Morgunblaðið - 19.11.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
43
„Kynbundinn kvóti“ í sljórnir og ráð:
Jafnrétti á gnmdvelli
hæfni og þekkingar
sagði Sólveig Pétursdóttir
Frumvarp Hjörleifs Guttorms-
sonar og Guðrúnar Helgadóttur,
þingmanna Alþýðubandalags,
þessefnis, að „í nefndum, stjórn-
um og ráðum, sem skipuð eru
beint af ráðuneytum eða á vegum
opinberra stofnana og fyrir-
tækja, skuli ekki vera færri en
40% af hvoru kyni“, kom til fram-
halds (fyrstu) umræðu í neðri
deild í gær.
Lára Júlíusdóttir (A/Rvk)
sagði efnislega, að rétt væri að láta
frekar reyna á jafnréttislögin.
Heppilegri leið en sú er frumvarpið
gerir ráð fyrir væri að fara sömu
leið og Danir. Þar bæri að tilnefna
jafn margar konur og karla til kjörs
í nefndir, ráð og stjómir hins opin-
bera, án þess að lögbinda ákveðna
skiptingu milli kvenna og karla.
Þessi leið hafí gefíð góða raun.
Sturla Böðvarsson (S/Vl) sagði
rétt að stefna að sem beztri jafn-
stöðu milli kvenna og karla, bæði
á fíjálsum vinnumarkaði og hjá því
opinbera. Frumvarpið bæri hinsveg-
ar fremur vott kapps en forsjár.
Það gerði ráð fyrir því að setja
kvótakerfi á kjör í nefndir, ráð og
stjómir. Kvóti af þessu tagi myndi
skapa fleiri vandamál en hann leysti
— og þjónar ekki tilgangi jafnréttis.
Það á hinsvegar að stefna að
jafnræði á þessu sviði, fyrst og
fremst eftir leikreglum lýðræðis.
Jafnrétti næst fyrst og fremst með
skoðanamótun, í uppeldi, bæði á
heimilum og í skólum, sem virðir
rétt beggja kynja og kveður niður
fordóma og fomeskju í verkaskipt-
ingu kynjanna.
I því bæjarfélagi, sem ég þekki
bezt til, sagði þingmaðurinn, hefur
ekki þurft sérstakt kvótakerfí til
þess að konur næðu að vera í meiri-
hluta í bæjarráði — og í forystu í
atvinnulífi.
Hjörleifur Guttormsson (Abl/
Al) sagði það merg málsins að
stefna að og ná jafnstöðu kvenna
og karla í samfélaginu. Fmmvarpið
er flutt í þeim tilgangi. Hann sé fús
til að vega og meta aðrar leiðir að
þessu marki, eins og þá sem farin
hafí verið í Danmörku. Hann sagð-
ist hinsvegar ekki sjá nein vand-
kvæði á því að velja í nefndir og
stjómir eftir ákvæðum frumvarps-
ins.
Sólveig Pétursdóttir (S/Rvk)
vék fyrst að jafnréttislögunum, sem
nú hafí gilt í tvö ár. Þeim hafí ver-
ið ætlaður fímm ára rejmslutími,
en í 23. grein þeirra er tekið fram,
að þau skuli endurskoðuð að fimm
reynsluámm liðnum.
AUMflGI
Skilatrygging:
Úrelding bifreiða
Bílflök víða vandamál
Á næstu árum munu tugir þús-
unda bifreiða úreldast. Áætlað
er að árleg úrelding verði milli
10-20 þúsund. Svo segir í tillögu
til þingsályktunar sem Guð-
mundur H. Garðarsson (S/Rvk),
Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/Rvk)
og Jóhann Einvarðsson (F/Rn)
flytja um skilatryggingu vegna
úreldingar bifreiða.
Hugmynd tillögunnar er að
leggja sérstakt skilatryggingar-
gjald á kaup nýrra bifreiða. Þetta
gjald er sfðan endurgreitt þegar
bifreið úreldist. Þessi „háttur
tíðkast víða erlendis hjá þjóðum sem
komnar em lengra í umhverfísmál-
um en íslendingar", segir í greinar-
gerð.
Það sem vinnst við þetta fyrir-
komulag er:
1) Brotajámi er skilað á hag-
kvæmari hátt til endurvinnsiu.
2) Bílflök og annað brotajám
verður ekki skilið eftir á víðavangi.
3) Breytt almennt hugarfar til
hins betra í umhverfismálum.
Samkvæmt þessum lögum hafí
stjómvöld í hendi sér, við stöðuveit-
ingar á þeirra vegum, að veita konu
frekar en karli stöðu, ef bæði telj-
ast jafnhæf, til að jafna metin milli
kynjanna.
Þingmaðurinn minnti á verklags-
reglu, sem vel hefí gefíst hjá
grannþjóðum, að tilnefna tvöfalda
þá tölu sem velja á, jafn margar
konur og karla, þegar kosið er í
nefndir, ráð eða stjómir hjá hinu
opinbera. Þetta vinnulag nýtur vax-
andi vinsælda og hefur reynst stórt
skref að settu marki, því jafnt og
þétt eykst fjöldi kvenna í forystu-
störfum og kynin njóta réttlætis á
grundvelli hæfni og þekkingar.
Ef ráðamenn fara á svig við
ákvæði jafnréttislaga, sagði þing-
maðurinn, kann það að verða
réttlætanlegt, og þá tímabundið,
að fara þá leið, sem þetta fmmvarp
gerir ráð fyrir.
Sólveig sagði að sagan sýndi að
þegar saman fer jafnrétti manna
og umbun til þeirra, sern fá notið
hæfileika sinna og atorku, þá miði
þjóðfélaginu sem heild hraðast fram
á við.
Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf)
sagði fmmvarpið vantraust á
íslenzka þjóð. Vantraust á þjóð, sem
hafí valið konu sem þjóðhöfðingja.
Vantraust á þjóð sem hafí kosið
fjölda kvenna í sveitarstjómir vítt
Nýir þingmenn hlusta á umræður: Sturla Böðvarsson (S/Vl), Unnur
Stefánsdóttir (F/Sl) og María E. Ingvadóttir (S/Rvk).
og breitt um landið.
Finnst fyrsta flutnipgsmanni
framgangur kvenna of mikill,
spurði þinmgaðurinn. Ætlar hann
karlkyninu að veijast við 40% mörk-
in?
Þingmaðurinn sagði fmmvarpið
lýsa forsjárhyggju og raunar remb-
ingi.
Þá sagði þingmaðurinn að til
réttrar áttar stefndi um jafnstöðu
kvenna og karla. Hann minnti á
að fleiri stúlkur en drengir tælg'u
nú stúdentspróf og að konur væm
í meirihluta meðal fyrsta árs nem-
enda f Háskóla íslands.
Hjörleifur Guttormsson sagði
það á sinn hátt verðmætt, bæði
fyrir þing og þjóð, að geta um al-
þingistíðindi skyggnzt inn í þann
hugarheim sem birzt hafi í ræðu
Ólafs Þ. Þórðarsonar.
Stuttar þingfréttir:
Heildarbyggingarkostnaður
B-álmu Borgarspítala, fram-
reiknaður til verðlags í október
1987, nemur rúmlega 359 mil(j-
ónum króna. Þetta kom fram í
svari Guðmundar Bjarnasonar,
heilbrigðisráðherra, við fyrir-
spurn Svavars Gestssonar og
Guðrúnar Helgadóttur, sem lagt
var fram á Alþingi í gær. Ráð-
herra sagði einnig að til ársloka
1986 hafi framlag borgarsjóðs
Reykjavíkur til byggingarinnar
numið tæpum 49 m.kr.
* * *
Álfheiður Ingadóttir (Abl/
Rvk) tók sæti á Alþingi í gær sem
varamaður fyrir^ Svavar Gestsson,
sem er erlendis. Ásmundur Stefáns-
son hefur setið á þingi í fjarveru
Svavars undanfarið. Álfheiður
mætir nú í hans stað.
* * *
Eitt mál var á dagskrá efri deild-
ar í gær. Atkvæðagreiðsla um
frumvarp um dagvistun bama, eftir
fyrstu umræðu. Fundurinn stóð í
þijár mínútur.
* * *
Guðrún Heigadóttir (Abl/Rvk)
mælti fyrir endurfluttu frumvarpi
um umboðsmann bama. Frum-
varpið er að hluta til sniðið eftir
norskri löggjöf. Þingmaðurinn
sagði að íslenzk böm byggju við
verri uppeldisskilyrði í velferðar-
þjóðfélagi dagsins í dag en fyrir
15-20 árum. Astæðan væri langar
vinnufjarvistir foreldra, of fá dag-
vistarheimili og skóladagheimili,
sem og flóðbylgja erlends og um-
deilds sjónarpsefnis, oft án íslenzks
tals.
Nokkrir þingmenn tóku til máls.
Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf) taldi
þjónustu af þessu tagi betur komna
hjá sveitarfélögum en ríkisstofnun
í Reykjavík (dómsmálaráðuneyti),
ekki sízt frá landsbyggðarsjónar-
hóli séð.
* * *
Guðmundur G. Þórarinsson
(F/Rvk) mælti fyrir frumvarpi um
niðurfellingu heimildar til handa
^ármálaráðherra til að veita undan-
þágur frá söluskatti. Jón Baldvin
Hannibalsson, fjármálaráðherra,
sagði ríkistjómina stefna að niður-
fellingu undanþága. Albert
Guðmundsson, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, taldi frumvarpið
sníða fjármálaráðherra of þröngan
starfsstakk.
* * *
Salome Þorkelsdóttir (S/Rn)
spyr dómsmálaráðherra:
1) Hvaðá ráðstafanir era fyrir-
hugaðar til þess að efla löggæzlu
í þeim byggðarlögum sem hejrra
undir lögregluna í Hafnarfirði?
2) Hvenær má vænta að komið
verði upp lögregluvarðstöð í Mos-
fellsbæ sem þjóni jafnframt Kjalar-
nes- og Kjósarhreppum?
I-—— ........ --------- - ■■ ■ ■ .. ....... i ......■—
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar \
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn. Sími 28040.
I.O.O.F. 11 = 1691119872 =
E.T. 1. 9.0.
I.O.O.F. 5 = 16911198V2 =
ET II Sk.
□ Mímir 598719117 = 6 Frl.
□ HELGAFELL 598711197
VI - 2
Aðalfundur
félagsins veröur haldinn mið-
vikudaginn 2. desember kl.
20.00 á Amtmannsstig 2. Fund-
aretni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
mi útivist j Gröfinni 1,
's-----' Slmar: 14606 og 23732
Fimmtudagur 19. nóv.
Myndakvöld Útivistar
Annað myndakvöld Útivistar í
vetur verður í Fóstbræðraheimil-
inu, Langholtsvegi 109, kl.
20.30. Myndefnl: LJós og form
suðvestursins f Bandarfkjun-
um. Gérard Delavault sýnir
myndir sínar frá eldfjallasvæð-
um Oregon og Washington, t.d.
jöklum og eldfjöllum eins og Mt.
Hood og göngu á Mt. Raner.
Ennfremur frá þjóðgörðum í
Utah, Arizona og Colorado, t.d
hinum fræga Yellowstone þjóð-
garði. Stórgóð myndasýning
með vönduðum skýringum.
Þetta er sannarlega myndakvöld
sem hægt er að mæla með.
Kaffiveitingar í hléi. Allir vel-
komnir meöan húsrými leyfir.
Aðventuferð í Þórsmörk
27.-29. nóv.
Gist i Útivistarskálunum Básum.
Gönguferðir. Aðventukvöld-
vaka. Pantið timanlega þvi pláss
er takmarkað. Uppl. og farm. á
skrifst., Grófinni 1, simar: 14606
og 23732. Sjáumstl
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirðí
Félagsvlstin i kvöld, fimmtudag
19. nóv. Verið öll velkomin.
Fjölmennið.
iraCTgii
Aðaldeild-KFUM
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Amt-
mannsstíg 2b. Bibliulestur í
umsjá dr. Sigurbjörns Einars-
sonar biskups.
Allir karlmenn velkomnir.
HÍP IfeteÉ:
Almenn samkoma
Almenn lofgjöröar- og vakning-
arsamkoma verður í Grensás-
kirkju í kvöld kl. 20.30. Predikun:
Eirný Ásgeirsdóttir.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Þakkar- og lofgjörðarsamkoma i
kvöld kl. 20.30. Vitnisburðir og
mikill söngur. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almennur bibliulestur i kvöld kl.
20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
fíuniijálp
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þribúðum, Hverfisgötu 42.
Almennur söngur. Vitnisburðir.
Samhjálparkórinn tekur lagiö.
Ræðumenn Brynjólfur Ólason
og Kristinn Ólason.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Aðalfundur
félagsins verður haldinn miö-
vikudaginn 25. þ.m. kl. 20.00 á
Amtmannsstíg 2. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstöf.
Stjórnin.
VEGURINN
Kristið samfélag
Þarabakka3
Bænastund kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Vegurinn.
^tglýsinga-
síminn er 2 24 80