Morgunblaðið - 19.11.1987, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
Morgunblaðið/GSV
Minkabú Pólarpels er í fimm skálum, en húsið sem er lengst til vinstri á myndinni er skrifstofuhúsnæði fyrirtækisins og þar er einnig verið
að innrétta 700 fermetra fyrir skinnaverkunarstöð.
„Minkurínn er Rolls Royce
fataframleiðslunnar “
- segir Þorsteinn Már Aðalsteinsson loðdýrabóndi á Dalvík
Unnið við að meta lífdýr. Frá vinstri: Ottó Gunnarsson bústjóri,
Ævarr Hjartarson ráðunautur og Þorsteinn Már Aðalsteinsson loð-
dýrabóndi.
„Stjóravöld hafa alls ekki stað-
ið nægilega vel að málefnum
loðdýraræktar á íslandi þó yfir-
völd lofi loðdýrarækt í öðru
hvoru orði og ætlast tíl að hún
taki við af hinum hefðbundna
búskap. Rekinn var óhemju áróð-
ur fyrir refaræktinni í fyrstu og
eftir verðfall á undanförnum
tveimur árum standa bændur
eftir með sárt ennið á meðan
stjórnvöld firra sig allri ábyrgð.
Veitt eru leyfi út um hvippinn
og hvappinn sem er í sjálfu sér
í lagi, en tryggja verður gæði
vi nns 1 urásarinnar frá upphafi til
enda,“ sagði Þorsteinn Már Aðal-
steinsson minkabóndi á Dalvík.
Stærsta búið
Þorsteinn hefur rekið stærsta loð-
dýrabú á landinu, Pólarpels, nú í
sextán ár og var hann einn af átta
bændum sem komu fyrstir upp loð-
dýrabúum hérlendis. Húsnæði
búsins telur 13.000 fermetra að
gólffleti og hefur Þorsteinn nú 3.000
minkalæður og 800 refalæður. Af-
komuna í vor í minkarækt sagði
Þorsteinn hafa verið mjög góða,
yfir fimm hvolpar á læðu, en í refa-
ræktinni hefði hver læða gotið undir
fimm yrðlingum á meðan eðlilegt
(i er að hver sé með þetta sex til sjö
talsins. Aðalmarkaðurinn fyrir mink
og ref er á uppboðum í Danmörku
auk þess sem ögn af refaskinnum
fer til London.
„Reksturinn gekk mjög erfiðlega
framan af. Þrálátur sjúkdómur kom
upp á minkabúunum sem reyndar
var útiýmt með öllu fyrir þremur
til flórum árum og nú höfiim við
jafnmikla möguleika á að standa
okkur og þeir sem lengst eru komn-
ir í ræktuninni, frændur vorir Danir.
Skorið var niður á öllum búum og
gerð var krafa um að bændur
keyptu ný dýr af úrvalsstofni frá
Dönum og er ísland nú eina landið
án þessa sjúkdóms. Sjúkdómi þess-
,r um má líkja við eyðni og hefur hann
gert út af við hundruð eða þúsundir
minkabúa víðsvegar um heim,“
sagði Þorsteinn.
Minkurinn á framtíð
Hann sagði að minkaræktin væri
kjölfestan I loðdýraræktinni, eins-
konar Rolls Royce fataframleiðsl-
unnar. „Við fslendingar stöndum
mjög veí að vígi í samkeppni við
aðrar þjóðir, en ennþá erum við
ekki búnir að slíta bamsskónum í
rætkuninni. Stofninn er góður en
sárlega vantar á að skinnameð-
höndlunin sé á því stigi sem hún á
að vera. Refamarkaðurinn hefur
verið í lægð undanfarin tvö ár. Refa-
bændur eiga nú afar erfítt upp-
dráttar og þurfa nánast að greiða
með framleiðslunni. Varla líður sú
vika að maður heyri ekki um ein-
hvem sem gefíst hefur upp. Sumir
- halda þó í vonina ennþá, bæði hefur
refastofninn skánað og menn eru
famir að fara út í sæðingar í meira'
mæli en áður. Refurinn er hinsvegar
miklu háðari tískusveiflum en mink-
urinn svo það skiptast á skin og
skúrir hjá refabændum á meðan
afkoma minkabænda er alltaf jöfn
og tiltölulega óháð verðsveiflum.
Yfír minkaskinnum er mikill glæsi-
leiki og álitið er að enn meiri
markaður sé fyrir skinnin en fram-
boð segir til um. Karlmenn em
famir að sækjast eftir minkapelsum
meira en áður. Ekki hefur þó verið
ráðist í markaðssetningu á minka- •
pelsum fyrir karlmenn að neinu
marki þar sem heimsframleiðslan
er ekki orðin það mikil. Fullvíst er
þó að mjög bjart er yfir minkarækt-
inni og því hlýtur hún að vera
framtíðaratvinnugrein fyrir íslend-
inga. Verð á minkaskinnum mætti
jafiivel lækka örlítið þar sem það
hefur verið fullhátt undanfarið."
Áróður yfirvalda
Þorsteinn sagði að stjómvöld
hefðu aldrei tekið á málefnum loð-
dýraræktarinnar af neinni alvöm
þó einstaka þingmenn sýndu þessari
atvinnugrein áhuga. „Refaræktin
átti að bjarga bændum úr hinum
hefðbundna búskap og varla hefur
verið haldin framboðsræða undan-
farin ár án þess að loðdýraræktin
sé lofuð í hástert og talað um himin-
hátt verð á uppboðsmörkuðunum.
Mönnum er ef til vill vorkunn. í þá
daga var skinnaverð hátt, en menn
áttu að vita um þær verðsveiflur sem
skapast geta á þessu sviði, sérstak-
lega varðandi refaræktina. Öll
vinnubrögð viðvíkjandi atvinnu-
greininni hafa verið mjög svo
handahófskennd svo ekki sé sterk-
ara að orði kveðið og engin heildar-
stefna verið mörkuð af hálfu
yfírvalda þrátt fyrir fögur fyrirheit."
Fóðurflutningar
í ólestri
Ekki em allir á eitt sáttir um
fóðurflutninga og fóðurverð, en þær
reglur sem nú em við lýði álítur
Þorsteinn fyrir neðan allar hellur.
„Ef til dæmis loðdýrabú er reist í
óraQarlægð frá fóðurstöð stór-
hækkar það fóðurverð hjá þeim
loðdýrabændum sem reist hafa bú
sín nálægt stöðinni. Þetta em ekki
smáar upphæðir, jafnvel 10-20% af
fóðurverði. Allir bændur borga sama
fóðurverð burtséð frá búsetu. Aukin
skattheimta er sett á okkur bænd-
ur, sem búum ef til vill í næsta
húsi við fóðurstöð, eins og tilfellið
er með mig, til þess að greiða niður
flutningskostnað fyrir þá sem fjærst
búa. Ekki finnst mér mikið réttlæti
í þessu. Mér finnst sjálfsagt að þeir
bændur, sem búa fjærst, taki þátt
í eigin flutningskostnaði, í stað þess
að láta aðra bændur svíða fyrir stað-
setningu þeirra. Jaftiframt finnst
mér koma til greina að ríkiskassinn
taki á sig eitthvert jöfnunargjald
úr því þau endilega vilja veita þess-
um búum leyfi. Persónulega finnst
mér að setja eigi fast gjald á alla
loðdýrabændur vegna fóðurflutn-
inga. Síðan ætti að setja á aukagjald
með tilliti til þess kílómetraflölda
sem er á milli fóðurstöðva og loð-
dýrabúa og ef stjómvöld veita leyfi
fyrir loðdýrabúum á óhagstæðum
svæðum verða þau líka að taka þátt
í þeim kostnaðarauka sem því fylg-
ir í stað þess að velta vandanum
yfir á óviðkomandi aðila."
Alvöruskinna-
verkunarstöðvar
Þorsteinn sagði að skinnaverkun
hérlendis stæði á brauðfótum og
lítill skilningur virtist ríkja um að
skinnaverkun gæti verið alvöruat-
vinnuvegur. „Gífurlega mikið atriði
er að skinnaverkun sé vel úr garði
gerð. Þetta eru síðustu mínútumar
í framleiðsluferlinum og vanda þarf
mjög meðferð þar sem gæðin ráðast
mikið af verkuninni. Líkja má
skinnaverkuninni við umbúðir fram-
leiðsluvömnnar. Engum, sem
framleiddi dýrt og fínt ilmvatn, dytti
í hug að dreifa því í verslanir til
kaupandans á maltflöskum. Því
miður er alltof algengt að bændur
neyðist til að setja upp lágmarks-
græjur í íjárhúsunum hjá sér til
verkunarinnar og vildi maður gjam-
an geta státað af skilningi stjóm-
valda á alvömskinnaverkunarstöðv-
um.“
Þorsteinn stendur í því þessa
dagana að gjörbreyta skinnaverkun
fyrirtækis síns. Áður fór verkunin
fram í þremur til flómm litlum her-
bergjum en flyst nú í tæplega 700
fermetra stórt húsnæði þar sem
Þorsteinn rak áður fóðurstöð. Hann
hefur fest kaup á sjálfvirkum vél-
búnaði til verkunarinnar svo sem
loftstýringu í alla þurrkklefa, skröp-
unarvélar, þurrkblásara með stillan-
legum Ioftinntökum auk þurrkunar-
og pökkunarklefa. „Þama er ég að
byggja fyrir framtíðina enda þarf
ég að verka um 20.000 skinn á ári
hveiju aðeins fyrir sjálfan mig auk
þess sem eitthvað er um að menn
séu að biðja mig að verka fyrir sig
sem ég hef ekki getað sinnt að neinu
marki."
Veggir allstaðar
Þorsteinn sagði að óhætt væri
að segja að loðdýrabændur rækju
sig á veggi endalaust! þessari hring-
iðu loðdýraræktarinnar og tók sem
dæmi þá byltingu sem hann væri
að gera á sviði skinnaverkunar hjá
sér. Hann kvaðst ekki mæta nokkr-
um skilningi stofnana sem ættu að
sinna slíkum málum. Stjómmála-
menn væm enn að tala með fagurg-
ala um þessa nýju atvinnugrein sem
öllu ætti að bjarga sem reyndar
væri ekkert fjarri lagi. Hinsvegar
væri annað hljóð í strokknum þegar
áhugasamir menn ætla virkilega að
fara að byggja upp hjá sér, að vísu
þó með mjög skemmtilegum undan-
tekningum, að sögn Þorsteins. Til
væm menn í kerfinu sem væm eins
í orði og á borði en hann yrði að
játa að viss sofandaháttur virtist
ríkja í ráðuneytinu hvað þetta varð-
aði. „Loðdýraræktinni er ætlað að
taka við stórum hluta af vanda hins
hefðbundna búskapar, en ef hún
getur ekki einu sinni tekið á eigin
vandamálum og byggt sig upp skyn-
samlega er ekki hægt að ætlast til
að hún taki við vanda annarra at-
vinnugreina. Menn verða að byija á
réttum enda," sagði Þorsteinn að
lokum.
IVERSLUN
& VIÐSKIPTI
Á AKUREYRI
Vandaður
karlmannafatnaður
í úrvali
Leggjum áherslu á góða
og örugga þjónustu.
Klæðskeraþjónusta.
errabodin
RJURAMtUTI 92 602 AKURtTRI SlRRI W 2R7W R0X 397
41
Hafnarstrati 92 - Sími 96-26708
SIEMENS
heimilistæki
• Örbylgjuofnar
• Þvottavélar
• Þurrkarar
Furuvöllum 1, 600 Akureyri
Sími 96-27788
TISKU-
UÓS
\ AKURUÓSI
AKURVÍK
Jólakort
Pantiðjólakortin
tímanlega
15% afsláttur
til 1. des.
^PediGmyndir?
Hafnarstræti 98 - Sími 96-23520