Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 Fréttir um samskipti Stefáns Jóhanns Stefánssonar og CIA: Fréttastofan segir fréttina tílhæfulausa Dag Tangen segist aldrei hafa séð skjöl um slík samskipti FRÉTTASTOFA Ríkisútvarpsins lýsti þvi yfir í kvöldfréttatíma i gærkvöldi að fréttir um náin samskipti Stefáns Jóhanns Stef- ánssonar fyrrum forsætisráð- herra við leyniþjónustu Bandaríkjanna hefðu reynst úr lausu lofti gripnar. í Banda- ríkjunum hefðu engin skjöl fundist sem bendi til slikra sam- skipta og Dag Tangen sagnfræð- ingur í Noregi segi nú að hann hafi aldrei séð slik skjöl. Aftur á móti segi Jón Einar Guðjónsson fréttaritari útvarps í Noregi að Dag Tangen hafi áður sagt að hann hafi séð skjöl um slík sam- skipti. Fréttastofan harmaði síðan að heimild sem hún sá ekki ástæðu til að véfengja hefði reynst ótraust. í samtali við Morgunblaðið sagði Friðrik Páll Jónsson varafréttastjóri hljóðvarps að fréttastofan hefði afl- að sér gagna, ma. úr Truman- Alþjóðlega skákmótið á Suðurnesjum: Hannes Hlífar náði meistaraáfanga KoflaviL Keflavík. Hannes Hlifar Stefánsson náði í gær sinum fyrsta áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli þegar hann gerði jafntefli við Þröst Þórhallsson. Hannes Hlifar, sem er aðeins 15 ára, sagði i samtali við Morgunblaðið, að hann ætlaði að taka þátt i móti í Hastings um áramótin og freista þess þá að ná öðrum áfanga. Þeir Þröstur Þórhallsson og Björgvin Jónsson eiga enn möguleika á að ná áfanga að titli alþjóðameistara. Þeir þurfa að ná jafntefli i skák- um sinum i siðustu umferðinni sem tefld verður i dag. Þeir eiga báðir í höggi við stórmeistara, Þröstur teflir með svörtu gegn Helga Ólafssyni, en Björgvin stýrir hvitu mönnunum gegn Guðmundi Siguijónssyni. Bretinn David Norwood er nú efstur á mótinu með 7V2 vinning, en næstir eru þeir Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar Stefánsson með 7 vinninga. Helgi sat að tafli gegn Finnanum Antti Pyhala og hafði skákin þá farið tvívegis í bið. Helgi hafði lakara tafl. Næst koma svo þeir Þröstur Þórhallsson og Björg- vin Jónsson með 6V2 vinning og Guðmundur Siguijónsson er með 6 vinninga. Úrslitin í gær urðu þessi: Þröstur Þórhallsson - Hannes Hlífar Stef- ánsson V2-V2, Guðmundur Sigur- jónsson - Byron Jacobs 1-0, Jóhannes Ágústsson - Charles Weldon 1-0, Davíð Ólafsson - Björg- vin Jónsson 0-1, David Norwood - Sigurður Daði Sigfússon 1-0 og skák Antti Pyhala og Helga Ólafs- son fór í bið. gg RUV: Svæðisútvarp á Austur landi tekið til starfa RAUST, svæðisútvarp Rikisút- varpsins á Austurlandi byrjaði í gær og verður fyrst um sinn út- varpað tvisvar i viku frá klukkan 18.30 til 19. Deiidarstjóri er Inga Rósa Þórðardóttir sem unnið hefur fyrir fréttastofu Ríkisút- varpsins. safninu sem hefðu borist til landsins á miðvikudag, og borið þau saman við önnur gögn auk þess sem Tang- en hefði verið spurður nákvæmlega út í málavexti. Niðurstaðan hefði verið þessi afsökunarbeiðni. Friðrik sagði að málið hefði byij- að á þann hátt að Tangen nefndi að fyira bragði í viðtali við norska útvarpið að hann hefði komist yfir skjöl um samskipti íslands og Bandaríkjanna. Viðtalið var vegna uppljóstrana Tangens um samband forustumanna norska Verkamanna- flokksins og bandarísku leyniþjón- ustunnnar á eftirstríðsárunum. Þetta hefði Jón Einar Guðjónsson heyrt og haft samband við Tangen. Jón Einar segir að þá hafi Tangen sagt sér að hann hefði skjöl sem sýndu náið samband Stefáns Jó- hanns Stefánsonar við bandarísku leyniþjónustuna. Fréttastofan hefði ekki talið ástæðu til að rengja þetta þar sem Tangen hefði verið gesta- prófessor í Bandaríkjunum um tíma og stundað sagnfræðirannsóknir þar undanfarin 3 ár. En þegar Jón Einar vildi sjá skjalið um Stefán Jóhann hefði Tangen fyrst sagst ekki fínna þau og síðan hafa sent þau í pósti til kunningja á íslandi. í kvöldfréttatíma útvarpsins í gærkvöldi var ma. eftirfarandi haft orðrétt eftir Tangen: „Ég hef ekki sagt að ég hafí séð skjöl sem sýni samband milli CLA og Stefáns Jó- hanns Stefánssonar. (...) Skjalið þar sem nafn Stefáns Jóhanns er að fínna er ómerkileg orðsending þar sem segir að fulltrúar Banda- ríkjanna skuli ræða við hann. Annað hefði auðvitað vakið mikla athygli." Morgunblaðið/Þorkell Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands íslands, afhendir Birgi ísleifi Gunnarssyni, menntamálaráðherra, skólastefnuna. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, fylgist með. * Kennarasamband Islands: Skólastefna Kennara- sambandsíns gefin út £> INNLENT SKÓLASTEFNA Kennarasam- bands íslands er komin út. í tilefni þess afhenti Svanhildur Kaaber, formaður sambandsins, Birgi ísleifi Gunnarssyni, menntamálaráðherra og Jóni Baldvini Hannibalssyni, fjár- málaráðherra, eintök af bækl- ingnum í húsakynnum sambandsins i gær. Svanhildur sagði við afhendingua að sambandið hefði samþykkt á fulltrúaþingi sínu í júní sl. heildar- stefnu í menntamálum. í skóla- stefnunni birtist í fyrsta skipti heildstæð stefna þar sem tekið væri á öllum meginþáttum skóla- starfsins. í henni birtist álit kennara á skólastarfí í landinu í framtíðinni og jafnframt vilji sambandsins til að vinna að umbótum í skólastarfí. Nú í nóvember hittist grunnskóla- kennarar á fundum um allt land til að ræða skólastefnuna. Eftir ára- mótin mjmdu síðan kennarar kynna foreldrum stefnuna því hún væri samin með hagsmuni nemenda að leiðarljósi. Hún taldi að um tveir þriðju hlutar kennarastéttarinnar hefðu unnið að mótun stefnunnar. Birgir ísleifur sagðist hafa gluggað í stefnuna og taldi að hún væri í samræmi við stefnu hans sem menntamálaráðherra. Hann óskaði kennurum til hamingju með það mikla starf sem lægi að baki stefti- unnar. Jón Baldvin sagði að skóla- stefna væri mikið mál en hann vildi leggja áherslu á aukna valddreif- ingu, þannig að hlutur skólanna yrði gerður stærri. í dag Gengisfelling ekki óumflýjanleg þrátt fyrir versnandi viðskiptakjör: Höfum séð það svartara - segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra JÓN BALDVIN Hannibalsson segir það slæmt að slitnað hafi upp úr samningaviðræðum Vinnuveitendasambands ís- lands og Verkamannasam- bands íslands og ljóst sé að samningar verði erfiðari ef þeir dragast fram yfir áramót. Hann segir að það fari ma. eft- ir hvað gerist á vinnumarkaði og hvernig ytri skilyrði þróast hvort fastgengisstefna ríkis- stjórnarinnar haldi en segir að það sé ekki það bráðaástand yfirvofandi að menn geti hróp- að með réttu að gengisfelling sé yfirvofandi. Ástandið hafi oft verið svartara. í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagðist Jón Baldvin Hannibalsson vona að þráðurinn yrði tekinn upp að nýju í viðræð- unum þótt sú von væri ekki rökstudd. Samkvæmt samningum opinberra starfsmanna, sem gilda út árið 1988, koma launahækkan- ir strax í janúar og febrúar. „Ég tel það slæmt að ekki skuli hafa tekist nú að ganga til samninga á þeim nótum út amk. árið 1988 þvl að ég held að það verði ekki auðveldara við þessi mál að fást eftir áramót," sagði Jón Baldvin. Hann sagði að inn í þessi mál hefðu blandast áieitnar spuming- ar um starfsskilyrði fiskvinnsl- unnar sérstaklega. „Áraunin á gengið er vaxandi með falli doll- ara og ýmsir aðilar hafa fært það í tal við fulltrúa ríkisstjómarinnar hvort hún geti gert eitthvað til að bæta þesi starfsskilyrði og þar með treyst stöðu fiskvinnslunnar til að mæta leiðréttingu á kjörum fískvinnslufólks. Ef tekist hefði samkomulag um leiðréttingu á kjörum þeirra hópa sem ekki hafa notið fastlaunasamninga á árinu var ríkisstjómin búin að lýsa yfir vilja sínum til að skoða annars- vegar starfsskilyrði fískiðnaðarins og hinsvegar framkvæmd skatt- kerfísbreytinganna," sagði Jón Baldvin. Þegar Jón var spurður um kröf- ur þess efnis að ríkisstjómin endurskoðaði Qármálastefnu sína í ljósi nýrra draga að þjóðhagsspá sem Vinnuveitendasamband Is- lands lagði fram á miðvikudag, sagði hann stefnt hefði í 7,5 millj- arða króna halla á ríkissjóði fyrir aðgerðir ríkisstjómarinnar í sum- ar og haust. Það hefði kostað svo mikil átök að rétta það af á ekki skemmri tíma að borin von væri að tala um meira og raunar gott ef markmið um hallalaus Qárlög næðist því einstakir ráðherrar eða ráðuneyti þeirra hefðu undanfarið verið að leggja fyrir fjárveitingar- nefnd kröfur um frekari útgjalda- aukningu sem þegar er farin að mælastum 1500 milljónir króna. „Við vissum frá upphafí að ákvörðunin um stöðugt gengi er hin vandasamari leið,“ sagði Jón Baldvin. „Gengislækkunin er gamalkunnug skottulækning til bráðabirgða og þegar við höfnuð- um þeirri leið byggðist það á því mati að hún yrði mjög skammæ, sérstaklega í því gífurlega þenslu- ástandi sem við búum við. Leiðin sem við erum að feta er torsótt- ari og seinfamari og beinist að því að kæla þessa ofhituðu vél á nokkrum tíma, og árangurinn er undir því kominn að okkur takist að ná verðbólgu nokkuð ört niður á fyrri hluta næsta árs. Verð- bólgumarkmiðinu náum við ekki með gengislækkun. Ef ríkisstjóm- in stendur við hallalaus fjárlög er hún búin að gera sitt en vafalaust þarf að herða á peningamálum. Síðan er spuming hvað gerist á vinnumarkaði og varðandi ytri skilyrði. En það er ekki það bráða- ástand yfírvofandi að menn geti hrópað með réttu að gengislækk- un sé óumflýjanleg. Menn hafa oft séð það svartara." —En verður ekki erfítt að standa við þetta markmið ef átök verða á vinnumarkaði í vetur? „Þetta verður erfítt en til hvers em ríkisstjómir ef þær þola ekki erfíðleika," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. BLAÐ B y ^ =^5 J*4 blað C

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.