Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 56
 56 vont íTrrcri/mrVrATA pr OTT^ArTTm/nrT^ nrn * TauTT'-.uo** MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Heilsa Ljónsins f dag ætla ég að fjalla um Ljónsmerkið (23. júlí—23. ágúst) út frá heilsufarslegu sjónarmiði. Eins og flestir vita hefur hvert merki tengsl við ákveðna líkamshluta. Þar sem hver maður á sér hins vegar nokkur merki, þurfa lesendur, sem vilja fá heildarmynd yfir heilsumál sín, einnig að lesa greinar um hin merkin. í dag er birt fimmta greinin af tólf fimmtudagsgreinum um heilsu merkjanna. Hjarta og bak Ljónið stjómar hjarta, baki og hrygg. Ljónum hættir því til að fá ýmiss konar hjarta- sjúkdóma og verða bakveik. Fyrir utan hjarta- og bakveiki má einnig neftia erfíðleika með gallblöðru, gigtarsótt eða sársauka í liðum og vöðvum og æðakölkun. Ljónið á einnig til að fá háan blóðþrýsting, hita og bólgur ýmiss konar. MatarœÖi Dr. Comell segir að Ljónið þurfí aö hugsa um mataræði sitt, þurfí að gæta þess að borða ekki of mikið og halda blóðinu hreinu til að koma í veg fýrir of mikið álag á hjart- að og hjartaáföll. Hann segir að Ljónið eigi að fasta eða minnka við sig mat þegar því líður illa og m.a. drekka hreina ávaxtasafa. Bakœfingar Þar sem bakið er viðkvæmt er æskilegt fyrir Ljónið að temja sér að sitja og beita líkamanum rétt. Sérstaklega er mælt með Alexanders- tækninni til að koma í veg fyrir bakveiki og hrygg- skekkju. Eins er talið gott fyrir Ljónið að gera æfíngar sem styrkja hjarta og æða- kerfí. Ofkeyrsla ogstolt Hugrekki Ljónsins og bjart- sýni getur einnig bitnað á heilsunni. Ljónið á það til að ofmeta hvað það getur leyst af hendi og ætla sér of mikið, á því til að yfírkeyra sig. Annar veikleiki Ljónsins er fólginn í stoltinu. Það á oft erfítt með að biðja aðra um aðstoð og skapar það því auk- ið álag og pressu á sjálft sig. Menningarleg afslöppun Ljónið þarf því að kunna sér hóf. Með þessu er ekki átt við að Ljónið kunni ekki að slappa af, enda eru til margar fræg- ar sögur af duglegum letiköst- um Ljóna. Þetta á frekar við þegar Ljónið er í vinnutöm. Þegar svo stendur á þarf Ljónið að kunna sér hóf, m.a. að gefa sér tíma fyrir leikhús og menningarviðburði. Heim- ur sköpunar endumýjar Ljónið. AÖdáun Þó Ljónið sé að mörgu leyti ' sterkt merki, hefur það einn veikleika, sem getur bælt orku þess niður. Það þarf aðdáun, athygli og virðingu. Ef slíkt er ekki fyrir hendi, á Ljónið til að fara í fylu og skreppa saman. Það getur því lokað á lífsorku sína og þann hressi- leika, kraft og einlægni, sem annars einkennir merkið. Ljónið þarf því að læra að sækja styrk innan frá og ekki treysta á aðdáun annarra. Útrás Að lokum eitt sem er mikil- vægt. Ljónið þarf útrás fyrir tilfinningar og þarf að geta tjáð sig á skapandi hátt. Ef starf Ljónsins er kalt og gefur litla möguleika á tjáningu er æskilegt fyrir það að leggja stund á áhugamál sem gefa kost á tilfinningalegri tján- ingu, góðum öskrum og almennri útrás. GRETTIR P’AVfó IQ-I6 5ÆLKERAR þEKK3A ELPHOSA- HÖLPIH eÍN. þetTA ER 3ÚPU- 6KEIQ , TESKEIPIN, p in og &yKUf?eKEie>iN LE\K- SKEIP/M. OG> her ER- EFTIRLÆ.Tie SKeiPIM Mi'N. TOMMI OG JENNI FERDINAND SMAFOLK Hl,MRS. NELSON.. Hl, MRS. BARTLEV... ARE VOU HAVIN6 A NIŒ 60LF GAMET^ ves.ma'amj'mrakinö ALLTHE SANPTRAP5... OJMV?UJELL,MVDOe 15 INTI4E F0REI6N LE6I0N, 5EE, ANP ME WA5 LEAPIN6 MI5TR00P5 ALR055 TME PESERT TO FORT ZINPERNEUF; 5EE, ANP... Sælar frúr, gengur ykkur Já, frú, ég er að raka alíar Af hveiju? Nú, hundurinn Já, haldið þið bara áfram vel í golfinu? sandgryfjumar — minn er í Útlendingaher- með leikinn ... ég skil_ sveitinni og hann fór með liðsmenn sína í göngu yfir eyðimörkina til virkisins og... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þrátt fyrir hindmn vesturs tókst NS að komast í besta samninginn, fímm lauf. Vestur gefur; NS á hættu. Norður ♦ ÁG85 ¥G ♦ Á76 ♦ ÁD532 Vestur ♦ 73 *ÁKD98532||||| ♦ G ♦ 74 Suður Austur ♦ D10962 VlO ♦ KD10532 ♦ 6 ♦ K4 ¥ 764 ♦ 984 ♦ KG1098 Vestur Norður Austur Suður 4 hjörtu Dobl Pass 5 lauf Pass Pass Pass Vestur spilaði út hjartaás og lét kónginn fylgja í kjölfarið í þeirri von að skapa þannig trompslag á hendi makkes. En sagnhafí hafði efni á að stinga frá með trompás. Hann tók því næst tvisvar tromp, stakk síðasta hjartað í blindum og spil- aði smáum tígli frá báðum höndum. Austur tók slaginn og spilaði áfram tígli. Þegar vestur henti hjarta lagði sagnhafí upp. Hvers vegna? Skipting vesturs lá nú alger- lega fyrir. Hann hafði sýnt átta hjörtu, tvö lauf og einn tígul. Því hlaut hann að eiga tvo spaða. Væri spaðadrottningin á hendi vesturs kæmi hún því sjálfkrafa í Ijós. Ætti austur drottninguna hins vegar, gæti hann ekki stað- ið vörð um hana til lengdar. í þriggja spila lokastöðu verður hann að halda í hæsta tígulinn og því fara niður á tvo spaða. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í Mendrisio á ít- alíu i haust kom þessi staða upp i skák Júgóslavanna D. Nikolic og alþjóðlega meistarans Diz- darevic, sem hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast 29. h4-h5? 29. - Hxf2!, 30. Hxf2 - Dhl+, 31. Kxhl - Rxf2+, 32. Kg2 - Rxg4 og svartur vann skiptamun og skákina skömmu siðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.