Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Barnagæsla - Gbæ
Barngóð manneskja óskast frá áramótum til
að koma heim og gæta tveggja telpna (4ra
ára og 6 mán.) og vinna létt heimilisstörf.
Vinnutími virka daga frá kl. 9.00-16.00.
Upplýsingar í síma 656548.
Aðstoð óskast
Óska eftir góðri manneskju til að gæta
tveggja skólabarna í Breiðholti frá kl. 12.00-
17.00. Góð laun í boði.
Upplýsingar í síma 71113 á kvöldin.
Hólmavík
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Hólmavík.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 3263
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í síma
91-83033.
Seltjarnarnesbær
Starfskraft vantar í íþróttahús. Hálfsdags-
starf kemur til greina.
Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í síma
611551.
Störf í mötuneyti
Óskum eftir að ráða starfsfólk í mötuneytis-
störf sem fyrst. Um er að ræða:
1. Hálfsdagsstarf, vinnutími frá kl. 10.00-
14.00.
2. Heilsdagsstarf við umsjón á mötuneyti.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
í síma 698320.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAG A
STARFSMANNAHALD
SAMBANDSHÚSINU
Snyrtilegir
og snaggaralegir
unglingar
Getum bætt við nokkrum snyrtilegum og
snaggaralegum unglingum til starfa við
skammtímaverkefni fyrir einn af viðskiptavin-
um okkar strax.
Kynningarstarf. Tímakaup. Gott tækifæri fyr-
ir skólafólk.
Upplýsingar og skrásetning í síma skrifstof-
unnar - 62 10 62 - í dag kl. 13.00-14.00 og
á morgun kl. 11.00-12.00 f.h.
MANNAMÓT S.F.
RÁÐSTEFNUMIÐSTÖÐ
STOFNAÐ 1975
REYKJMIÍKURBORG
^aaéav Sfödtci
Sálfræðingur
- unglingadeild
Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykja-
víkurborgar auglýsir eftir sálfræðingi í fullt
starf. Skilyrði er að viðkomandi hafi að
minnsta kosti 2ja ára starfsreynslu sem sál-
fræðingur. Starfið felst m.a. í meðferð,
ráðgjöf við starfshópa og þátttöku í stefnu-
mótun og skipulagningu unglingastarfs.
Umsóknarfrestur er til 8. desember.
Upplýsingar veita Snjólaug Stefánsdóttir,
deildarstjóri unglingadeildar, í síma 622760
og Gunnar Sandholt, yfirmaður fjölskyldu-
deildar, í síma 25500.
Umsóknum skal skilað til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar á umsóknareyðublöðum
sem þar fást.
Hrafnista Hafnarfirði
Sundlaugarvörður óskast sem allra fyrst við
endurhæfingardeild Hrafnistu í Hafnarfirði.
Um er að ræða hlutastarf. Ennfremur vantar
starfsfólk við aðhlynningu og ræstingu.
Upplýsingar í síma 54288 milli kl. 10-12.
Forstöðukona.
Kjararannsókna-
nefnd
opinberra starfsmanna óskar eftir að ráða
mann til starfa fyrir nefndina.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun
eða reynslu á sviði hagfræði, viðskiptafræði,
tölfræði eða talnavinnslu.
Um getur orðið að ræða ráðningu í hluta-
starf eða fullt starf. Umsóknarfrestur er til
24. nóvember nk.
Umsóknum skal skilað til:
Kjararannsóknanefnd
opinberra starfsmanna,
b.t. fjármálaráðuneytið,
Arnarhvoli,
Reykjavík.
Sölufulltrúi
Stórt deildaskipt þjónustufyrirtæki vill ráða
sölufulltrúa sem fyrst. Starfið felst aðallega
í samskiptum við aðila hérlendis og erlendis.
Reynsla í skrifstofustörfum ásamt tölvuþekk-
ingu nauðsynleg. Góð enskukunnátta skil-
yrði. Viðkomandi þarf að hafa trausta og
örugga framkomu og geta unnið mjög sjálf-
stætt. Góð vinnuaðstaða og laun samnings-
atriði.
Umsóknir sendist skrifstofu okkar fyrir 24.
nóv. nk.
GlJÐNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN I N CARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Framleiðslustarf
Við hjá Coca Cola auglýsum eftir hæfum
starfskrafti til að stjórna framleiðsluvélum
okkar. Æskilegt er að viðkomandi hafi ein-
hverja reynslu í meðferð áfyllivéla fyrir
gosdrykki og/eða drykki í pappírsfernum.
Umsækjendur yngri en 20 ára koma ekki til
greina. Framtíðarstarf.
Hafið samband við verkstjóra í vélasal í síma
82299.
Starfsfólk
óskast í uppvask.
Upplýsingar á staðnum.
ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Kvöldvaktir
- býtibúr
Óskum eftir starfsmanni á kvöldvaktir í býti-
búr. Vinnutími frá kl. 16.30-21.00.
Unnið er í 7 daga í senn og frí í 7 daga.
Upplýsingar gefur ræstingarstjóri í síma
19600 - 259 frá kl. 10.00-14.00 daglega.
Reykjavík,
18. nóvember 1987.
Afgreiðslustörf
Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf í verslun
okkar:
1. Vörumóttöku.
2. Kassa.
3. Kjötdeild.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri á skrif-
stofu Miklagarðs, sími 83811.
AHKLIG4RDUR
MARKAÐUR VIDSUND
Starfsfólk
Óskum eftir starfsfólki í eftirtalin kvöld- og
helgarstörf:
1. Fatahengi.
2. Miðasöfu.
3. Aðstoðarfólk í sal.
4. Uppvask.
5. Ræstingu.
Við leitum að hressu og duglegu fólki til
starfa í glæsilegu veitingahúsi sem opnar í
desember nk.
Áhugasamir komi til viðtals í veitingahúsinu
Broadway, Álfabakka 8, í dag fimmtudaginn
19. nóvember milli kl. 17.00 og 19.00.
Kærkveðja.
Hótel ísland.