Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 3

Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 3 Heimaskagi hf. á Akranesi: 60 manns sagt upp HEIMASKAGI hf. á Akranesi hefur sagt upp stórum hluta fisk- verkunarfólks sins frá og með 11. desember næstkomandi. Upp- sagnirnar eru tilkomnar vegna fyrirsjáanlegs hráefnisskorts, að sögn Jóns Helgasonar, fram- leiðslustjóra fyrirtækisins. Að svo stöddu er ekki hægt að segja til um hvenær hægt verður að endurráða fólkið. Fyrirtækið hefur á undafömum árum þurft að segja starfsfólki sínu upp í desember, en uppsagnir nú eru um hálfum mánuði fyrr á ferð- inni. Að sögn Jóns er það vegna þess að óvenju lítið hefur aflast að undanfömu. Hann sagði ennfremur að fólkið yrði endurráðið strax og það væri mögulegt Eldur í kjöllurum ELDUR kom upp í kjöllurum tveggja húsa í Reykjavík i gær. Ekki urðu skenundir miklar og gekk slökkvistarf vel. Slökkviliðið var fyrst kallað út um kl. 12.30. Þá logaði eldur í þvotta- húsi í kjallara hússins að Giljalandi 23. Þar var mikill reykur og fóm tveir reykkafarar inn til að slökkva eldinn. Það gekk greiðlega. Um kl. 15 var slökkviliðinu til- kynnt að eldur væri í kjallara hússins númer 87 við Frostaskjól. Þar reynd- ist loga í plasti í ófullgerðum kjallar- anum, sem var fullur af reyk. Slökkvistarf gekk vel og lítill sem enginn reykur komst upp f fbúðina. Uorgunblaðið/Ámi Sæberg Framkvæmdir hafnar hjá Lindálaxi Framkvæmdir eru hafnar við byggingu fyrsta áfanga laxeldisstöðvar Lindalax hf. á Vatnleysu á Vatnsleysuströnd. Jarðvinnuverktakinn undirbýr jarðveginn fyrir byggingar og eldisker. Myndin var tekin i vikunni, tæki verktakans komin á staðinn. Staðgreiðslukerfi opinberra gjalda 1988: Innheimtuhlutfall útsvars verður 6,7% Þýðir um 28,4% hækkun tekna sveitarfélaga á milli ára, að sögn félagsmálaráðherra reglugerð um innheimtuhlutfall útsvars 1988, en samkvæmt henni verður það 6,7%. Samband íslenskra sveitarfélaga gerði til- lögu um að innheimtuhlutfallið yrði 7,5% en að sögn félagsmála- ráðherra hefði það þýtt mikla hækkun á raungildi útsvara milli áranna 1987 og 1988 og verulega aukna skattbyrði. „Þótt ekki sé nú fallist á ýtrustu kröfur sveitarfélaganna í þessu efni, þá felur ákvörðunin um 6,7% innheimtuhlutfall í sér að hagur sveitarfélaganna ætti að batna verulega á næsta ári, en á því er full þörf. Mikil verðbólga um langt skeið hefur komið illa niður á sveit- arfélögunum og fjárhagsstaða þeirra er nú mjög slæm. Jafnframt því sem sveitairfélögin fá verulega auknar tekjur á næsta ári næst sá mikilvægi áfangi að gildasti tekju- stofn þeirra, útsvörin, verður verðtryggður," segir í frétt frá fé- lagsmálaráðuneytinu. Þar segir ennfremur að við 6,7% útsvarsálagningu verði áætlaðar tekjur sveitarfélaganna af útsvari um 9.290 milljónir króna í stað 7.235 milljóna króna 1987, sem er hækkun um 28,4% á milli ára. Út- svarstekjur sveitarfélaganna gætu samkvæmt því aukist um 750 millj- ónir króna_ að raungildi frá 1987 til 1988. Á þessu ári hefði áiagt útsvar numið um 7,2 milljörðum króna sem er um 5,5% af áætluðum tekjum einstaklinga á árinu, en til samanburðar mætti nefna, að skattbyrði útsvars 1986 hefði verið um 5,7%. Við 6,7% innheimtuhlut- fall væri áætlað að skattbyrði álagðs útsvars yrði um 6% af áætl- uðum heildartekjum einstaklinga á næsta ári, sem væri minni skatt- byrði en stefnt var að á þessu ári, sem var 6,2%. Að sögn félagsmálaráðherra mun hækkun útsvara ekki bitna á fólki með lágar tekjur enda væri nú reiknað með að rúmlega 40 þúsund króna mánaðartekjur einstaklings yrðu innan skattleysismarka. Byggingarvísitalan: Um 0,94% Veiðifélag Flóamanna leigir veioisvæði sín Stag hf. á Selfossi hyggst koma upp aðgengilegum útivistar- og veiðisvæðum Selfossi. FYRIRTÆKIÐ Stag hf. á Sel- fossi hefur tekið á leigu aUt veiðisvæði Veiðifélags Flóa- manna til tíu ára frá fyrsta desember næstkomandi. Hjá fyr- irtækinu er fyrirhugað að leigja svæðið út til stangveiði og að koma upp hafbeit og strandeldi á laxi. Einnig er ætlunin að auka fiskigengd á veiðisvæðinu, bæði laxa- og sjóbirtingsgengd. Veiðisvæðið sem um ræðir nær yfir Baugstaðaá, Bitrulæk, Hólaá og Tunguós, aðalskurði Flóaáveit- unnar upp að Brúnastaðastíflu og lækinn Fenu. Undanfarin ár hefur þetta svæði verið leigt til stangveiði og er vinsælt sem slíkt enda marg- ir fallegir veiðistaðir í friðsælu umhverfi á svæðinu. Aðallega hefur veiðst silungur á svæðinu en undan- farin ár hafa veiðst þama um 60 laxar á ári. Stag hf. hyggst koma upp veiði- húsum á vinsælustu veiðisvæðunum og gera svæðið sem aðgengilegast. Þá eru uppi hugmyndir um að út- búa veiðistaði í afgirtum hólfum í lækjunum og selja sérstök veiðileyfi í þau. Hjá fyrirtækinu eru uppi hug- myndir um að reyna hafbeit á laxi og koma upp aðstöðu fyrir slíkt . Einnig er ætlunin að sleppa silungi í lækina til að auka sjóbirtings- og silungsveiðina. Með þessu framtaki fyrirtækisins er kominn vísir að víðáttumiklu útivistarsvæði sem aðgengilegt verður fyrir almenning að fá afnot af eins og Guðmundur Sigurðsson formaður stjómar félagsins komst að orði. Auk hans eru eigendur að Stagi hf. Agnar Pétursson og Snorri Ólafsson. Sig. Jóns. Morgunþlaðið/Ingvar Guðmundsson Slökkviliðið var tvívegis kallað út f gær vegna elds f kjöllumm. JÓHANNA Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, gaf í gær út Brunamálastjóri segir lítið gagn af rannsókn lögreglu: Nauðsynlegt að stofnunin athugi sjálf stærri bruna Fiskvinnslunni í Garði ekki nægilega vel skipt í eldvarnarhólf Brunamálastjóri segir að Brunamálastofnun geti ákaf- lega Iftið gagn haft af rannsókn lögreglu á ástæðum bruna og vill hann að stofnunin geri sjálfstæða athugun á öllum stærri eldsvoðum. í samræmi við þessa skoðun Bergsteins Gissurarsonar brunamálstjóra skoðuðu starfsmenn stofnunar- innar rústir fiskverkunarhúsa Nesfisks hf. f Garði. Brunamálastjóri segir að þrennt sé nauðsynlegt að vita eft- ir stórbruna. I fyrsta lagi að upplýsa um upptökin og beindist rannsókn lögreglunnar fyrst og fremst að þeim þætti. í öðru lagi þyrfti að athuga hvaða möguleika eldurinn hefði haft til að breiðast út. Þær upplýsingar þyrfti stofn- unin að hafa vegna athugunar á teikningum og úttekt á bruna- vömum í eldri húsum. í þriðja lagi þyrfti Brunamálastofnun upplýsingar um slökkvistarfið vegna leiðbeininga á því sviði. Bergsteinn sagði að upplýsingar um tvo síðari þættina kæmu ekki í gegnum rannsókn lögreglunnar en óviturlegt væri að nota ekki tækifærið til að afla reynslu og þekkingar í kjölfar stærri bruna. Branamálastjóri segir að ekki sé gert ráð fyrir sjálfstæðri athug- un stofnunarinnar í lögum eða flárveitingum en sagði að nú stæði yfír endurmat á tekjunum og von- aðist til að úr rættist. Aðspurður um hvaða lærdóm hægt væri að draga af brana físk- verkunarhúsanna f Garðinum sagði Bergsteinn: „í þessu tilviki má fyrst og fremst sjá hve mikil- vægt er að svona byggingum sé skipt upp í eldvamarhólf með eld- vamarveggjum. Þama hefði að öllum líkindum verið hægt að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins ef byggingin hefði verið þannig. Þama vora geymslar fullar af afurðum og verða menn að sjá um að slík tugmilljóna króna verð- mæti séu geymd eins og þeim hæfír. Nauðsynlegt er að hægt sé að veija sérstaklega slíka ein- ingu. Þá þurfa umbúðageymslur að vera sér vegna þess hvað papp- inn í umbúðunum er eldfimur og gaskútar og slíkt þarf að vera út af fyrir sig. Sjá frásögn á bls. 33. hækkunfrá október HAGSTOFAN hefur reiknað visitölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi í nóvember 1987. Reyndist hún vera 107,5 stig, eða 0,94 hærri en í október, miðað við 100 stig á nýjum grunni í júní 1987. Þessi vísitala gildir fyrir desember 1987. Samsvarandi visitala miðað við eldri grunn, desember 1982/100, er 344 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 20,6%. Undanfama þijá mánuði hefur vísitalan hækk- að um 6,1% og jafngildir sú hækkun 26,8% verðbólgu á heilu ári. Af hækkun vísitölunnar frá október til nóvember stafa um 0,2% af hækkun gatnagerðar- gjalda, 0,1% af hækkun á verði eldhúsinnréttinga, 0,1% af hækk- un á verði innihurða og um 0,5% af hækkun á verði ýmissa vöra og þjónustuliða. (Fréttatilkynning.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.