Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
Norður-Irland:
Kaþólska kirkj-
an fordæmir IRA
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
KLERKAR og biskupar á Norð-
ur-írlandi og í írska lýðveldinu
lásu á sunnudag yf irlýsingu bisk-
upa kirkjunnar, þar sem ofbeld-
isverk IRA eru fordœmd og sagt,
að stuðningur við samtökin sé
syndsamlegur. Atburðirnir í
Enniskillen hafa þrýst á, að írska
stjómin staðfesti samkomulag
um framsal hryðjuverkamanna.
Um helgina var Ken Livingston,
þingmaður Verkamannaflokks-
ins, sakaður um að vera „blóðug-
ur um hendurnar" vegna tengsla
sinna við Sinn Fein, stjómmála-
arm IRA.
Yfirlýsing biskupanna var lesin
yfir um það bil þremur og hálfri
milljón kaþólikka í messum á
sunnudaginn. í henni segir, að ekki
sé hægt að tvístíga lengur í þessum
efnum. „í ljósi ofbeldisöldu IRA eru
kostir kaþólskra skýrir, það er val
á milli góðs og ills.“ I yfirlýsing-
unni eru kaþólskir minntir á, að það
sé syndsamlegt að styðja eða vera
í samtökum, sem vinna ofbeldis-
verk.
Þetta er afdráttarlausasta yfir-
lýsing kaþólsku kirkjunnar á írlandi
um þetta efni, en mótmælendum
hefur löngum þótt hún leggja bless-
un sína yfir hryðrjuverk IRA. Þegar
yfirlýsing biskupanna var lesin í
kirkjum í hinum kaþólska hluta
Belfast, gekk hluti safnaðanna út.
IRA hefur áður haft tilmæli kirkj-
unnar að engu og neitaði að hlýða
á bón Jóhannesar Páls páfa árið
1979, þegar hann var á ferð um
írland, um að ofbeldinu lyki á Norð-
ur-írlandi.
Búist var við, að Charles Haug-
hey, forsætisráðherra írlands,
tilkynnti Tom King, Norður-
írlandsmálaráðherra bresku stjóm-
arinnar, á fundi í Dublin í gær, að
samningur landanna um framsal
hryðjuverkamanna yrði staðfestur
1. desember næstkomandi, en nokk-
urt hik hefur verið á stjómvöldum
við að framkvæma þennan hluta
Hillsborough-samkomulagsins, sem
varð tveggja ára núna um helgina.
Haughey er þeirrar skoðunar, að
morðin í Enniskillen, ránið á tann-
lækninum OÓrady á írlandi og taka
bátsins Eksund hafi valdið Viðhorfs-
breytingu til hryðjuverka á írlandi.
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, fór til Dublin og
Norður-írlands um helgina til að
kynna sjónarmið sín og ræða við
öryggismálayfírvöld. Hann for-
dæmdi ofbeldisverk IRA. Á fundi
vinstrihóps innan Verkamanna-
fiokksins um helgina var Ken
Livingston, þingmaður flokksins,
sakaður um of náin tengsl við Sinn
Fein. Livingston hefur bæði heim-
sótt Belfast í fylgd stuðningsmanna
IRA og heimilaði Sinn Fein að halda
fundi í húsnæði Verkamannaflokks-
ins í London, þegar Livingston var
borgarstjóri þar. Á fundinum var
verið að ræða tillögu um, að Bretar
drægju hersveitir sínar til baka frá
Norður-írlandi. Livingston lýsti því
yfir, að hann væri andvígur of-
beldinu á Norður-írlandi, en var
hrópaður niður. Þingmaðurinn
hvarf þá af fundinum. Tillagan var
felid.
Reuter
Kona heldur á lofti spjaldi á kosningafundi Ættjarðarflokksins,
þar sem Turgut Ozal er hvattur tíl að huga að ástandi í ríkisverk-
smiðjum.
Fylgi for-
sætisráðherr-
ans eykst
Ankara, Reuter.
SAMKVÆMT skoðanakönnun,
sem birt var á miðvikudag i Tyrkl-
andi, mun forsætisráðherra
Tyrklands, Turgut Ozal, og flokk-
ur hans ná meirihluta á þingi eftir
kosningamar, sem fram fara í
landinu 29. nóvember næstkom-
andi.
Skoðanakönnunin, sem gerð var
af tyrkneska Dagblaðinu, sýndi að
Ættjarðarflokkur Turguts Ozal hafði
aukið fylgi sitt frá síðustu skoðana-
könnunum úr 37,5% í 40,8%, sem
þýðir að flokkurinn mun hljóta 250
þingsæti af 450. Aðrir hægrisinnaðir
flokkar tapa fylgi samkvæmt skoð-
anakönnuninni, en sósíaldemókratar
auka fylgi sitt samkvæmt þessari
nýjustu skoðanakönnun úr 17% í
17,9%. Fyigi annarra stjómmála-
flokka er undir þeim 10%, sem
flokkamir þurfa til að hljóta sæti á
þingi.
Sovétríkin:
Sakar andstæðinga
Yeltsins um hugleysi
Moskvu, Reuter.
KUNNUR stuðningsmaður Mik-
hails Gorbachev, leiðtoga Sov-
étríkjanna, og stefnu hans í
Joaquim Chissano, forsetí Mozambique (tíl hægri), tekur á mótí Helmuth Kohl, kanslara Vestur-
Þýskalands.
Kohl kanslari heim-
sækir Mozambique
Maputo, Mozambique, Reuter.
HELMUTH Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands, kom til
Maputo, höfuðborgar Moz-
ambique, á þriðjudag. Kanslar-
inn er á ferðalagi i Afriku þar
sem hann heimsækir þrjú ríki.
Kohl kom til Maputo frá Ka-
merún, þar sem hann hafði verið'
í þriggja daga opinberri heimsókn.
Hann er fyrsti vestræni leiðtoginn
sem heimsækir Mozambique frá
því landið hlaut sjálfstæði árið
1975. Mozambique var áður port-
úgölsk nýlenda.
Landið hefur verið undir stjóm
marxista frá 1975 og hefur verið
lokað Vesturlöndum þar til nú,
að stjómvöld óska eftir efnahags-
aðstoð Vesturlanda. Þurrkar og
borgarastyijaldir hafa hijáð
landsmenn og er landið afar illa
statt efiiahagslega.
Kanslarinn ræddi við forseta
Mozambique, Joaquim Chissano,
sem tók við eftir að fyrirrennari
hans, Samora Machel, fórst í flug-
slysi fyrir ári. Tilkynnti Kohl að
Vestur-Þýskaland myndi veita
Mozambique aðstoð og væm
4.000 tonn af hrísi væntanleg til
landsins innan tfðar. Kanslarinn
sagðist vöna að heimsókn hans
til Mozambique yki líkur á friði í
Afríku. Kohl kanslari hélt áleiðis
til Kenya í gær.
efnahagsmálum sagði í gær, að
rétt hefði verið að láta Boris
Yeltsin fara frá en gagnrýndi
hins vegar andstæðinga hans
fyrir hræsni og hugleysi.
Hagfræðingurinn Gavril Popov
sagði í vikuritinu Moskvutíðindum,
að Yeltsin hefði ekki skilið, að ein-
ing yrði að ríkja í kommúnista-
flokknum til að hann gæti tekist á
við þau erfiðu verkefni, sem bíða
hans. „Að öðmm kosti hefði hann
ekki notað „sérstaka stöðu" sína til
að setja sig upp á móti miðstjóm-
inni,“ sagði Popov.
Á miðstjómarfundinum sakaði
Yeltsin ýmsa frammámenn í flokkn-
um um að standa í vegi fyrir
umbótum en þessi gagnrýni hans
varð til þess, að hann var rekinn
úr embætti sem formaður flokksins
í Moskvu.
Popov sagði, að með skoðanaá-
greining ætti ekki að fara eins og
dómsmál þar sem hinn ákærði verð-
ur fyrir árásum þeirra, sem daginn
áður höfðu „hjálpað" honum við
mistökin. Sagði hann einnig, að
íhaldssamir andstæðingar umbóta-
stefnunnar reyndu að notfæra sér
alla erfíðleika, sem á vegi hennar
yrðu.
Suður-Afríkumenn
smíða eigin kafbáta
London, Reuter.
BLAÐIÐ Jaae’s Defence Weekly
hefur eftír P. W. Botha, forseta
Suður-Afríku, að Suður-Afriku-
menn ráðgeri að smsíða sjálfir
kafbáta tíl þess að efla sjóher
sinn.
Að sögn Botha verða kafbátamir
nýju teknir í notkun snemma á
næsta áratug. Um þessar mundir
vinna skipasmíðastöðvar í Suður-
Afríku að endurbótum á þremur
frönskum kafbátum af Daphne-
gerð, sem verið hafa í flota landsins
í næstum tvo áratugi.
Suður-Afríkumenn tóku í síðustu
viku í notkun 12.500 tonna birgða-
skip, og er það langstærsta herskip,
sem byggt hefur verið þar í landi.
Stjóm landsins hefur uppi ýmsar
ráðagerðir til þess að Suður-Aftíku-
menn geti orðið sjálfum sér nógir
um hergögn vegna vopnasölubanns,
sem sett var á landið vegna aðskiln-
aðarstefnu stjómarinnar.
Qatar tekur upp sam-
band við Egyptaland
Doha, Qatar, Reuter.
STJÓRN Qatar ákvað á fundi
sinum í gær að fara að fordæmi
fjölmargra annarra Arabaríkja
og taka að nýju upp stjómmála-
samband við Egypta. Hafa þá
tveir þriðju ríkja Arababanda-
lagsins endurnýjað stjómmála-
samband við Egypta, en í
bandalaginu er 21 rUd.
Með þessari ákvörðun leiðtoga
Qatar hafa öll Persaflóaríkin, sem
aðild eiga að svokölluðu Sam-
starfsráði Flóans (GCC) endumýjað
stjómmálasamband við Egypta. Öll
ríki Arababandalagsins að Óman,
Sómaiíu og Súdan undanskildum
slitu stjómmálasambandi við
Egypta í lqolfar friðarsamninga
þeirra og ísraela árið 1979.
Al-Yamamah, tímarit í Saudi-
Arabíu, skýrði frá því í gær að
Egyptar hefðu nú þegar óskað eftir
1,5 milljarða dollara láni hjá GCC
til að endurgreiða hemaðarskuldir.
Sérstök egypsk sendinefnd er nú I
Kuwait til þess að reyna að fá þar-
lend yfírvöld til að kaupa egypsk
vopn. Egyptar hafa boðist til að
byggja upp loftvamarkerfi í Kuwa-
it til þess að veija landsmenn
hugsanlegum eldflaugaárásum frá
íran.