Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 51
51 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987 Sjávarútvegur og ungt fólk eftir Óskar Skúlason Þriðjudaginn þrettánda október síðastliðinn birti Morgunblaðið grein mína „Týndur skóli — físk- vinnsluskólinn". Var ætlun mín með grein þessari að vekja fólk í landinu til umhugsunar um hlutverk og mikilvægi skólans fyrir þjóðina alla. Mér til mikillar gleði virtist ég held- ur betur hafa hrist upp í landanum, allir í kringum mig voru nú tilbúnir að ræða við mig um fiskvinnslu og fískvinnsluskólann. Meira að segja var ég kallaður í viðtal á einni af betri útvarpsstöðvum landsins þar sem ég var spurður spjörunum úr til að fræða landsmenn um þá merku stofnun er kallast Fisk- vinnsluskóli Islands. Það er víst óhætt að segja að það var stoltur ungur maður sem gekk út úr útvarpshúsinu að viðtali loknu. Og hvers vegna? Jú, mér fannst ég hafa bæði gert skólanum gott og kannski tekist að sanna fyrir einhveijum, sem var í vafa um að þetta væri rétti skólinn fyrir hann. En fljótlega lærði ég að þetta var aðeins lítill dropi í það haf skiln- ingsleysis sem ríkir hjá þjóðinni í sambandi við sjávarútveg og hversu nauðsynlegur hann er afkomu okk- ar. Nú var svo komið að stór hluti af því fólki sem ég umgengst og rekst á daglega var farið að telja mig alvitran um fisk og fískvinnslu. Því miður verð ég að viðurkenna að það er ég alls ekki. En miðað við hvað ungt fólk almennt, t.d. á höfuðborgarsvæðinu, veit um físk- vinnslu þá gæti ég í fyrstu virst klár. Því að meirhluti þess unga fólks sem svo oft er kallað erfingjar Iandsins virðist ekki hafa hugmynd um hvað heldur öllu gangandi í því sem þau ætla að erfa. Er þetta þróun í rétta átt? Ég held að flestu rétt þenkjandi fólki komi saman um að svo er ekki. Með þessu er ég ekki að segja að sá stóri hópur sem er á annarri skoðun sé heimskur. En ég held því fram að hann sé fáfróður, því að hann hefur ekki fengið rétta kennslu á réttum tíma. Og hver sér um kennslu á íslandi? Jú, vinir vors og blóma, menntamálaráðherra og hans ráðuneyti. Hvemig væri að hans hágöfgi og félagar tækju sig saman og íhuguðu þessi mál? Væri ekki t.d. hægt að hafa skyldufag í lokabekkjum grunn- skólanna, þ.e.a.s. níunda bekk, þar sem lögð væri áhersla á að kenna unglingunum hvað fískvinnslan gerir og hefír gert fyrir þjóðina í tímanna rás. Einu sinni f viku væri nóg. Þetta myndi kannski kenna ung- dómnum að bera virðingu fyrir því sem það verður að leggja allt sitt traust á í framtíðinni. Og kannski þegar þau verða spurð hvort þau viti hvaða atvinnugrein sé aðallífæð íslendinga þá detti þeim ekki fyrst í hug tískuvöruverslanimar við Laugaveg. Þó synd sé frá að segja þá er það því miður ekki bara unga fólkið sem virðist ekki skilja hlut- verk sjávarútvegs í landinu. í sjónvarpsviðtali ekki alls fyrir löngu var verið að ræða um hvort þroskaheftir væru baggi á þjóð- félaginu. Ekki ætla ég að tjá mig um þau mál, en sá sem við var rætt hélt því fram svellkaldur að þrátt fyrir að sjávarútvegur væri baggi á þjóðfélaginu væri aldrei talað um það. Hvers vegna væri þá eiginlega verið að pæla í hvort þroskaheftir væm baggi? Þetta kom eins og köld tuska í andlitið á þeim sem vita um hvað málið snýst. Hveiju á unga fólkið að trúa? Þetta er maður í forsvari fyrir stór sam- tök og því er hlustað á hann. Ég vona hans vegna og þjóðarinnar að hann og hans líkar setjist niður við tækifæri og íhugi hvurslags fjar- stæða þetta er. Við verðum að fara að taka í taumana því þegar við erum sokkin það djúpt að vatnið nær okkur upp fyrir höfuð gæti verið orðið of seint að ætla sér að fara að breyta og bæta. Það hefur verið reiknað út af miklum snillingum að hver manneskja í sjávarútvegi beri óbeint átta manneskjur úr þjónustu- störfum á bakinu. Sá, sem ætlar sér að kalla þessa manneskju bagga á þjóðfélaginu, er kominn út á hættulega hálan ís. Ég ætla ekki að fara inná hvað sé réttlátt kaup fyrir fískvinnslu- fólkið, um það sjá hæfír menn á öðrum stað. Mín skoðun er sú að á meðan stór hluti þjóðarinnar, þ.m.t. nokkrir af okkar æðstu mönnum, virðast líta fiskverkamenn sem eitt- hvað þriðjaflokksfólk þá mun skilningur á erfíðinu seint koma úr þeirri átt. Fólk verður að læra að meta þá miklu vinnu sem unnin er af þessu fólki, oft myrkranna á Óskar Skúlason „Væri ekki t.d. hægt að hafa skyldufag í loka- bekkjum grunnskól- anna, þ.e.a.s. níunda bekk, þar sem lögð væri áhersla á að kenna unglingunum hvað fisk- vinnslan gerir og hefir gert fyrir þjóðina í tímanna rás.“ milli. Svo ég vitni nú aftur í sjón- varpið, þá hélt ónefndur maður því fram að verslunarfólk í Reykjavík ynni svo mikið að engin önnur at- vinnugrein kæmist nálægt því. Ætli þessum manni snérist ekki fljótt hugur ef hann ynni í físki eins og eina vertíð? Við verðum að breyta hugsunar- hætti þjóðarinnar, því fyrr því betra. Við verðum að læra að við getum ekki mergsogið sjávarútveginn endalaust án þess að gefa neitt til baka. Hvað sem hver segir þá er og verður sjávarútvegurinn í kom- andi framtíð undirstaða alls at- vinnulífs og þar með alls lífs í landinu. Það er fásinna að ætla sér að sækja sér allan efnivið í undir- stöðuna til að byggja toppinn, það getur bara endað á einn veg, með hruni. Snúum við áður en það er of seint, og of seint eins og málin standa í dag er ekki svo langt undan. Að lokum, ætli það þætti ekki heimskulegt ef- maður sem vildi stækka myndi éta á sér lappimar til að bæta við efri hlutann? Snúið þessu yfír á sjávarútveg og íslensku þjóðina, sjáið skyldleikann og íhug- ið málið. Höfundur er uetni í Fiskvinnslu■ skólanum. Háhæla stígvél Kr. 3.790,- Litur: Svart Stærð: 36-40 Póstsendum samdægurs 5% staðgreiðslu- afsláttur TOPpJI SKÚR-INN VELTUSUNDI 1 21212 DULUX' S FRA OSRAM - Ljóslifandi orku- sparnaður - 80% lœgri lýsingar- kostnaður miðað við glóperu. - Fimmföld ending ó við venjulega peru. 1988 Kæliskápar án frystis, 6 stærðir K130 K200 K 244 K180 130 ltr. kælir 200 ltr. kælir 244 ltr. kælir 173 ltr. kælir Kæliskápar * frystiskápar * frystikistur. /FDniX gæði á verði sem kemur þér notalega á óvart K285 277 ltr. kælir K395 382 ltr. kælir Kæliskápar með frysti, 6 stærðir KF 120 103 ltr. kælir 17 ltr. frystir 161 ltr. kælir 34 ltr. frystir KF233 208 ltr. kælir 25 Itr. frystir KF250 173 ltr. kælir 70 ltr. frystir KF355 277 ltr. kælir 70 ltr. frystir KF 344 198 ltr. kælir 146 Itr. frystir Dönsku GRAM kæliskáparnir eru níðsterkir, vel einangraðir og því sérlega sparneytnir. Hurðin er alveg einstök, hún er massíf (nær óbrjótanleg) og afar rúmgóð með málmhillum og lausum boxum. Hægri eða vinstri opnun. Færanlegar hillur, sem einnig má skástilla fyrir stórar flöskur. 4-stjörnu frystihólf, aðskilið frá kælihlutanum (minna hrim). Sjálfvirk þíðing. Stílhreint og sígilt útlit, mildir og mjúkir litir. 4-stjörnu frystiskápar með útdraganlegum skúffum, 5 stærðir 4-stjömu frystikistur, fullinnréttaðar FS100 100 ltr. frystir FS175 175 ltr. frystir FS 146 146 ltr. frystir FS 240 240 ltr. frystir FS330 330 Itr. frystir HF234 234 ltr. frystir HF348 348 Itr. frystir HF462 462 ltr. frystir VAREFAKTA, vottorð donsku neytendastofnunarinnar, um kælisvið, frystigetu, einangrun, gangtíma vélar og orkunotkun fylgir öllum GRAM tækjum. GRAM frá FÖNIX =gæði á góðu verði. Góðir skilmálar - Traust þjónusta. /FOnix Hátúni 6A SlMI (91)24420 £ttmx ábyrgð í 3ár I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.