Morgunblaðið - 19.11.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
37
Bandaríkin:
Eiturlyfj akóngnr
vildi valda upplausn
Jacksonville í Flórfdu, Reuter.
MAÐUR, sem sagður er fyrr-
verandi félagi hins meinta
eiturlyfjakóngs Carlos Lehder
Rivas, bar fyrir rétti í Banda-
ríkjunum á þriðjudag, að
Lehder hefði vifjað valda þjóð-
félagsólgu og upplausn i
Bandaríkj unum með þvi að láta
kókaín og önnur eiturlyf flæða
yfir landið. Nú fara fram réttar-
höld yfir Lehder og á hann á
hættu að vera dæmdur í
lífstíðarfangelsi og 165 ára
fangelsi að auki.
Maðurinn, George Jung, situr
inni fyrir eiturlyfjamygl, en hann
sagði að Lehder hefði sóst eftir
pólitískum völdum, ekki síður en
auði, þegar hann lagði á ráðin um
uppbyggingu kókaínsveldis síns.
Jung sagði í réttinum að meðan
þeir sátu saman í fangelsi í
Connecticut árið 1974 hefði Leh-
der látið í ljós ákaft hatur sitt á
Bandaríkjunum, en á hinn bóginn
hefði hann dáðst að þeim Adolf
Hitler og suður-ameríska skæru-
liðanum Che Guevara.
„Hann vonaðist til þess að geta
komið af stað upplausn í banda-
rísku þjóðlífí með því að láta
kókaín flæða yfír landið," sagði
Jung, en þeir Lehder munu hafa
verið trúnaðarvinir í fangelsinu.
Meðan á fangavistinni stóð
ræddi Lehder meðal annars mögu-
leikann á valdatöku í Belize, eða
þann kost að spilla stjómvöldum.
Hugðist Lehder nota landið sem
Paradís eiturlyfjasmyglara og
annars illþýðis.
Lehder er ákærður fyrir 11 sak-
ir, sem tengjkast smygli á 3,3
tonnum á kókaíni frá Kölumbíu
til Bandaríkjanna á árunum 1979
og 1980.
Grænland:
Abelsen tekur
víð af Olsen
Kaupmannahöfn, frá NJ. Bruun, Grœn-
landsfréttaritara Morgunblaðsins.
EMIL Abelsen hefur nú tekið að
sér sjávarútvegs- og iðnaðarmál
í grænlensku landsstjórninni en
Moses Olsen, sem áður gegndi
embættinu, neyddist til að segja
af sér eins og kunnugt er. Abels-
en fer einnig með fjármálin.
Jonathan Motzfeldt varð að biðja
einhvem landsstjómarmann um að
taka við embættinu því að ella hefði
orðið að kalla þingið saman. Emil
Abelsen hefur hins vegar nóg á
sinni könnu og við ærinn vanda að
glfma þar sem eru fjármál lands-
stjómarinnar. Hefur hún fengið 200
millj. dkr. lán í grænlensku bönkun-
um tveimur en nú hefur danski
þjóðbankinn lokað fyrir þessar lán-
veitingar.
Abelsen hefur skýrt svo frá, að
landsstjómin ætli að taka 400 millj.
dkr. lán í danskri lánastofnun gegn
veði í eignum landsstjómarinnar en
alls þarf hún að taka einn milljarð
dkr. að láni á þessu ári.
Kyndillinn kominn til vestur um haf
Ólympfueldurmn, sem tendraður var í Grikklandi í sfðustu viku,
var fluttur þaðan til Nýfundnalands þar sem Ferd Hayward og
Barbra Ann Scott King tóku við honum og báru hann fyrsta
spölinn f Kanada. Alls munu 7.000 manns hafa borið kyndilinn
með ólympfueldinum áður en til leikamir verða settir f Calgary.
Uppgrip 1 smokka-
útflutningi Japana
Tókió, Reuter. 0
FRAM að þessu hafa Japanir
flutt út rafmagnstæki hverskon-
ar, vefnaðarvöru og bfla, en
nýjasti markaðurinn, sem þeir
eru að ná undirtökum á, er
smokkamarkaðurinn. Markaður-
inn er nú orðinn gifurlegur
vöxtum og siglir sá vöxtur i kjöl-
far alnæmishræðslunnar, sem
farið hefur um Vesturlönd sem
logi um akur.
Að sögn talsmanna eins stærsta
smokkaframleiðslufyrirtækis Jap-
ans, Okamoto, eru nú fluttir út um
12.240.000 smokkar á mánuði til
Bandaríkjanna og Evrópu, en á
sama tíma í fyrra var meðaltalið
um 2.016.000 á mánuði. Eftirspum
á heimamarkaði mun hins vegar
vera nær óbreytt. Fyrirtækið Fuji
Latex staðfesti að um mikla sölu-
aukningu væri að ræða, en vildi
ekki gefa upp neinar tölur.
í fyrra vom framleiddar um 835
milljónir smokka í Japan, en af því
var um fjórðungur fluttur út.
íh
STOR
UTSOlDMARKAÐDRDin
Iðnaðarmannahúsinu,HallTeigarstíg,
við hliðina á Atlantik
MUÍjóíwff™
LEÐURJAKKAR
RÚSKíNNSJAKKAR
hgerð/rpeysur
mmJiT
. ------
© °°CQ’
Mikið
af
nýjum
vðrum
Allt að
75%
AFSLÁTTUR
8 GERÐIRÚLPUR
SKÓR
JOGG/NGGALLAR
töskur
SOKKAR
skyrtur
MÆRFATNAÐUR
buxur
SLOPPAR
°9 margt fíeira
OPIÐ9-7 - LAUGARDAGA 9-6
é