jónsson hafði Laxá í Kjós á
leigu til skamms tíma. Þeir sögðu
báðir það rétt vera að þeir hefðu
gert samning um kaup á ofan-
greindum eignum en vildu hins
vegar ekki gefa upp kaupverðið.
Þeir sögðu málið vera í biðstöðu
þar sem Eyjahreppi og Kolbeins-
staðahreppi hefði verið gefinn eins
mánaðar frestur, frá og með síðast-
liðnum mánudegi, til að ákveða
hvort þeir vildu nýta forkaupsrétt
sinn á eignunum. Málaferli hafa
staðið yfir í mörg ár á milli núver-
andi eigenda og íbúanna í hreppun-
um um HafQarðará og jarðimar tíu
og hafa íbúamir m.a. sakað eigend-
Innbrot
Baulu
*
1
BROTIST var inn i söluskál-
ann Baulu í Borgarfirði
aðfaranótt miðvikudagsins og
þaðan stolið bœði fé og tóbaki.
Þjófurinn, eða 'pjófamir,
bmtu glugga á söluskálanum
og fóm þar inn. Þar vom fyrir
30 þúsund krónur, sem ekki
reyndust á sínum stað morgun-
inn eftir. Þá hvarf einnig tölu-
vert af tóbaki.
Söluskálinn er við Norður-
landsveg, hjá Haugum í Staf-
holtstungum.
í dag
: JafnvíteMlitf ■ , :: *k/**
JUorjjunbKnbiö VIÐSKIFTIAnnNNUIÍF
'amstíirfsnefnd seturreglur !»•« V •>»<»: iM) í í i
• j Tliiffvöxlu "^ vift 10% MindrAtf i ■: ý. ■
’í vegsbankiiw fær WM-tulvukerfí s V'~sr~'*r" !„I<4 i -e
uraa um að hafa látið hús á
jörðunum drabbast niður.
Páll Jónsson sagði að ábúendur
á þeim Qómm jörðum sem em í
byggð af þessum tíu gætu fengið
að búa eins lengi og þeir vildu á
þeim. „Helst vildum við fá ábúendur
á fleiri jarðir en hins vegar er það
rétt að við emm aðallega að hugsa
um veiðina í Haffjarðará með þess-
um kaupum," sagði Páll.
Guðmundur Albertsson, oddviti
Kolbeinsstaðahrepps, sagði að það
gæti ekki verið löglegt að leggja
samninginn fyrir Eyjahrepp og
Kolbeinsstaðahrepp eins og gert
væri. „í samningnum," sagði Guð-
mundur, „er einungis kveðið á um
heildaifyárhæð fyrir allar eignimar
en fímm af jörðunum em í Kolbeins-
staðahreppi en hinar fimm em í
Eyjahreppi. Ef einungis annar
hreppanna myndi kaupa allar jarð-
imar eignaðist hann þar með stóran
hluta af hinum hreppnum.
Lögmaður okkar er nú að athuga
hvort löglegt er að leggja samning-
inn fyrir hreppana á þennan hátt.
Það er aiveg ljóst að þessir tveir
hreppar hafa ekki bolmagn til að
kaupa þessar eignir fyrir þetta verð,
sem samið hefur hefur verið um
fyrir eignimar, liðlega 100 milljón-
ir, sem greiðast eiga á rúmlega einu
ári. Við emm því að athuga hvort
einhveijir fjársterkir aðilar em ekki
tilbúnir að gera samning við okkur
um kaup á þessum eignum," sagði
Guðmundur.
Svanur Guðmundsson, oddviti
Eyjahrepps, sagði að lögfræðingur
væri að athuga málið fyrir sig.
„Það er hins vegar alveg ljóst að
það er ekki hægt að leggja þetta
fyrir hreppsnefnd Eyjahrepps eins
og þetta er sett fram í samningn-
um, verð eignanna þyrfti að sjálf-
sögðu að vera sundurliðað," sagði
Svanur.
óttar Yngvason sagðist ekki geta
séð neitt óeðlilegt við þetta fyrir-
komulag. „Það hefur verið gerður
ákveðirn samningur sem er til
umfjöllunar hjá forkaupsréttar-
höfum. Það em ótal atriði í samn-
ingnum sem hægt er að kíkja á frá
lögfræðilegu sjónarmiði, hins vegar
get ég ekki séð neitt ólöglegt við
samninginn," sagði Óttar.
Frímínútur
Sjálfstæðisflokkur:
Formanna-
og flokks-
ráðsfundur
Sjálfstæðisflokkurinn heldur
hinn árlega flokksráðs- og form-
annafund sinn um næstu helgi. Á
föstudag munu formenn aðildar-
félaga og samtaka flokksins
hittast á fundi í Valhöll og á iaug-
ardag verður siðan efnt til
sameiginlegs fundar flokkráðs og
formanna í nýja hótelinu á Sel-
fossi.
Samkvæmt skipulagsreglum
Sjálfstæðisflokksins kemur flokksráð
saman í upphafi hvers þings og á
milli Landsfunda flokksins er venju-
lega haldinn sameiginlegur fundur
formanna aðildarsamtaka og
flokksráðs. Að sögn Þorsteins Páls-
sonar, forsætisráðherra og formanns
flokksins, var ákveðið að halda sam-
eiginlegan fund að þessu sinni. Á
formannafundinum á föstudag verða
einkum rædd innri mál og starfsemi
flokksins, skipulagsmál og félags-
störf. Á sameiginlega fundinum á
Selfossi á laugardag verða hins veg-
ar almennar pólitískar umræður og
stefnuyfirlýsing fiokksins. Fundur-
inn á Selfossi hefst klukkan 10.00
árdegis og er áætlað að honum ljúki
síðdegis á laugardag.
Sovétmenn hafa ekki staðfest kaup á 50 þús. saltsfldartunnum:
Viðskiptin óhag-
stæð um 570 millj.
STEINGRÍMUR Hermannsson
utanrikisráðherra segir íslend-
inga hafa í lok september verið
búna að kaupa vörur af Sovét-
mönnum fyrir 570 milljónum
króna hærri fjárhæð en Sovét-
menn höfðu keypt af íslending-
um. Þvi geti gjaldeyrisskortur
varla verið ástæðan fyrir að Sov-
étmenn hafi ekki enn staðfest
kaup á 50 þúsund sUdartunnum
af þeim 200 þúsund tunnum sem
samningar náðust um í lok
síðasta mánaðar.
Verðmæti þeirra 200 þúsund
tunna sem samningar náðust um
var talið um 700 milljónir króna
þannig að verðmæti þeirra 50 þús-
und tunna sem eftir er að staðfesta
kaup á er um 175 milljónir. Einar
Benediktsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar
sagði við Morgunblaðið að nefndin
hefði undanfarið verið í sambandi
* í
BLAÐ B
Jeppar innkall-
aðir vegna galla
FYRIRTÆKIÐ American Mot-
ors Corp. hefur óskað eftir þvS
við EgO Vilþjálmsson hf., að
fyrirtækið innkalli alla Wag-
oneer, Grand Wagoneer og
Cherokees, jeppa árgerð 1979
til 1988, sem seldir hafa verið
hér á landi, vegna galla í raf-
búnaði í afturrúðu. í Banda-
ríkjunum hafa þijú börn látist
og önnur slasast þegar rúðan
stóð á sér og hefur verið ákveð-
ið að innkalla 180.000 jeppa.
Að sögn Sveinbjöms Tryggva-
sonar forstjóri Egils Vilhjálmsson-
ar hf. hafa um 10 jeppar af þeirri
gerð sem hér um ræðir, svokallað-
ur „stærri bíll“, verið fluttir til
landsins. Eru eigendur þeirra
beðnir um að snúa sér til fyrirtiak-
isins. Von er á búnaði sem settur
verður í jeppana og koma á í veg
fyrir að slys sem þessi geti gerst.
Hættan felst í að hægt er að
opna afturrúðuna með lykli, sem
í fyrrgreindum slysatilfellum hef-
ur staðið á sér þegar honum var
sleppt, en þá á rúðan að stöðvast.
í fréttaskeyti Reuters er þess ekki
getið með hvaða hætti slysin urðu
en talið er að höfuð bamanna
hafí orðið á milii þegar lykillinn
stóð á sér og rúðan þrengdi að.
Sveinbjöm tók fram að eigend-
ur bifreiðanna yrðu þess varir ef
lykillinn stæði á sér og hefði þessi
galli ekki komið fram í bifreiðum
hér, eftir því sem hann kæmist
næst.
við Sovryflot, sovéska fyrirtækið
sem sér um sjávarútvegsviðskipti
Sovétmanna, en ljóst væri að horfur
væra ekki góðar á að staðfesting
fengist.
Steingrímur Hermannsson sagði
við Morgunblaðið að verið væri að
vinna að þessu máli í utanríkisvið-
skiptaráðuneytinu og Sfldarútvegs-
nefiid. Hann sagðist ekki vilja segja
neitt um málið á þessu stigi en taldi
ekki vonlaust að þessir samningar
gætu gengið eftir. Þegar hann var
spurður hvort þetta mál yrði tengt
fyrirhuguðum olíuviðskiptaviðræð-
um við Sovétmenn sagði hann það
ekki vera en hinsvegar væra við-
skipti þessara þjóða Sovétmönnum
mjög í hag eins og er. „í lok septem-
ber vora okkar kaup orðin 570
milljónum króna meiri en þeirra svo
við teljum að við eigum veralega
inni hjá þeim. Þeir hafa borið því
við, og við vitum að það er rétt,
að þeir era mjög fátækir af gjald-
eyri en við teljum að gagnvart
okkur geti það varla verið ástæðan
vegna þess að við kaupum meira
af þeim og borgum í dollurum,"
sagði Steingrímur Hermannsson.
Árlegur fundur viðskiptanefnda
Islands og Sovétmanna verður í
næstu viku í Moskvu og er þar fjall-
að um framkvæmd fimm ára
rammasamningsins sem er í gildi
milli landanna. Búist er við að þar
beri á góma sfldarkaup Sovétmanna
og staðfestinguna á sfldarsamn-
ingnum sem undirritaður var í
októberlok.
Skipverji
slasaðist
AKUREYRIN EA 10 kom inn til
Siglufjarðar í gærkvöldi með
slasaðan skipveija. Meiðsli hans
munu þó ekki vera alvarleg.
Skipveijinn féll við vinnu sína
um borð og meiddist á öxl. Ákveðið
var að fara til Siglufjarðar, sem er
um tíu tíma sigling af miðunum.
Þar var gert að meiðslum mannsins
á sjúkrahúsinu, en Akureyrin hélt
aftur til veiða.
Búsljóri í þrota-
búinu skipaður í dag
ÚRSKURÐUR um gjaldþrot
Kaupfélags Vestur-Barðstrend-
inga var kveðinn upp i gær hjá
sýslumannsembættinu á Patreks-
firði. Bústjóri í þrotabúinu
verður væntanlega skipaður í
dag og verður þá fljótlega tekin
ákvörðun um hvort verslunum
kaupfélagsins verður lokað.
Kaupfélagið rekur matvöruversl-
un, byggingavöraverslun og sölu-
skála á Patreksfirði og eitt útibú í
Örlygshöfn í Rauðasandshreppi að
auki. Alls vinna um 15 manns hjá
Kaupfélagi V-Barðstrendinga og
hefur þeim öllum verið sagt upp
störfum. Enn era allar verslanir
félagsins opnar og bíður starfsfólk
eftir ákvörðun væntanlegs bústjóra
um hvemig rekstri þeirra skuli hátt-
að.
Ekki er vitað á þessu stigi máls-
ins hvort nýir aðilar hyggist taka
við einhveijum hluta af þeim rekstri
sem Kaupfélag V-Barðstrendinga
hefur haft á hendi til þessa, en
heimamenn f Rauðasandshreppi
munu þó vera að fhuga að taka við
rekstri útibúsins þar. Útibú Kaup-
félags V-Barðstrendinga f Örlygs-
höfti er eina verslunin í Rauða-
sandshreppi, þar sem um hundrað
manns búa, en tvær matvöraversl-
anir eru á Patreksfirði fyrir utan
kaupfélagið.