Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
33
M0BLER
Morgunblaðið/RAX
Kjartan Jóhannsson formaður milliþinganefndarinnar og Indriði H. Þorláksson fulltrúi fjármálaráðu-
neytisins velta vöngum yfir nýju skattareglunum.
Tillögnr milliþinganefndar um staðgreiðslu skatta:
Barnabætur greiddar
út strax í janúar 1988
Heildarskattur verði 34,75% og per-
sónufrádráttur um 180 þúsund kr.
MILLIÞINGANEFND um staðgreiðslu skatta leggur til að barnabæt-
ur verði greiddar fyrirfram fyrir hvern ársfjórðung, þegar stað-
greiðslukerfið tekur gildi og geta skattgreiðendur því átt von á
ávísun þegar í janúar 1988. Það sama gildir um barnabótaauka.
Hinsvegar geta þeir, sem hingað tíl hafa verið með vaxtafrádrátt
vegna húsnæðiskaupa, og eiga áfram rétt á honum í staðgreiðslu,
ekki átt von á að fá hann reiknaðan fyrr en um mitt næsta ár sam-
kvæmt framtali fyrir árið í ár. Þeir sem kaupa í fyrsta skipti húsnæði
á þessu ári og framvegis fá síðan greiddar sérstakar húsnæðisbætur
árlega í sex ár. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem milliþinga-
nefndin hélt í gær.
Nefndin gerði í tillögum sínum
ráð fyrir að hlutur ríkisins væri
28,5% og að í útsvar færi 6,25%
af tekjum þannig að skattprósentan
væri samtals 38,75. Til að tekju-
skattbyrðin yrði sú sama og árið
1986, gerði nefndin ráð fyrir að
persónuafsláttur verði um 180 þús-
und krónur á ári eða um 15 þúsund
á mánuði. í dæmi sem nefndin set-
ur fram, er gert ráð fyrir 181.500
krónum í persónufrádrátt, bama-
bætur verði 25 þúsund fyrir 1 bam
og 22.500 fyrir hvert bam þar
umfram. Bamabætur fyrir böm 7
ára og eldri verði 30 þúsund, bætur
fyrir böm einstæðra foreldra verði
45 þúsund og bamabótaauki
35.870. Síðan er gert ráð fyrir sjó-
mannaafslætti sem verði 413
krónur á dag, og húsnæðisbótum,
sem verði 44 þúsund krónur. Miðað
við þetta dæmi verður álagning
tekjuskatts nettó 6,2 milljarðar
króna og útsvars 8,4 milljarðar.
Ef miðað er við þetta dæmi væru
skattleysismörk einhleypings
43.500 krónur á mánuði og ein-
stæðs foreldris 54.300 á mánuði.
Skattleysismörk bamlausra hjóna
þar sem bæði hafa tekjur yrðu 87
þúsund krónur og þar sem annað
hefur atvinnutekjur 78.300 kr.
Þessar tölur hækka síðan um 3500
krónur ef hjónin eiga 1 bam yfir 7
ára aldri og fara allt upp í 96 þús-
und krónur hjá hjónum með 2 böm
yfir 7 ára þar sem bæði hafa at-
vinnutekjur.
Nefnd þessi var skipuð í byijun
september til að endurmeta álagn-
ingarreglur þannig að skattbyrði
yrði sú sem áformað var þegar lög
um staðgreiðsluna vom sett, þe. sú
sama og 1986. Einnig átti nefndin
að fjalla um aðrar breytingar á lög-
unum sem til álita kæmi að gera.
Nefndinni var samkvæmt þessu
ætlað að endurmeta álagningar-
reglur þannig að skattbyrði af
tekjusköttum ríkisins yrðu 4,2%, en
sem hefði orðið 5,8% samkvæmt
lögunum eins og Alþingi gekk frá
þeim í vor. Þar sem tekjur í ár
hafa hækkað talsvert umfram áætl-
un er tekjuskattbyrðin í ár 3,4% í
raun.
NÍUTÍU ár eru liðin í dag
frá því haldinn var fundur um
stofnun blaðamannafélags á
Hótel ísland í Reykjavík. Fund-
urinn var haldinn 19. nóvember
1897 og var Jón Ólafsson rit-
stjóri Þjóðólfs frumkvöðull að
félagsstofnuninni og fyrsti
formaður félagsins. Aðrir
stofnfélagar voru Björn Jóns-
son útgefandi ísafoldar, Briet
Bjarnhéðinsdóttir útgefandi
Kvennablaðsins, Valdimar As-
mundarson ritstjóri Fjallkon-
unnar, Þorsteinn Gislason
útgefandi íslands, Jón Jakobs-
son úrgefandi Nýju aldarinnar
og Einar Hjörleifsson meðrit-
stjóri ísafoldar.
Blaðamannafélag íslands minnist
þessa afmælis með ýmsum hætti
um þessar mundir. Nýlokið er
sögusýningu í Listasafni Alþýðu
og nú er komin út sérstök hátí-
ðaútgáfa af Blaðamanninum,
félagsriti Blaðamannafélagsins.
í blaðinu, sem er 68 blaðsíður,
eru viðtöl við Þórarinn Þórarins-
son, Þorbjöm Guðmundsson og
Margréti Indirðadóttur sem hafa
félagsskírteini Blaðamannafé-
lagsins númer 1, 2 og 3. Stiklað
er á stóm í sögu Blaðamannafé-
lagsins, fjallað um breytingar á
útlitsteikningu blaða, fyrrverandi
Forsíða hátíðarútgáfu Blaða-
mannsins en forsíðumyndin er
teiknuð af Gísla J. Ástþórssyni.
blaðamenn í hópi alþingismanna
rita hugleiðingar og fréttamenn
segja frá óvæntum atvikum í
starfí. Einnig er fjallað um hug-
myndir um fjölmiðlasamband og
ýmislegt fleira er í blaðinu.
Ritstjóri þessa Blaðamanns var
Þröstur Haraldsson, en ritnefnd
skipuðu Lúðvík Geirsson, Sig-
mundur Emir Rúnarsson og
Gunnar E. Kvaran.
&TDK
Þannig viljum við hafa það
REYKJAVÍK
90 ár frá stofnun
Blaðamannafélagsins
Hátí ðarútgáf a af Blaðamanninum
í tilefni afmælisins
Hver ók
aftan á?
EKIÐ var aftan á bifreið á mót-
um Breiðholtsbrautar ojg Stekkj-
arbakka á þriðjudag. Ökumann-
inum brá svo við óhappið, að
hann ók á brott, án þess að hafa
tal af þeim sem ók aftan á. Sá
er vinsamlegast beðinn um að
hafa samband við lögreglu, eða
vitni, ef einhver eru.
Óhappið varð um kl. 17. Ford
Escort-bifreið var ekið vestur Breið-
holtsbraut (niður) og ætlaði
ökumaður að beygja til vinstri suð-
ur Stekkjarbakka. Þá var ekið aftan
á bifreið hans, en honum varð svo
mikið um að hann ók af vettvangi.
Slysarannsóknardeild lögreglunnar
biður þann, sem ók aftan á, um að
gefa sig fram, eða vitni á árekstrin-
um.