Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987 Brids: Flugleiðir meist- arar flugfélaga FLUGLEIÐIR unnu um siðustu helgi heimsmeistaramót flugfé- laga í brids sem haldið var i Dublin á írlandi. Alls tóku 8 sveitir þátt í mótinu. Þetta er i fyrsta skipti sem Flugleiðir vinna þetta mót, en það er haldið ár- lega. Spilaðir voru 10 spila leikir milli sveitanna og hlaut sveit Flugleiða 145 stig, þar af 96 af 100 möguleg- um í síðustu flórum leikjunum. í öðru sæti varð sveit A1 Italia með 127 stig og í þriðja sæti varð sveit þýska flugfélagsins Lufthansa með 126 stig. Sveit Flugleiða skipuðu Bjöm Theódórsson, Jón Baldursson, Heimir Hjartarson, Sæmundur Bjömsson, Jóhannes Ellertsson, Páll Halldórsson og Kristbjöm Al- bertsson sem var fyrirliði án spila- mennsku. Flugleiðir urðu í 2. sæti ( þessu móti á sfðasta ári, og í 3. sæti árið á undan en fram að því hafði Flugleiðasveit aldrei náð verð- launasæti. íslenski dansflokkurinn: Þrjár sýningar á Flaksandi földum ÍSLENSKI dansflokkurinn sýnir Flaksandi falda sunnudaginn 22., fimmtudaginn 26. og laugardag- inn 28. nóvember f Þjóðleikhús- inu klukkan 20. Á sýningunum verða flutt dansverldn A milli þagna eftir Hlif Svavarsdóttur, nýjan listdansstjóra Þjóðleik- hússins, og Kvennahjal eftir hollenska danshöfundinn Angelu Linsen. Á milli þagna er samið við valsa- stef úr ýmsum áttum og Kvennahjal er dansað eftir ítalskri alþýðutón- list, söngli, ljóðaflutningi og þögnum. Auk dansara íslenska dansflokksins dansar María Gísla- dóttir á sýningunum en hún hefur dansað í Þýskalandi og Banda- ríkjunum að undanfömu. Búningar em eftir Sigrúnu Úlfarsdóttur og Sveinn Benediktsson annast lýs- ingu. Stefnir í mikla plötusölu fyrir jól - segir Steinar Berg ísleifsson, for- maður Sambands hlj ómplötuframleiðenda „ÞAÐ hefur legið f loftinu allt þetta ár að plötusala yrði óvenju mikil fyrir þessi jól og það virð- ist vera að koma fram núna,“ sagði Steinar Berg ísleifsson, formaður Sambands hljómplötu- framleiðenda, er hann var spurður um útlitið f hfjómplötu- sölu fyrir jólin. Steinar Berg taldi að ástæðan fyrir þessum góðu viðtökum á íslenskri tónslist væri tvfþætt, annars vegar mikið framboð á vandaðri tónlist og hins vegar að verð á hijómplötum hefur nánast staðið f stað á milli ára. „Það hefur verið óvenju mikið af hljómplötum í framleiðslu að undanf- ömu og viðbrögð nú, þegar fyrstu plötumar eru að koma á markaðinn, em jákvæð. Smásalar hafa greini- lega orðið varir við þetta, það sýnir þessi mikla forpöntun á plötunni hans Bubba. Ennfremur má benda á þær góðu móttökur sem plata Bjartmars Guðlaugssonar hefur hlotið, en hún hefur nú selst í um 3.000 eintökum á einni viku, sem er rúmlega tvöfalt meira en allar fyrri plötur hans samanlagt. Aðrar plötur em einnig á góðu skriði, þótt þessar tvær virðist ætla að skera sig nokkuð úr af þeim plötum sem þeg- ar em komnar út. Salan það sem af er nóvember er nú tvöfalt meiri miðað við sama tíma í fyrra þannig að það stefnir í mikil plötujól í ár,“ sagði Steinar Berg. Hann sagði ennfremur að sala á geisladiskum og tónböndum hefði farið vaxandi og flestar helstu íslensku plötumar kæmu einnig út á geisladiskum og tónböndum. Hljómplatan væri þó enn lang stærsti hlutinn, en bæði geisladiskar og tónbönd ynnu á án þess þó að það kæmi niður á sölu á hljómplöt- um, sem einnig færi vaxandi, eins og áður er getið. Atvinnu- ástand fer batnandi SKRÁÐUM atvinnuley sisdögum. hefur fækkað um 40% f október- mánuði miðað við sama tfma f fyrra og hafa aðeins einu sinni áður á þessum áratug verið skráð- ir færri atvinnuleysisdagar f október. í mánuðinum október voru skráðir 4600 atvinnuleysisdagar sem sam- svarar því að 214 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum en það jafngildir 0,2% af áætluðum mannafla á vinnumark- aði samkvæmt spá Þjóðhagsstofnun- ar. Þetta er nánast óbreytt atvinnuástand miðað við september- mánuð en veruleg breyting hefur orðið á dreifingu skráð atvinnuleysis. Þannig féllu 14% af skráðu atvinnu- leysi til á höfuðborgarsvæðinu í október á móti 27% í september. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Morgunblaðið/Þorkell Rafn F. Johnson, stjórnarformaður O. Johnson & Kaaber, Jóhann Möller, skristofustjóri og Birgitta Spur, ekkja Siguijóns Ólafssonar, fyrir framan verk Siguijóns, Sköpun. Gefin ein milljón tíl endurgerðar listaverks LISTASAFN Siguijóns Ólafsson- ar hefur fengið að gjöf eina milljón króna frá O. Johnson & Kaaber hf., tíl greiðslu á frum- mynd eftir Siguijón. Verður verkið unnið í marmara og þvf valinn staður f garði safnsins á Laugarnesi. Verkið sem um er að ræða nefn- ist Sköpun, og var unnið úr frauð- plasti árið 1976. Gjöfin er færð safninu í tilefni þess, að 23. septem- ber 1986 voru 80 ár liðin frá stofnun O. Johnson & Kaaber hf, og töldu ráðamenn þess við hæfí að minnast þeirra tímamóta með framlagi til menningarlífs borgarinnar. Listasafn Siguijóns Ólafssonar var stofnað 1. desember 1984, af Birgittu Spur, ekkju Siguijóns, og hefur verið unnið við viðgerð og endurbyggingu vinnustofu lista- mannsins, ásamt nýjum viðbygg- ingum við safnið, frá árinu 1985. Framkvæmdir hafa legið niðri und- anfarið vegna fjárskorts, en for- ráðamenn safnsins steftia að því að vígja það þann 21. október 1988, en þá hefði Siguijón Ólafsson orðið áttræður. Að sögn Birgittu Spur var safnið upphaflega stofnað sem einkasafn, en ætlun hennar er að það verði almenningseign. Safnhúsin eru vinnustofa, sem Siguijón lét byggja yfir bragga sem hann hafði áður starfað í frá 1945, steinhús sem byggt var af bandaríska hemum, og íbúðarhús sem var smíðað 1961. Við húsin eru nú komnar viðbygg- ingar og tengibygging, auk þess sem byggt hefiir verið ofan á stein- húsið. Auk vinnustofu Siguijóns verður í safninu skrifstofa, geymsl- ur, salur á efri hæð og glerskáli sem mun hýsa kaffistofu með útsýni yfir sundin. Við safnið verður einn- ig útigarður og mun verkið Sköpun verða staðsett þar ásamt fleiri verk- um Siguijóns. Útsvar 7,5% í stað 6,25% Rauntekjur sveitarfélaga hækka um 1,7 milljarða FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur sent frá sér fréttatílkynningu þar sem segir að 6,25% útsvar í staðgreiðslukerfi þýði að sveitar- félögin fái alls 8.529 mil^ónir i útsvarstekjur á árinu 1988 sem sé svipaðar útsvarstekjur að raungildi og 1986. Hinsvegar þýði hámarksútsvar, 7,5%, að tekjur sveitarfélaganna verði 10.235 miiyónir sem þýði að skattbyrði fjögurra manna fjöl- skyldu hækki um 25-30 þúsund á næsta ári. Félagsmálaráðherra mun gefa út reglugerð um innheimtuhlutfall útsvars í staðgreiðslu, þe. hvaða Ekið á mann EKIÐ var á gangandi mann í Tryggvagötu I Reykjavík í gær- morgun, en meiðsli hans munu vera minni en á horfðist í fyrstu. Óhappið varð um kl. 8 um morg- uninn. Maðurinn gekk yfir gangbraut hjá Tollstofunni og varð þá fyrir bifreið, sem var ekið vestur götuna. Meiðsli mannsins voru ekki mikil, en hann kvartaði þó yfír eimslum í baki. útsvarsprósentu verður miðað við í heildarskattprósentunni. Sveitarfé- lögin eru síðan sjálfráð um endan- lega álagningu upp að 7,5% og verður mismunurinn innheimtur sérstaklega á miðju ári, ef sveitarfé- lög vijja leggja á hærra útsvar en miðað er við í reglugerð, eða endur- greiddur ef útsvar einstakra sveit- arfélaga verður lægra. Úr umferðinni í Reykjavík þriðjudaginn 17. nóvember 1987 Árekstur bifreiða 17. í þremur tilvikum varð slys á fólki. Kl. 8.35 á Arnarbakka, ökumaður fluttur á slysadeild. Kranabifreið tók bæði ökutæki af staðnum. Kl. 15.33 varð árekstur bifhjóls og bíls á Þverholti. Ökumaður bif- hjóls fluttur á slysadeild. Kl. 17.25 á Nóatúni. Ökumaður fluttur á slysadeild og kranabifreið tók bæði ökutæki af staðnum. Radarmæling: 5 kærðir. Á Sætúni var 21 árs gamall ökumaður staðinn að því að aka með 108 km/klst. hraða og var bifreiðin tekin af honum því hann reyndist vera réttindalaus. Leyfður hámarkshraði á Sætúni er 50 km/klst. Aðrir sem kærðir voru fyrir of hraðan akstur fóru um Kringlumýrar- braut með 97 km/klst. hraða. Um Kleppsveg með 92 km/klst. hraða og Hofsvallagötu með 72 km/klst. hraða. Stöðvunarskyldubrot: 12 ökumenn kærðir. kranabifreið flarlægði 11 bifreiðir vegna ólöglegrar stöðu. Klippt voru númer af 17 bifreiðum fyrir vanrækslu á að færa til skoðunar. í þriðjudagsumferðinni fundust þrír réttindalausir ökumenn og tveir undir grun um ölvun við akstur. Samtals 64 kærur fyrir umferðarlagabrot. Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.