Morgunblaðið - 20.11.1987, Blaðsíða 60
| 'ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
1 GuðjónÓ.hf.
I / 91-27233 I
NYTT SIMANUMER:
696000
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Borgarstjórn:
Deilt um hvort stað-
setning ráðhúss
hafi verið samþykkt
Á borg-arstjórnarfundi í gær-
kvöldi var deilt um það, hvort
staðsetning hins nýja ráðhúss
Reykjavíkur við Tjörnina hafi
verið samþykkt af borgaryfir-
völdum.
Guðrún Ágústsdóttir sagði á
fundi borgarstjómar í gær að stað-
setning ráðhússins hefði aldrei verið
samþykkt í skipulagsnefnd
Reylq'avíkur. Þegar Kvosarskipu-
lagið hefði verið samþykkt hefði
aðeins verið gert ráð fyrir svæði
Fjórhliða stöðv-
unarskylda:^
Brýtur í
bága við
umferðarlög
Dómsmálaráðuneytið mælir
ekki með að tekin verði upp fjór-
hliða stöðvunarskylda á gatna-
mótum. Borgarráð Reykjavikur
samþykkti í upphafi ársins að
setja fjórhliða stöðvunarskyldu á
gatnamót Stakkahlíðar og Ból-
staðarhlíðar, við ísaksskóla, og
átti að reyna það fyrirkomulag í
eitt ár. Ekkert varð þó af fram-
kvæmdum, því óskað var eftir
áliti dómsmalaráðuneytisins, sem
nú hefur sent frá sér greinar-
gerð, þar sem kemur fram að slík
tilhögun brýtur í bága við ákvæði
umferðarlaga og merkjareglu-
gerðar.
í greinargerð dómsmálaráðuneyt-
isins segir, að fjórhliða stöðvunar-
skylda feli í sér að allir, sem að
vegamótum koma, úr hvaða átt sem
er, skuli stöðva og veita umferð á
vegi, sem komið er að úr báðum átt-
um, forgang, þ.e. ekki aka inn á
vegamót fyrr en umferð úr báðum
áttum hafi farið hjá. Þetta ætti að
ganga vel á meðan umferð er lítil
og ekki kemur til þess að á vegamót-
um standi tvær bifreiðar eða fleiri
með umferð frá hlið sem að er kom-
ið. Þá beri öllum að veita einhveijum
öðrum forgang. Ekki verði svar við
því lesið úr ákvæðum umferðarlaga.
Ráðuneytið komst því að þeirri
niðurstöðu, að fjórhliða stöðvunar-
skylda samrýmist ekki að óbreyttu
ákvæðum umferðarlaga eða merkja-
reglugerðar. Ekki sé heldur að fullu
ljóst hvemig háttað yrði umferðar-
rétti á slíkum gatnamótum.
undir ráðhúss með punktalínu á
skipulagsuppdrætti. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir taldi að borgarráð
hefði ekki tekið ákvörðun um stað-
setninguna enda hefði málið þar
aldrei verið á ákvörðunarstigi. Báð-
ir borgarfulltrúamir bentu á að
víðtæk andstaða væri meðal borg-
arbúa um staðarvalið. Davíð
Oddsson, borgarstjóri, benti á, að
borgarráð hefði samþykkt að efna
til samkeppni um byggingu ráðhúss
við Tjömina, því væri ljóst að
ákvörðun hefði verið tekin. Við þá
afgreiðslu hefðu engar athuga-
semdir komið um staðsetningu.
Vilhjálmur J. Vilhjálmsson benti
á, að í deiliskipulagi, sem kynnt
hefði verið og samþykkt, hafí verið
gert ráð fyrir byggingarreit fyrir
ráðhúsið. Líkan af því hefði síðan
verið inni í líkani af Kvosarskipu-
laginu við kynningu á nýju og
endurskoðuðu skipulagi. Kynning
og umsagnartími hefði verið 14 vik-
ur í stað 8 lögbundinna vikna. í lok
kynningarinnar hafí verið efnt til
borgarafundar sem auglýstur var
rækilega í fjölmiðlum. Engar at-
hugasemdir hefðu komið þar fram.
’ ■ 3 ■ - • »
v»-í
*
■ ......................
PILOT
BI10U0/
Morgunblaðið/BAR
Valur Björnsson, háseti á rækjubátnum Pilot, frá Bíldudal, lítur yfir dagsaflann. Pilot veiddi leyfi-
legan dagskammt sinn af rækju í einu kasti í gærmorgun.
Mjög góð rækjuveiði í Arnarfirði
BÍIdudal.Frá blaðamanni Morgunblaðsins,
Rækjuveiði í Arnarfirði hefur
verið mjög góð og hefur ekki
veiðst jafn vel í byijun vertíðar
í mörg ár. í gær höfðu 82 tonn
af rækju borist til Rækjuvers
hf. á Bíldudal en takmarka
hefur þurft aflann við 40 tonn
á viku til að vinnslan hafi við
Huga Ólafssyni.
veiðinni.
Nú stunda 10 bátar rækjuveið
frá Bíldudal en leyflilegur afli á
vertíðinni er 500 tonn. Það er 50
tonnum meira en í fyrra en þá
höfðu 8 bátar leyfí til rækjuveiða
á Amarfirði. Vikukvóti hvers báts
hefur verið færður úr 5 tonnum
niður í 4 tonn samkvæmt fyrir-
mælum sjávarútvegsráðuneytis-
ins eftir að meirihluti rækjusjó-
manna á Bíldudal hafði óskað eftir
því.
Rækjan er sæmilega stór og
lítið er af smárækju í aflanum.
Fiskiþing:
Afnámi svæðaskiptingar
sóknarmarkstogara hafnað
Lagt til að „siglingaskattur“ verði ekki hækkaður
FISKIÞING hafnaði í gær hugmyndum og tillögum um afnám
svæðaskiptingar er taka til þorskaflahámarks sóknarmarkstogara
og samþykkti tillögu þess efnis, að jafnræði milli sóknarmarkstog-
ara á norður- og suðursvæði skuli náð með hámarki á karfaafla
togaranna, hærra á suðursvæði en norðursvæði og núverandi
svæðaskipting verði óbreytt. Þetta er samhljóða tillögum sjávarút-
vegsráðherra, en andstætt bréfi 32 þingmanna til ráðgjafarnef ndar-
innar, þar sem farið var á leit að svæðaskiptingin yrði afnumin.
Jafnframt samþykkti Fiskiþing að siglingaskattur verði ekki hærri
en 10% af botnfiskafla og ferskri loðnu seldri erlendis en ekki 20%
eins og segir í drögum frumvarps sjávarútvegsráðherra. Þá leggur
Fiskiþing til að veiðar smábáta verði með sama hætti og áður, en
komið verði í veg fyrir fjölgun bátanna.
Fiskiþinglð samþykkti nokkrar
breytingar á frumvarpsdrögum
sjávarútvegsráðherra, sem flestar
auka fijálsræði við fiskveiðar, en
VSÍ og VMSÍ slitu viðræðum í gær:
Vonir helst bundnar við
viðræður á Vestfjörðum
VIÐRÆÐUM Vinnuveitenda-
sambands íslands og Verka-
mannasambands íslands var
slitið í gær og sögðu aðilar að
bilið hefði verið það breitt að
viðræður væru þýðingarlausar.
Forustumenn VMSÍ sögðu í gær
að aðildarfélögin myndu í ljósi
þessa gera þær ráðstafanir sem
þau teldu viðeigandi.
Gunnar J. Friðriksson formaður
VSÍ sagðist ekki sjá flöt á samn-
ingum nú nema eitthvað nýtt
kæmi til. Fram kom hjá báðum
aðilum að nokkrar vonir séu
bundnar við þær viðræður sem nú
standa yfir um kjarasamninga á
Vestfjörðum.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra segir að það fari
meðal annars eftir því hvað gerist
á vinnumarkaðnum hvemig ríkis-
stjóminni gangi að standa við
fastgengisstefnuna. Hann segir þó
að ekki sé yfirvofandi það ástand
að hægt sé að segja að gengis-
felling sé óumflýjanleg og Islend-
ingar hafí oft séð það svartara.
Sjá ummæli fjármálaráð-
herra bls. 2 og ummæli
forystumanna VMSÍ og VSÍ
bls. 35.
eiga ekki að auka heildarafla. Sam-
þykkt var að til þess að draga úr
útflutningi á ferskum fiski verði
sóknardögum togara fækkað um
10 á sumrin og þeir færðir yfir á
veturinn; Að sóknarmarksskip fái
að flytja til sín afla með óbreyttum
sóknarmarksdögum án þess að það
hafi áhrif á aflareynslu þeirra eða
aukningu heildarafla. Að rækju-
veiðum verði stjómað með kvóta á
hvert skip, þar sem tekið verði mið
af aflareynslu síðustu þriggja ára
og kvótinn verði framseljanlegur.
Þá var ennfremur lagt til að gild-
istími Iaga um fískveiðistjómun
verði fjögur ár.
Af öðrum samþykktum má nefna
áskorun til sjávarútvegsráðuneytis-
ins að reynt verði að ná samningum
um kaup á loðnukvóta af Græn-
lendingum og full aðild Landssam-
bands smábátaeigenda og Félags
rækju- og hörpudiskframleiðenda
að Fiskifélaginu og Fiskiþingi. Við
umræður um fiskveiðistefnuna kom
engin tillaga fram um verðlagningu
á fiski.
Loks má nefna samþykkt um
vinnuaflsskort í fiskvinnslu sem er
svohljóðandi: „Þingið fordæmir þau
vinnubrögð, sem viðgengizt hafa
hjá aðilum vinnumarkaðarins, að
nota samninga fiskvinnslufólks, er
byggðir eru á föstu gengi, sem
stökkpall í samningum við aðrar
atvinnustéttir, sem síðan semja um
hærri laun. Þeim er hleypt beint út
í verðlagið með aukinni verðbólgu
og fiskvinnslufólk skilið eftir verr
statt en það var áður.“
Fiskiþingi lýkur í dag, en frum-
varp um stjómun fískveiða verður
væntanlega lagt fram á Alþingi í
næstu viku.
Sjá nánarí umfjöllun af Fiski-
þingi í miðopnu.
Vestmannaeyjar:
Ibúar vilja
láta rífa
„gosminjar“
Þijátíu og fimm íbúar við
Kirkjubæjarbraut í Vestmanna-
eyjum hafa skorað á bæjaryfir-
völd að láta rífa rústir hússins
nr. 18 við Kirkjubæjarbraut. Hús-
ið varð að hluta til undir hrauni
við gosið 1973, og telja íbúarnir
það slysagildru.
Að sögn Amalds Bjamasonar,
bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, hef-
ur verið litið á húsið sem minjar frá
gosir.u, og ekkert verið gert til að
lagfæra það. Hann sagði hins vegar
augljóst að húsið væri slysagildra,
þar sem þak er ónýtt og gluggar
opnir, og böm komast hindrunarlítið
inn í húsið og upp á þak þess.
Málinu hefur verið vísað til gos-
minjanefndar sem mun gefa álit
hvort varðveita eigi húsið.