Morgunblaðið - 19.11.1987, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
móna
m m m . . . það er mátið!
Hvernig væri að heimsækja ættingja og vini
erlendis um hátíðina, kynnast jólahaldi annarra þjóða
og sleppa þessu hefðbundna jólaamstri heima
- svona einu sinni?
Flugleiðir bjóða sérstök
jólafargjöld til eftírtalinna staða:
Kaupmannahafnar
Gautaborgar
Óslóar
Stokkhólms
Glasgow
Lundúna
kr. 18.790 (jólapex)
kr. 18.630 (jólapex)
kr. 18.490 (jólapex)
kr. 21.440 (jólapex)
kr. 14.040 (jólapex)
kr. 16.150 (jólapex)
Ennfremur:
Luxemborgar
New York
Boston
Chicago
Baltimore
Orlando
kr.l 7.090 (pex)
kr. 23.740 (super-apex)
kr. 23.740 (super-apex)
kr. 26.770 (super-apex)
kr. 25.140 (super-apex)
kr. 30.750 (super-apex)
Jólapex gildir frá 1. til 31. desember 1987
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni; umboðsmenn
um land allt og ferðaskrifstofurnar.
Upplýsingasími: 25 100.
FLUGLEIDIR
-fyrir þíg-
<
<5
íslensk tunga
og bjórinn
eftirHalldór
*
Arnason
Höfundur síðasta Reykjavíkur-
bréfs Morgunblaðsins fjallar um, á
athyglisverðan hátt, frumvarp um
breytingar á útvarpslögum, sem
lagt var fram á Alþingi í síðustu
viku og greinir frá umræðum þing-
manna um frumvarpið. Frumvarpið
felur m.a. í sér heimild til að taka
á móti og dreifa um land allt er-
lendu sjónvarpsefni án þess að
íslenskur texti fylgi með. Alþingis-
mennimir Júlíus Sólnes og
Guðmundur Ágústsson eru flutn-
ingsmenn frumvarpsins.
Sem áhugamanni um íslenska
tungu og íslenska menningu finnst
mér rökin með og á móti frum-
varpinu, sem greint var frá í
Reykjavíkurbréfínu, vera svo til hin
sömu og fram hafa komið í umræð-
um um annað frumvarp, sem liggur
fyrir Alþingi og felur í sér heimild
til að framleiða og dreifa áfengu
öli. Vil ég hér gefa nokkur dæmi
þessu til stuðnings:
í greinargerð með frumvarpinu,
sem þeir Júlíus Sólnes og Guðmund-
ur Agústsson flytja, er sagt að
núverandi ástand hafí „komið í veg
fyrir eðlilega framþróun á sviði
upplýsingatækni á íslandi, sem hins
vegar er komin á hraðferð í öllum
nágrannalöndum okkar". Fylgis-
menn bjórsins núa gjaman þeim
sem eru á öndverðri skoðun því um
nasir að standa í vegi fyrir eðlilegri
framþróun menningarlífsins.
Af lestri greinargerðarinnar má
skilja hið sama og Guðmundur H.
Garðarsson sagði í umræðum um
málið að frumvarpið feli í sér „sjálf-
sagt frelsi manna til þess að nýta
þá möguleika sem framtíðin býður
upp á á sviðum fjarskipta í sam-
bandi við sjónvarpsefni". Það er
höfuðröksemd fylgismanna bjórsins
að spumingin um hvort leyfa eigi
framleiðslu og dreifíngu á bjór snú-
ist fyrst og fremst um frelsi manna
til að neyta hverskyns áfengis án
tillits til þeirra hörmunga sem aðrir
þurfa að þola neyslunnar vegna.
Þingmennimir Halldór Blöndal
og Danfríður Skarphéðinsdóttir
mæltu gegn frumvarpinu. Á sama
tíma og tunga okkar væri á undan-
haldi væri nær að snúa vöm í sókn
en að samþykkja þetta frumvarp,
enda væri það ásetningur stjóm-
valda og ýmissa annarra að efla
íslenska tungu og þá væri sóknin
besta vömin. Hér gildir nákvæm-
lega hið sama fyrir stjómvöld ef
þau ætla að ná yfírlýstum ásetningi
sínum að draga úr neyslu vímuefna
og stuðla að auknu heilbrigði lands-
manna.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
sagði m.a. í þessum umræðum: „Nú
er svo komið að kennarar margra
ungra bama verða varir við að böm-
in nota erlend orð og hugtök í
stóram stfl án þess að gera sér
grein fyrir að þau séu ekki að tala
íslensku." Sömu rökin hafa verið
notuð gegn bjómum, þ.e. að bjór
sé drakkinn án þess að neytandinn
geri sér alltaf raunveralega grein
fyrir að hann sé að neyta áfengis
á sama hátt og þegar sterkra
drykkja er neytt.
Höfundur Reykjavíkurbréfs segir
m.a.: „Um leið og hin nýja fjar-
. skiptatækni færir okkar nær
umheiminum og á þannig þátt í að
ijúfa aldagamla einangran eyþjóðar
í Norðurhöfum kallar hún yfír okk-
ur flóðöldu erlendra menningar-
áhrifa." Bent hefur verið á að í
mjög mörgum tilvikum sem bjór er
drakkinn erlendis er hér á landi
notast við óáfenga diykki. Því séu
ekki einungis sterkar líkur á að
heildameysla á áfengi stóraukist,
heldur muni óæskileg erlend menn-
ingaráhrif ryðja sér rúm hérlendis.
Halldór Árnason
„Sé íslenskri tungn
hætta búin vegna flæðis
á erlendu sjónvarpsefni
í gegnum gervihnetti,
þá má með sömu rökum
ætla að íslenskri menn-
ingu stafi hætta af því
bjórflæði, sem líkur
benda til að verði, ef
sú rýmkun á áfengis-
lögum sem bjórfrum-
varpið leggur til nær
fram að ganga.“
Höfundur Reykjavíkurbréfs held-
ur áfram: „Suðurríkjamenn töluðu
með sínu lagi. Sumum þótti það
fallegasta enskan sem töluð væri
vestan hafs. Nú era þessi einkenni
í máli suðurríkjamanna að hverfa
og ástæðan er sögð sú, að sjón-
varpið hafí þessi áhrif." Og „það
er óneitanlega lærdómsríkt að fylgj-
ast með því hversu vel Evrópuþjóð-
um á borð við Þjóðveija, Frakka
og ítali gengur að halda þjóðlegum
einkennum þrátt fyrir flóðöldu eng-
ilsaxneskra áhrifa. Ástæðan er m.a.
sú, að þessar þjóðir hafa um langan
aldur lagt áherslu á að setja tal inn
á allar kvikmyndir og mikið af sjón-
varpsefni." Ándstæðingar bjórsins
hafa einnig bent á reynslu annarra
þjóða og telja ástæðu til að gaum-
gæfa hana.
í ályktunum sem höfundur
Reykjavíkurbréfs dregur segir m.a.:
„Það má vel vera, að við stöndum
einhvem tíma í framtíðinni ráðþrota
frammi fyrir þessari holskeflu er-
lendra menningaráhrifa í gegnum
alþjóðlega fjölmiðlun, en meðan við
höfum einhver tök á, eigum við að
takmarka aðgang þeirra að landinu
svo sem kostur er.“ Þetta er hinn
sami kjami og kemur fram í vamað-
arorðum þeirra manna sem hvað
best ættu að þekkja til áfengismála.
Sé íslenskri tungu hætta búin
vegna flæðis á erlendu sjónvarps-
efni í gegnum gervihnetti, þá má
með sömu rökum ætla að íslenskri
menningu stafí hætta af því bjór-
flæði, sem lfkur benda til að verði,
ef sú rýmkun á áfengislögum sem
bjórframvarpið leggur til nær fram
að ganga.
Þeir þingmenn sem hyggjast
greiða atkvæði gegn framkomnu
framvarpi um breytingar á útvarps-
lögunum, berandi hag íslenskrar
tungu og menningar fyrir bijósti,
ættu að vera sjálfum sér samkvæm-
ir og greiða atkvæði gegn fram-
komnu framvarpi um breytingar á
áfengislögum.
Höfundur er forstöðumaður fjár-
málasviðs Námsgagnastofnunar.