Morgunblaðið - 19.11.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
ál
tekið að sér sem verktaki að leggja
sjónvarpsdreifikerfi fyrir loftnets-
félög í samkeppni við einkafyrir-
tæki. Loftnetskerfi, þar sem
erlendum sjónvarpssendingum,
m.a. ft-á gervitunglum, er dreift til
notenda, hafa verið heimiluð um
langt skeið í Svíþjóð. Þar hefur aldr-
ei verið litið á slíka starfsemi sem
útvarpsrekstur.
Gervjtunglasj ónvarp
Mikill fijöldi erlendra sjónvarps-
rása, sem sendar eru um gervitungl,
er nú aðgengilegur fyrir Islendinga.
Til dæmis er nú þegar hægt að
dreifa norrænum sjónvarpsrásum
til notenda á íslandi. Ekki þarf að
fjölyrða um aukið norrænt samstarf
og betri tengsl okkar við hið nor-
ræna menningarsvæði, sem hlytist
af því að opna fyrir þennan mögu-
leika. Fyrir nokkrum árum var
mikið rætt um samnorrænan gervi-
hnött, NORDSAT-hnöttinn, sem
var ætlað að dreifa norrænu sjón-
varpsrásunum um öll Norðurlöndin.
Það má segja, að þessu marki sé
nú þegar náð þótt það sé með öðr-
um hætti. Nú er spurt. Var það
aldrei ætlunin að leyfa íslendingum
að horfa á hinar norrænu sjónvarps-
dagskrár frá NORDSAT-hnettin-
um?
Samkvæmt útvarpslögunum frá
1985 er einstaklingum heimilt að
setja upp búnað til móttöku á sjón-
varpsefni frá gervitunglum svo og
stofnunum og allt að 36 íbúðum
samtímis. Þessi búnaður er mjög
dýr og aðeins á færi efnamanna.
Til þess að setja upp móttökubúnað
fyrir 36 íbúðir samtímis, þarf dýran
og flókin aukabúnað, þannig að
kostnaður verður lítið lægri á hveija
íbúð en fyrir einstakling.
Miklu hagkvæmara væri að sjálf-
sögðu að leysa þetta verkefni með
sameiginlegu loftnetskerfí. Sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu svo
og fjölmörg sveitarfélög úti á landi
hafa sýnt áhuga á því að koma upp
slíkum kerfum, sem yrðu þá undan-
fari breiðbandskerfísins. Um leið
myndi hægt að stórbæta móttöku-
skilyrði fyrir innlendar sjónvarps-
sendingar. í rauninni er auðvelt að
tengja staðbundin strengkerfi við
ljósleiðarakerfí Pósts- og símamála-
stofnunarinnar og hafa eina sjón-
varpsmóttökustöð á vegum
stofnunarinnar fyrir allt landið. Með
þessu yrði kostnaður á hveija íbúð
og þar með þjóðfélagsins í heild
miklu lægra en ella. Þá óttast menn
þá sjónmengun, sem óneitanlega
yrði, ef stór sjónvarpsdiskur kæmi
við hvert hús. Þótt gerð sjón-
varpsmóttökuloftneta fleygi ort
fram er ekki líklegt, vegna legu
landsins, að þau verði minni og
ódýrari í framtíðinni. Hins vegar
er ljóst, að verði áfram þráast við
að leyfa lagningu strengkerfa til
dreifíngar á erlendu sjónvarpsefni
mun almenningur kaupa þessi mót-
tökuloftnet þótt dýr séu.
Um þýðingarskylduna
Ég tek undir með þeim, sem
hafa miklar áhyggjur af íslenzkri
tungu og þeim áhrifum, sem hún
verður fyrir, einkum vegna ensk-
unnar. Ég er þó viss um, að textun
á ódýru bandarísku afþreyingar-
sjónvarpsefni hjálpar lítið. Það
verður að ráða bót á meinsemd-
inni, þar sem skórinn kreppir að, í
skólakerfmu. Mér virðist, að
íslenzkukunnáttu skólafólks hafi
hrakað verulega og merki það á
þeim fjölmörgu nemendum, sem ég
hef haft afskipti af í háskólanámi
undanfarin ár. Einhver slappleiki
virðist hafa gripið um sig í skóla-
kerfinu og ekki er lengur við hafður
sá agi, sem er nauðsynlegur til
þess að nemendur tileinki sér og
læri góða íslenzku.
Textun á erlendu sjónvarpsefni
er eðlileg, þegar um er að ræða
dagskrárgerð á vegum útvarps-
stöðvar. Einfaldlega vegna þess, að
þorri almennings vill fá íslenzkt
sjónvarp og textað efni. Þess vegna
er nóg, að í útvarpslögunum sé
ákvæði þess efnis, að erlent sjón-
varpsefni skuli textað eða þýtt eftir
því sem hægt er. Hins vegar er
fráleitt að meina almenningi að
horfa á þýzkar eða danskar sjón-
varpsfréttir öðru hveiju eða reyna
að fylgjast með óþýddum útsend-
ingum ítalska, franska og spænska
sjónvaipsins ef einhver hefur áhuga
á því. Islenzkri tungu er ekki búin
hætta af þeim áhrifum. Það eru
textaðar amerískar og enskar af-
þreyingarmyndir, sem eru hættu-
legar íslenzkunni ef sjónvarpsefni
er hættulegt á annað borð.
Þegar útvarpssendingar hófust
fyrir tæplega 60 árum datt engum
í hug, að það gæti verið varhuga-
vert að leyfa mönnum að hlusta
einstöku sinnum á erlendar útvarps-
stöðvar. Ýmsir hafa gaman af því
að ná útsendingum BBC og margra
annarra evrópskra útvarpsstöðva.
Þorri fólks hlustar þó eingöngu á
(slenzkar útvarpsstöðvar og sama
myndi eflaust gilda þótt móttaka á
erlendum sjónvarpsdagskrám yrði
leyfð. Forráðamenn Stöðvar 2 og
íslenzka ríkissjónvarpsins þurfa
ekki að hafa miklar áhyggjur vegna
þessa.
Að lokum er spurt. Ef prentlistin
væri að koma til sögunnar nú,
myndi höfundur Reykjavíkurbréfs
vilja leggja það til, að innflutningur
á erlendum bókum og tímaritum
yrði bannaður?
Höfundur er einn af aiþingis-
mönnum Borgaraflokksins.
BUBBI - DÖGUN
í fyrra útnefndu gagnrýnendur „Frelsi til sölu“
með Bubba Morthens bestu íslensku plötu allra
tíma. Almenningur var á sama máli. Nú er meistar-
inn Bubbi kominn með nýja plötu „Dögun“.
„Dögun“ skartar Ijúfri blöndu af þjóðlagapoppi og
kraftmiklu rokki. Lögin eru grípandi, hnitmiðuð og
fjölbreytt. Söngur Bubba er blæbrigðaríkur og hik-
laust má fullyrða að söngur hans hefur aldrei
verið betri. Upptökustjórn á Dögun var í höndum
Tómasar Tómassonar, en auk hans koma fram á
plötunni Þorsteinn Magnússon, Ásgeir Óskars-
son, Kristján Edelstein og Ásgeir Jónsson.
„Dögun“ er væntanleg á geisladisk innan skamms.
„Þetta erskotheldskífa,
hvort sem litið erá lag-
asmíðar, útsetningar eða
annað. Dögnun„sándar"
afburðavel
ÞJV-DV
„Dögun erbestplata
Bubba hingað til, texta-
lega og tónlistarlega, og
rís háttyfirmestalltþað
sem verið eraðgefa útá
isfandiídag“
AMMbl.
Fríshlcg
0« HNYTTIN*
MEGAS-LOFTMYND
Þá er Megas mættur á svæðið með sína
frískustu og fjölbreytilegustu plötu til
þessa, Loftmynd.
Textar Megasar á þessari plötu bregða upp
skemmtilegum myndum af mannlífinu i
Reykjavik fyrr og síðar og i tónlistinni er viða
komið við. Á Loftmynd má heyra blús, rokk,
kántri, fönk og fleira.
Einvalaliö er Megasi til aöstoðar og má þar
nefna Guðlaug Óttarsson, Sykurmolana Björk
Guðmundsdótturog Sigtrygg Baldursson, Har-
ald Þorsteinsson, Þorstein Magnússon, Eyþór
Gunnarsson og Karl Sighvatsson.
Hljóðfæravalið hjá Megasi segir sina sögu um
sérstöðu hans sem tónlistarmanns. Jafnhliða
hefðbundunum rokkhljóðfærum bregður hann
upp nýstárlegum stemningum með harmóniku,
munnhörpu, óbói, Hammondorgeli, kontra-
bassa o.s.frv. Á þann hátt undirstrikar Megas
sterka stöðu Loftmyndar sem hressilegustu,
hnyttnustu og bestu Reykjavíkgrplötu sem gerð
hefur verið til þessa.
Væntanleg á geisladiski innan skamms.
☆ ☆☆☆☆DómurGS-HP
IMITHSt
^KANGEWAYS, HERC WE COML|
í
\ KNN
O R D E R
SI B STANC K
19 87
THE SMITHS • STRANGE-
WAYSHERE WE COME
Smiths enda ferilinn jafn-
glæsilega og þeir hófu hann.
Fyrsta breiðskífa þeirra þyk-
ir með bestu frumburðum
rokksögunnar og önnur eins
grafskrift og STRANGE-
WAYS er vandfundin.
NEW ORDER - SUBSTANCE
Tvöfalt albúm með sögu
New Order frá upphafi til
dagsins í dag. Inniheldur
m.a. Blue Monday, The
Perfect Kiss, True Faith.
Mörg laganna hafa aöeins
komið út á 12". Sannkall-
aðurgæðagripur.
D0NDIX0N
-ROMEOATJULIEARD
Ný piata frá manninum að
baki velgengni REM og
The Smithereens. Ljúft
popp í anda Elvis Costello.
ÍSLENSKARPLÖTUR
Bubbi - Frelsi til sölu
Bubbi - Blús fyrir Rikka
Bubbi-Kona
Bjarni Tryggva - önnur veröld
Gaui - Gaui
Grafík - Leyndarmál
Gildran - Huldumenn
HöröurTorfason - Hugflæöi
Hremming Smartans
Megas-fgóðri trú
Rikshaw - Rikshaw
Sykurmolar - Birthday
Sykurmolar - Cold Sweat
S.H. Draumur - Drap mann
með skóflu 7“
Cramps - Live
Creedens Clearwater R.
- Cronicles 1 og 2. CD.
Textones - Cedar Creek
The Dead Milkman
-Bucky Fellini
Mojo Nixon - Bo-Day-Shus
Head - Snog on the Rocks
The Bambi Slam-ls
Clannad - Sirius
L. Cole and the Commotions
- Mainstream
Cabaret Voltaire - Coda
The Cure - Kiss Me...
Cock Robin - After here...
Bryan Ferry - Béte Noire
Decon Blue - Raintown
T.T. D'Arby -The Hardline
Van Morrisson - Poetic
Champions Compose
Pretenders - The Singles
Swans - Children of God
Skin - Blood, Woman, Roses
D. Sylvian - Secrets of The
Beehive
B. Springsteen
- Tunnel of Love
Sonic Youth - Sister
Schoolly D - Saturday Night
REM - Documents
The Young Gods-T. Y. G.
Tom Waits
- Franks Wild Years
„ GÆÐA TÓNLIST Á
GÓÐUMSTAÐ"
Steve Winwood - Best of
M. Jagger - Primitive Cool
PIL-Happy
Miracle Legion - Surprise
The Jesus & Mary Chain -
Darklands
Pink Floyd - A Momentary...
Pet Shop Boys - Actually
Michael Jackson - Bad
ANNAÐ
Cure - Flestar
Cabaret Voltaire - 5 titlar
Elvis Costello - Flestar
Dire Straits - Allar
Police-Allar
Smiths - Allar
U 2 - Allar
Yello - Flestar
Talking Heads - Flestar
Eigum jafnframt fyrirliggjandi
fjölbreytt úrval af Blues,
Rock'n’mle. Soul, Jazz, tón-
listarbókum, o.fl., o.fl.
SENDUM ÍPÓSTKRÖFU
SAMDÆGURS.
Laugaveg 17. Sími: 12040