Morgunblaðið - 20.11.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
41
Fjöður hauksins hugprúða
og fleiri rússnesk ævintýri
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Fjöður hauksins hugprúða og
fleiri rússnesk ævintýri.
Myndir: I.A. Balibin.
Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir.
Prentverk: Útgáfan Skálholt.
Útgefandi: Mál og menning.
Þetta er undurfögur bók, mynd-
imar frá því um aldamót, svo fagrar
og sterkar, að unun er að, og
skreytingar, sem faðma hveija síðu,
eru líka listavel gerðar. Hér birtast
fjögur ævintýri: Fjöður Hauksins
hugprúða, María Morevna, Vass-
ilísa fagra og Froskaprinsessan.
Sjálfsagt eru þau valin saman af
því að innviðir þeirra eru eins: Bar-
átta milli góðs og ills, og með því
að söguhetjan gengur til orrustu í
þjónustu kærleikans, sem allar
píslir þolir, þá næst sætur sigur að
lokum. í hinu fyrstu eru þijár dæt-
ur. Hinar eldri tvær tildurrófur, en
hin yngsta augasteinn föður síns.
Er hann gaf þeim gjafir, báðu hinar
eldri um ytra pijál, en sú yngsta
um ijöður Hauksins hugprúða.
Lengi vel tókst karli ekki að verða
við þessari bón, en þar kom, að
Ijöðrin varð föl, keypt, og mærin
fagra eignaðist dýrðar stundir. Of-
und systranna eldri rændi hana
gleðinni, en með ótrúlegu þreki, og
hjálp dísa, náði hún að höndla ham-
ingjuna á ný.
María Morevna er saga af ívan
prinsi, sem verður ástfanginn af
Maríu, en missir hana í hendur
Kosejeis hins ódauðlega. Þeir eiga
marga orrustuna um, stúlkuna, Ivan
meira að segja brytjaður í spað, en
með hjálp mága sinna þriggja og
heillavætta lýkur sögunni á undra-
verðan hátt.
Þá er það Vassilísa, fagra kaup-
mannsdóttirin. Hún eignast grimma
stjúpu og tvær stjúpsystur, eldri.
Öfund þeirra og aft>rýði leiða hana
í marga þraut, en allar sigrar hún
með hjálp brúðu, sem móðir hennar
blessuð hafði gefið henni á dánar-
beði ásamt blessun sinni. Þessa
sögu ættu böm ekki að lesa undir
háttinn.
Síðast er það Froskaprinsessan.
Ivan var yngstur þriggja kóngs-
sona. Með ör af bogastreng skyldu
þeir velja sér konu. ívan fann frosk
með ör hans í munni. Hann varð
að taka froskinn sér fyrir konu, og
átti bága tíð. Undur tóku að ger-
ast. Óðagot sitt á sælli stund varð
ívan að greiða dým verði, en það
reyndist líka þess virði.
Ævintýri em engu lík, meitlast
og slípast í þjóðarsál, þar til gullið
verður eitt eftir. Það á erindi við
bamið, líka öldunginn, hvort skilur
og les á sinn hátt. En þegar langt
er milli menningarsvæða, þá þarfn-
ast lesandinn skýringa. Því sakna
ég formála fyrir bókinni, þar sem
gerð væri grein fyrir þjóðtrú Rússa.
Hvaða dísir em Baba-Jaga, og hver
er Kosejei hinn ódauðlegi? Aftur
og aftur kom þau við sögu, vöktu
mér spumir, sem bókin svarar ekki.
Þýðing Ingibjargar er á mjög
fögm máli og litríku, en stfllinn
samt látlaus og tær, eins og ævin-
týmm sæmir. Hafi hún þökk fyrir
sitt verk.
En mér brá, er ég sá hve illa
próförk er lesin, og það í bók frá
Máli og menningu, sem leggur
metnað sinn í villulausan texta. Á
bls. 3 er semikomma fyrir upphróp-
unarmerki; á bls. 5 vantar spurning-
armerki; að mynnast við einhvem
er með y (20); grófu breytist í gróf-
ur (26); til breytist í tl (27); að
eitthvað sé listileg gert er ekki með
y, eins og haldið er fram á síðu 36
og í tvígang á síðu 40. Að rita eins
og og fyrr en í einu orði er rangt,
en við skulum sættast á það sé þó
smekksatriði.
Prentverk er vel unnið, utan það,
að sumir stafír textans em æði lún-
ir.
Titilsíða er frábærlega vel rituð,
en er kom að fyrirsögninni Vassilísa
fagra, þá hreinlega varð orðið mér
gáta, hafði ekki séð áður stöfum
staflað upp í orði, nema hjá litlum
bömum.
Mjög fögur, listræn bók með
heillandi ævintýra
Gamanleikhúsið sýn-
ir Gúnnní Tarzan
*
G AMANLEIKHÚ SIÐ sýnir
leikritið Gúmmi Tarzan eftir
Ole Lund Kirkegaard í Galdra-
loftinu Hafnarstræti 9 dagana
21., 22., 28. og 29. nóvember.
Leikendur em 18 og með aðal-
hlutverk fara: Magnús Geir
Þórðarson, Inga Freyja Amardótt-
ir, Guðmundur Eyfells, Erla Kristín
Ámadóttir, Hallgrímur Sveinn
Sævarsson og Siguveig Margrét
Stefánsdóttir. Leikstjóri er Magnús
Geir Þórðarson og sýningarstjóri
Guðmundur Eyfells.
Áður hefur leikhúsið sýnt Töfra-
lúðurinn, Gilitmtt á Hótel Loftleið-
um, Maddúsku í sjónvarpinu og á
Hóteli Loftleiðum og Brauðsteikina
og tertuna í Galdraloftinu. Gaman-
leikhúsið fór á þessu ári til Almelo
í Hollandi á fyrsta alþjóðaþing
bamaleikfélaga og sýndi þar
Brauðsteikina og tertuna.
Tveir leikendur
hússins.
Gamanleik-
yj-UUNGARNlR
ÓIRÍjí^gf S^SMLJÐ ALLTÞAÐ BP
'NAFATADEILD
!■ '' !
'i ' 1
k | ? M 4 !