Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 33

Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987 33 M0BLER Morgunblaðið/RAX Kjartan Jóhannsson formaður milliþinganefndarinnar og Indriði H. Þorláksson fulltrúi fjármálaráðu- neytisins velta vöngum yfir nýju skattareglunum. Tillögnr milliþinganefndar um staðgreiðslu skatta: Barnabætur greiddar út strax í janúar 1988 Heildarskattur verði 34,75% og per- sónufrádráttur um 180 þúsund kr. MILLIÞINGANEFND um staðgreiðslu skatta leggur til að barnabæt- ur verði greiddar fyrirfram fyrir hvern ársfjórðung, þegar stað- greiðslukerfið tekur gildi og geta skattgreiðendur því átt von á ávísun þegar í janúar 1988. Það sama gildir um barnabótaauka. Hinsvegar geta þeir, sem hingað tíl hafa verið með vaxtafrádrátt vegna húsnæðiskaupa, og eiga áfram rétt á honum í staðgreiðslu, ekki átt von á að fá hann reiknaðan fyrr en um mitt næsta ár sam- kvæmt framtali fyrir árið í ár. Þeir sem kaupa í fyrsta skipti húsnæði á þessu ári og framvegis fá síðan greiddar sérstakar húsnæðisbætur árlega í sex ár. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem milliþinga- nefndin hélt í gær. Nefndin gerði í tillögum sínum ráð fyrir að hlutur ríkisins væri 28,5% og að í útsvar færi 6,25% af tekjum þannig að skattprósentan væri samtals 38,75. Til að tekju- skattbyrðin yrði sú sama og árið 1986, gerði nefndin ráð fyrir að persónuafsláttur verði um 180 þús- und krónur á ári eða um 15 þúsund á mánuði. í dæmi sem nefndin set- ur fram, er gert ráð fyrir 181.500 krónum í persónufrádrátt, bama- bætur verði 25 þúsund fyrir 1 bam og 22.500 fyrir hvert bam þar umfram. Bamabætur fyrir böm 7 ára og eldri verði 30 þúsund, bætur fyrir böm einstæðra foreldra verði 45 þúsund og bamabótaauki 35.870. Síðan er gert ráð fyrir sjó- mannaafslætti sem verði 413 krónur á dag, og húsnæðisbótum, sem verði 44 þúsund krónur. Miðað við þetta dæmi verður álagning tekjuskatts nettó 6,2 milljarðar króna og útsvars 8,4 milljarðar. Ef miðað er við þetta dæmi væru skattleysismörk einhleypings 43.500 krónur á mánuði og ein- stæðs foreldris 54.300 á mánuði. Skattleysismörk bamlausra hjóna þar sem bæði hafa tekjur yrðu 87 þúsund krónur og þar sem annað hefur atvinnutekjur 78.300 kr. Þessar tölur hækka síðan um 3500 krónur ef hjónin eiga 1 bam yfir 7 ára aldri og fara allt upp í 96 þús- und krónur hjá hjónum með 2 böm yfir 7 ára þar sem bæði hafa at- vinnutekjur. Nefnd þessi var skipuð í byijun september til að endurmeta álagn- ingarreglur þannig að skattbyrði yrði sú sem áformað var þegar lög um staðgreiðsluna vom sett, þe. sú sama og 1986. Einnig átti nefndin að fjalla um aðrar breytingar á lög- unum sem til álita kæmi að gera. Nefndinni var samkvæmt þessu ætlað að endurmeta álagningar- reglur þannig að skattbyrði af tekjusköttum ríkisins yrðu 4,2%, en sem hefði orðið 5,8% samkvæmt lögunum eins og Alþingi gekk frá þeim í vor. Þar sem tekjur í ár hafa hækkað talsvert umfram áætl- un er tekjuskattbyrðin í ár 3,4% í raun. NÍUTÍU ár eru liðin í dag frá því haldinn var fundur um stofnun blaðamannafélags á Hótel ísland í Reykjavík. Fund- urinn var haldinn 19. nóvember 1897 og var Jón Ólafsson rit- stjóri Þjóðólfs frumkvöðull að félagsstofnuninni og fyrsti formaður félagsins. Aðrir stofnfélagar voru Björn Jóns- son útgefandi ísafoldar, Briet Bjarnhéðinsdóttir útgefandi Kvennablaðsins, Valdimar As- mundarson ritstjóri Fjallkon- unnar, Þorsteinn Gislason útgefandi íslands, Jón Jakobs- son úrgefandi Nýju aldarinnar og Einar Hjörleifsson meðrit- stjóri ísafoldar. Blaðamannafélag íslands minnist þessa afmælis með ýmsum hætti um þessar mundir. Nýlokið er sögusýningu í Listasafni Alþýðu og nú er komin út sérstök hátí- ðaútgáfa af Blaðamanninum, félagsriti Blaðamannafélagsins. í blaðinu, sem er 68 blaðsíður, eru viðtöl við Þórarinn Þórarins- son, Þorbjöm Guðmundsson og Margréti Indirðadóttur sem hafa félagsskírteini Blaðamannafé- lagsins númer 1, 2 og 3. Stiklað er á stóm í sögu Blaðamannafé- lagsins, fjallað um breytingar á útlitsteikningu blaða, fyrrverandi Forsíða hátíðarútgáfu Blaða- mannsins en forsíðumyndin er teiknuð af Gísla J. Ástþórssyni. blaðamenn í hópi alþingismanna rita hugleiðingar og fréttamenn segja frá óvæntum atvikum í starfí. Einnig er fjallað um hug- myndir um fjölmiðlasamband og ýmislegt fleira er í blaðinu. Ritstjóri þessa Blaðamanns var Þröstur Haraldsson, en ritnefnd skipuðu Lúðvík Geirsson, Sig- mundur Emir Rúnarsson og Gunnar E. Kvaran. &TDK Þannig viljum við hafa það REYKJAVÍK 90 ár frá stofnun Blaðamannafélagsins Hátí ðarútgáf a af Blaðamanninum í tilefni afmælisins Hver ók aftan á? EKIÐ var aftan á bifreið á mót- um Breiðholtsbrautar ojg Stekkj- arbakka á þriðjudag. Ökumann- inum brá svo við óhappið, að hann ók á brott, án þess að hafa tal af þeim sem ók aftan á. Sá er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglu, eða vitni, ef einhver eru. Óhappið varð um kl. 17. Ford Escort-bifreið var ekið vestur Breið- holtsbraut (niður) og ætlaði ökumaður að beygja til vinstri suð- ur Stekkjarbakka. Þá var ekið aftan á bifreið hans, en honum varð svo mikið um að hann ók af vettvangi. Slysarannsóknardeild lögreglunnar biður þann, sem ók aftan á, um að gefa sig fram, eða vitni á árekstrin- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.