Morgunblaðið - 19.11.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
Verðlagsstofnun:
Eggjabændur falli frá sam-
þykkt um verðhækkun
FULLTRÚAR Verðlagsstofnun-
ar kröfðust þess á fundi með
talsmönnum eggjabænda i gær
að fallið yrði frá samþykkt
eggjaframleiðenda um verð-
hækktm á eggjum. Fulltrúar
eggjabænda voru boðaðir á fund-
inn vegna samráðs um verð, en
slíkt samráð er ólöglegt sam-
kvæmt verðlagslögum.
„Við sögðum þeim að þeir yrðu
að falla frá þessari samþykkt þar
sem hún stangast á við verðlags-
lög,“ sagði Gísli G. ísleifsson,
lögfræðingur Verðlagsstofnunar f
samtali við Morgunblaðið í gær,
sem sat fundinn fyrir hönd Verð-
lagsstofnunar ásamt Kristni Briem.
„Þeir munu því væntanlega koma
því til skila við sína félagsmenn að
þess sé krafist af Verðlagsstofnun
að þessi samþykkt verði felld niður.
Lögum samkvæmt fengu þeir frest
til að skila greinargerð og sá frest-
ur rennur út klukkan 11.00
næstkomandi mánudag," sagði
Gísli.
Eggjabændur samþykktu á sam-~
eiginlegum fundi sínum síðastliðinn
sunnudag að hækka heildsöluverð
á eggjum úr 55 krónum í 180 krón-
ur. Að sögn talsmanna þeirra voru
þeir nauðbeygðir til þessara að-
gerða þar sem eggjaverð hafí verið
komið alngt niður fyrir framleiðslu-
kostnaðarverð. Heildsöluverðið var
í síðustu viku komið niður í 55 krón-
ur á samá tíma og fóðurkostnaður
við hvert kfló af eggjum nam um
80 krónum og væri þá ekki tekið
tillit til fóðurskostnaðar við end-
umýjun stofnsins. Talsmenn eggja-
bænda sögðu að framreiknaður
verðlagsgrundvöllur eggjafram-
leiðslu væri 210 krónur, en menn
hefðu ekki treyst sér til að fara svo
hátt með verðið, að minnsta kosti
ekki fyrst um sinn.
Búist er við að eggjaframleiðend-
ur haldi fund um málið á næstu
dögum, en á þessu stigi er óljóst
hvert framnhaldið verður. Ef eggja-
bændur ákveða að taka ekki tillit
til tilmæla Verðlagsstofnunar um
að draga samþykktina til baka kem-
ur til greina að kæra málið til
rannsóknarlögreglu ríkisins, sam-
kvæmt upplýsingum Verðlagsstofn-
unar. Ennfremur kemur til greina
að setja eggjaframleiðslu undir
verðlagsákvæði og myndi málinu
þá verða vísað til sexmannanefnd-
arinnar, sem tæki þá ákvörðun um
verð á eggjum.
VEÐURHORFUR í DAG, 19.11.87
YFIRLIT é hádagi f g»r: Skammt suðvestur af Reykjanesi var 980
miltibara lægð ó hreyfingu aust-norð-austur. önnur álfka djúp lægð
við suöausturströndina á leiö norð-norðaustur. Hitl var vfða á billnu
0 til 5 stig.
SPÁ: f dag verður norð- og norðvestanátt, vfða stinningskaldi eða
alihvasst. Snjó- eða slydduél noröanlands, en þurrt og sums staö-
ar láttskýjað syðra. Hitl á blilnu 0 til 5 stig.
, VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FÖSTUDAGUR: Norðvestan-átt og smáól á annesjum Norðaustan-
lands f fyrstu, annars suðvestanótt á landlnu og fer að rigna vestan
til síðdegis, en léttlr til austanlands.
LAUGARDAGUR: Vestlæg étt með skúrum vfða um land. Hiti 2—B
stig bóða dagana.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind-
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
Léttskýjað / / / / / / / Rlgnlng
Hálfskýjað / / / * / *
Skýjað / * / * Slydda / * /
Alskýjað # # # * * * # Snjókoma # * #
10 Hrtastig:
10 'gráður á Celsíus
Skúrir
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
j-^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hhl vaftur
Akureyri 1 •kýjaft
Reykjavfk 6
Bergan 6 •kýjað
Heltlnki 2 rignlng
JanMayen 2 •lakýjað
Kaupmannah. e háHakýjftð
Narsaaraauaq léttakýjað
Nuuk +7 alakýjað
Oaló 3 ikýjað
Stokkhélmur 3 •Iskýjað
Þórahöfn 10 rignlng
Algarva 18 hetðakfrt
Amatardam 13 •kýjað
Aþana 30 léttakýjað
Barcelona 18 •kýjað
Barifn 8 aúld
Chicago 3 rignlng og aúld
Feneyjar 10 þokumófta
Frankfurt 11 akýjaft
Qtaagow 13 rigning
Hamborg 10 rigning
LaaPalmai 23 halðakfrt
London 12 •kýjaft
LoaAngelaa 13 mlatur
Lúxamborg 8 »kýl*ð
Madrfd 18 Mttakýjaft
Malaga 18 •kýjað
Mallorca 18 Mttakýjaft
Montreal 12 •kýjað
NewYork 17 •kýjað
Paria Róm 13 17 hoíðtklrt
Vfn 8 •kúr
Waahlngton 14 mlatur
Winnlpag *T Mttakýjað
Valaricla vantar
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Guðmundur Sigurbergsson bóndi í Götu í Selvogi stendur við rústirn-
ar.
Fjós og hlaða brunnu að
bænum Götu í Selvogi
bnrl&lrahXfn
ÞRÍR nautgripir og 180 baggar
af grænu og fallegu vélbundnu
heyi brunnu í fyrrinótt í eldsvoða
sem varð að Götu í Selvogi. Fjós-
ið og Utíl hlaða brunnu til kaldra
kola og að sögn lögreglu eru
eldsupptök ókunn ennþá, en mál-
ið er i rannsókn.
Það var um þijúleytið í fyrrinótt
að bóndinn í Götu í Selvogi, Guð-
mundur Sigurbergsson, vaknaði og
var þá að eigin sögn eitthvað órótt
og gekk því fram í eldhús. Sá hann
þá mikinn bjarma frá Qósinu. Við
nánari athugun kom f ljós að þakið
var farið að hrynja. Guðmundur
vakti þá son sinn og hringdi í lög-
regluna sem síðan hringdi í slökkvi-
liðið í Þorlákshöfn. Þegar út var
komið sá Guðmundur að skepnun-
um yrði ekki bjargað en vörubfl og
fleira dóti sem nálægt var tókst
þeim feðgum að bjarga.
Þegar slökkviliðið í Þorlákshöfn
kom á vettvang um fjögurleytið,
en að Götu er um 30 mínútna akst-
ur, voru húsin að mestu fallin. Að
sögn Sigurðar Ólafssonar slökkvi-
liðsstjóra var austanátt svo að
nærliggjandi hús voru ekki í hættu.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
og dugði vatnið á bflnum sem betur
fer því langt var í vatn. Útihús
þessi voru tryggð en ólíklegt er að
trygging nái að bæta tjónið.
Guðmundur í Götu, sem er einn
af fjórum búandi í Selvogi, er með
um 170 ær og ræktar mikið af
kartöflum. Hann sækir einnig vinnu
til Þorlákshafnar því enginn lifír
af svona búskap, eins og hann
sagði. _ JHS
Is-skott tekið til
gjaldþrotaskipta
FYRIRTÆKIÐ ís-skott hefur
verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Birtist mnköllun til lánardrotta
i Lögbirtingablaðinu í siðustu
viku og er kröfulýsingarfrestur-
inn tveir mánuðir að vanda, en
fyrsti skiptafundur f þrotabúinu
er boðaður 8. febrúar á næsta
ári.
Fyrirtækið var stofnað síðastliðið
haust, af fyrirtækinu Icescot, sem
skoskir aðilar og Islendingurinn
Eðvarð Benediktsson áttu f samein-
ingu. í nýja fyrirtækinu ís-skott
átti Eðvarð 26% og var stjómar-
formaður, Icescot átti 49% og
framkvæmdastjórinn, Kristinn
Guðmundsson, átti einnig 25%. Fyr-
irtækið keypti físk hér á landi og
sendi til Hull og Grimsby. Á vertíð-
inni síðastliðinn vetur bauð ís-skott
allt að 37 krónum fyrir kflóið af
óslaégðum netaþorski, en varð fyrir
talsverðum skakkaföllum svo halla
tók undan fæti. Vegna skulda fyrir-
tækisins við ýmsa útgerðarmenn
og skipstjóra hættu margir að selja
fyrirtækinu físk.
ísskott gat ekki staðið við samn-
inga um að senda allt að 200
tonnum af físki í hverri ferð með
skipinu ísafold, en Icescot átti 20%
í útgerðarfyrirtæki þess, Kæliskipi
hf. Skotamir ókyrrðust því, enda
munu þeir hafa sent hingað til lands
um 24 milljónir króna vegna kostn-
aðar við skipið og fískkaup. Þann
6. maí mættu meðeigendur Eðvarðs
Benediktssonar á skrifstofu hans
ásamt tveimur lögfræðingum og
var honum eftir það meinaður að-
gangur að bókhaldsgögnum fyrir-
tækisins.
Sigurmar K. Albertsson hrl. er
bússtjóri þrotabús ís-skott. Hann
sagði enn of snemmt að segja til
um hversu umfangsmikið gjaldþrot
fyrirtækisins væri, því enn hefðu
borist fáar kröfur f búið. Hann
kvaðst þó ekki reikna með að ein-
staklingar töpuðu miklu vegna
gjaldþrotsins, en líklega yrðu Skot-
ar verst úti og ef til vill einhveijir
aðilar, sem ís-skott hefði flutt út
físk fyrir. Sigurmar ítrekaði þó að
of snemmt væri að fullyrða nokkuð
um gjaldþrotið.
Þess má geta, að kærur hafa
gengið á víxl milli stjómarform-
annsins, Eðvarðs Benediktssonar,
og framkvæmdastjórans, Kristins
Guðmundssonar, vegna meintra
auðgunarbrota þeirra.
Manndrápið 1 Innri-Njarðvík:
Málið sent til
ríkissaksóknara
stakk hinn með hníf. Þegar lögregl-
an kom á staðinn var maðurinn
látinn. Einar Siguijónsson játaði að
hafa orðið honum að bana og hefur
hann setið í gæsluvarðhaldi síðan.
Þá var honum einnig gert að sæta
geðrannsókn.
Rannsóknarlögregla rfkisins hef-
ur nú sent málið til ríkissaksóknara,
sem tekur ákvörðun um málshöfð-
un.
MÁL 23 ára manns, Einars Sigur-
jónssonar, sem játaði að hafa
orðið félaga sínum að bana i
verbúð í Innri-Njarðvík þann 29.
ágúst sl. hefur verið sent til rfkis-
saksóknara.
Átök urðu milli mannanna
tveggja í verbúð fískvinnslunnar
Bryi\jólfs í Innri-Njarðvík, og end-
uðu þau með því að annar þeirra